Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 44
-44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 „Lc&tu m'g fvL /Citra af Inucrjum Lit ? ;PATENTl HÖGNI HREKKVÍSI s L E/K TÍAWBn- /O k BNDA ?" KR-snobb íþróttafréttaritara? Til Velvakanda. Ég get nú ekki orða bundist yfir því sem ég vil leyfa mér að kalla KR-snobb íþróttafréttaritara Morg- unblaðsins. Og vil ég benda á eitt gott dæmi, það er úr körfubolta: í smáklausu í Mogganum 5. febr- úar sl. stendur KR heima gegn UBK í bikarnum. En eins og allir vita er mikið misræmi milli þessara tveggja liða, KR er í úrvalsdeild en UBK í 1. deild. Svo kemur í smáu letri fyr- ir neðan að Grindavík og Njarðvík mætast deginum áður eða þann 12. febrúar. Þetta finnst mér og reyndar fleirum Suðurnesjamönnum vera KR-SNOBB. Það er nú reyndar svo að ef KR er að spila þá eru það allt- af tilefni til meiri skrifa um körfu- knattleik en þegar minni félögin eru að spila. En strákarnir í minni félög- unum vinna alveg jafn mikið fyrir sínum leikjum og KR. Svo er það líka vitað mál að hvergi á landinu er spilaður jafn mikill og góður körfubolti og á Suðurnesjum. Keflavík og Njarðvík eru á toppnum í báðum riðlum. Þó að þessi lið séu kannski ekki jafn stór og KR þá hafa þau örugglega meiri áhorfanda- hóp en öll önnur lið á landinu. Mér var því sem lesanda misboðið með þessum fréttaflutningi.' Mín skoðun er sú að þarna hefði átt að standa Grindavík heima gegn Njarðvík. Því að þetta er stórleikur- inn í átta liða úrslitum en ekki KR og UBK, og veit ég að mikill spenn- ingur er í Suðurnesjamönnum vegna þessa leiks. Þetta er nú bara mín skoðun og langaði mig að koma henni á fram- færi. Áfram körfubolti á Suðurnesj- um. Fjóla Sigurðardóttir * Akvörðun um atkvæði Til Velvakanda! Ég varð hátfundrandi þegar ein af fulltrúum Kvennalistans tók að benda þeim aðilum sem fara með dómsmálin á neikvæðar starfsreglur. Ef hún hefur ekki önnur málefni fram að færa óg þar sem Kvennalist- inn hefur í raun frekar lítið gert í stjórnmálalífinu get ég ekki séð, hvaða sérstakt tilefni er ti! að kjósa listann. Mér finnst galli á lista Alþýðu- flokksins í Reykjavík, að einn úr röð- um Alþýðubandalagsins skipar þar þriðja sætið. Ég tel, að hann hefði gert rétt í því að vera áfram á fram- boðslista Alþýðubandalagsins. Þar sem ég er staddur í neðsta þrepi þjóðfélagsstigans hef ég ekki efnislega ástæðu til að deila mikið á aðra. Aftur á móti tel ég það alls ekki fljótfærnislega ákvörðun að kjósa með Sjálfstæðisflokknum hér í Reykjavík í næstu alþingiskosning- um. Þorgeir Kr. Magnússon Sjómenn: Á neyðarstund er ekki tími til lesninga. Kynnið ykkur því í tíma hvar neyðarmerki og björgunartæki eru geymd. Lærið meðferð þeirra. Víkveiji skrifar Víkveija hefur borist eftirfar- andi bréf frá Jóni Ásgeiri Sig urðssyni, fréttarritara hljóðvarps ríkisins í Bandaríkjunum: „Viðvíkjandi Vikverjaskrifum 23. janúar 1991: „Því miður er enn sá ljóður á mörgum fréttariturum hljóðvarps ríkisins í útlöndum, að þeir ráða ekki við skoðanir sínar, þegar þeir ætla að segja fréttir ... þeir vilja (fremur) koma einhverri skoðun á framfæri en skýra frá staðreynd- um.“ (Víkveiji, 23.1. 1991.) Þessi Víkveija-pistill er vísvitandi hafður nægilega óljós, til þess að fela í sér almennan og illhrekjanleg- an óhróður um sérhvern og alla fréttaritara Ríkisútvarpsins erlend- is. Væri þetta birt undir nafni, þætti mér pistillinn ekki svaraverð- ur. En nafnleysið gerir Morgunblað- ið ábyrgt og því skal svara óhróðri Víkveija: Mig grunar að tilefni skrifa Víkveija séu fréttaskýringar sem ég flutti 17. og 18. janúar síðastlið- inn. Víkveiji er líklega ekki blaða- maður, úr því hann gerir engan greinarmun á hreinni frétt og fréttaskýringu. En honum ogöðrum til glöggvunar skal þess getið, að hjá alvöru fjöimiðlum (þ.á m. Morg- unblaðinu) þykir það sjálfsögð þjón- usta við lesendur að setja fréttir í samhengi. Það er gert með frétta- skýringum — vangaveltum um það sem hefur verið í fréttum. Dæmi Víkveija: 1) „Er það frétt, að Bandaríkjamenn kunni að snúast gegn stríðsrekstrinum við Persa- flóa, þegar sjónvrpsmyndir taka að berast þaðan af mannfalli?" Þetta sagði_ég 18. janúarij.Henry. Kissinger fyrrum utanríkisráðherra sagði í morgun að landhersókn bandamanna mætti alls ekki hefjast of fljótt. Hann sagði að þegar frétt- ir færu að berast af mannfalli í liði bandamanna, gæti almenningsálit snarlega snúist upp í útbreidda andstöðu gegn stríðinu.“ Þetta er nú öll „skoðun" frétta- ritarans!!! Dæmi Víkveija: 2) „Er það frétt að menn þurfí að lesa það í bókum eftir nokkur ár, hvað gerðist á fyrsta degi sóknaraðgerðanna gegn Saddam Hússein og ástæða sé til að taka hæfílegt mark á því sem fjölmiðlar segja?" Þetta sagði ég 17. janúar: „Það kemur á óvart hversu stranga rit- skoðun Bandaríkin og bandamenn hafa tekið upp við Persaflóa... í Víetnamstríðinu voru blaðamenn beðnir að virða ákveðna vinnuregl- ur... (en við Persaflóa fá) blaða- menn aðeins að vinna í sérstökum hópum sem eru undir eftirliti her- manna sem fylgja þeim. Þær sjón- varpsmyndir og fregnir sem við fáum frá Persaflóa hafa semsagt farið í gegnum strangt eftirlitskerfi herafla bandamanna." Víkveiji skrifar á ábyrgð ritstjóra Morgunblaðsins, þar eð hann er ekki nafngreindur. Ég trúi því alls ekki að það sé skoðun Morgunblaðs- ins, að allt sé satt og rétt sem (er- lendir??) fjölmiðlar segi — það sé engin ástæða til þess að „taka hæfilegt mark á því sem (erlend- ir??) fjölmiðlar" segi??? Þá daga sem ég sendi þessa fréttaskýringu sættu stjórnvöld hér í Bandaríkjunum harðri gagnrýni vegna ritskoðunar .og allir.þapdarí'skir. fjöJmiðlar. gátu þess stöðugt að fréttir frá Persaflóa væru fengnar undir skilyrðum strangrar ritskoðunar. Morgunblaðið er EKKI jafn lélegt og ætla mætti af þessum auma Víkveija-pistli.“ xxx Víkveiji hefði getað skilið að Jón Ásgeir teldi sig þurfa að nota stóryrði ef umræddur pistill Víkveija hefði verið ritaður af sama dólgshætti og hann notar. Víkveiji hefur hvað eftir annað vakið máls á þeim ósið fréttastofu hljóðvarps ríkisins að blanda saman fréttum og fréttaskýringum á þeim tíma, þegar hlustendur telja sig vera að fá staðreyndir en ekki einkaskoðan- ir fréttaritara eða mat þeirra á því, sem þeir lesa í erlendum blöðum. Víkveiji lætur hvorki Jón Ásgeir né aðra þagga niður í þeirri gagn- rýni, síst af öllu með dylgjum og hroka. í pistli Víkveija 23. janúar var áhersla lögð á það atriði að á ákveðnum tímum, fréttatímum, ættu menn að geta kveikt á útvarpi eða sjónvarpi og hlustað á fréttir en ekki einkaskoðanir fréttaritara. Voru borin saman vinnubrögð hljóð- varps ríkisins og fréttasjónvarps- stöðvanna Sky og CNN en í Banda- ríkjunum hefur CAWeinmitt fengið sérstakt lof fyrir að gera skýran mun á fréttum annars vegar og fréttaskýringum hins vegar. Það verður ekki gert í hljóðvarpi eða sjónvarpi með því að blanda þessu öllu saman á tíma sem er kallaður fréttgtími. ............

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.