Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 17.JEBRÚAR 1991
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sepultura Breiðskífa í
næsta mánuði.
■ÞUNGAROKKARAR
geta glaðst því nýtt fyrir-
tæki hefur tekið við hinum
líflegu merkjum Roadrunn-
er og Music for Nations,
sem gefa helst út speed-
metal eða thrash. Það er
PS-músík sem hefur aflað
sér umboðs fyrir merkin og
hyggst sinna þeim vel.
Næstu skífur frá Roadrunn-
er verða nýja Sepultura-
platan Arise, en Sacred
Reich er í hljóðveri um
þessar mundir að taka upp
breiðskífu til að fylgja eftir
hinni frábæru The Americ-
an Way.
UFJNNSK rokktónlist hef-
ur ekki verið áberandi hér
á landi, þó hingað hafi kom-
ið þrívegis finnska blús-
rokksveitin Honey B. and
the T-Bones. Innan •
skammst er þó væntanleg
hingað ein skemmtilegasta
rokksveit Finnlands (og
Norðurlanda), 22 Pistep-
irkko. 22 Pistepirkko skipa
P-K og Asko Keranen,
Espe Haverinen og Riku
Mattila. Sveitin, sem sendi
nýverið frá sér breiðskífuna
Bare Bone Nest og hlotið
hefur góðar viðtökur hvar-
vetna, heldur ferna tónleika
á Tveimur vinum í næsta
mánuði, nánar tiltekið 7.,
8., 9. og 10. mars. Á fyrstu
tónleikunum leika með
sveitinni Langi Seli og
Skuggarnir með nýjum
Sugga, Herði Bragasyni,
sem hefur Farfisha-orgelið
til fyrri vegs og virðingar.
22 Pistepirrko
DÆGURTONLIST
/Hvad kom fyrtr Sting?
Sting Fimm ára teppa.
DANSFÍFL
808 State hélt tvenna tónleika í skemmtistaðnum
Lídó í þarsíðustu viku og kynnti íslenskum dansfíflum
það nýjasta úr breskum diskótekum. Með sveitinni
söng eitt lag Björk Guðmundsdóttir Sykurmoli.
Horft um öxl
GORDON Sumner, sem tók sér snemma nafnið Sting,
leiddi poppsveitina Police fram til 1983 að sveitin
var orðin vinsælasta poppsveit heims. Sting ákvað
að timabært væri að hætta á toppnum og fara nýjar
leiðir í tónlist. Afraksturinn var þrjár sólóskifur sem
seldust vel, en 1985 hætti Sting að geta samið lög
og það var ekki fyrr en á síðasta ári að honum tókst
komast af stað á ný og sönnun þess er platan The
Soul Cage, sem kom út fyrir stuttu.
Sting hefur ekki reynt
að leyna kreppunni
sem heltók hann 1985; seg-
ir að það hafi verið fráfall
foreldra hans beggja með
wmmmmmmmmm sex mán-
aða milli-
bili sem
hafi rænt
hann
skáldag-
áfunni.
Þann tíma
gat hann
samið !ög,
en ekki texta. Sting segir
að f fyrstu hafi hann ætlað
sér að vinna sig frá missin-
um og láta sem ekkert
væri. Það var þó ekki fyrr
en hann fór að takast á við
eftir Áma
Matthíasson
fortíð sfna og tilfinningar
að honum tókst að komast
af stað aftur.
Ekki hefur Sting verið
aðgerðalaus þessi ár, þó
hann hafi ekki getað samið
lög, því hann hefur verið
iðinn við leiklistina, leikið
í kvikmyndum og á sviði i
Túskildingsóperunni, auk-
inheldur sem hann hefur
ferðast um heiminn og leik-
ið fyrir Amnesty-samtökin.
Einnig hefur hann verið
jðinn við að vekja máls á
varðveislu Amazon-svæð-
isins, súrefrrisforðabúrs
jarðarinnar, og gengið tii
liðs við indíána sem byggja
svæðið enn, þó sífellt sé
þrengt að þeim. í því skyni
hefur hann hitt að máli
ýmsa málsmetandi menn í
Brasilíu og víðar og safnað
fé með tónleikahaldi, auk
þess sem hann hefur lagt
fé úr eigin vasa. í textum
hans tekur hann einnig
fyrir náttúruvernd og virð-
ingu fyrir lífi, þó á óbeina
hátt. „Ég vil ekki semja lög
eina og „björgum tijánum“
eða „drepum ekki læmingj-
ana“. Slíkt er ekki list, það
er áróður," segir han og
þeirri sannfæringu sinni
trúr má glöggt greina á
nýju plötunni samúð hans
með þeim sem beijast fyrir
náttúruvernd, án þess þó
það sé sagt berum orðum.
Aðalþema The Soul Cag-
es er uppgjör hans við
æsku sína, sem hann hefur
sætt sig við eftir öll þessi
ár. „Mig langaði að komast
undan æsku minni, fátækt-
inni og erfíðleikunum.
Síðar langaði mig til að
sættast við uppruna minn.
Með The Soul Cage held
ég að mér hafi tekist að
• ná jafnvægi."
Björk söng fyrir sveitina
tvö lög á væntanlega
breiðskífu hennar og 808
State kom einmitt hingað
til að gera myndband við
annað þeirra sem gefið
verður út á smáskífu innan
skamms. Myndbandið
gerði Óskar Jónasson, sá
snjalli kvikmyndasmiður.
Á undan sveitinni sá
framúrskarandi plötusnúð-
ur um að blanda tónlist
ofaní dansgesti og náði upp
mikilli stemmningu. Þegar
sveitin hóf leik sinn datt
stemmningin nokkuð nið-
ur, en hún náði fljótt tökum
á viðstöddum. Ekki lék 808
State nema í tæpan
hálftíma, en Björk kom á
svið og söng með í næsts-
íðasta Iagi.
FÓLK
1 rz*
Rotþró Mitt á m.illi Ham og Bless.
ROTÞ RÓ
EINS og áður hefur verið getið á þessum stað er hús-
víska rokksveitin Rotþró nú í tónleikaför á Suðvestur-
horninu. Sl. fimmtudag lék sveitin í Kjallara Keisarans
og í kvöld er röðin komin að Tveimur vinum.
Rotþró, sem leikur tónlist
sem sögð er mitt á
milli Ham og Bless, hafði
sér til halds og trausts á
fimmtudag Fræbblabræð-
ing, Dr. Gunna og pönk:
sveitin góðkunnu Drullu. í
kvöld er hinsvegar ætlunin
Bootlegs verði með og að
auki Reptilicus og Dr.
Gunni.
Ekki er ljóst hvor tónleik-
ar Rotþrær verða fleiri að
svo komnu, en framundan
er hljóðritun á lögum sem
Erðanúmúsík hyggst gefa
út á snældu innan skamms.
A UPPLEIÐ
EKKI er langt um liðið síðan Pétur Kristjánsson stofn-
setti fyrirtæki sitt PS-músík, en þó er fyrirtækið á leið
með að verða eitt af þeim umsvifameiri í íslenskri út-
gáfu. Fyrsta íslenska plata þessa árs verður gefin út
af PS-músík og líldega önnur plata ársins.
Fyrsta plata PS-músík er
væntanleg innan
skamms og er hljóðritun á
uppfærslu Leikfélags
Menntaskólans við
Hamrahlíð á Rocky Horror-
söngleiknum, sem leikfélag-
ið sýnir um þessar mundir
fyrir fullu húsi. Pétur Kristj-
ánsson segist ekki efa að sú
plata ætti eftir að seljast
vel, enda væri forsöngvarinn
tvímælalaust efnilegasti
söngvari landsins. Næsta
plata fyrirtækisins verður
breiðskífa með sigurvegara
Söngvakeppni Sjónvarpsins,
Eyjólfi Kristjánssyni. Pétur
sagði Eyjólf einn fremsta
lagasmið landsins, „Eyjólfur
hefur sannað það hvað hann
er góður lagahöfundur,
t.a.m. á síðasta ári þegar
hann sigraði í Landslag-
skeppninni og svo núna í
Söngvakeppninni. Það er því
ánægjulegt að vera með
hann á mínum snærum. Það
kemur út með honum
breiðskífa fyrir Islandsmark-
að og síðan hyggst ég gefa
út safnplötu með hans bestu
lögum og enskum söng fyrir
alþjóðamarkað, og af nógu
er að taka.“
Pétur sagði einnig að nán-
ast væri búið að ákveða eina
plötu til viðbótar með vorinu,
sem hann vildi ekki skýra
nánar frá að svo stöddu, og
svo líklega tvær til þijár til
viðbótar á árinu. Ef það
gengur eftir, verður PS-
músík eitt af stóru útgáfu-
fyrirtækjunum hér á landi á
fyrsta árinu með fimm til sex
breiðskífur.