Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 19 Ólafur, Hlöðver og Guðbergur við brautarstæðið í Hafnarfirði. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Bílaíþróttir: Ný keppnisbraut hönnuð RALLY cross, áhættuatriði og allskyns uppákomur verða meðal þess sem verður í gangi á nýrri keppnisbraut, sem sex félagar inn- an Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur hafa haft veg og vanda af að koma úpp. Framkvæmdir við brautina eru þegar hafnar og hefur kílómetra löng braut verið rudd í hrauninu, á Krýsuvíkurleið, skammt fyrir ofan Hafnarfjörð. „Þetta er búið að vera mikil jarðvinna, en nú finnst okkur lítið eftir. Það verður fullkomin aðstaða fyrir áhorfendur og pláss fyrir viðgerðarþjónustu keppnis- tækja, en við búumst við hátt í 50 farartækjum í fyrstu mótin,“ sagði Guðbergur Guðbergsson, einn sex- menninganna sem að brautinni standa. Keppni á brautinni mun skiptast í marga flokka. Verður flokkur fyr- ir venjulegt rally cross bíla, amer- íska bíla og síðan verður flokkur sem kalla mætti druslubílaflokk, auk flokka fyrir mótorhjól og fjór- hjól. í hveijum bílaflokki munu 5-10 bílar aka hringi um brautina. Ólíkt fyrri flokkum er þessi braut sér- hönnuð fyrir aksturkeppni og verð- ur m.a. malbikuð að hluta, en þó mest á fíngerðri möl. Dómkirkjan: Dómkórinn syng- ur á kvöldvöku í KVÖLD kl. 20.30 verður kvöld- vaka í Safnaðarheimili Dóin- kirkjunnar í Gamla iðnskólanum, Lækjargötu 14a. Á kyöldvökunni verður fagnað góðri gjöf sem er nýr flygill. Það var ístak hf., byggingaverktaki hinna umfangsmiklu innréttingu safnaðarheimilisins, sem gaf flygil- inn við afhendingu verks síns. Hefur Dómkórinn æft söngskrá af þessu tilefni sem byggist á píanó- undirleik og flytur hana á kvöldvö- kunni. Sömuleiðis verður einleikur og samleikur á píanó af höndum þeirra Jóseps Gíslasonar og Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista, sem er og söngstjóri kórsins. Á eftir verður kaffi á könnunni. Allir vel- komnir. „Svona braut hefur vantað í mörg ár, enda sýnir sig að áhugi manna á því að keppa er mikill. Við ætlum að reyna fjármagna brautargerðina með auglýsinga- sölu, en búumst við 3-4.000 áhorf- endum að hverri keppni. Okkur fannst bara vanta braut, sama hvað það kostaði. Þijú mót verða á braut- inni í sumar, það fyrsta í byijun júní. Við viljum frekar hafa fá mót og gera þau að stórhátíðum, en mörg lítil," sagði Guðbergur. -----*-*-»--- Gerð og búnaður ökutæk]a: Ljósker á alla eftirvagna NÝ og talsvert breytt reglugerð um gerð og búnað ökutækja hef- ur verið gefin út. Meðal nýmæla í reglugerðinni má nefna að ljósker eiga að vera á eftirvögnum, sambærileg við þau sem éru aftan á bifreiðum. Tengi- búnaður bifreiða fyrir eftirvagn skal vera samþykktur af Bifreiða- skoðun íslands og til að búnaðurinn fáist samþykktur verður meðal ann- ars að vera raftengi fyrir ljósabúnað á eftirvagni. Á heyvögnum og öðrum vögnum, sem eru að mestu notaðir utan al- fara leiðar, er nóg að hafa hvít glit- augu að framan og þríhyrnd rauð glitaugu að aftan. Hjólbarðar skulu vera merktir og framleiddir samkvæmt viðurkennd- um stöðlum. Keðjur og neglda hjól- barða má ekki nota á tímabilinu frá og með 15. apríl til og með 31. október nema við sérstakar aksturs- aðstæður. Ákvæði eru komin vegna hávaða og mengurnar frá bifreiðum. Mæl- ing vegna mengurnar er nú gerð þegar bifreið er færð til aðalskoðun- ar ár hvert. Ríkisféhirðir: Bankar sýni varkárni við innlausn ríkistékka RÍKISFÉHIRÐIR hefur sent til- mæli til bankanna að gæta ýtrustu varkárni í sambandi við innlausn tvístrikaðra tékka frá ríkinu þar sem brögð hafa orð- ið á því að fólk falsi umboð. Tékkar ríkisféhirðis vegna barnabóta eru sendir út í pósti. Ekki er talin full trygging fyrir því að þeir berist til réttra aðila og eins getur þeim hreinlega hafa verið stolið. Brögð hafa verið á því að fólk falsi umboð og sýni síðan eigin persónuskilríki til að fá út peninga á fölskum forsend- um. Til að fyrirbyggja þetta hefur ríkisféhirðir sent fyrrgreind til- mæli til bankanna. Samkvæmt reglum um tékka, sem eru tvístrikaðir og stílaðir á nafn, má eingöngu leggja þá inn á bankareikning viðkomandi. Fólk sem á ekki bankareikning getur hins vegar fengið sína eigin tékka innleysta með því að sýna persónuskilríki. Aðalleikarar leikritsins Bréf frá Sylviu, þær Guðbjörg Thoroddsen og Helga Bachmann. Þjóðleikhúsið: Bréf frá Sylvíu Frumsýning á Litla sviðinu 1. mars NÚ ERU æfingar langt komnar á áhrifamiklu bandarísku leikriti sem frumsýnt verður á Litla sviði Þjóðleikhússins 1. mars. Höfund- ur þess er Ross Leiman Goldemb- er og byggir hún verkið á fjölda sendibréfa sem skáldkonan Sylv- ia Plath skrifaði fjölskyldu sinni allt frá menntaskólaárunum til dauðadags. Sylvia Plath fæddist í Boston 1932, hélt til framhaldsnáms í Eng- landi og giftist þar Ted Hughes, sem nú er lárviðarskáld Breta. Sylv- ia svipti sig lífi í febrúar 1963. Höfundurinn lýsir harmrænu hlut- skipti skáldkonunnar, vonum henn- ar og draumum og tilfínningaríkum samskiptum Sylviu og móður henn- ar, Aurelíu Plath. Leikkonurnar Helga Bachmann og Guðbjörg Thoroddsen takast þarna á í blæbrigðaríkum leik. Edda Þórarinsdóttir leikstýrir nú í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu en hún stundaði nám í kvikmyndaleikstjórn í Hollywood 1987-1989. Guðrún J. Bachmann þýddi leikritið úr ensku og Sverrir Hólmarsson þýddi fjögur ljóð Sylviu Plath sem flutt eru í leiknum. Sviðshreyfingar annaðist Sylvia von Kospoth, tónlist samdi Finnur Torfi Stefánsson, Gunnar Bjarnason hannaði leikmynd og Ásmundur Karlsson lýsingu. (Úr fréttatilkynningn) TH 4500 Helluborð „Moon“ keramik yfirborð, snertirofar, svartur rammi eða stálrammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, hitaljós, tímastilling á hellum. TH 2010 Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. TH490 Helluborð „Moon“ kermik yfirborð, stálrammi, fjórar hellur, þaraftvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. TH 483 B Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. Funahöfða 19 sími 685680 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.