Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 31
MftQÍfe'felX&ÍÐlkMti'uiÍhíÍR^oi íí'bríi'aii’íMí 'fi- Athugasemd við skrif Þórólfs Matthíassonar eftir Sigurgeir Þorgeirsson Nýlega hafa birzt tvær greinar um verðlagningu sauðfjár eftir Þórólf Matthíasson hagfræðilekt- or, fyrst í Vísbendingu og síðan efnislega sama greinin í Morgun- blaðinu 7. febrúar sl. í þessum skrifum vitnar Þórólf- ur í erindi sem undirritaður lagði fram á rþðunautafundi Búnaðarfé- lags íslands og Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins í febrúar 1990 ásamt Johanni Ólafssyni, sem þá var forstöðumaður Bú: reikningastofu landbúnaðarins. í erindi þessu notuðum við niður- stöður búreikninga fyrir árin 1987 og 1988 til þess að bera saman ýmsa þætti í rekstri þeirra 10 búa, sem sýndu mesta framlegð eftir vetrarfóðraða kind og þeirra 10 búa, sem lakast komu út að þessu leyti. Verðtölur framreikn- uðum við skv. verðlagsgrundvelii sauðfjárafurða til hausts 1989, til að færa þær nær fundartímanum. Þessar framreiknuðu tölur bárum við síðan saman við skráðan vei'ð- lagsgrundvöll 1. september 1989 og fundum u.þ.b. 7% mun. Þar með telur Þórólfur okkur sýna fram á veilu í verðlagsgrundvellin- um. Við þetta verð ég að gera eftirfarandi athugasemd. Okkar samanburður við grundvöllinn var einfaldlega til þess gerður að meta gróflega, hvort framreikningurinn stæðist. Hann þurfti ekki að vera nákvæmur, vegna þess að erindi okkar gekk fyrst og fremst út á samanburð milli mismunandi .búa á sömu árum. Hvað varðar saman- burð okkar við grundvöllinn voru gerðir fyrirvarar um vissar áætl- aðar stærðir, og ætti ekki að fara fram hjá fagmanni í hagfræði, að þessar tölur gefa ekki tilefni til ályktana um réttan eða rangan útreikning á verðlagsgrundvellin- um. Til þess þarf einfaldlega meiri og vandaðri vinnu. Þórólfur vitnar til þess, sem fram kemur í erindi okkar, að vinnuframlag á hveija afurðaein- ingu sauðfjárbúa virðist ekki hafa minnkað á undanförnum árum skv. búreikningum, þrátt fyrir stóraukna vélvæðingu. Hér er rétt að hafa í huga, að ýmis viðhalds- vinna, sem áður var aðkeypt, er' í vaxandi mæli unnin af bændum sjálfum, síðan þeir fóru að sæta framleiðslutakmörkunum, og er það liður í viðleitni þeirra til sparn- aðar í búrekstri. Því er svo ekki að leyna, að þær samdráttarað- gerðir, sem staðið hafa um nokk- urt skeið með takmörkun á fram- leiðslu hvers einstaks bónda, hljóta að hafa leitt til lakari nýtingar vinnuafls. Það er ástand sem land- búnaðurinn þolir ekki til lengdar. Hitt eru óþarfar áhyggjur hjá Þó- rólfi, sem hann getur kynnt sér ef hann nennir, að bændur velti Sigurgeir Þorgeirsson „Verðlagning, sem byggð er á sjálfvirkum kostnaðarútreikning- um, án tillits til verð- lags á helztu sam- keppnisvörum, hlýtur brátt að heyra fortíð- inni til.“ sífellt auknum vélvæðingarkostn- aði út í verðlagið og láti neytendur „margborga aukinn frítíma" sinn. Staðreyndin er sú, að grunnur vélafjárfestingar hefur ekki verið endurmetinn frá 1985; hann er nú u.þ.b. 2 millj. kr. á 400 kindí^ búi, og vextir af þeirri Qárfestingu í verðlagsgrundvelli eru 2% eða liðlega 40 þúsund kr., sem nemur 1,2% af kostnaði búsins. Þessi lið- ur er í raun stórlega vanmetinn miðað við þá fjárfestingu sem fyr- ir hendi er, sem þýðir einfaldlega að aukna fjárfestingu í vélum hafa bændur kostað af launalið sínum. Hvað sem þessum vangaveltum líður, er ljóst að landbúnaðurinn allur, ekki sízt sauðfjárræktin, stendur frammi fýrir miklum að- lögunarvanda. í mínum huga er það ófijó deila, hvort einhveiju skeikar í útreikningi verðlags- grundvallar sauðfjárafurða. Slíkur grundvöllur á í mesta lagi að vera til viðmiðunar. Verðlagning, sem byggð er á sjálfvirkum kostnaðar- útreikningum, án tillits til verðlags á helztu samkeppnisvörum, hlýtur brátt að heyra fortíðinni til. Sú aðferð hefur a.m.k. gengið sér til húðar hvað kindakjöt varðar. Höfundur er saudfjárræktarráðunautur og sérfræðingur á RALA í sauðfjárrækt. FÉLAGSSTARF Selfoss Bæjarmálafundur Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Selfoss boða tfl fundar um fjárhagsáætlun Selfossbæjar fyrir árið 1991 í Sjálfstæöis- húsinu, Austurvegi 38, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30. Málshefjandi: Bryndís Brynjólfsdóttir. Allt fólk, sem starfar í nefndum á vegum flokksins, er sérstaklega hvatt til að mæta. Aðrir áhugamenn um bæjarmál eru vel- komnir. Bæjarfulltrúamir. Húsnæðisnefnd Sjálfstæðisflokksins heldur fund fimmtudaginn 21. febrúar nk. kl. 17.30 í Valhöll. Fundarefni: Geir H. Haarde, alþingismaður, ræðir um drögin að ályktun fyrir landsfund. Mætum öll. Stjórnin. Sjálfstæðisfélag Austur-Skaftafellssýslu, Höfn í Hornafirði heldur námskeið í ræðumennsku og fund- arsköpum helgina 23. og 24. febrúar nk. í Sjálfstæðishúsinu á Kirkjubraut 3. Námskeiðið hefst kl. 14.00 á laugardegin- um. Leiðbeinandi verður Gísli Blöndal. Innritun er hafin hjá Bjarna Jónssyni, heimasími 81810 eftir kl. 17.00. Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins. FUS, Njarðvík Aðalfundur Félags ungra sjálfstæöismanna i Njarðvík verður haldinn f dag, miðvikudag- inn 20. febrúar, kl. 20.30 í Sjálfstæöishús- inu í Njarðvík. Dagskrð: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Gestur fundarins: Árni M. Mathiesen. Kaffiveitingar. Stjórn FUS, Njarðvik. Til sigurs með Sjálfstæðisflokknum Baldur, Seltjarnarnesi Opinn stjórnarfundur Baldurs, Seltjarnarnesi, verður haldinn í dag, miðvikudaginn 20. febrúar, kl. 20.30 í félagsheimili Sjálfstæðisflokks- ins, Austurstönd 3. Gestur fundarins verður Guðlaugur Þór Þórðar- son, varaformaður SUS. Rætt verður um SUS-starfið og komandi kosningabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS og Baldur. kjM Formannaráð- stefna SUS SAMHANl) IINOKA SIÁLI SJAOISMANNA verður haldin 23.-24. febrúar á Hótel Selfossi. DAGSKRÁ Laugardaginn 23. febrúar: Kl. 9.00 Innritun hefst. Kl. 10.00-11.00 SUS stjórnarfundur. Kl. 11.00-12.00 Setning og skýrsla SUS: Davið Stefánsson, formaður SUS. Kl. 12.00-13.00. Hádegisverður. Kl. 13.00-15.00. Vinnuhópar starfa. 1. Almennt kosningastarf: Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri. 2. Starf kosningastjórnar, útgáfa og áróður: Belinda Theriault, framkvæmdastjóri SUS. 3. Utankjörstaðakosning: Ingi Tryggvason formaður Ása. 4. Málefni kosningabaráttunnar: Davíð Stefánsson, formaður SUS. Kl. 15.30-17.00 Nokkrir ungir frambjóðendur kynna sig og stefnu- mál sín. Umræður og fyrirspurnir. Kl. 18.15 Skoðunarferð og hanastél. Kl. 20.00 Kvöldverður, Heiðursgestur: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Veislustjóri: Árni Johnsen, varaþingmaður. Sunnudagur 24. febrúar. Kl. 11.00-12.00 Vinnuhópar skila skýrslum. Umræður. Kl. 12.00-13.00 Hádegisverður. Kl. 13.00-16.00 Undirbúningur landsfundar. Kl. 16.00 Ráðstefnu slitið. Ráðstefnustjóri: Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrsti varaformaður SUS. Frekari upplýsingar fást á skrifstofu SUS, sími 91-82900. Jj M X. G „„/ 3% n 13 SUS. Landbúnaðarnefnd Sjálfstæðisflokksins Fundur i Valhöll laugardaginn 23. febrúar nk. kl. 14.00. Dagskrá: Drög að landsfundarályktun um landbúnaðarmál og kynning á tillögu sjö rnanná nefndar um breytt skipulag sauðfjárframleiðslu. Málshefjendur Pálmi Jónsson, alþingismaður og Guðmundur Sig- þórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu. Stjómin. Fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna í Bolungarvík Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík verður haldinn í kaffistofu Vélsmiðju Bolungarvikur hf. fimmtudaginn 21. febrúar og hefst kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á Landsfund Sjálfstæöisflokksins. 3. Önnur mál. Á fundinn mæta Einar K. Guðfinnsson og Guðjón Á. Kristjánsson, frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi. Stjórnin. YMISLEGT§ Hugræktarnámskeið vekur athygli á leiðum til jafn- vægis og innri friðar. Kennd er almenn hugrækt og hugleiðing, athyglisæfingar og hvíldariðkun. Veittar leiðbeiningar um iðkun jóga. Kristján Fr. Guðmundsson, sími 50166. FELAGSLIF i.O.O.F. 7 = 172220872= 9.0 □ GLITNIR 59912207 - 1 l.O.O.F. 9 = 172220872 = Dd. □ HELGAFELL 59912207 IV/V 2 FRL Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma i kvöld kl. 20.00. Hjálpræðisherinn I kvöld kl. 20.00: Biblía, bæn og lofgjörð i Kjallarastofunni. Fimmtudag kl. 20.30: Almenn samkoma i umsjá Sigmundar Dalehaug. Verið velkomin. RF.GLA MIISTERISRIODARA ARM Hekla 20.2 SAR. MT. ÉSAMBAND (SLENZKRA i KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssamkoma á Háaleit- isbraut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Kristin M. Möller. Skúli Svavarsson segir frá Afríkuferð. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur i kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Hafliði Kristins- son. Allir hjartanlega velkomnir. Erum að byrja með kvennatíma i Kripalu-jóga þriðjudags- og föstudagsmorgna kl. 10.00. Kennt verður Hatha jóga, slök- un, öndun og hugleiösla. Upplýsingar og skráning i Mætti, Faxafeni 14, simi 689915. Seltjarnarneskirkja Samkoma í kvöld kl. 20.30. Sönghópurinn Án skilyrða, Þor- valdur Halldórsson stjórnar. Prédikun og fyrirbænir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.