Morgunblaðið - 17.02.1991, Síða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUIl 17. FEBRÚAR 1991
VnYf9XMÖHD/Löglegt eba ólöglegt?
Afbmgðs bönd en ótextuð
SAMKVÆMT lagabókstafnum eru ótextuð myndbönd ólögleg og
minnisstæð herörin sem dómsmálaráðuneytið skar upp gegn mynd-
bandaleigunum á sínum tíma, er það sendi fríðan flokk vaskra lög-
reglumanna í tiltektir og hafði uppúr krafsinu bílfarma textalausra
ágætismynda í bland við groddaklám og drjúgt einkaframtak á fjöl-
földun textaðra mynda.
Nú er öldin önnur. Útum borg
og bý bjóða nokkrar mynd-
bandaleigur uppá glæsilegt úrval
ótextaðra mynda og stórum hluta
hinna upptæku mynda hefur dóms-
valdið skilað aftur.
Fyrrgreint leift-
urstríð gerði þó
tvímælalaust sitt
gagn, einkum
hvað varðaði kóp-
íeringuna, . sem
eftir Sæbjörn Þekkist, var]a f
Valdimorsson mikillar
blessunar fyrir
alla. Þá eyddi hún mikið til öllum
„sjóræningjavinnubrögðum", kom á
aðhaldi og hreinlegri viðskiptum
milli myndbandaleiga og útgefenda.
Og var ekki vanþörf á. Hitt er deg-
inum ljósara að „þær bláu“ eru
óbugandi, svona rétt eir.sog sprútt-
salamir.
Það virðist því flækjast fyrir
réttvísinni (hvað þá hinum almepna
borgara) hvað sé löglegt í þessum
efnum. Hún treysti sér ekki að sitja
á hinum frægu spólum sem hún
lagði löghald á og lögreglan segir
að í dag séu friðsæl samskipti á
mitli hennar og leigusala. Einu af-
skiptin séu örfá tilvik þar sem börn
hafa komist yfír myndir, þeim bann-
aðar af kvikmyndaeftirlitinu, þær
kvartanir jafnan afgreiddar með ró
og spekt.
Á undanförnum árum hefur það
verið margreynt af íslenskum
myndbandaútgefendum (að öðrum
ólöstuðum einkum Steinum og Arn-
arborg), að textun og útgáfa gam-
alla, góðra og sígildra mynda stend-
ur ekki undir sér, þeir prísa sig
sæla ef einn og einn titill svarar
kostnaði. Myndbandaleigurnar eru
býsna ragar við að kaupa þetta
efni - þó það skili oftast hagnaði
er til lengri tíma er litið. Óbreytt
ástand í þessum málum er því vel
viðunandi fyrir flesta aðila - á
meðan menntamálaráðuneytið styð-
ur ekki þessa aðkallandi menning-
arstarfsemi með beinum textaþýð-
ingarstyrk úrvalsmynda.
Ofangreind tilslökun stjórnvalda
(og niðurfelling þýðingarskyldu
fréttasjónvarps frá. Persaflóastríð-
inu) hefur nú fært okkur nýjan flöt
á þessum snúnu málum - ótextuð
sölumyndbönd - (,,sell-through“),
en þau hafa orðið með hverju árinu
æ heitari söluvara í nágrannalönd-
unum. Videohöllin sem ríður
á vaðið og hefur nú opnað fyrstu
verslun þessarar gerðar hérlendis,
en í vetur gerðu bæði Steinar og
Arnarborg útgáfutilraun á all-
nokkrum frægum eldri titlum á
sölumyndum. Verður verslunin að
sjálfsögðu með þessi textuðu sölu-
myndbönd á boðstólum ásamt not-
uðum spólum, en aðaláherslan verð-
ur lögð á valinkunna, ótextaða eldri
titla. Verðið verður á bilinu 500 til
2.200 kr. í hópi ótextuðu leigu- og
sölumyndbandanna kennir margra
góðkunningja sem koma blóðinu á
hreyfingu hjá kvikmyndaunnendum
og til að gefa hugmynd um af
hvílíkum öndvegismyndum við
mundum annars missa ætla ég að
gefa smá-nasasjón af fyrst því efni
sem fæst ótextað á fjölda mynd-
bandaleiga: Edward G. Robinson
gleður augað í m.a. Little Caesar,
The Sea Wolfog Kid Galahad. Tals-
vert er að finna af breskri klassík:
I’m Alright, Jack, The Third Man,
The Sound Barrier, e. David Lean;
Wuthering Heights - besta út-
gáfan, með Oberon og Olivier;
Room at the Top, og öndvegisverk
Dickens, gerð af Lean: Great Ex-
pectations, Oliver Twist, (’48) og
Tale of Two Cities e. Jack Conway.
Þá er að fínna ótrúlega mörg af
bestu og sögufrægustu verkum
kvikmyndagerðar í Bandaríkjunum
einsog The Hunchback of Notre
Dam, (með Laughton að sjálf-
sogðu), Suddenly Last Summer,
Mr. Deeds Goes to Town, Mr. Smith
Goes to Washington, Who’s Afraid
of Virgina Wolfí, Watch on the
Rhine, 12 Angry Men, Judgement
at Nuremberg, The Invasion of the
Body Snatchers - frummyndin;
Bringing Up Baby, From Here to
Eternity, með Lancaster og Kerr;
Ninotchka, með Garbo; The Wild
One, The African Queen, The
Treasure of the Sierra Madre, All
About Eve, Blood and Sand, The
Grapes of Wrath, The Charge of
the Light Brigade (’36). Þá er auð-
vitað að fínna allnokkrar Hitch-
cock-myndir, svosem Strangers on
a Train, I Confess og The Wrong
Man. Af úrvalsvestrum má nefna
Shane, Red River, The Comanch-
eros, The Big Trail og Stagecoach
(’39).
Af þeim þijú þúsund titlum sem
eru til sölu ætla ég rétt að nefna
örfáa gamla kunningja: The Apart-
ment, Bullit, Don’t Look Now,
Getaway, Grand Hotel, Gunga Din,
High Noon, High Society, Last
Tango in Paris, Now, Voyager,
Seven Year Itch og Yankee, Doodle
Dandy. Skemmtið ykkur vel!
LEIKLIST T/// hvab snýst bamaleikhúsiö?
Bömeru
líka fólk
í NÓVEMBER sl. var stofnuð
íslensk deild í alþjóðasamtökum
barnaleikhúsa, sem skammstafað
er ASSITEJ. Það hefur lengi
staðið til að íslendingar yrðu
meðlimir í þessum félagsskap
sem var stofnaður 1965 og held-
ur næsta þing sitt á Kúbu árið
1993. Staða barnaleikhússins á
íslandi er nú til umfjöllunar m.a.
vegna sérstakrar listahátíðar
barna, sem fram fer í apríl nk.
Það er kominn tími til að huga
betur að því, hvernig leikhús við
viljum skapafyrir börn hér á
landi.
Eins og bent var á í þessum
pistli sl,. sunnudag er full þörf
á því að séretakur, fastur hópur
leikara og listamanna fáist á hverj-
um tíma við barna- og unglingaieik-
mmmmmmmm hús; -■Tilþess' að
svo megi verða
gætum við kynnt
okkur ' sðgu og
reynslu annan-a
þjóða af barnaleik-
húsinu. Á sama
tíma og ASS-
ITEJ-deiIdin var
stofnuð hér kom
lands bandarísk kona,
eftir Hlin
Agnorsdóttur
hingað til
Nellie McCasslin að nafni, sem er
sérfræðingur í leiklistarStarfí meðal
bama og fyrrverandi kennari við
leiklistardeildina í listaháskólanum
í New York, þar sem nokkrir íslend-
ingar hafa stundað nám.
Nellie McCasslin hitti nokkra af
áhugamönnum um íslenskt barna-
leikhús á einkafundi og sagði frá
áratuga langri reynslu sinni og
annarra Bandaríkjamanna af leik-
listarstarfi með bömum og fyrir
böm. í spjalli hennar kom m.a. fram
að þörfín fyrir bamaleikhúsið
sprettur fyrst meðal barnanna
sjálfra í lífi þeirra og veruleika.
Þörfrn tengist mjög oft félagslegum
aðstæðum þeirra, eins og t.d. stétt-
aretöðu og menntunarskilyrðum.
Þannig má rekja upphaf bamaleik-
hússins í Bandaríkjunum allt aftur
til áreins 1903, þegar stofnuð voru
svokölluð kennsluleikhús fyrir börn
í félagsmiðstöðvum stórborganna.
Úr sýningu Unga Klara á Börnum Medeu
Það voru félagsráðgjafar fátækra-
hverfanna, sem aðallega stóðu fyrir
þessu starfí og vildu með því virkja
bömin á götunni til leiks og starfs.
Þannig fengu þau bæði að kynnast
skapandi starfí af eigin raun, en
nutu líka leiksýninga, þar sem full-
orðnir áhugaleikarar sýndu fyrir
þau. McCasslin nefndi þijú megin-
markmið með þessu starfí þ.e.
menptunarlegt, fggurfræðilegt og
féíagslegt. Smám paman urðu tií
fléirí tegúndir af þarnaleikhúsi, auk
þeirra, sem störfuðu í félagsmið-
stöðvum stórborganna. Miðstéttar-
bömin eignuðust sitt leikhús með
brautryðjendastarfí Winnifred
Ward og sjálfstæðir áhugaleikhópar
og háskólaleikhús spruttu upp. Lé-
leg fjárhagsafkoma leikhópanna
gekk af mögum þeirra dauðum þar
sem þeir nutu engra opinberra
styrkja. Sumir hóþanna gátu ekki
einu sinni borgað rétthöfum hand-
ritanna sem leikin voru og tóku þá
til þess ráðs að „improvísera“ eða
spinna sjálf af fingrum fram sýn-
ingar sínar.
McCasslin talaði líka um innihald
og aðferðir barnaleikhússins og
nefndi siérstakiega þær breytingar
sem orðið hafa á efni ætluðu börn-
um og leikrænni framsetningu þess.
Bandarískt barna- og unglingaleik-
hús hefur smám saman horfið frá
léttvægum skraut- og ævintýrasýn-
ingum, þar sem allt virðist slétt og
fellt og allir eru voða hamingjusam-
ir. í dag eru miklu algengari leik-
sýningar fyrir böm, þar sem kafað
er undir yfírborð hlutanna og tekist
á við þann raunveruleika, sem blas-
ir við börnum í þjóðfélagi sam-
tímans. Þannig eru nú settar upp
sýningar, sem fjalla um hluti og
fyrirbæri, sem snerta böm jafn
mikið persónulega og fullorðna eins
og t.d. um áhrif hjónaskilnaðar,
dauðann, ofneyslu vímuefna, of-
beldi, sifjaspell og eyðni. Til
skamms tíma voru þetta bannorð í
návist bama, vandamál, sem frekar
átti að þegja yfír og halda leyndum
fyrir þeim. Og mörgum fínnst enn
þann dag í dag, að slík umfjöllunar-
efni eigi alls ekki heima í barnaleik-
húsinu, að það eigi ekki að blanda
háleitum markmiðum hins listræna
bamaleikhúss saman við sálfræði-
legar vangaveltur, sem óneitanlega
eru hluti af vinnslu sýninga, sem
meðhöndla þessi vandamál manns-
íns. McCasslin tók skýrt fram að
leiksýningum sem fjölluðu um þessi
málefni yrði strangt til tekið að
fylgjá vei á eftir með umræðum og
annarri úrvinnslu meðal barna, for-
eldra og annarra uppalenda.
Við’ gætum litið okkur nær og
kynnt okkur geysilega merkilegt
braut- ryðjendastarf á þessu sviði
hjá nágrönnum okkar Svíum. Þar
hefur leikhópur innan Borgarleik-
hússins í Stokkhólmi, Unga Klara,
starfað allt frá árinu 1975 undir
stjórn leikstjórans Susanne Osten.
Hún hefur með vinnu sinni gert
barnaleikhúsið að sérstöku list-
formi. Þar er barnssálin alltaf
þungamiðjan og ekki valin auðveld-
asta leiðin að henni. Sýningar leik-
hússins hafa vakið athygli alls stað-
ar, þar sem áhugi á barnaleikhúsi
og barnauppeldi er annars vegar.
Leikhópur Susanne Osten hefur
ekki hikað við að fara inn í leynd-
ustu afkima mannssálarinnar í upp-
færslum sínum fyrir börn. Þannig
varð sýning hans, um bemsku Hitl-
ers (1983), sem þau unnu í sam-
vinnu við svissneska uppeldis- og
sálfræðinginn Aliee Miller, ein um-
deildasta barnasýning sem um get-
ur.
BÆKUR /Hvaba eiginleika þarfgóbur
bókmenntagagnrýnandi ab hafa?
Hinn mikli skipuleggjandi
„HINN megna tilfinningalega an-
dúð sem margir gagnrýnendur
hafa á því negla bókmenntagagn-
rýni í hvers konar kerfi er afleið-
ing af þeirri vanrækslu að greina
gagnrýni, sem er söfnun þekking-
ar, ekki frá hinni persónulegu
reynslu af bókmcnntaverkum,
sem er einstæð athöfn, og þar sem
alls engin flokkun á við.“
Svo mælist kanadíska bók-
menntafræðingnum Northrop
Frye í inngangi að einu áhrifamesta
verki í bókmenntafræði á síðustu
áratugum „Anatomy of Criticism".
wmmmmmmmm■ Eins og nafn bók-
arinnar ber með sér
— og eins og til-
vitnunin sýnir — er
hún tilraun til að
greina bókmenntir
í frumeindir sínar,
rétt eins og líffræð-
ingar kryfja
mannslíkamann.
eftir GuÓrúnu
Nordol
Hann brýtur til mergjar ólík bók-
menntaverk, dregur fram þau ein-
kenni sem tengja þau saman — ný
og gömul — saman í eitt reglulegt
vísindalegt kerfi.
Að hans áliti var hlutverk bók-
menntafræðinnar að safna þekkingu
sem byggð væri á víðtækum lestri —
eða eins og hann segir sjálfur „það
fyrsta sem bókmenntagagnýnenda
ber að gera er að lesa bókmenntir".
Þessi setning virðist augljós sann-
indi, en Frye taldi að margir bók-
menntafræðingar væru um of
rígbundnir kenningum annarra
fræðisviða, svo sem sálfræði, heim-
speki og guðfræði, í stað þess að
þekkja nægilega vel sitt kjörna svið
— bókmenntirnar sjálfar. í bókinni
eys hann af brunni víðtæks lestrar
af miklu öryggi og skipar bók-
menntaverkum í flokka eftir bók-
menntagreinum, einkennum þeirra,
efnistökum sem og tímabilum.
Um allar bækur sem eru einhvers
virði eru skiptar skoðanir. Svo var
einnig um „Anatomy of Criticism"
sem kom út árið 1957. Hún hreyfði
við háværum andmælum, um leið og
hún eignaðist íjölda aðdáenda. Fryo
væri kannski hægt að kalla bók-
menntavísindamann. Hann leitaðist
við að sýna fram á að bókmenntir —
sem oft á tíðum virðast togast
óskipulega í allar áttir — endurspeg-
luðu óvænt samræmi. Reyndi semsé
að koma skipulagi á ringulreiðina.
En það éf þó kugljóst áfrituth'fiánS'
Northrop Frye Hann var ekki
kaldrifjaður vísindamaður, heldur
spruttu öll verk hans af djúpstæðri
tilfinningu fyrir orðum og setning-
um. Virðingu fyrir afrekum geng-
inna manna og mikilvægi bóka.
að hann var ekki kaldrifjaður vísinda-
maður, heldur spruttu öll verk hans
af djúpstæðri tilfínningu fyrir orðum
og setningum. Virðingu fyrir afrek-
um genginna manna og mikilvægi
bóka. Og einmitt þess vegna náðu
rit hans að kveikja í ímyndunarafli
lesandanna og vekja þá til umhugs-
unar.
Það sæmir því pistli sem kennir
sig við bækur að minnast í nokkrum
orðum þessa hugmyndaríka bók-
menntafræðings við lát hans (d. 23.
janúar sl.) Hann var fæddur 14. júlí
árið 1912 í Quebec. En áður en hann
helgaði bókmenntunum krafta sína
lagði hann stund á guðfræði og var
að því námi loknu vígður prestur
árið 1936. En er þar var komið sögu
hafði hann áttað sig á að hugur
hans stóð til háskólakennslu og tók
próf í enskum bókmenntum frá Ox-
ford árið 1939. Hann var lektor og
síðar prófessor í Victoria College í
Kanada, en 1967 varð hann prófess-
or við Háskólann í Toronto.
Eftir hann liggja auðvitað fleiri
bækur en sú sem hér hefur verið
gerð að umtalsefni. En sú bók sem
var honum hugleiknari en flestar
aðrar var Biblían. Og hana þekkti
hann vel. Hann áleit hana þá bók
sem hefði haft áhrif á allar aðrar
bækur — bókina sem skýrði og dýpk-
aði helstu bókmenntaverk. En samt
væri hún sú bók sem gagnrýnendur
þekktu minnst — og læsu sjaldnast.
En Frye kallaði hana „hinn mikla
dulmálslykil" að því samræmi sem
falið var í þeim bókum sem við lesum
og líanri taldi sig' gétá áfhjúpað.