Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 18
M-ORQIiJJNteLAIHÐ MlÐVIKUDAfflUR 120; IPEBKÚAR '199V as Bæjarsljórn Vestmannaeyja: Hætt við þátttöku í vinabæjamótum Ákvörðunin tekin í sparnaðarskyni Vestmannaeyjum. BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi tillögu meirhluta sjálfstæðismanna um að hætt verði að taka þátt í vinabæja- mótum með vinabæjum Vestmannaeyja á Norðurlöndunum. Tillagan var samþykkt með sjö atkvæðum, sjálfstæðismanna og annars full- trúa Alþýðuflokks, gegn einu atkvæði hins fulltrúa Alþýðuflokksins, en fulltrúi Alþýðubandalagsins sat hjá við afgreiðsluna. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin í sparnaðarskyni. „Við erum að spara alls staðar í rekstrinum til að reyna að rétta við fjárhag bæjarins. Við notum því allar smug- ur sem gefast og þarna sáum við leið til að spara fjórar milljónir á kjörtímabilinu. Við ætlum okkur samt sem áður að halda áfram vina- bæjatengslum við þessa bæi, en Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Suðurgata 1. Húsnæði lögreglu og bæjarfógetaembættisins á Sauðár- króki. Halldór Þ. Jónsson bæjarfógeti og sýslumaður á skrifstofu sinni. ætlum að hafa þau samskipti á öðrum nótum, en verið hefur til þessa. I stað þess að bæjarfulltrúar verði sendir á vinabæjamót ætlum við að reyna að efla samskipti á menningarsviðinu enda var sam- þykkt að láta 150 þúsund krónur renna til menningarmálanefndar bæjarins í þvi skyni," sagði Guðjón. — Grímur Sauðárkrókur: Embætti bæjarfógeta og sýslumaims í nýtt húsnæði Óánægja með stimpilklukkur á ríkisspítölunum: Þetta er innanhússmál - segir Ásmundur Brekkan yfirlæknir röntgendeildar Landspítalans STARFSMENN á nokkrum deildum ríkisspítalanna hafa neitað að nota stimpilklukkur sem nýlega hafa verið settar upp á spitölunum. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu um síðustu helgi er launaskrifstofu ríkissp- ítalanna heimilt að greiða út laun samkvæmt stimpilklukkum ríkisspitalanna þannig að þeir starfsmenn sem ekki nota stimp- ilklukkur fá ekki greiddar gæsluvaktir, yfirvinnu og álag sem unnið er eftir 15. mars. Haft var eftir Pétri Jónssyni framkvæmdastjóra stjómunar- sviðs ríkisspítalanna að starfsmenn á þremur læknadeildum, röntgen- deild og rannsóknarstofum ríkissp- ítalanna hefðu neitað að nota stimpilklukkumar sem hefði haft þau áhrif að starfsmenn á öðmm deildum neituðu því einnig. Ásmundur Brekkan, yfirlæknir á röntgendeild Landspítalans, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta mál hefði verið mikið rætt innan sinnar deildar en að hann vildi ekki láta hafa neitt eft- ir sér. „Þetta mál er innanspítalamál og hefur verið gífurlega mistúlkað í fjölmiðlum. Ég vil ekki láta hafa neitt eftir mér,“ sagði Ásmundur. Sýslumannsembætti Skaga- fjarðarsýslu og bæjarfógeta á Sauðárkróki flutti í nýtt húsnæði við Suðurgötu 1 mánudaginn 21. janúar. Embætti bæjarfógeta og sýslu- manns hefur á undanfömum árum búið við mikil þrengsli á Víðigrund 5, en fyrir tæpum fjórum árum var hafist handa við byggingu þess nýja húss, sem nú er tekið í notkun. Að sögn Halldórs Þ. Jónssonar sýslumanns og bæjarfógeta er hér um gífurlega breytingu að ræða, sérstaklega hvað varðar aðstöðu starfsfólks embættisins og einnig þeirra fjölmörgu sem sækja þurfa þjónustu til þessarar stofnunar. Að vísu, sagði Halldór, er hús- næðið væri ekki fullbúið ennþá, en væntanlega verður það allt komið í notkun í vor eða fyrrihluta sumars. Mestu munar um rúmgóða af- greiðslu og afgreiðslusal og einnig aðgengilegar skjalageymslur. Þá verður nú einnig tekinn í notkun nýr dómsalur, en fram til þessa hafa allir dómar verið kveðnir upp á skrifstofu fulltrúa bæjarfógeta. Ætlað er að fyrir sumarið flytjist einnig öll starfsemi lögreglunnar að Suðurgötu 1, á neðri hæð húss- ins, en fram til þessa hefur lögregl- an verið í mjög þröngu og óhentugu húsnæði á Suðurgötu 7. Sagði Halldór Þ. Jónsson að þeg- ar frágangi hússins á Suðurgötu 1 væri lokið og sú starfsemi, sem þar á að vera, öll komin í gang væri mjög vel fyrir séð varðandi aðstöðu alla hjá lögreglu og bæjarfógeta- embættinu. — BB. Loðnan gegnir lykil- hlutverki í vistkerfinu - segir forstjóri Hafrannsóknastofnunar „EG er alveg sammála því að við þurfum að fara ityög varlega í veiðum á loðnu, þar sem hún gegnir lykilhlutverki í vistkerfinu í hafinu í kringum landið og það er stefna okkar á Hafrannsóknastofn- un að reyna að fara þarna einhvern milliveg," segir Jakob Jakobs- son forsljóri Hafrannsóknastofnunar. BorgarafUndur, sem haldinn var í Ólafsvík fyrir skömmu, samþykkti ályktun, þar sem varað er við afleiðingum frekari ágangs á veikan og rýran loðnustofn fyrir vöxt og viðgang nytjafisktegunda, svo sem þorsks. Fundurinn lýsti yfir áhyggjum vegna áforma um að ganga frekar á loðnustofninn en mælt hafl verið með og benti á að loðna sé um 40% af fæðu þorsks. „Það má segja að haustveiðar á loðnu hafa verið sáralitlar undan- farin tvö ár, þannig að þorskurinn hefur þá haft aðgang að svo til öll- um loðnustofninum ef að hann hef- ur fundið loðnuna," segir Jakob Jakobsson. Hann segir að hins veg- ar hafí hvað eftir annað borið á því að þorskurinn hafí ekki fundið loðn- una, enda þótt talsvert hafí verið af henni í sjónum. Á borgarafundinum í Ólafsvík kom einnig fram að margir óttast að samhengi sé á milli verulegs samdráttar í þorskveiðum á hefð- bundinni veiðislóð á Breiðafirði síð- ustu tvær vertíðir og þess að varla hafí orðið vart árvissrar loðnugöngu við Snæfellsnes og inn á Breiða- fjörð á sama tímabili. Fundurinn skoraði á stjórnvöld að gera nákvæmar rannsóknir á því hvort um verulega röskun sé að ræða hjá fæðukerfi nytjafiska á þekktum veiðislóðum og hvaða af- leiðingar það ástand gæti haft fyrir veiðar og vinnslu í þeim byggðar- lögum, sem allt eigi undir þeirri fískislóð á ári hveiju. „Menn eru alltaf að leitast við að meta hvaða áhrif þetta hefur en aukinna rannsókna er þörf á þessu sviði,“ segir Jakob. „Við erum að móta ákveðnar tillögur varðandi auknar fæðukeðju- og fjölstofna- rannsóknir og vonumst til að fá stuðning við þær hjá fjárveitinga- valdinu. Það ætti að skila sér með öruggari ráðgjöf og skynsamlegri nýtingu," segir Jakob Jakobsson. Eyþór Stefánsson, tónskáld. Sauðárkrókur: Sjóður í nafni Eyþórs Stef- ánssonar Sauðárkróki. HEIÐURSBORGARI Sauðár- króks, Eyþór Stefánsson tón- skáld, varð 90 ára hinn 23. jan- úar síðastliðinn. í tilefni afmælis Eyþórs sam- þykkti bæjarráð Sauðárkróks að stofna sjóð, með einnar milljónar krónu framlagi, sem bera skal nafn listamannsins. Úr sjóðnum skal veita fé til efl- ingar tónlistarlífs á Sauðárkróki og hafa verið tilnefndir menn til þess að setja sjóðnum skipulagsskrá. Með þessu móti vilja bæjaryfir- völd sýna listamanninum Eyþóri Stefánssyni virðingu og þakka fyrir hans áratuga ágætu störf í þágu menningar og lista. - BB. BHM: Opinn fundur um þýðingarskyldu Sr. Svavar Stefánsson. Axel Árnason, guðfræðingur. Sr. Sigurður Jónsson. Þrír nýir prestar á Suðurlandi Á FUNDI kjörmanna í Þorláks- hafnarprestakalli um síðustu helgi var séra Svavar Stefánsson, sóknarprestur á Neskaupsstað kjörinn sóknarprestur. Aðrir umsækjendur um prestakallið voru séra Helgi Hróbjartsson, séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir og séra Kolbeinn Þorleifsson. Kjörmenn í Stóra-Núpspre- stakalli hafa ákveðið að kalla Áxel Ámason guðfræðing til þjónustu í prestakallinu. Á fundi kjörmanna i Oddapresta- kalli í Rangárvallaprófastsdæmi um síðustu helgi var séra Sigurður Jónsson á Patreksfírði kjörinn sókn- arprestur í Oddaprestakalli. Séra Sigurður var eini umsækjandinn um prestakallið. Biskup Íslands hefur auglýst Glerárprestakall í Eyjafjarðarpróf- astsdæmi laust til umsóknar, en séra Pétur Þórarinsson hefur sagt embætti sínu lausu frá 1. apríl. Umsóknarfrestur er til 15. mars. BANDALAG háskólamanna heldur opinn fund fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30 á Hótel Borg. Yfirskrift fundarins er: Fréttaþörf og þýðingarskylda. Á fundinum verður fjallað um það hvort rétt sé að innlendar sjón- varpsstöðvar sendi út beint frá er- lendum stöðvum og hvort skylt eigi að verða að þýða allt sjónvarps- efni. Mikil blaðaskrif hafa verið um þetta mál að undanförnu í kjölfar þess að reglugerð um þýðingar- skyldu sjónvarpsefnis var breytt og innlendar sjónvarpsstöðvar hófu útsendingar beint frá erlendum stöðvum. Frummælendur á fundinum verða: Svavar Gestsson, mennta- málaráðherra, Markús Örn Antons- son, útvarpsstjóri, Halldór Ármann Sigurðsson, dósent og Kristín Ást- geirsdóttir, sagnfræðingur. Að loknum framsöguræðum verða fijálsar umræður. Fundar- stjóri verður Gunnlaugur Ástgeirs- son, menntaskólakennari. Fundur- inn er öllum opinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.