Morgunblaðið - 02.02.1991, Síða 42
81' ieet HAÚHH3'*! .2"H0OAQHAOUAJ ClIOAJaMUOIIOM
42 7“ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚÁR 1991
fclk í
fréttum
BREYTINGAR
Fargaði lokk-
unum fyrir
hlutverkið
Það er ekki víst að allir beri
kennsl á leikkonuna sem
stendur við hlið Michaels Caine á
meðfylgjandi mynd og er þetta þó
ein þekktasta kvikmyndaleikkonan
vestan hafs. Hún heitir Sigourney
Weaver og aðalsmerki hennar hefur
verið mikill og dökkur hárlubbi.
Ein af helstu myndum Weaver
var kvikmyndin Alien og síðan Ali-
ens. Þegar ákveðið var að freista
enn gæfunnar og gera Aliens 3 kom
upp úr dúrnum að til að passa áfram
'j í hlutverkið varð Weaver nú að
vera stuttklippt. Og eins og sönnum
hermanni sæmdi, skoraðist hún
ekki undan skyldunni og sjá má
útkomuna á meðfylgjandi mynd
sem tekin var í einhverri af ótal-
mörgum móttökum eða hanastél-
sveislum sem þetta fólk er að sögn
meira og minna á kafi í ef ekki eru
einhveijar upptökur í fullum gangi.
Til þess var tekið, að þrátt fyrir að
vel fari á með þeim Weaver og
Caine, þá hafi þau ekki skilið við
maka sína til að taka saman, "held-
ur séu þau einfaldlega góðir vinir
í algengustu merkingu þeirra orða.
r Lokkarnir löngu eru horfnir ...
FARANGUR
41 taska Eltons Johns
langt frá metinu!
Raven Symone, ásamt Bill Cosby og
sjónvarpsföður sínum Joseph
Phillips. En á innfelldu myndinni
sést Bill Cosby ásamt Keshiu Knight
Pulliam fyrir tíð Ravens Symone.
Það hefur verið mikið að gera
hjá Eltoii John, stórpopparan
um, í seinni tíð. Hann hefur víða
komið fram og sungið og spilað
og síðasta breiðskífa hans, „The
very best of Elton John“ sem hef-
ur að geyma vinsælustu lög hans
í gegnum árin, hefui; rokselst. Það
kom því að því að Elton þyfti að
taka sér gott frí og var afráðið
að halda í tveggja mánaða slökun
til Bandaríkjanna. Ferðinni var
fyrst heitið til Flórída, síðan Be-
verly Hills og Hollywood. Þetta
væri ekki í sérstakar frásögur
færandi nema vegna þess að Elton
ferðast ekki eins og hver annar
meðal-Jón.
Elton John er ekki með eins eða
tvær ferðatöskur og eina um öx-
lina eins og flestir myndu láta sér
duga. Nei, Elton hafði með sér
41 ferðatösku, allar stórar og rúm-
góðar. Var svo frá sagt, að skipu-
lagið hafi verið alveg hreint hundr-
að prósent. Skyrtur í tveimur tösk-
um, gleraugu í einni, buxur í
tveimur, sundskýlur í tveimur og
svo framvegis.
Þyki fólki þetta eitthvað umtals-
vert, sem það raunar er, má geta
þess að þegar Elton John var á
Heathrow að leggja í ’ann hitti
hann vinkonu sína Joan Collins
sem var að koma heim eftir þriggja
vikna frí í Bandaríkjunum. Hún
hafði meðferðis 26 stórar og rúm-
góðar ferðatöskur, allar fullar og
vel það.
Það var og, þau Elton og Joan
blikna hins vegar við hlið Söru
Ferguson sem er talin eiga hið
óopinbera met í þessari vafasömu
samkeppni. Og haldiði ykkur nú:
Þegar Fergie kom úr verslunar-
leiðangri til New York árið 1989
var hún vægast sagt með dráps-
klyfjar, 53 stórar ferðatöskur, all-
ar fleytifullar af nýkeyptum vam-
ingi!
Manilow eða Sadick?
HUGARFLUG
Tvífari Manilows
Söngvarinn flauelsmjúki Barry Manilow hef-
ur boðið tvífara sínum, sölu manninum
Russ Sadick í Kaliforníu, hundruð þúsunda ef
tvífarinn fallist á að fara í skurðaðgerð og
breyti andliti sínu! Manilow vill að nefi
Sadicks verði gerbreytt en Sadick hefur af því
miklar tekjur að herma eftir Manilow. Hann
gefur eiginhandaráritanir í nafni goðsins og
hreyfír varirnar á myndböndum í takt við tón-
list Manilows. Og svo líkir eru þeir, að hala-
rófa aðdáenda fylgir Sadick hvert fótmál, þetta
hefur farið í taugarnar á Manilow, en Sadick
segist hafa orðið forviða er hann hafði spurnir
af því hvað hann þurfti til að vinna að hljóta
fúlguna. Fyrst hélt hann að Manilow væri að
kaupa sig til að láta af eftirhermum, en þegar
goðið hefði krafist þess að hann breytti nefi
sínu með skurðaðgerð hafi hann orðið reiður
og hafnað boðinu.
Elton John og ríflega helmingurinn af farangrinum!
VANDAMÁL
Ottast að Rudy litla sé
að fá anorexíu
Það er altalað vestur í Holly-
wood, að sjónvarpsíjöl-
skylda Bills Cosby er að mörgu
leyti ekki síður samrýmd sem um
raunverulega fjöiskyldu væri að
ræða. Nú hafa allir þar innanbúðar
miklar áhyggjur af Keshiu Knight-
Pulliam sem leikið hefur Rudy
Huxtable. Lengi framan af var
Rudy sú sem átti hug og hjörtu
allra, lítil, sæt og óborganleg. Hún
er nú 11 ára gömul og nú er kom-
in til skjalanna Raven Symone, fjög-
urra ára gömul fósturdóttir næst
elstu Huxtable-dótturinnar sem
leikin er af Lisu Bonet. Raven hef-
ur tekið traustum tökum hlutverk
„litlu. rúsínunnar" í þáttunum um
fyrirmyndarfjölskylduna og Keshia
litla tekur það víst afar nærri sér.
Það er haft eftir innanbúðar-
mönnum að Keshia sé flúin inn í
skel og ekki sé hægt að koma henni
í skilning um að hlutverki hennar í þáttunum
sé ekki ógnað. Það hafi aðeins breyst nokkuð
i eðli sínu. Keshia sé haldin þráhyggju um að
það sé hið versta mál að hún sé að eldast og
stækka. Hún sé akfeit og Bill Cosby sé í þann
mund að segja henni upp. Vinir og vandamenn
hafa miklar áhyggjur af þessu og segja Kes-
hiu lifa nær eingöngu á gulrótum og sóda-
vatni til þess að grenna sig. Allt stefni í að
barnið verði heltekið hinum hroðalega sjúk-
dómi „anorexíu nerv-
osa“, einkenni hafi þegar
gert vart við sig.
COSPER
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins I Reykjavík
BorgarfulltrúarSjálfstæðisflokksins
verða til viðtals íValhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum íveturfrá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 2. febrúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður skipulagsnefndar,
í borgarráði, hafnarstjórn, stjórn sjúkrastof.iana, stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins og
bygginganefnd aldraðra, og Hulda Valtýsdóttir, formaður menningarmálanefndar.
í
i) s)!
'W
t
W’
— Þú lítur ljómandi vel út í bikiní. Ég segi þetta við allar.