Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ ATtfiNNftráSiA/WfMífN'NifS; 3.' 'fEBRU AR 1991
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
N>mm
LANDSPÍTALINN
Aðstoðarlæknar
Lausar eru til umsóknar 7 stöður reyndra
aðstoðarlækna þar af 6 á lyflækningadeildir
og 1 á rannsóknarstofu í blóðmeinafræði.
Stöðurnar veitast frá 1. júní, 1. júlí eða 1.
ágúst 1991 eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita Þórður Harðarson, próf-
essor í síma 601266 og Sigmundur Magnús-
son, yfirlæknir í síma 601990.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar. Umsókn-
ir berist Þórði Harðarsyni prófessor.
Sjúkraþjálfari
Okkur vantar strax áhugasaman og duglegan
sjúkraþjálfara til starfa sem yfirsjúkraþjáif-
ara á taugalækningadeild. Staðan veitist til
næstu áramóta.
Umsóknir sendist til Valgerðar Gunnarsdótt-
ur, framkvæmdastjóra sjúkraþjálfunar
Landspítalans, sem veitir einnig nánari upp-
lýsingar í síma 601423.
Á Barnaspítala Hringsins eru eftir-
taldar stöður lausar tii umsóknar:
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður fyrir áhugasama hjúkrun-
arfræðinga á barnadeild 3 nú þegar eða
síðar.
Deildin er handlækningadeild fyrir 13 börn á
aldrinum 2'/2 til 16 ára. Góður aðlögunartími
með reyndum hjúkrunarfræðingi. Unnið er
3ju hverja helgi. Möguleiki er á hlutavinnu
og ýmsar vaktir koma til greina. Leitið upplýs-
inga hjá Önnu Ólafíu Sigurðardóttur, hjukr-
unardeildarstjóra í síma 601030 eða Herthu
W. Jónsdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra
í síma 601033 eða 601300.
Starf á leikskóla
Leikskóli í Hafnarfirði óskar að ráða starfs-
mann til uppeldisstarfa nú þegar. Daglegur
vinnutími er frá kl. 13.00-17.00. Skilyrði
umsóknar er fóstrumenntun eða önnur upp-
eldismenntun, en einnig kemur til greina að
ráða starfsmann með góða, almenna mennt-
un eða tónlistarkunnáttu.
Allar nánari upplýsingar gefur Margrét Pála
Ólafsdóttir, forstöðumaður, alla virka daga í
síma 653060-653061 og á kvöldin í síma
29798.
Ljósmæður
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar á vökudeild-gjörgæslu ný-
bura í 50% starf, nú þegar eða síðar.
Góður aðlögunartími með leiðbeinanda. Unn-
in er 3ja hver helgi. Upplýsingar gefur Ragn-
heiður Sigurðardóttir, hjúkrunardeildarstjóri
í síma 601040 erða Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 601033
eða 601300.
Á öldrunarlækningadeild
Landspítalans eru eftirtaldar stöður
lausartil umsóknar:
Hjúkrunar-
deildarstjóri
Hjúkrunardeildarstjóri óskast á öldrunar-
lækningadeild III frá 1. apríl eða eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar um nám og fyrri störf sendist
með umsóknum. Náhari upplýsingar veitir
Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 602266.
Aðstoðar-
deildarstjóri
Aðstoðardeildarstjóri óskast sem fyrst eða
eftir samkomulagi.
Hjúkrunarstjóri
Hjúkrunarstjóri óskast á 37,5% næturvaktir
nú þegar eða eftir samkomulagi.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast á öldrunarlækningadeild
Landspítalans.
Vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag eftir sam-
komulagi.
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast á fastar kvöld-
vaktir í 50-70% starf.
Allar nánari upplýsingar hjá Guðrúnu Karls-
dóttur, hjúkrunaríramkvæmdastjóra í síma
602266.
Skrifstofustarf
Heildverslun óskar að ráða starfskraft til al-
mennra skrifstofustarfa allan daginn. Ensku-
og tölvukunnátta nauðsynleg. Starfið er mjög
fjölbreytilegt í notalegu umhverfi og felst
m.a. í móttöku viðskiptavina, tollskýrslugerð,
ritvinnslu, símavörslu o.fl.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið
störf 1. mars 1991.
Umsóknum sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
merktum: „Samviskusöm - 6761“ fyrir 8.
febrúar 1991.
SðLnhf
m BORGARSPÍTALINN
Skurðlækningadeildir
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
skurðlækningadeildum Borgarspítala.
Deildirnar eru:
Almenn skurðlækningadeild.
Háls-, nef- og eyrnaskurðlækningadeild.
Heila- og taugaskurðlækingadeild.
Slysa- og bæklunarlækningadeild.
Þvagfæraskurðlækningadeild.
Einnig er laus til umsóknar staða aðstoðar-
deildarstjóra á þvagfæraskurðlækninga-
deild.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Gunnhildur Valdimarsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 696364.
Endurhæfinga- og taugadeild
Grensásdeild
Staða aðstoðardeildarstjóra á deild E-62
er laus nú þegar. Einnig eru lausar stöður
hjúkrunarfræðinga á deildum E-61 og E-62.
Upplýsingar um stöðurnar gefur Gunnhildur
Valdimarsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 696364.
Gjörgæsludeild
Lausar eru 2 stöður sjúkraliða frá og með
1. febrúar eða eftir samkomulagi. Möguleikar
á ýmis konar vinnuhlutfalli. Gjörgæsludeildin
gegnir mjög veigamiklu hlutverki í allri bráða-
og slysaþjónustu landsmanna og starfs-
reynsla þaðan því mikils virði.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Björns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696354.
Deild A-6
Hjúkrunarfræðingar óskast á fastar nætur-
vaktir og/eða kvöldvaktir. Vinnuhlutfall sam-
komulagsatriði. Deildin er almenn lyflækn-
ingadeild en einnig eru þar 4 rúm fyrir skurð-
lækingar (heila- og taugaskurðlækningar). Á
deildinni er sérstaklega góður starfsandi.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Björns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696354.
Hvergerðisbær
óskar að ráða
skrifstofustjóra
til starfa á skrifstofum bæjarins. Starfið felst
í yfirumsjón með daglegri fjármálastjórn,
bókhaldi og innra eftirliti, umsjón með gerð
fjárhags- og greiðsluáætlana svo og fram-
kvæmd þeirra. Skrifstofustjóri hefur yfirum-
sjón með daglegri stjórnun skrifstofu, skjala-
vörslu og starfsmannahaldi og annast auk
þess ýmis konar uppgjör og skýrslugerð.
Skrifstofustjóri starfar beint undir bæjar-
stjóra og aðrir nánustu samstarfsmenn eru
bæjartæknifræðingur og forstöðumenn bæj-
arins auk starfsfólks á skrifstofu. Starfið
býður uppá fjölþætta reynslu af opinberum
rekstri. Krafist er háskólamenntunar á sviði
stjórnunar eða viðskipta og/eða starfs-
reynslu. Æskilegt er að umsækjandi hafi
góða þekkingu á opinberum rekstri og geta
starfað sjálfstætt undir yfirstjórn bæjar-
stjóra. Umsækjendur þurfa að geta hafið
störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar um starfið eru gefnar á
bæjarskrifstofum í Hveragerði þesa viku á
milli kl. 10.00 og 12.00 í síma 98-34150.
Umsóknir sendist Bæjarskrifstofum,
Hverahlíð 24, 810 Hveragerði eigi síðar en
8. febrúar n.k. ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Hveragerði 1. febrúar 1991,
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
Okkur vantar Ijósmóður til starfa á fæðingar-
deild Skjólgarðs frá 1. mars nk. eða síðar
ef óskað er. Stöðugildi Ijósmæðra á heimilinu
er 1,1 og skiptist á tvær Ijósmæður. Fæðing-
arnar eru á bilinu 12-20 á ári. Vel kemur til
greina að ráða í fullt starf og þá yrði hluti
þess miðaður við almenn hjúkrunarstörf eft-
ir samkomulagi þar um.
Allar nánari upplýsingar gefur Ásmundur
Gíslason, framkvæmdastjóri, sími 97-81118
eða Vilborg Einarsdóttir, héraðsljósmóðir,
sími 97-81400.
Skjólgarður,
Höfn, Hornafirði,
Vegna aukinna umsvifa viljum við ráða sölu-
menn.
Við leitum að ungu, duglegu og áreiðanlegu
fólki með stúdentspróf eða sambærilega
menntun. Krafist er reglusemi, stundvísi og
snyrtimennsku. Æskilegur aldur 20-25 ára.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar veittar
á skrifstofu okkar
Sérhæfð ráðingarþjónusta,
Laugavegi 22A (bakhús), sími/fax 620022.
Opið frá kl. 10.00-12.00 og 13.00-15.00.