Morgunblaðið - 02.02.1991, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 02.02.1991, Qupperneq 37
IBNBIMHMMIMNMMM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1991 37 * Bjarni M. Olafsson, Skálakoti - Minning Fæddur 26. febrúar 1914 Dáinn 23. janúar 1991 Við, systkinin frá Ásólfsskála, eigum margs að minnast frá bernsku, góðu minningarnar eru okkur sérlega hugleiknar og eru margar þeirra tengdar afa okkar, Bjarna Marinó Ólafssyni, sem nú er genginn á vit feðra sinna. Ein af fyrstu minningunum um afa þar sem hann situr með okkur í fang- inu, syngjandi og trallandi, er ljós- lifandi í hugum okkar. Seinna, og við þá orðin örlítið stærri, dansaði hann við okkur til skrækja og skríkis. Afi var söngmaður mikill, ekki leið sá dagur til enda að ekki raulaði hann vers eða söng, jafnvel hástöfum. Ætlíð þótti okkur gaman hjá afa og ömmu og stundum svo að við tókum á það ráð að hringja til foreldra okkar og biðja um leyfi til að gista hjá þeim, ef undirtektir voru dræmar þá var jafnan borið við myrkfælni eða einhveiju álíka. Þetta gekk yfirleitt upp. Það var afskaplega þægilegt að lúlla uppi í hjónarúmi hjá afa og ömmu, ef við vorum þeim mun fleiri þá var fiat- sæng gerð við hliðina á rúminu. Aldrei sofnuðum við þó fyrr en far- ið hafði verið með bænir og faðir- vorið öll saman í kór. Afi hélt fé á tveimur húsum, annað þeirra er við Skálakot en hitt vestur af Ásólfsskála, þegar afi fór að gefa í því húsi kom hann gjarnan við heima og þáði kaffi- bolla, þegar hann síðan hélt af stað að nýju, vildum við oft ólm ganga með til kinda. Þótti okkur sérstak- lega gaman þegar að Miðskálaá var komið, en hún var of djúp fyrir stutt stígvéi okkar barnanna, svo afi tók okkur þá á hestbak yfir og þá var gaman að lifa. Afi mundi tímana tvenna og hélt hann við gamlar venjur og siði. Ekki ber þó að skilja þetta þannig að hann hafi verið tregur til að taka tæknina í sína þjónustu, síður en svo. Trúrækni vár afa í blóð borin, á sunnudögum var hvíldardagurinn í heiðri hafður og var honum til dæmis óljúft að slá túnin á sunnudögum. Árið 1983 var örlagaár í lífi afa, en þá fékk hann hjartaáfall, þrátt fyrir áfallið náði hann sér að fullu á nýjan leik og kenndi hann sér ekki meins þar til kallið kom. Árið 1985 fluttu afi og amma á Hvolsvöll og tók eitt okkar systkin- anna við búi á Skálakoti. Var það nú samt ekki eins og afi væri hætt- ur búskap því hann fylgdist vel með öllu sem að búskapnum sneri. Ekki leið á löngu, eftir að afi og amma voru komin á Hvolsvöll, að afi fékk sér 5 ær til að sjá um, var ekki sparað fóðrið i skjáturnar á þeim bænum. Nákvæmlega var blandað graskögglum og öðru fóðri ofaní skepnurnar. Annríki um sauðburð- inn var mikið og urðu vökunæturn- ar oft langar. Alltaf þegar maður kíkti inn í kaffi hvort sem það vat' í Skálakoti eða á Hvolsvegi 13 kom glaðvært andlit hans á móti og sagði „hahæ, nei eruð þetta þið já, komið þið nú sæl“. Svona gæti maður lengi hald- ið áfram. Viljum við þakka elsku afa okkar allar samverustundirnat' sem við fengum að njóta í lífi okk- ar og biðjum við guð að taka vel á móti honum. Einnig viljum við votta elsku ömmu okkar, Katrínu Mörtu Magnúsdóttur, okkar innilegustu samúð og biðjum við guð um að blessa hana í komandi framtíð. Guðmundur Jón og fjölsk., Katrín Birna og fjölsk., Sigríður og fjölsk., Einar Viðar Viðarsson NIÐÖRHENGD LOFT CMC kerti fyrir niðurhengd loft, er ur qalvaniseruöum malmi og eldþolið. CMC kerfl er auðvelt i uppsetningu og mjög sterkt. CMC kerfi er fest með stillanlcgum upphengjum sem þola allt að 50 kg þunga. CMC kerfi fæst i mörgum gerðum bæði sýniiegt og falið og verðið er ótrúlega lágt. CMC kerfi er serstaklega hannad Hrirtgið eftir fyrir loftplotur frá Armstrong frekari upplysmgum Einhaumboð á !■ Þ. ÞORGRIMSSON & CO Armúla 29 - Reykavík - sími 38640 Námskeiö og leshringar um andleg mál og heimspeki Vidfangsefnid er þróunarheimspeki og sálarheimspeki. Þeirri reglu er fylgt aö lesa ekki tvœr bcekur samfellt eftir sama hófund. Byryaö veröur á bókinni BRÉF UM DULFRÆÐILEGA HUGLEIÐIIMGU efiir Alice A. Bailey og tíbetska ábótann Djwhal Khul. Þátttökugjald er kr. 1.500,- á mánuöi. Upplýsingar í síma 91-79763. Samtök áhugamanna um heimspeki. Bjarni M. Ólafsson, fyrrum bóndi að Skálakoti undir Eyjafjöllum, dó 23. janúar sl. tæpra 77 ára gam- all. Bjarni varð fyrir alvarlegu hjartaáfalli fyrir 9 árum en virtist ná sér nokkuð vel, en banamein hans varð þó sama eðlis. Bjarni fæddist 26. febrúar 1914 og var uppalinn í Skálakoti. Hann var sonur hjónanna Ólafs Eiríksson- ar og Guðrúnar Nikólínu Snorra- dóttur. Ólafur var af skaftfellskum ættum, alinn upp í Drangshlíð und- ir Eyjaijöllum, en Guðrún var frá Skálakoti. Systkini Bjarna voru sex, tveir bræður og fjórkr systur og var Bjarni elstur þeirra. Bjarni kvæntist Katrínu Mörtu Magnúsdóttur frá Steinum og hófu þau búskap í Skálakoti 1942 og bjuggu þar, þar til þau brugðu búi 1985 og fluttust þá að Hvolsvelli. Bjarni og Katrín eignuðustu fjögur mannvænleg börn, en þau eru: Magnús, rafvirki á Hvolsvelli, Rúna, húsmþðir í Reykjavík, yiðar, bóndi að Ásólfs- skála, og Ólafur Líndal, bóndi að Stóru-Hildisey. Það var mikill fengur og mikið lán fyrir mig og alla rnína ijölskyldu að verða þess aðnjótandi að kynn- ast þessum sæmdarhjónum og þeirra fjölskyldu allri. Kynnin hóf- ust þegar þijú barna okkar, hvert á eftir öðru, voru sumarlangt að Skálakoti og að Ásólfsskála. Ollum var þeim sýnd einstök nærgætni og alltaf fengu þau að vera með í öllu því, sem búskapurinn krafðist, bæði til starfs og leiks. Bjarni var mikill gleðimaður, söngelskur og fróður. Hann var létt- ur í spori og léttur í lund. Hann gekk mikið um sína landareign og alltaf var jafn gaman að hitta hann til skrafs og ráðagerða og til að fræðast af honum. Nú er Bjarni allur. Öll mín fjöl- skylda saknar hins ágæta drengs og við biðjum algóðan Guð að blessa Katrínu og alla hennar fjölskyldu og þökkum að við urðurn þess að- njótandi að eignast þau sem vini. Viggó E. Maack og fjölskylda •'.! 5 jjV ~ fj, C " - _ ..........................•. WSIÍmlllÍlí Hvort sem þú ætlar í kjölfar Kríunnar eða bara sigla í sumarfríinu, sýndu fyrirhyggju og lærðu að sigla. í Siglingaskólanum er nú byrjað að bóka á skútusiglinganámskeið sumarsinssemerufyrirfullorðiðfólk. Námskeiðin hefjastum miðjan maí 1991 og eru bæði fyrir byrjendur og lengra.komna. Hægt er að velja dagnámskeið eða kvöld- og helgarnámskeið. DAGNÁMSKEIÐ: Mánudag til föstudags kl. 08.00-16.00.40 stundir alls. KVÖLDNÁMSKEIÐ: Mánudag til föstudags kl. 18.00-20.00 og laugardag og sunnudag kl. 08.00-18.00.40 stundir alls. SIGLINGASVÆÐI: Sundin við Reykjavík og Kollafjörður. Nágrannabæir heimsóttir VERÐ: Dagnámskeið: kr. 20.000 Kvöld- og helgarnámskeið: kr. 22.000 Hjónaafsláttur15% Staðfestingargjald: Við bókun barf að greiða 25% námskeiðsgjalds. Upplýsingar í síma 91-68 98 85 og 51092. Hringið og fáið sent upplýsingarit um verklegt nám í skólanum og bóklegt, bæði til 50 tonna prófs og úthafssiglinga. SICLINCASKÓUNN medlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA. 0PNAÐIDAG ★ Leikfimiföt 990 kr. ★ Nærbuxur 3 stk. 590 kr. ★ Handklæði 350 kr. ★ Krumpugallar 3.900 kr. ★ Herra-Zdömupeysur 1.990 kr. MARKAÐSHÚSIÐ, Snorrabraut 56 (2. hæð), 16131

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.