Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 16

Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 Orion og kranapramminn þar sem þeir liggja í Vestmannaeyjahöfn. Vestmannaeyjar: í lognfaðmi Friðarhafn- ar eftir stranga sig’lingn Vestmannaeyjum. ÞEIR voru hálf þreytulegir strákarnir á dráttarbátnum Ori- on sem kom til Eyja eftir langan túr til Wales. Þeir héldu frá Reykjavík 24. nóvember og ráð- gerðu koma heim aftur fyrir jól en slæm veður breyttu þeirri áætlun allmikið. Einar Kristbjörnsson, einn eig- enda Köfunarstöðvarinnar sem á Orion, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ferðin hefði verið farin til að sækja kranapramma sem þeir voru að kaupa í stað pramma sem sökk sl. haust. „Við fórum til Holly- head þar sem við keyptum pramm- ann en þaðan héldum við til Swansea þar sem við fengum kran- ann á hann. Það dróst talsvert að koma krananum um borð þar sem bíða þurfti eftir réttri flóðhæð til þess. Kraninn fór því ekki um borð fyrr en 22. desember og þá vorum við klárir til heimferðar. Það voru snarvitlaus veður þama úti og ekki viðlit að leggja af stað fyrr en 17. janúar en þá héldum við af stað heim,“ sagði Einar. Hann sagði að Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Áhöfn Orions. Frá vinstri: Eiríkur Steingrímsson, 2. stýrimaður, Matthías Magnússon, 2. vélsljóri, Einar Kristbjörnsson, stýrimaður, Júlíus Sigurðsson, 1. vélstjóri og Gunnar B. Gunnarsson, skipsljóri. þeir hefðu komið við í Eyjum til að lagfæra dráttartaugina. Skömmu eftir að þeir héldu frá Eyjum á ný slitnaði pramminn aftan úr og náði Lóðsinn í hann og dró til Eyja á ný. Orion liggur nú í Eyjum og bíður veðurs til að komast síðasta spölinn til Reykjavíkur. Veður hefur verið afieitt síðustu daga og veðurútlit er ekki gott þannig að óljóst er hvenær hann heldur af stað. Grímur Skýrsla Byggðastofnunar um loðnubrest í ár: Gera má ráð fyrir að allt að 800 menn verði atvinnulausir Hafnar- og sveitarsjóðir verða af allt að 200 milljónum EF ENGIN loðna verður veidd í ár má gera ráð fyrir einhveiju atvinnuleysi hjá allt að 800 sjómönnum, starfsmönnum loðnuverk- smiðja og þeim, sem starfa við löndun, útskipun, viðgerðir, netagerð og akstur. Um 5,4 milljarða króna útflutningstekjur tapast og tekju- skattstap ríkissjóðs. yrði 300-400 milljónir. Tapað aflaverðmæti er áætlað 3,3 milljarðar. Miðað er við að veidd hefðu verið 835 þúsund tonn af loðnu í ár, eða meðaltalið af þeirri loðnuveiði, sem var árin 1984-1990, segir í skýrslu, sem Byggðastofnun tók nýlega saman að beiðni forsætisráðherra. Áhrif loðnubrests á einstaka staði eru mjög mismunandi. Ætla má að í heild muni hafnarsjóðir verða af 40-50 milljóna króna tekj- um og sveitarsjóðir 120-150 millj- óna króna tekjum, eða samtals 160-200 milljónum. Seidar voru loðnuafurðir fyrir um 4,9 milljarða króna árið 1989, sem er 8,6% af útflutningsverðmæti sjávarafurða það ár en 6,1% af heildarútflutn- ingsverðmætinu. Loðnubrestur hefur áhrif á út- gerðir rúmlega 40 loðnuskipa og áhafnir þeirra, um 600 sjómenn. Gerð eru út 8 loðnuskip frá Vest- mannaeyjum, 8 frá Reykjavík, 6 frá Grindavík, 4 frá Eskifirði, 4 frá Akranesi, 3 frá Keflavík, 2 frá Neskaupstað, 2 frá Húsavík, 2 frá Akureyri, 1 frá Sandgerði, 1 frá Bolungarvík, 1 frá Ólafsfirði og 1 frá Grenivík. Þá hefur loðnubrestur áhrif á rekstur 20 loðnuverksmiðja á 18 stöðum á landinu og rúmlega 300 starfsmenn þeirra, svo og rekstur þjónustufyrirtækja, til dæmis neta- gerða, rafmagns- og vélaverk- stæða. Reikna má með einhveiju atvinnuleysi hjá 200-300 verka- mönnum í loðnubræðslum. Af þeim búa 54 á Siglufirði, 52 í Vestmanna- eyjum, 29 á Seyðisfirði, 25 á Nes- kaupstað, 24 á Eskifirði, 21 á Rauf- arhöfn, 17 á Þórshöfn, 15 á Akra- nesi, 13 á Reyðarfirði, 10 í Grindavík og 9 í Boiungarvík. Einnig gæti orðið eitthvert at- vinnuleysi hjá 100-150 mönnum, sem starfa við löndun, útskipun, viðgerðir, netagerð og akstur. Ætla má að á 12 stöðum hefðu yfir 5% af samanlögðum tekjum viðkomandi sveitarsjóða eða bæjar- sjóða verið af loðnuveiðum á þessu ári. Þessir staðir eru Vestmannaeyj- ar, Grindavík, Akranes, Bolung- arvík, Siglufjörður, Grenivík, Rauf- arhöfn, Þórshöfn, Seyðisfjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður og Reyðarfjörður.'Á þessum 12 stöð- um, sem tekið hafa á móti rúmlega 80% af loðnuafla til bræðslu undan- farin ár, má reikna með einhverju atvinnuleysi hjá allt að 360 sjó- mönnum. Þar af búa 109 í Vest- mannaeyjum, 83 í Grindavík, 59 á Eskifirði, 52 á Akranesi, 16 í Bol- ungarvík og 15 í Grenivík. Af áætluðum tekjum hafnar- og bæjarsjóðs Eskifjarðar á þessu ári eru 16% vegna loðnuveiði en þetta hlutfall er 13% á Raufarhöfn, 12% á Seyðisfirði, 9% á Þórshöfn, 8% á Neskaupstað, 6% á Reyðarfirði, í Grindavík og Grenivík, 5% á Siglu- firði og í Vestmannaeyjum en 3% í Bolungarvík og á Akranesi. í Grenivík er ekki loðnuverk- smiðja en tvær verksmiðjur eru í Vestmannaeyjum og tvær á Seyðis- firði. Einnig eru loðnuverksmiðjur í Sandgerði, á Akureyri, Vopna- firði, Ólafsfirði, Höfn í Hornafirði, í Hafnarfirði og Reykjavík. Málþing um rétt og farsæld barna ÍSLANDSDEILD OMEP - Alþjóðasamtaka um uppeldi ungra barna - gengst fyrir málþingi í Norræna húsinu laugardaginn 9. febrúar nk. kl. 10 f.h. Heiti málþingsins er: Rödd barnsins, Réttur barnsins, Farsæld barnsins í fyrirrúmi. Prófessor Björn Björnsson verð- ur ráðstefnustjóri. Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ávarpar þinjgið. 1 fréttatilkynningu segir m.a.: „Fjallað verður um barnið í nútímasamfélagi, þörfina á að hlusta á rödd barnsins, tala máli þess og stuðla að því að rétti barnsins sé framfylgt, bæði laga- legum og siðferðilegum. Fyrir- lestrarnir fjalla m.a. um sáttmála Sameinuðu þjóðanna 1989 um réttindi barnsins, frumvarp til laga um vernd barna og unglinga, sam- eiginlega forsjá barns og tímabær- ar breytingar á íslenskri barnalög- gjöf. Áuk þes verður rætt um rétt barnsins „til að vera barn“, um skólabamið og barnafjölskylduna og nauðsyn faraldsfræðilegra rannsókna á börnum." Fyrirlesarar verða Guðrún Er- lendsdóttir, forseti Hæstaréttar íslands, dr. jur. Ármann Snævarr, fyrrverandi hæstaréttardómari, Sigríður Ingvarsdóttir, formaður Barnaverndarráðs íslands, Anna Guðrún Björnsdóttir, deildarstjóri, Helga Hannesdóttir, geðlæknir, Sigríður Stefánsdóttir, fóstra, og Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslu- stjóri. Ráðstefnan er öllum opin. Ráð- stefnugjald er 500 krónur. Aðalfundur íslandsdeildar OM- EP verður haldinn að málfundin- um loknum í sömu húsakynnum. Nýi Tónlistarskólinn í nýtt húsnæði: Gerir okkur kleift að vera með fjölbreyttari kennslu - seg-ir Ragnar Björnsson, skólastjóri NÝI Tónlistarskólinn hefur flutt starfsemi sína í nýtt eigið húsnæði að Grensásvegi 3 í Reykjavík. Síðstu tíu árin hefur skólinn verið í leiguhúsnæði að Ármúla 44. Að sögn Ragnars Björnssonar, skóla- sljóra, kemur þetta húsnæði til með að gera skólanum kleift að vera með miklu nákvæmari og fljölbreyttari kennslu en áður. Nýi Tónlistarskólinn var stofnað- ur 1978. Fyrstu tvö árin var skólinn með starfsemi sína í Breiðagerðis- skóla. Síðan var starfsemin flutt í Ármúla 44. Síðastliðið haust festi skólinn kaup á húseign að Grensás- vegi 3, sem er um 550 fermetrar að grunnfleti. Húsnæðið var keypt tilbúið undir tréverk og var hafist handa við innréttingar, sem Björn Emilsson teiknaði, í október og var þeim lokið um áramótin. Ragnar Björnsson, skólastjóri, sagði að lengi hafi verið búið að leita að hentugu húsnæði fyrir starfsemi tónslitarskólans í nám- unda við Ármúla, þar sem skólinn var áður til húsa. „Um leið og hús- næðið að Grensásvegi bauðst var gengið í þetta með miklum hraða til að geta flutt inn um áramótin í jólfafríi nemenda,“ sagði Ragnar. Áætlaður kostnaður við nýja hús- næðið er milli 25 og 30 milljónir. Til að fjármagna kaupin hefur skól- inn sparað undanfarin ár. Garðar Ingvarsson, formaður skólanefnd- ar, sagði að skólinn hafí ekki feng- ið neina stryki frá ríki og bæ og að fé til húsnæðiskaupanna kæmi eingöngu af skólagjöldum nem- enda. í húsnæðinu eru 12 kennslustof- ur auk tónleikasals sem tekur 160 manns í sæti. Þar er hægt að koma fyrir minni óperum auk tónleika að ýmsu tagi. Tæplega 300 nemendur eru í skólanum og kennarar eru 33. Hljóðfæraeign skólans er metin á um 20 milljónir króna. Skólanefnd Nýja Tónlistarskól- ans hefur verið skipuð sömu mönn- um frá stofnun hans. Þeim Garðari Ingvarssyni, Gylfa_ Þ. Gíslasyni, Árna Bergmann og Ólafi Skúlasyni. Formleg vígsla húsnæðisins fer fram sunnudaginn 17. febrúar með tónleikum kennara og nokkurra nemenda. Þar munu kennarar leika á ýmis hljóðfæri til þess að reyna hljómburinn í húsinu. Þeir sem koma fram eru m.a. Jón Aðalsteinn Þorgeirsson sem leikur á klarinett, Árni Arinbjarnarson á orgel, Ásdís Stross á fiðlu og Kristinn Árnason á gítar. Tveir söngkennarar, Signý Sæmundsdóttir og Keith Reed, syngja og Rögnvaldur Siguijónsson leikur á píanó. Strokkvintett eftir Schubert verður fluttur, Orgelkon- sert eftir Hándel sem Ragnar Björnsson leikur ásamt strokhljóm- sveit o g hljómsveitarverk eftir Ragnar Björnsson, sem skrifað vár fyrir kennara skólans við þetta tækifæri. Hljómsveitarverk Ragn- ars heitir Á hlaupum. Morgunblaðið/KGA Garðar Ingvarsson, formaður skólanefndar og Ragnar Björnsson, skólastjóri, í tónleikasal hins nýja húsnæðs Nýja Tónlistarskólans að Grensásvegi 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.