Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR 20. FEBRÚAR 1991 23 Havel gagnrýmr þing- ið fyrir seinagang Prag. Reuter. VACLAV Havel forseti Tékkóslóvakíu gagnrýndi þing landsins á sunnudag fyrir seinagang við Iagasetningar á sviði efnahagsmála og sagði að efnahagshrun blasti við ef þingmenn leystu ekki hið snarasta ágreining um einkavæðingu. Havel gerði ástand og horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar að umtalsefni í vikulegu útvarpsávarpi sem hann fiytur á sunnudögum. „Það er vá fyrir dyrum og verði ekkert af nauðsynlegri lagasetn- ingu hrynur hagkerfið. Forsetinn fær ekkert að gert og verður ein- ungis áhorfandi að öllu saman því hann er valdalaus," sagði Havel í ávarpinu. Hann mistókst í fyrra að fá þingið til að samþykkja aukin völd honum til handa. Þrenn lagafrumvörp sem miklu varða við að koma á markaðsbú- skap í Tékkóslóvakíu liggja fyrir þi’nginu og hefur þeim miðað lítt áleiðis. Hvatti Havel þingmenn til að láta af valdatogstreytu og hraða lagasetningunni til þess að koma í veg fyrir hrun. Frumvarp um einka- væðingu stórra ríkisfyrirtækja hef- ur tafist í þingnefnd í nokkrar vikur þar sem þingmenn geta ekki komið sér saman um annað lagafrumvarp um að fasteignum sem kommúnist- ar gerðu upptækar verði skilað til fyrri eigenda. Þriðja frumvarpið sem umræðum hefur ekki verið lok- ið um kveður á um einkavæðingu í landbúnaði. Sprengjutilræðin í Lundúnum; IRA lýsir verknað- inum á hendur sér Lundúnum. Reuter. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) hefur Iýst sprengjutilræðunum í tveimur af helstu járnbrautarstöðvum Lundúna í fyrradag á hendur sér. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði á breska þinginu í gær að leitinni að tilræðismönnunum yrði ekki hætt fyrr en þeir fyndust. í yfírlýsingu, sem IRA sendi breskum fjölmiðlum í fyrrakvöld, voru bresk yfirvöld sökuð um að bera ábyrgð á því að einn maður og um 40 urðu fyrir meiðslum í til- ræðunum þar sem þeim hefði láðst að tæma Victoria-stöðina, þar sem síðari sprengjan sprakk, af fólki þrátt fyrir að sú fyrri hefði sprungið þremur klukkustundum áður. „Taka ber mark á viðvörunum okkar í framtíðinni,“ sagði í yfirlýsingunni. Heimildarmenn innan lögreglunn- ar sögðu að sprengjutilræðin kynnu að vera liður í breyttum baráttuað- ferðum IRA. Samtökin hafa á und- anförnum árum aðeins gert árásir á hernaðarleg og pólitísk skotmörk. Síðast gerðu þau sprengjuárás á óbreytta borgara um jólin 1983, en þá biðu sex manns bana er sprengja sprakk við Harrods-stórverslunina í Lundúnum. Heimildarmenn innan IRA vöruðu við því að liðsmenn samtakanna hygðust beita margvíslegum aðferð- um á næstunni þannig að bresk yfir- völd yrðu í algjörri óvissu um hvað kynni að gerast næst. Chamorro íÞýskalandi Violeta Chamorro forseti Nicaragua er nú í þriggja daga heimsókn í Þýskalandi. Hér sést hún á gangi ásamt Richard von Weizsácker forseta Þýskalands. í baksýn er þýskur heiðursvörður. Fellst Eþíópíustjórn á sjálfsljórn Erítreu? Nairobi. Reuter. STJÓRNIN í Eþíópíu hyggst fallast á mikilvæga tilslökun í fyrirhuguð- um viðræðum hennar við erítreska skæruliða, sem hefjast í Washing- ton í vikunni, að sögn heimildarmanna sem tengjast náið viðræðunum. Þeir sögðu að stjórnin hygðist leggja til að Erítrea fengi sjálfstjórn í ríkjasambandi við Eþíópíu og síðan yrði efnt til þjóðaratkvæða- greiðslu um algjört sjálfstæði landsins til að binda enda á langvinn- asta stríð Afríku. Erítrea naut tarkmarkaðrar sjálf- stjórnar í nokkur ár þar til Haile Selassie Eþíópíukeisari innlimaði það algjörlega í Eþíópíu árið 1962. Heimildarmaður í Nairobi sagði að samninganefnd stjórnarinnar myndi leggja fram tillögu um að Erítrea fengi sjálfstjórn á ný. „Eftir nok- kurra ára frest yrði síðan efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu í Erítreu um sjálfstæði landsins," sagði hann. Búist er við að í viðræðunum í Was- hington verði einkum rætt hversm langur fresturinn veroi og nvein.6 standa eigi að myndun bráðabirgða- stjórnar. Fyrri viðræður deiluaðilanna hafa strandað á því að Eþíópíustjórn hef- ur ekki viljað fallast á að veita Er- ítreu sjálfstæði eða heimila þjóðarat- kvæðagreiðslu um málið. Talsmaður Þjóðfrelsisfylkingar Erítreu (EPLP) sagði að ef Eþíópíu- stjórn féllist á sjálfsákvörðunarrétt Erítreumanna myndi það marka tímamót' í friðarviðræðunumi ■ * ■ Hamstur í Moskvu Reuter Örtröð var í matvælaverslunum í Moskvu í gær þegar borgarbúar hömstruðu vörur vegna yfirvof- andi verðhækkana. Keyptu þeir allt sem fáanlegt var. Valentín Pavlov forsætisráðherra boðaði í fyrra- dag 60% verðhækkun á matvælum og afnám opin- berra niðurgreiðslna. Svíþjóð: Leiðtogakreppa 1 yngsta flokknum Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞAÐ er strax komin upp leiðtogakreppa í yngsta stjórnmálaflokkn- um í Svíþjóð, Nýja lýðræðisflokknum. Formaður flokksins, Bert Karlsson, hefur sagt af sér. Hann er kunnur kaupsýslumaður og á m.a. Sommarland-skemmtigarðsins í Skara. Hann segir að sér hafi verið hótað lífláti og mikilvægir viðskiptavinir hafi hótað að hætta viðskiptum við sig ef hann segði ekki af sér. Karlsson verður áfram í flokks- þar sem Olle Stenholm formaður stjórninni en tekur fjölskyldulífíð félags blaðamanna reyndi ásamt og viðskiptin fram yfir stjórnmála- öðrum félögum sínum að sýna fram frama. Dropinn sem fyllti mælinn á ókunnugieika Karlssons í stjórn- var sjónvarpsþáttur í síðustu viku málum. Daginn eftir gat Bert Karls- son leitt það í ljós í öðrum sjónvarps- þætti að blaðamennirnir væru enn verr að sér. Nýi lýðræðisflokkurinn ætlar þrátt fyrir ákvörðun Karlssons að bjóða fram í þingkosningunum 15. september. í skoðanakönnun sem gerð var fyrir skemmstu sögðust 11,7% aðspurðra styðja flokkinn. Einungis jafnaðarmenn og Hægri- flokkurinn voru með meira fylgi. Skemmtidagskrá, sem byggir á söngferli hins vinsæla söngvara, Vilhjálms Vilhjálmssonar. Fram koma: Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Rut Reginalds, Hermann Gunnarsson, Ómar Ragnarsson og Magnús Kjartansson. , Leikstjóri: Egill Eðvaldsson NÆSTU SÝNINGAR: Febrúar: 23. Mars: 2., 8., 9., 15. og16. Húsið opnað kl. 19. Glæsilegur matseðill. Borðapantanir í síma 77500. Eftir skemmtidagskrá verður dúndrandi dansleikurtil kl. 03. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar 111II HSI I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.