Morgunblaðið - 02.02.1991, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FBBRÚAR 1991
, Eyjafjarðarferjan Sæfari;
Grímseyingar gagn-
rýna áætlanagerð
ÞORLÁKUR Sigurðsson oddviti i Grímsey segir að hreppsnefnd sé
óánægð með þau vinnubrögð sem viðhöfð voru þegar ný áætlun var
samin fyrir Eyjafjarðarferjuna Sæfara en hún tók gildi um áramót og
hefur m.a. valdið nokkrum skoðanaskiptum á milli Hriseyinga og
Grímseyinga á síðum Morgunblaðsins. Enginn aðili í hreppsnefnd
Grímseyjar var spurður álits þegar nýja áætlunin var samin, en Þorlák-
ur á sæti í nefnd þeirri sem fer með málefni ferjunnar fyrir hönd
' Grímseyinga.
Einnig er hreppsnefnd ósátt við
áætlunardagarnir, en til Grímseyjar
kemur ferjan á þriðjudögum og
fimmtudögum. Hreppsnefnd mælir
því með að fetjan sigli til Grímseyjar
á mánudögum í stað þriðjudaga enda
líði þá færri dagar milli ferða.
Þá vildi Þorlákur einnig að fram
kæmi, að ekki væri rétt, að Grímsey-
ingar komi ekki fiski á markað eins
og fram kom í frétt vegna þessa
máls. Sé fiskur sendur með feijunni
frá Grímsey, kemur hann ekki á
áfangastað á Daivík fyrr en degi
síðar og við það fyrirkomulag séu
sjómenn í Grímsey og fiskkaupendur
á Dalvík ósáttir.
HSH
Eyjafjörður:
Fjölgar ferðamömium?
ÞORLEIFUR Þór Jónsson starfsmaður samstarfshóps um ferðamál á
Akureyri segist búast við auknum ferðamannastraumi hingað næsta
sumar. Snjóleysið í vetur sé hins vegar áhyggjuefni og Ijóst að aðilar
í ferðaþjónustu verði af tekjum rætist ekki úr.
Þorleifur Þór segir að búist sé við
ferðamannastraumi til landsins
næsta sumar aukist um 8-10%. Hann
segir að gert sé ráð fyrir að hlutur
Eyjafjarðarsvæðisins aukist m.a. í
kjölfar þess að fleiri farþegar komi
beint til Akureyrar með flugi frá
Sviss. í sumar er áætlað að fara tíu
ferðir á milli Ziirich og Akureyrar
og sagði Þorleifur að þær gætu orð-
ið fleiri, en í fyrrasumar voru farnar
sjö ferðir milli þessara staða.
Snjóleysið í Hlíðarfjalli sagði Þo-
reifur vera mönnum áhyggjuefni,
skíðavertíðin stæði að jafnaði frá
jólum og fram að páskum og því ljóst
að hún mun styttast nokkuð nú.
Hann sagðist reikna með að hver
ferðamaður sem hingað kæmi eyddi
að minnsta kosti tíu þúsund krónum
á dag, í mat, gistingu, skíðaferð og
skemmtanir og margfeldisáhrif þess
væru umtalsverð.
Á hinn bóginn væri ánægjuefni
hversu vel Ættarmótið gengi hjá
Leikfélagi Akureyrar, en fjölmargir
utanbæjarmenn hefðu komið í bæinn
í þeim erindum að sjá verkið.
Fiskverkun KEA í Grímsey:
„Mér ögnsi þau vindaský“
Athygli margra Akureyringa beindist í gær að þessum háreista skýja-
bakka yfir bænum. Að sögn Páls Bergþórssonar veðurstofustjóra er
þarna um að ræða vindaský, stundum kölluð oddaský eða ijallabylgjur,
og er þessi bólstur óvenjuháreistur og myndaður úr mörgum lögum.
Ský af þessu tagi, sem jafnan fylgja miklum raka, myndast í grennd
við fjöll og boða hvassviðri. Páll Bergþórsson sagði að ef til vill hefðu
þau verið þessum lík skýin sem gamall þulur sá yfir Breiðafirði þegar
Eggert Ólafsson ýtti frá grárri Skor í kvæði Matthíasar Jochumssonar.
Sjómenn í föstum viðskiptum fá
7 0 krónur fyrir kílóið af þorski
Hámarksverðmætum náð út úr aflanum og þannig hægt að greiða hærra hráefnisverð
FISKVINNSLUSTÖÐ KEA og Fiskverkun KEA í Grímsey hafa gert
samkomulag við sjómenn sem eru í föstum viðskiptum við þessar
stöðvar á tímabilinu 1. janúar til 15. apríl, en í því felst m.a. að þær
greiða 70 krónur fyrir kílóið af óslægðum línu- og netaþorski í 1. og
2. flokki.
Ákveðið var að greiða sama verð
fyrir óslægðan línu- og netaþorsk.
Greiddar verða 70 krónur fyrir kíló-
ið af þorskinum, sem er allnokkru
hærra verð en greitt var á síðasta
ári. Fyrir 3. flokk verða greiddar
30 krónur á kílóið og 45 krónur
fyrir undirmálsþorsk. Greiddar
verða 70 krónur fyrir kilóið af ýsu
á tímabilinu, 35 krónur fyrir ufsa,
, 40 krónur fyrir steinbít, 28 krónur
fyrir karfakílóið og 60 krónur fyrir
skarkola, en það er eina fisktegund-
in sem miðað er við að verði slægð.
Tekið er við afla þeirra Grímseyj-
arbáta sem eru í föstum viðskiptum
við Fiskverkun KEA í Grímsey við
skipshlið. Nær allir bátar Grímsey-
inga verða í viðskiptum við fisk-
verkunina, utan þeir sem afla fyrir
eigin fiskverkun í eynni.
Jóhann Þór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Fiskvinnslustöðvar
KEA í Hrísey sagði að markmið
félagsins væri að verka sem mest
af aflanum í Grímsey, allur neta-
þorskur yrði saltaður þar, en
smærri þorskur og aukfískur yrði
fluttur yfir til Hríseyjar og unninn
þar í frystingu. „Við viljum nýta
þau hús sem þarna eru og þann
mannskap sem okkur býðst. Þannig
að þeir sem skipta við okkur styrkja
um leið atvinnulífíð í sinni heima-
byggð,“ sagði Jóhann.
Síðasta ár hefur sá háttur verið
hafður á, að stærri þorskur er verk-
aður í salt úti í Grímsey, en hinn
minni er fluttur til Hriseyjar þar
sem hann fer í frystingu. Með því
móti sagði Jóhann að unnt væri að
ná hámarksverðmæti út úr öllum
afla sem að landi kæmi og þannig
væri hægt að greiða hærra hráefn-
isverð. „Verðlagning á fiski er
stundum þannig að menn eru búnir
að verðleggja frá sér talsvert af
verkuninni. Ég held að menn séu
Fyrirlestur
um uppruna
Mazurka
PRÓFESSOR Marek Podhajski
heldur fyrirlestur á sal Tónlistar-
skólans á Akureyri næstkomandi
þriðjudag, 5. febrúar, kl. 20.
Fyrirlesturinn fjallar um upp-
runa Mazurka, form og túlkun
og verða leikin tóndæmi af
hljómplötum.
Prof. Marek Podhajski er pólskur
að uppruna, hann hefur kennt tón-
vísindi og tónsmíðar við tónlistarhá-
skólann í Gdansk og var forstöðu-
maður „Institute of Theory of
Music“ sem er hið eina sinnar teg-
undar i Póllandi. Hann hefur sér-
staklega kynnt sér pólska samtíma-
tónlist, birt greinar og haldið fyrir-
lestra víðs vegar um heim um upp-
runa hennar og form, en hann er
nú kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku, en þýddur jafnóðum yfir á
íslensku.
Bílaleigan
Geysir opn-
ar útibú
BÍLALEIGAN Geysir hefur opn-
að útibú fyrir starfsemi sína á
Akureyri, en það er við Hvanna-
velli.
í útibúi Bílaleigunnar Geysis á
Akureyri fást bifreiðar af öllum
stærðum og gerðum til leigu, sem
og bílasímar, kerrur og annað sem
tilheyrir. Geysir hefur nýlega end-
urnýjað samning við ríkið, en það
er fimmta árið í röð sem slíkur
samningur er gerður.
Geysir rekur útibú á Egilsstöð-
um, Höfn í Hornafirði, Húsavík,
ísafírði, Keflavík, Sauðárkróki,
Seyðisfirði, Vogum á Vatnsleysu-
strönd auk Akureyrar og
Reykjavíkur.
að átta sig á því að það er ekki
allt fengið með því að skella físki
á markað, það er margs konar
kostnaður sem því fylgir, en um
hann er sjaldnast rætt þegar verið
er að básúna hið háa verð sem þar
fæst,“ sagði Jóhann.
Bollukaffi Þórs
Þó svo enn sé rúm vika í bollu-
daginn láta Þórsarar það ekki aftra
sér frá því að hefja bollusölu í fé-
lagsheimili sínu, Hamri, á morgun,
sunnudag, frá kl. 15-17. Það er
Knattspyrnudeild Þórs sem sér um
bollukaffið en að auki er boðið upp
á kaffihlaðborð.
Vínartónleikar á Akureyri
Kammerhljómsveit Akureyrar heldur Vínartónleika á morgun, sunnu-
dag í íþróttaskemmunni á Akureyri og hefjast þeir kl. 17, en góðar
undirtektir við fyrstu Vínartónleika hennar á síðasta ári urðu hljóm-
sveitinni hvatning til að gera slíka tónleika að árvissum viðburði í
tónlistarlífi Akureyrar.
Hljómsveitin er skipuð 45 hljóð-
færaleikurum, en stjórnandi hennar
að þessu sinni er Páll Pampichler
Pálsson. Hann er landsþekktur sem
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands o g Karlakórs Reykjavíkur auk
þess að hafa verið afkastamikið og
eftirsótt tónskáld.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Signý Sæmundsdóttir,
sópran, og Óskar Pétursson, tenór.
Signý stundaði söngnám í
Reykjavík og síðar í Vínarborg um
nokkurra ára skeið, hún hefur sung-
ið í fjölmörgum óperum og á tón-
leikum bæði heima og erlendis.
Óskar er búsettur á Akureyri og
hefur hann sungið einsöng með
kórum, bæði á Norðurlandi og í
Reykjavík, m.a. hefur hann sungið
inn á hljómplötu með Skagfírsku
söngsveitinni.
A tónleikunum verða fluttir fjör-
ugir Vínardansar, auk léttra og
sígildra laga úr óperettum þeirra
Léhár, Strauss-feðga, Stolz og
fleiri.
BEINT FLUGi
HUSAVIK - REYKJAVIK - HUSAVIK
miðvikudaga t laugardaga # sunnudaga
Farpantanir:
Húsavík 41140
Reykjavík 690200
iÆ
fluqfélaq
nordurlands hf.