Morgunblaðið - 02.02.1991, Side 52
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Af hrossum undir kólgubökkum
Morgunblaðið / RAX
Veðurstofan hefur staðið í stórræðum að undanförnu, því miklar sviptingar hafa verið í veðrinu'og í gær var spáð snörpum vindi víða um
land. Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd af hrossum undir kólgubökkum, en ókyrrð sem fylgdi hestunum bar vitni
um blikur á lofti.
Skreiðarskuldir Nígeríumanna:
Ríkisaðstoð vegna skreiðar-
viðskipta um milljarður króna
Seðlabankinn tekur við ríkisskuldabréfum Nígeríu upp í skuldir
Ölafsvík;
Kyrrstæður
flutninga-
bíll fauk
Ólafsvík
Ofsaveður geisaði í Olafsvík und-
ir miðnætti í gærkvöldi og í einni
vindhviðunni kl. 22 fauk stór
flutningabíll á hliðina þar sem
hann stóð við hús á Ennisbraut.
Verið var að hlaða búslóð í bíl-
inn, en enginn maður var við hann
þegar hann fauk. Bíllinn var síðan
réttur við með gröfu, en hann hafði
skemmst lítið. - Alfons.
------♦ ♦ ♦----
Dvergasteinn, Seyðisfírði:
Beðið um
60-J0 millj.
ríkisaðstoð
STEINGRÍMUR Hermannsson
kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær
bréf frá Dvergasteini hf. á Seyðis-
firði þar sem óskað er eftir ríkis-
aðstoð við fyrirtækið. Sigurður
Jónsson, stjórnarformaður
Dvergasteins sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið
þyrfti á leiðbeiningu sljórnvalda
að halda, með hvaða hætti hægt
væri að aðstoða til þess að ráða
við þann rekstrarvanda sem fyrir-
tækið á í, nú þegár Hlutafjársjóð-
ur og Atvinnutryggingarsjóður
eru hættir að starfa.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki lægi fyrir
hversu mikla aðstoð Seyðisfirðingar
þyrftu, en reikna mætti með að þeir
þyrftu álíka upphæð og Patreksfirð-
ingar fengu á sínum tíma.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er talið að Dvergasteinn
þurfi 60 - 70 millj. króna til að geta
staðið í skilum og haldið rekstri
áfram. Ríkisstjórnin mun ekki hafa
tekið ákvörðun í máli Seyðfirðinga,
en vísað því til Byggðastofnunar.
Forsætisráðherra riíjaði upp að
þegar fyrsta yfirlit hafi borist frá
Atvinnutryggingasjóði, hafí komið
fram að sjóðurinn teldi að tvö mál
væri ekki hægt að leysa án gjald-
þrots, mál Patreksfirðinga og Seyð-
firðinga. Það væri nú komið fram,
sem upphaflegt mat hefði bent til.
SEÐLABANKINN hefur sam-
þykkt að taka upp í skreiðar-
skuldir Nígeríumanna ríkis-
skuldabréf Nígeríu. Frá þessu
var greint á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið
j gær að hann vonaði að Lands-
bankinn ákvæði að fara að dæmi
Seðlabankans og þar með væri
þetta mál afgreitt. Forsætisráð-
herra sagði að Seðlabankinn
teldi að opinber aðstoð vegna
Nigeríuskreiðarviðskipta næmi
'um einum milljarði króna á nú-
virði.
Steingrímur segir að það hafi
dregist ærið lengi að afgreiða þessi
skreiðarmál og eftirhreitur þeirra.
„Þetta rekur sig allt aftur til árs-
byijunar 1984 þegar markaðurinn
í Nígeríij hrundi. Allar götur síðan
hefur verið reynt að fá þessar
skreiðarskuldir Nígeríumanna
greiddar og sumt hefur alls ekki
fengist greitt,“ sagði forsætisráð-
herra.
Steingrímur sagði að á þessu sjö
ára tímabili hefðu skreiðarframleið-
endur fengið aðstoð í því formi að
vextir og dráttaiTextir hefðu verið
felldir niður. Auk þess hefði hluti
af skreiðarlánunum verið felldur
niður. „Nú var þetta endanlega af-
greitt þannig að Seðlabankinn hefur
■ samþykkt að taka upp í skuldina
hjá sér ríkisskuldabréf Nígeríu, sem
eru seld á opinberum markaði.
Þannig að ef þeir fá greitt þá geta
þeir keypt þau með einhveijum af-
föllum," sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að sam-
kvæmt upplýsingum Seðlabankans,
þá næmi opinber aðstoð nú vegna
skreiðarviðskiptanna einum millj-
arði króna. Eg tek það fram í þessu
sambandi að þessar tölur Seðla-
bankans eru framreiknaðar til
dagsins í dag, þannig að hér er átt
við núvirði og inn er reiknuð verð-
bólga, vextir og dráttarvextir, auk
niðurfellinga lána,“ sagði Stein-
grímur. Hann kvaðst telja það mik-
ils virði að þetta mál hefði nú verið
afgreitt. „Ég vona að Landsbankinn
sem er aðili að þessum viðskiptum
leysi þetta einnig á þennan máta.
Svo eru um 180 milljónir króna sem
koma_ í hlut ríkisins að taka á sig,
frá ÚtVegsbankanum," sagði for-
sætisráðherra.
Yarað við
flóðahættu
Slysavarnadeildin Þor-
björn í Grindavík var í við-
bragðsstöðu vegna yfirvof-
andi flóðahættu af völdum
djúprar lægðar sem spáð var
að gengi yfir landið suðvest-
anvert síðustu nótt og í morg-
un. Vakt var í bátum í höfn-
inni og menn beðnir um að
festa allt lauslegt.
Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri í Reykjavík, varaði
fólk við flóðahættu í borginni.
„Víða standa kjallarar mjög
djúpt og þetta er viðvörun til
þeirra sem svona búa að vera
á varðbergi gagnvart flóðum,“
sagði Ingi.
Næturvakt verður hjá borg-
arstarfsmönnum og getur fólk
kvatt þá til hjálpar flæði inn í
hús.
Eyjólfur Konráð Jónsson í samtali frá Vilnius:
Undrast afstöðu Jóns Baldvins
til viðurkenningar á Litháen
Borgarstjórnin í Vilnius ákveður að kenna götu við ísland
EYJÓLFUR Konráð Jónsson, sem sæti á í þingmannanefndinni sem
er í opinberri heimsókn hjá litháíska þinginu, sagði í samtali við
Morgunblaðið undrast mjög þau ummæli Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra að undirbúningur Litháa fyrir formlegt
stjórnmálasamband þjóðanna væri of skammt á veg kominn til að
hægt væri að taka upp stjórnmálasamband þjóðanna. Borgarstjórn-
in í Vilnius hefur ákveðið að kenna götu í borginni Island.
Þingmannanefndin átti fund með
Vytautas Landsbergis forseta Lit-
háens í gær og að sögn Eyjólfs
Koriráðs kom það margítrekað
fram í máli hans að þýðingarmikið
væri að ísiendingar sæju sér fært
að taka upp stjórnmálasamband
við Litháen. Eyjólfur Konráð sagði
að Landsbergis byggist við að Bor-
ís Jeltsín forseti Rússlands undirrit-
aði samkomulag um stjórnmála-
samband Litháens og Rússlands
innan einnar viku. „Þetta eru al-
deilis fréttir fyrir mig og fyrir þá,
að það standi upp á Litháa í þessu
máli,“ sagði Eyjólfur Konráð.
„Þeir hafa greinilega reiknað
með því að þetta gengi hraðar hjá
okkur því augljóst eftir viðræðurn-
ar við Landsbergis í dag að þetta
sé nú þeirra helsta haldreipi í þeim
slag sem þeir eru í núna. Þeir hafa
miklar áhyggjur af því að Jeltsín
sé að tapa sinni stöðu í rússneska
þinginu," sagði Arni Gunnarsson.
íslenska þingmannanefndin bar
Litháum þau boð að þeir sendu
þingmannanefnd til Islands og
jafnframt að Handknattleikssam-
band íslands hefði ritað Alþjóða-
handknattleikssambandinu bréf og
viðurkennt Eystrasaltslöndin sem
fullgilda félaga í sambandinu.
Sjábls.2