Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 25 PlirrgmuMaliií Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Gorbatsjov gerir Saddam tilboð Rúmur mánuður er liðinn frá því að fjölþjóðlegur her afli sem stefnt var saman í umboði Sameinuðu þjóðanna hóf valdbeitingu til að hrekja íraka á brott frá Kúveit. Á þessum tíma hefur tekist að gera flugher og flota íraks óvirkan með linnulausum sprengjuárásum úr lofti og af sjó. Jafnframt hefur verið höggvið á samgöngu- og fjar- skiptaæðar í írak, þannig að eðlileg samskipti innan lands- ins eru í molum. í loftárásunum hefur einnig verið ráðist á skot- mörk og mannvirki, sem ekki eru beint hernaðarleg en hafa hins vegar verið notuð af íraska hemum, og hafa nokkur hundruð óbreyttir borgarar fallið. Styrjöldin setur æ meiri svip á daglegt líf í írak og hagur almennings hefur þrengst verulega. Fyrir utan efnalegt tjón hefur styrjöldin haft skaðvænleg andleg og sálræn áhrif bæði á átaka- svæðunum og utan þeirra. ír- akar hafa beint eldflaugaárás- um á almenna borgara í ísrael og Saudi-Arabíu og stofnað til olíuleka og gífurlegs mengun- arvanda á Persaflóa. Um nokkurt skeið hefur ver- ið ljóst, að landhernaður sé á næsta leiti við Persaflóa. Fjöl- þjóðahernum hefur verið skip- að með þeim hætti, að hann geti sótt fram á landi eða haf- ið landgöngu af sjó með ör- skömmum fyrirvara. í því sam- hengi ber að skoða tillögur sem komu frá íraska byltingarráð- inu á föstudag. Þar var rætt um brottflutning íraska herafl- ans frá Kúveit en með óað- gengilegum skilyrðum. Þessum tillögum var hins vegar tekið sem vísbendingu um ný viðhorf í Bagdad meðal annars í íran og Sovétríkjunum. Á mánudag var Tareq Aziz, utanríkisráðherra íraks, í Moskvu. Þar lagði Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkj- anna, fram tillögu, sem hann telur að geti bundið enda á ófriðinn, ef tafarlaust yrði far- ið að henni. Engar staðfestar fréttir hafa borist um tillögu Gorbatsjovs, en hún er sögð í fjórum liðum: írakar fari skil- yrðislaust með herafla frá Kú- veit; Sovétmenn skuldbinda sig til að standa vörð um stjórn- skipan og landamæri íraks; Sovétmenn eru andvígir frek- ari efnahagsþvingunum gegn írökum og vilja að Saddam Hussein sæti ekki refsingu og rætt verði um svæðisbundin vandamál í Mið-Austurlöndum og vanda Palestínumanna. Þegar litið er á ástæðurnar fyrir átökunum við Persaflóa kemur ekkert í þessari tillögu á óvart. Fari írakar skilyrðis- laust frá Kúveit er megintil- gangi aðgerða Sameinuðu þjóðanna náð. Um helgina lét Roland Dum- as, utanríkisráðherra Frakka, orð falla sem hafa verið skýrð á þann veg, að ákvörðun hafi þegar verið tekin um það hve- nær landhernaður gegn írök- um hefjist. í Bagdad hljóta menn að bregðast við tillögu Gorbatsjovs með þeim hætti, að þeir fái þar síðasta tækifær- ið til að beita stjórnmálalegum aðferðum í því skyni að hindra að til blóðugs landhernaðar komi. Með tillögu sinni er Gorb- atsjov ekki aðeins að leita að friði við Persaflóa. Hann er einnig að gæta sovéskra hags- muna og telur það því miður best gert með stuðningi við Saddam og einræði hans. Sov- étmenn yrðu áreiðanlega fúsir til að selja Saddam hergögn að stríði loknu og leggja honum lið við endurreisn Iraks. Sovét- stjórnin hefur lengi viljað verða þátttakandi í umræðum um málefni Mið-Austurlanda og Palestínumanna. Áhugi hennar á því kemur fram hjá Gorb- atsjov. Að hinu hljóta menn að hyggja í Irak og annars staðar hvers virði alþjóðleg fyrirheit Kremlveija eru um þessar mundir, þegar þeir geta ekki haldið uppi lögum og reglu innan sovésku landamæranna. Allir venjulegir landstjórn- endur í sporum Saddams Huss- eins, einræðisherra í írak, hefðu fyrir löngu gert sér grein fyrir að þeir ættu við ofurefli að etja. Þeir hefðu áttað sig á því strax og samstaðan náðist í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna og ljóst var, að valdi yrði beitt til að frelsa Kúveit. Sadd- am hagar sér ekki sem ábyrgur þjóðarleiðtogi. Honum virðist aðeins annt um eigin völd og lítur þannig á að það sé öðrum að kenna, þótt hundruð eða þúsundir manna falli í valinn vegna ofríkis hans. \;a jii j san i u i i ? i jt 'i i /:/■?• jiil Morgunblaðið/Sverrir Óskar Jónasson og Ásdís Thorddsen fengxi hæstu styrkina úr Kvik- myndasjóði íslands til framleiðslu á myndum sínum „Sódóma, Reykjavík" og „Ingaló á grænum sjó“. Kvikmyndasjóður íslands Tæpum 60 milljón- um króna úthlutað KVIKMYNDASJÓÐUR íslands úthlutaði í gær tæplega 60 milljón- um króna í styrki til leikinna kvikmynda, heimildamynda, teikni- mynda, stuttmyndar, handritagerðar og undirbúnings. Hæstu styrki hlutu Óskar Jónasson, 15 milljónir króna, til að gera kvik- myndina „Sódóma, Reykjavík" og Gjóla h/f, 14,3 milljónir, til að gera myndina „Ingaló í grænum sjó“ eftir Ásdísi Thoroddsen. 85 umsóknir bárust til Kvik- myndsjóðs íslands að þessu sinni og fengu 13 þeirra úthlutun, alls 57,5 milljónir. Þijár kvikmyndir fengu styrki til framleiðslu. Óskar Jónasson til framleiðslu á „Só- dóma, Reykjavík". Gjóla h/f fyrir kvikmyndina „Ingaló á grænum sjó“ og Þumall 7,2 milljónir fyrir myndina „Helgi og folaldið". Framlög til undirbúnings kvik- mynda hlutu Halldór Þorgeirsson 1 milljón fyrir myndina „Jörundur Hundadagakonungur“. Hákon M. Oddsson og Sigurður B. Siguðrs- son 1 milljón fyrir j>B.I.N.G.Ö.“ og Kristinn Þórðarson 500 þúsund fyrir „Svartfugl". Sigurbjörn Aðalsteinsson fékk 2 milljónir til framleiðslu á stutt- myndinni „Ókunn dufl“. Styrki til framleiðslu heimildamynda hlutu Nýja bíó 8,5 milljónir fyrir myndina „Jón Leifs“ og Ólafur Jónsson 2 milljónir fyrir myndina “Ragnar í Smára“. Áuk þess hlaut Baldur Hrafnkell Jónsson 1 milljón til undirbúnings heimildamyndarinn- ar „Krossgötur." Tvær teiknimyndir fengu styrki. Sigurður Öm Brynjólfsson 2 millj- ónir til framleiðslu á myndinni „Jólatréð okkar“ og Jón Axel Eg- ilsson 2 milljónir fyrir myndina „Djákninn á Myrká“. Til Kvik- myndaklúbbs íslands er veitt 1 milljón. Uthlutunarnefnd Kvikmynda- sjóðs íslands skipa: Róbert Arn- finnsson, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir og Sigurður Valgeirs- son. Þrettán umsóknir bárust til Norræna verkefnisins 1991 og sögðu dómnefndarmenn að það hafi verið erfitt verk að velja úr umsóknum. Kristín Jóhannesdóttir sagði að þessi styrkur þýddi það að hún gæti nú gert þessa mynd, sem hún hafí verið að undirbúa síðan 1985. „Ég er mjög ánægð og þetta er óskaplega mikilvægt og mikill áfangi í sögu kvikmyndagerðar á íslandi. Þetta er í fyrsta skipti sem við fáum svona öflugt fram- leiðslufé og stuðning. Þetta er ekki síst mikils virði vegna þess að í gegnum stofnanir allra Norður- landanna fáum við kynningu um alla Evrópu og jafnvel víðar sem við íslendingar gætum aldrei stað- ið undir sjálfir,“ sagði Kristín. Myndin flallar um ást og örlög og er tengd sannsögulegum at- burðum sem gerðust hér 1936 þeg- ar franska vísindaleiðangursskip Pourquoi pas fórst við Mýrar. „Við upplifum þessa atburði í gegnum litla stúlku sem býr við hörð lífskjör við sjávarsíðuna. Og sjáum hvernig þessir skelfilegu hlutir koma ungu stúlkunni fyrir sjónir er lík fara að reka á fjörur og hvernig þetta verður örlagavaldur í hennar eigin lífi,“ sagði Kristín um myndina. Hún sagðist áætla að byrja tök- Morgunblaðið/Sverrir Kristín Jóhannesdóttir, kvik- myndagerðarmaður, fær rúm- lega 80 milljónir króna til að gera mynd sína „Svo á jörðu sem á himni“. ur um miðjan júlí í sumar. Kosn- aðaráætlun myndarinnar hljóðar upp á 117 milljónir. Norræna kvikmyndaverkefnið 1991; „Svo á jörðu sem á himni“ valin sem framlag Islands Styrkurinn er upp á rúmlega 80 milljónir króna KRISTÍN Jóhannesdóttir, kvikmyndagerðarmaður, fær rúmlega 80 milljónir króna til að gera kvikmynd sína „Svo á jörðu sem á himni“ en myndin var valin sem framlag íslands til Norræna kvik- myndaverkefnisins 1991. Styrkurinn verður greiddur út á tveimur árum og er styrkveitingin háð því að Norðulandaþjóðirnar fái sýningarrétt á myndinni þegar þar að kemur. Frá lekanum í eðlisfræðistofu þar sem um tíma voru 20 balar til að taka við vatninu. Þorsteinn Egilsson eðlisfræðikennari brá á það ráð að kenna frekar ofan á eðlisfræðistofunni þar sem aðstaðan var betri en inni í henni. Kennsla á hrakhól- um vegna leka í ML Laugarvatn. í VEÐUROFSANUM á dögun- um fór þakpappi af hluta við- byggingar Menntaskólans að Laugarvatni. Mikill leki hefur því fylgt vatnsveðri undan- farna daga í nokkrum kennslu- stofum einkum eðlisfræðistofu og sett kennslu úr skorðum. Það hefur lengi fylgt þessu flata þaki að leka í rigningum en þó aldrei sem nú eftir að papp- inn fór, enda verið mikið vatns- verður síðan. Hefur kennsla í eðlisfræði farið fram um allan skólann og jafvel úti undir berum himni eins og síðastliðinn föstu- dag. Þá lak enn þó þurrviðri væri. Hafði vatnið komist í raf- lýsingu og var því ljóslaust í stof- unni. Bráðabyrgðaviðgerð fór fram á föstudaginn, en það er trú manna við skólann að varanleg lausn verði ekki fyrr en sett verði risþak á skólann. Kári Forsætisráðherra kynnir tillögur um aðgerðir í byggðamálum: Byggðastjómir í öll kjördæmi Byggðastofnun verði efld og sveitar- félög og orkufyrirtæki sameinuð STEINGRÍMUR Hertnannsson, forsætisráðherra, ætlar að Ieggja fram frumvarp á alþingi á næstu dögum sem felur í sér umfangs- miklar breytingar á skipulagi og starfsháttum Byggðastofnunar. Byggir það á tillögum tveggja nefnda um aðgerðir í byggðamálum sem skilað hafa niðurstöðum sínum. Forsætisráðherra kynnti í gær tillögur nefndanna sem fjallað hafa að undanförnu um aðgerð- ir í byggðamálum. Steingrímur sagði að annars vegar væru þar markaðar tillögur fyrir langtímastefnu í byggðamálum þannig að tryggja megi jafnvægi í byggð og hins vegar fyrstu aðgerðir sem yrðu í verkahring Byggðastofnunar í samstarfi við byggðalög- in. Byggðanefnd forsætisráðherra var skipuð eftir tilnefningu allra þingflokka 4. janúar 1990. Skilaði hún tillögum sínum 12. febrúar sl. um langtímastefnumörkun í byggðamálum. Formaður hennar var Jón Helgason alþingismaður. Hin nefndin sem fjallaði um skipu- lag Byggðastofnunar og fyrstu að- gerðir var skipuð fulltúum stjórnar- flokkanna. Hefur hún einnig nýve- rið skilað tillögum sínum. Formaður hennar var Stefán Guðmundsson alþingismaður. Héraðsmiðstöðvar Nefndin um fyrstu aðgerðir í byggðamálum leggur til að kjör- dæmi landsins verði efld efnahags- lega og stjórnsýslulega og að hér- aðsnefndir myndi byggðastjórnir í hveiju kjördæmi um lausn verkefna sem þeim verði færð með lögum. Leggur nefndin til að komið verði upp héraðsmiðstöðvum í kjördæ- munum, þar sem verði aðsetur byggðastjórnar auk ýmissa opin- berra aðila og að ráðuneyti og stofnanir hafi þar fulltrúa. Þarna Morgunblaðið/Árni Sæberg Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og alþingismennirnir Jón Helgason og Stefán Guðmundsson kynntu í gær viðamiklar tillögur tveggja nefnda um aðgerðir í byggðamálum. fari fram sameiginlég byggðaáætl- un fyrir landshlutann. Byggðaáætlanir Nefndin leggur ennfremur til að Byggðastofnun verði falið að gera byggðaáætlanir til fjögurra ára í senn í samvinnu við heimamenn á hverjum stað. Þar komi fram m.a. framkvæmdaáætlun fyrir opinberar framkvæmdir og framtíðarstefna stjórnvalda í byggða- og atvinnu- málum. I tillögum byggðanefndar er lagt til að byggðaáætlanir verði lagðar fyrir alþingi til samþykktar. Nefndin um fyrstu aðgerðir í byggðamálum vill að það markmið verði sett að meirihluti nýrra starfa í opinberri þjónustu verði utan höf- uðborgarsvæðisins. Þá ieggur hún til að sveitarfélög verði stækkuð verulega og að stofnuð verði at- vinnuþróunarfélög og atvinnuþró- unarsjóðir í héruðunum. Félögin verði grundvallareiningar við skipu- lega atvinnuuppbyggingu í héraði og tekjur af stóriðju renni m.a. til þess verkefnis. Tafarlaus jöfnun orkuverðs Nefndin vill að tafarlaust verði gerðar ráðstafanir til að tryggja að raforkuverð verði jafnað til allra dreifiveitna og í smásölu. Leggur hún til að Rafmagnsveitur ríkisins og Landsvirkjun verði sameinuð í eitt orkuöflunar- og dreifingarfyrir- tæki í meirihlutaeigu ríkisins. Ta- kist það ekki verði stofnað nýtt V estmannaeyjar: Góð loðnuveiðL við Ejqar í gær Fjórir bátar sem komu á miðin í gær fylltu fyrir kvöldið Vestmannaeyjuni. FJORIR loðnubátar fylltu sig í gær á loðnumiðunum um fjórar mílur vestan við Eyjar. Stærsti hluti loðnuflotans var á veiðum undan Krísuvíkurberginu og var góð veiði þar en bátarnir við Eyjar og * aðrir sem voru við Ingólfshöfðann voru líka að fá góðan afla. Morgunblaðið skaust á miðin 4-5 mílur frá Eyjum eftir hádegið í gær. Fjórir bátar voru þar fyrir. Víkurbergið var að draga nótina og vantaði lítið til að fylla þegar við komum að honum. Það var ekki mikið í nótinni en þó meira en nóg sögðu strákarnir sem voru í nóta- kassanum. Bergur var að klára að dæla en Iítið var í hjá honum. Þeir köstuðu síðan aftur og fengu þokkalegt kast. Bergur fyllti síðdegis og hélt áleiðis til Aust- fjarða. „Við fórum frá Eyjum í morgun og vorum komnir í þessar torfur eftir hálftíma stím. Við köst- uðum fimm sinnum en fengum af- lann í þremur af köstunum því tvö voru búmm,“ sagði Elías Geir Sæ- valdsson, stýrimaður. Hann sagði í gærkvöldi að ekki væri ljóst hvar þeir lönduðu. „Við höldum eitthvað austur um og sjáum til hvar besta verðið verður í fyrramálið,“ sagði Elías. Kap VE landaði í Eyjum í gær- morgun og báturinn var kominn á miðin upp úr hádegi. Þeir köstuðu fljótlega og fengu um 150 tonn í fyrsta kastinu. „Það er mikið af torfum hérna,“ sagði Ólafur Einars- son, skipstjóri. „Bátarnir rákust á þetta á stíminu hérna en annars er mikil loðna hér víða við suður- ströndina enda eru bátarnir í dag að veiða loðnu frá Krísuvíkurberg- inu og austur að Ingólfshöfða. Eg held að það sé miklu meira magn á ferðinni heldur en mælingarnar segja,“ sagði Ólafur. Um kvöldmatarleytið í gærkvöldi var Kap búinn að fylla og hélt til löndunar í Eyjum. „Við fengum 500 tonna kast seinnipartinn og síðan fengum við annað hellings kast. Við erum búnir að fylla og erum að gefa Hörpunni það sem hana orkufyrirtæki í meirihlutaeign ríkis- ins. Einnig vill nefndin að skipulag farþegaflutninga á sérleyfisleiðum á landi og í lofti verði endurskoðað og samræmt með það að markmiði að bæta þjónustu og auka hag- kvæmni. Þá vill hún að eiginljár- staða Byggðastofnunar verði efld. Atvinnuþróunarfélög Byggðanefnd gerir ýmsar tillög- ur um breytingar á lögum um Byggðastofnun þar sem áhersla er lögð á aukinn stuðning stofnunar- innar við atvinnuþróun á lands- byggðinni. Er lagt til að í hverju kjördæmi verði starfandi atvinnur- áðgjafi og eitt eða fleiri atvinnuþró- unarfélög sem Byggðastofnun veiti stuðning m.a. með áhættufjár- magni. Frumvarp afgreitt fyrir þinglok Forsætisráðherra sagði í gær að fyrirhugaðar breytingar á lögum um Byggðastofnun miðuðu að því að stórauka samstarf stofnunarinn- ar við landshlutana og atvinnuþró- unarfyriríæki þeirra. Sagði hann að með tillögum nefndanna væri verið að gera tilraun til að brjóta blað varðandi byggðaþróun. „Ég geri ráð fyrir að leggja fram frum- varp á alþingi á allra næstu dögum sem fjallar um tillögur r.efndanna um breytingar álögum urn Byggða- vantar til að fylla sig. Það er verst að ekki skulu vera fleiri bátar hér til að gefa, því það verður nóg eftir í nótinni þegar Harpan verður búin en þessir fjórir bátar sem voru hér í dag eru allir búnir að fylla sig,“ sagði Ólafur. Hann sagði að þeir myndu landa í Eyjum og átti allt eins von á að reynt yrði að frysta eitthvað af aflanum. Grímur Vogar: íkveikja við félags- heimilið Vogum. SLÖKKVILIÐ Brunavarna Suðarnesja var kvatt að fé- Iagsheimilinu Glaðheimum í Vogum kl. 18:35 á mánu- dagskvöld. Eldur var í ruslakassa við hlið félags- heimilisins og glóð hafði komist í timburvegg á aust- urhlið húsins. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var búið að slökkva eldinn með duft-slökkvitæki og rjúfa. jámklæðningu á veggnum. Að sögn slökkviliðs- manna björguðu þeir, sem slökktu eldinn, húsinu, en fé- lagsheimilið er 30 ára gamalt timburhús. Fjórir strákar 10-12 ára kveiktu eldinn í ruslakassanum. - E.G. stofnun. Þá er félagsmálaráðherra einnig með frumvarp um þessi mál varðandi breytingar á sveitarstjórn- arlögum. til skoðunar. Hún mun taka afstöðu til hvort hún treystir sér til að leggja það fram,“ sagði hann. Ekki fjárfrekar tillögur Steingrímur sagði að tillögur um jöfnun orkuverðs væru til umfjöli- unar í sérstakri nefnd sem ætti að skila af sér á næstunni. Sagði hann aðspurður að ekki væri að búast við að allar tillögur nefndanna yrðu samþykktar á alþingi í vor en hann kvaðst eiga von á að frumvarpið um breytingar á Byggðastofnun fengist afgreitt en það er til skoðun- ar í þingflokkum stjórnarliðsins. Steingrímur sagði ennfremur að til- lögur um fyrstu aðgerðir fælu ekki í sér mikil fjárútlát. Jón Helgason sagði að nefndirnar gerðu engar tillögur um kostnað við að hrinda hugmyndunum í framkvæmd. „Við leggjum áherslu á að hvert einstakt verkefni verði skoðað vel áður en ákvörðun um framkvæmdir verður - tekin,“ sagði hann. Jón sagði að í byggðanefnd hefðu setið fulltrúar allra þingflokka og þeir hefðu verið sammála um að leggja tillögurnar fram á yfirstand- andi þingi. Stefán Guðmundsson sagði að þótt tillögurnar fengjust ekki afgreiddar yrðu þær þó til að efla umræðu um málið sem næsta* þing gæti svo tekið við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.