Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FOS'WIDAGUR -]
Kúrdar segja Tyrki
ráðgera innrás í Irak
London. Reuter.
HÁTTSETTUR talsmaður Kúrda
í írak segir að Tyrkir hyggist
gera takmarkaða innrás í norður-
hluta Iraks til að standa sterkar
að vígi þegar samið verði um skip-
an mála í Mið-Austurlöndum að
stríðinu loknu.
Maðurinn, Hoshyar Zehari, er
formaður Lýðræðisflokks Kúrda og
er í London ásamt öðrum fulltrúum
Kúrda í boði breskra stjómvalda til
að ræða um framtíðarskipan mála
eftir stríðið gegn Saddam Hussein.
Tyrkland er í Atlantshafsbandalag-
inu (NATO); Þjóðverjar og fleiri
NATO-ríki hafa sent fiugvélar til að
styrkja vamir landsins gagnvart
mögulegri árás íraka. Bandarískar
flugvélar með bækistöðvar í Tyrk-
landi hafa gert sprengjuárásir á skot-
mörk í írak. Tyrkir, sem réðu mest-
um hluta Mið-Áusturlanda í nokkrar
aldir en misstu heimsveldi sitt fyrir
rúmum 70 árum, segjast ekki hafa
neinar landakröfur á hendur írak en
auðugar olíulindir eru í Norður-írak.
Zehari sagði að Tyrkir hefðu safn-
að miklu liði á landamærunum að
írak en andspænis þeim em rúmlega
100.000 íraskir hermenn. Að auki
eru um 100.000 manns í kúrdískum
sjálfboðaliðasveitum sem segjast
styðja stjómina í Bagdad.
Að sögn Zaheris bíða kúrdískir
skæmliðar, sem barist hafa gegn
Saddam, átekta en ekki sé útilokað
að þeir myndu beijast með banda-
mönnum ef „aðstæður yrðu heppileg-
ar.“ Ekki er fyllilega ljóst hvað Za-
heri á við en talið að skæraliðarnir
grípi e.t.v. til vopna gegn Saddam
ef innanlandsátök hefjist og þeir sjái
að aðeins skorti herslumuninn til að
velta einræðisherranum úr sessi og
koma á lýðræðisstjórn. Á hinn bóginn
vilja þeir ekki verða sakaðir um að
hafa rekið rýting í bak íraka eða að
litið verði á Kúrda sem bandaríska
málaliða.
Manntjón íraka:
Reutcr
Flugmenn bandamanna hafa reynt að valda sem mestum skemmdum á samgöngumannvirkjum íraka til
að hindra birgðaflutninga til hersins, Á myndinni, sem talið er að hafi verið tekin 5. eða 6. febrúar,
sést sundurtætt Al-Nasiriyah-brúin í Bagdad en brúin lá yfir ána Tígris. Irösk stjórnvöld sögðu að 46
óbreyttir borgarar hefðu fallið í loftárásunum 4. febrúar.
Þúsundir marnia í Lýðveld-
isverðinum sagðar fallnar
íraskir liðhlaupar segja aðbúnað herliðsins í Kúveit afar slæman
París, New York, London, Washington, Nikosiu, Bagdad. Reuter.
MÖRG þúsund manns í liði úrvalsherveita Saddams Husseins,
Lýðveldisverðinum svonefnda, hafa fallið í loftárásum banda-
manna á stöðvar hersveitanna í suðurhluta Iraks, að sögn franska
vamarmálaráðherrans, Pierre Joxe. Frakkar telja að bardagamátt-
ur úrvalssveitanna hafi minnkað um 30%. Bandaríska dagblaðið
Washingion Post hefur eftir heimildarmönnum í her ísraels að
bandamönnum hafi tekist að eyðileggja 600 íraska skriðdreka og
a.m.k. ein af átta hersveitum Lýðveldisvarðarins sé nyög illa útleik-
in.
Israelar álíta að búið sé að
sprengja í loft upp um 40.000 tonn
af skotfærum Iraka en alls hafí
þeir átt um 300.000 tonn. Stjóm-
endur írakshers hefðu neyðst til
að dreifa birgðunum meira en ella
og þetta hefði í för með sér að
hersveitirnar í suðri og í Kúveit
ættu erfiðara með að bæta sér upp
skotfæraskort. Talið er að írakar
hafi um 4.000 skriðdreka í suður-
hluta íraks og Kúveit.
Bandaríska vamarmálaráðu-
neytið og yfírmenn herafla banda-
manna við Persaflóa hafa yfirleitt
forðast að reyna að meta árangur-
inn af árásum flugvéla á íraskar
landhersveitir, segja að nákvæmt
mat sé vart framkvæmanlegt.
Háttsettur herforingi í ísraelsher
Reuter
Jórdanir mótmæla ma tvælaflutningum
til Saudi- Arabíu
Stjórnendur flutningabíla, sem flytja mat til Saudi-
Arabíu, reyna að verjast grjótkasti íbúa jórdanska
landarpærabæjarins Ramtha í gær. Fólkið heimtaði
að írakar fengju varninginn. Hussein Jórdaníukon-
ungur flutti ávarp til þjóðar sinnar á miðvikudags-
kvöld þar sem hann gagnrýndi bandamenn harðlega
og sagði hernað þeirra gegn írökum „óréttlátan."
Bandarísk yfirvöld segja afstöðu konungs valda von-
brigðum. Israelar, nágrannar, Jórdana, hafa lýst
miklum áhyggjum vegna ávarps konungs er oftast
hefur reynt að sigla milli skers og bám í Persaflóa-
deilunni fram til þessa.
sagði Washington Post að banda-
rískir heshöfðingjar vildu ekki
veita upplýsingar um mannfallið
og annað tjón vegna þess að vam-
armálaráðuneytið vildi ekki ýta
undir vonir um að sókn gegn írök-
um á landi væri líkleg eða ráðleg
á næstunni.
Liðhlaupar boða fjöldauppgjöf
Fréttamenn breska dagblaðsins
The Independent voru á miðviku-
dag á ferð í bíl við landamæri
Saudi-Arabíu og Kúveits er fjórir
hermenn úr liði íraka birtust
skyndilega og sögðust vilja gefast
upp. „írak búið að vera — Saddam
búinn að vera,“ sögðu mennirnir
sem virtust örmagna, voru klædd-
ir lélegum einkennisfötum og tætt-
um stígvélum, óhreinir og órakað-
ir. Einn þeirra var 26 ára gamall
liðþjálfí, Khalid að nafni, en allir
höfðu þeir verið þvingaðir til her-
þjónustu fyrir sex árum. Þeir sögð-
ust aðeins hafa fengið lítið að
borða að undanförnu, dálitið af
hrísgijónum, brauðbiti og vatns-
sopi hafí verið dagskammturinn.
Mennirnir sögðust hafa hafst við
í sex feta djúpri skotgröf í tvo
mánuði en getað hlustað á frét-
taútsendingar breska útvarpsins,
BBC.
„Allir vilja gera það sama og
við,“ höfðu fréttamennimir eftir
Khalid. „Þegar innrásin hefst gef-
ast allir upp.“ Liðhlauparnir höfðu
allir handa milli dreifímiða sem
Saudi-Arabar hafa varpað yfir
stöðvar íraskra hermanna í Kúveit
þar sem þeir em hvattir til að
gefast upp og heitið góðri með-
ferð. Mennimir sögðu að foringjar
í íraksher hefðu tjáð hermönnum
að bandamenn myndu skjóta þá
ef þeir gæfust upp og flýðu yfír
til þeirra. Sjálfír sögðust fjórmenn-
ingamir hafa yfírgefið stöðvar
sínar er húma tók á þriðjudag.
Þeir hefðu gengið yfír jarð-
sprengjubelti og stöðugt verið
hræddir um verða skotnir í bakið
af Lýðveldisvarðarmönnum sem
sendir hefðu verið til framlínunnar
til að klófesta og drepa liðhlaupa.
Mennirnir fjórir vom svo illa
haldnir og óttaslegnir að frétta-
mennirnir höfðu ekki fyrir því að
afvopna þá áður en þeir buðu þeim
að setjast inn í bílinn. írakarnir
vom seldir í hendur egypskum
herflokki í grenndinni. Þar voru
teknir af þeim AK-47 hríðskota-
rifflar, nokkuð af skotfæram og
fáeinar handsprengjur.
Saudi-Arabar og Sýr-
lendingar treysta
samband ríkjanna
Damaskus. Reuter.
SÝRLENDINGAR og Saudi-Arabar ákváðu á miðvikudag að selja á
laggirnar sameiginlega nefnd til þess að treysta samband ríkjanna
og gera tillögur um framtiðarskipan gagnkvæmra samskipta.
Utanríkisráðherrar ríkjanna
tveggja undirrituðu samkomulag í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands, um
að treysta samband ríkjanna
tveggja en þau gegna lykilhlutverki
í fjölþjóðahernum sem freistar þess
nú að frelsa Kúveit úr höndum ír-
aka.
Nefndinni er ætlað að vera sam-
ráðsvettvangur á sviði utanríkis-
mála auk þess sem henni er falið
að auka samstarf á sviði efnahags-
mála, vísinda- og menningarmála.
Saud al-Faisal, utanríkisráðherra
Saudi-Arabíu, átti þriggja stunda
fund með Hafez Assad Sýrlandsfor-
seta áður en hann undirritaði sam-
komulagið ásamt sýrlenskum
starfsbróður sínum, Farouq al-
Shara. Þeir verða í forsæti nefndar-
innar en ásamt þeim munu m.a.
skipa hana fjármála- og efnahags-
málaráðherrar ríkjanna tveggja.