Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 Samvinna á mikla framtíð fyrir sér eftir Jón Sigurðsson Vel fer á því að fjalla um sam- vinnumál í námunda við 20. febrú- ar, stofndag Kaupfélags Þingey- inga, sem oft er talinn afmælisdag- ur samvinnustarfs á Islandi. Sér- staklega er hollt nú að minnast þess að erfiðleikar eru engin ný- mæli í íslenskri samvinnusögu. Það er ekkert nýtt að samvinnufélög hafi lagt upp laupana. Reynslan hefur jafnan staðfest þörfina fyrir samvinnustarf með nýjum samtök- um á rústum fyrri ósigra. Það er ekki heldur nýtt að sam- vinnumenn nýti sér t.d. hlutafélög því að þau rúma ágætlega sam- vinnueinkenni ef menn gæta grund- vallaratriða. Vinsældir hlutafélaga meðal samvinnumanna nú sýna þó einkum að íslensk lög um sam- vinnufélög hafa dregist aftur úr framvindu samfélagsins. Úr því verður bætt með nýrri löggjöf og athyglisvert frumvarp liggur nú fyrir Alþingi. Brýnar þarfir almennings Samvinnustarf á sér mikla framtíð vegna þess að það mætir brýnum þörfum almennings. Sam- vinnustarf er fyrst og fremst úr- ræði þeirra sem ekki hafa fjármagn aflögu til að leggja í íjárfestingu. Hér er m.a. um að ræða: a) dreifða smáframleiðendur t.d. bændur, fiskimenn, handverksmenn, þjón- ustuaðila; b) lágtekjufólk í hópi almennra nejdenda, íbúðabyggj- enda, spariljáreigenda o.fl.; c) starfsmenn í fyrirtæki t.d. þegar eigendur þess vilja gefa það upp á bátinn, eða þá sveina í sömu iðn o.s.frv.; d) byggðarlög sem standa höllum fæti; — og fleiri mætti telja. í eðli sínu er samvinnustarf mót- vægi gegn ráðandi forráðaöflum atvinnulífsins og á að geta veitt þeim æskilegt aðhald. Augljóslega eykur samvinnustarf mjög á fjöl- breytni og valkosti í atvinnulífinu og er það einnig til góðs. Það er hins vegar engan veginn eðlislægt að samvinnurekstur eigi að ná drottnunaraðstöðu, forystuhlut- verki eða ráðandi markaðarhlut. Það er undir öðru komið. Sama á við um stjórnmálavafstur. Grunneinkenni samvinnustarfs eru aðallega þessi: a) þátttaka er frjáls miðað við starfsvettvang eða svið félagsins; b) félagið lýtur lýðræðisstjórn; c) ekki er stefnt að hámarksarði á stofnfé eða hlut- afé; heldur d) er arði fremur skipt eftir viðskiptahlut á rekstrar- reikningi eða varið til sameiginlegra þarfa; e) félagið setur sér markmið á sviði fræðslu, mannúðar og fé- lagsmála. Samvinnustarf miðast því við notendur fremur en eigendur þótt um sömu aðila sé að ræða og það miðast við hlutdeild fremur en séreign. Að öðru leyti eru tegundir sam- vinnufélaga óteljandi. Nefna má félög um vinnslu og sölu afurða, félög um útvegun rekstrarvöru, al- menna dagvöruverslun, pöntunar- félög, lestrarfélög, gagnkvæm tryggingafélög, sparisjóði, hvers konar fyrirtæki í eigu eigin starfs- manna, félög um íbúðabyggingar, búsetafélög, mötuneyti, barnaheim- ili, félagsbú, áhafnarfélög í útvegi, fiskvinnslufélög útvegsmanna, fé- lög um samrekstur skrifstofu, al- hliða héraðssamvinnuféiög, o.s.frv. A tiltölulega fáum sviðum hér Á íslandi hefur samvinnustarf orðið veigamikið á tiltölulega fáum sviðum. Sem dæmi má nefna: kaup- félögin, Sláturfélag Suðurlands, Mjólkurfélag Reykjavíkur, Mjólk- urbú Flóamanna, Samvinnufélag útvegsmanna í Neskaupstað, Hreyfill, byggingarsamvinnufélög- in, sölusamtök ýmissa smáframleið- enda, samtök á sviði heimilisiðnað- ar, og margt fleira mætti nefna. Markvert er að bæði félögin sem standa að Vátryggingafélagi Is- lands hf. eru gagnkvæm félög. Sparisjóðirnir í byggðum landsins hafa ráðandi samvinnueinkenni þótt sérstöðu hafi. Osta- og smjörsalan og Mjólkursamsalan eru samvinnu- starf með sérstöku sniði. Oft hefur verið bent á nokkur samvinnuein- kenni á Sölusamlagi ísl. fiskfram- leiðenda, SÖlumiðstöð hraðfrysti- húsanna og á innkaupasamböndum smákaupmanna o.fl. Samvinnuferð- ir hf. hafa sýnt samvinnueinkenni m.a. með endurgreiðslu arðs til við- skiptamanna. Víða eru mötuneyti og barnaheimili rekin með -i'áðandi samvinnueinkennum og lítil pöntun- arfélög eru mörg. Búsetahreyfingin er nýtt og öflugt frumkvæði í íslensku samvinnustarfi sem vekur óblandna aðdáun. En tilraunir til framleiðslusamvinnufélaga í eigu starfsmanna urðu ekki varanlegar, einkum vegna úreltra lagaákvæða. Alhliða héraðssamvinnufélög eru umsvifamikil á íslandi en flest kaupfélögin eru í þessum hópi. Með búsetubyltingu og bættum sam- göngum hlaut þessum félögum að fækka en þau eiga þó enn mjög brýnu hlutverki að gegna á jaðar- svæðum landsbyggðarinnar þar sem vandinn er mestur. Störf og hlutverk þessara félaga við íslensk- ar aðstæður skyldi enginn vanmeta. Það er löngu liðin tíð að þau verði kennd við einokun af nokkru tagi. Sérgrcining eðlileg Það er eðlilegur þáttur í fram- Jón Sigurðson „Eitt mikilvægasta verkefni samvinnu- manna nú á næstu vik- um er að þrýsta á um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi til laga um samvinnufélög sem við- skiptaráðherra hefur nýlega lagt fram.“ vindu samfélagsins að rekstrarsvið kaupféiags verði sérgeind eða al- gerlega aðgreind í sjálfstæð félög þar sem byggðarvandi krefst ekki samþættingar áfram. Framþróun samgangna leiðir og til þess að landið er orðið eitt markaðssvæði að miklu leyti og því verður eðlilegt að samvinnumenn samhæfí störf sín í vaxandi mæli um land allt á hveiju meginsviði. Á sama hátt hlaut að koma að því að rekstrarþáttur Sambands ísl. samvinnufélaga yrði skipt á milli sjálfstæðra félaga eins og nú hef- ur verið gert. Þetta hafa margir samvinnumenn lengi séð fyrir en því miður réðu atvik því að ekki varð af aðgerðum meðan fjárhagur leyfði æskilegt svigrúm. Það er engan veginn eðlislægt samvinnu- starf að öll hugsanleg athafnasvið séu í einu og sama félaginu. Mörg dæmi eru þekkt um árangursrík samvinnufélög á afmörkuðum og sérgreindum sviðum. Ástæða er til að benda á þá slagsíðu sem komið hefur á sam- vinnufélögin við það að stofnsjóður staðnar og slitnar úr tengslum við raunverulegt eigið fé. Stofnsjóðs- eign hvers félagsmanna hefur einn- ig dregist svo aftur úr öllum Ijár- hagslegum stærðum að mönnum finnst að þeir eigi ekkert í félaginu sínu en auk þess leggja nýgildandi lög óeðlilegar hömlur á stofnsjóðs- eign. Þá hefur það viðgengist að stofnsjóðsinnstæður einstakra fé- lagsmanna verði svo mismiklar inn- býrðis að engu réttlæti hlítir. Fé- lagsleg uppdráttarsýki í kaupfé- lögunum á að nokkru leyti rætur í þessari öfugþróun. Ný löggjöf nauðsyn Eitt mikilvægasta verkefni sam- vinnumanna nú á næstu vikum er að þrýsta á um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi til laga um sam- vinnufélög sem viðskiptaráðherra hefur nýlega lagt fram. Frumvarpið er stórkostlegt og róttækt fram- faraskref og skiptir sköpum um nýtt sóknarskeið í íslenskri sam- vinnusögu. Þetta frumvarp er vitan- lega ekki samið til þess eins að hjálpa þeim kaupfélögum eða sam- vinnufélögum öðrum sem nú eru í vanda stödd heldur er það til efling- ar íslensku þjóðlífi og tækifærum alls almennings til virkrar þátttöku í gróandi atvinnulífi. Heitasta afmælisóskin 20. febr- úar er sú að forysta samvinnu- manna minnist þess að öll þessi fyrirhöfn er vegna þeirra þjóðfé- lagsþegna sem annars ættu ekki kost á virkri þátttöku í lýðræðilegri stjórnun atvinnulífsins eða á endur- greiðslu arðs í samræmi við eigið framlag. Aðrir þurfa ekki á sam- vinnu að halda lífvæn samvinnu- hreyfing mótast af þessari vit- und. Höfundur er skólastjóri Samvinnuskólans á Bifröst. • • Orugg' umferð eftir Víking Guðmundsson Á undanförnum árum hefur verið fjallað mjög mikið um akstur bif- reiða og önnur umferðarmál s.s. umferð gangandi fólks og fénaðar. í því sambandi er leitað leiða til að auka öryggi og koma í veg fyrir óhöpp og slys. Þessi viðleitni hefur grópast svo inn í vitund fólks að þetta er jafnan efst í huga hvers manns. Þó eiga sér alltaf stað óhöpp. Mig Iangar til að leggja orð í belg í þessari umræðu og miðla af reynslu gamals bflstjóra. Ég veit að'-þessi mál hafa verið rædd og leiðir prófaðar, hætt við sumar og leitað nýrra. Mér virðist þó mest kapp hafa verið lagt á að auka ör- yggi þeirra sem aka um í bílum. Nú eiga allir bílar að vera búnir öllum bestu öryggistækjum sem völ er á s.s. ljósum, flautu, öryggisbelt- um í fram- og aftursætum, góðum hjólbörðum og óaðfínnanlegum hemlum. Það er bara verra ef menn verða svo öruggir að þeir sleppa allri aðgæslu. Eg sé ekkert voða- legra en bflstjóra, reyrðan í öryggis- belti, með fullum Ijósum, á fullri ferð við vafasamar aðstæður, þeyt- andi flautu ef nokkurt kvikt sést og bölvandi öllu og öllum sem á vegi hans verða. Þarna eru öryggis- tækin fyrir rangan aðila. Hin náttúrlega umferð þarf líka að vera virk. Gangandi fólk og dýr í umhverfinu þurfa að geta varast bílinn. Öryggið þarf alltaf að vera tvöfalt. Ótti hjá báðum aðilum hvor- um við annan og möguleikar beggja aðila til að fylgjast hvor með öðr- um. Gangandi og hjólandi fólk vinstra megin á vegi. Við skulum athuga allan öryggisbúnaðinn og byija á bílstjóranum. Það er mjög vafasamt að allir þeir sem aka um vegi landsins séu færir um það. Það virðist þó vera kappsmál að sem flestir hafí réttindi til að aka bíl. Það er lítið fengist um skapbresti fólks, fólsku, ábyrgðarleysi eða kæruleysi. Brot á lögum og reglum eru afgreidd með smásektum ef þau sannast og svo heldur sá seki áfram. Ljósin Nú er skylda að nota ljósin allan sólarhringinn. Er það skynsamlegt? í sólskini ættu bílar að sjást án Ijósa nógu snemma. Éf þeir sjást ekki í tæka tíð er þá líklegt að annað sem á veginum er sjáist? Skapar þetta ekki falskt öryggi? Sést bílþmeð ljósum betur en ljós- laus bíll? Ég vil fullyrða að svo sé ekki í ölllum tilfellum. Skepnur sjá ekki bílinn á bak við full ljós og varast hann því ekki. Þetta er stað- reynd sem allir þurfa að vita. Ég hef horft á ljónstyggan hest hlaupa í veg fyrir bíl með fullum ljósum og hann hafði sýnilega ekki hug- mynd um bílinn fyrr en hann skall á honum og þó var aðeins að byija að skyggja. Gamall bílstjóri sagði mér líka frá því að hann hefði ver- ið á ferð í tunglsljósi í vetrarbyijun. Hált var og hann ók á móti vindi. Hrossahópur var á túni við veginn. Hundar urðu bílsins varir og ruku af stað geltandi. Hrossin styggðust og hlupu út á veginn og á móti bílnum. Bílstjórinn gat ekki stöðvað bílinn í hálkunni en hann skynjaði að hrossin mundu ekki sjá hann og slökkti ljósin. Hrossahópurinn skipti sér um leið og hljóp sitt hvoru megin við bflinn og kom ekki við hann. Hestar sjá mjög vel í myrkri. Það er hægt að þeysa á hesti á harðastökki í myrkri og honum skrikar ekki fótur. Og svo er um aðrar skepnur sem við þurfum að gæta að. Þær sjá ljósin, en þær vita ekki að þær þurfi að varast þau fyrr en þær hafa veður af bílnum, þeim er ekki eðlilegt að óttast ljósið. Skepnur eiga ekki að vera á veg- unum en þær geta sloppið inn á þá. Þjóðvegir eru líka víða óvarðir og óprúttið fólk skilur hlið eftir opin. Sér bílstjórinn alltaf best ef hann ekur með fullum ljósum? Nei. í þoku eða stórhríð sér hann verr og þau skilyrði geta verið að best sé að aka með biðljósum. Það er líklegt að þar sem fjöldaaftanákeyrslur hafa orðið hefðu þær ekki komið til ef menn hefðu ekið með biðljós- um. í fyrsta lagi hefðu menn séð lengra frá sér og í öðru lagi hefðu þeir séð afturljós bflsins á undan fyrr. Þegar ég lærði á bíl var mér kennt að miða akstur og notkun tækja bílsins við aðstæður hveiju sinni. Þetta hefur gefist mér vel og ég sé ekki að það hafi neitt breyst í þeim efnum. Því ætti að miða ljósa- Víkingur Guðmundsson „Þegar ég lærði á bíl var mér kennt að miða akstur og notkun tækja bílsins við aðstæður hveiju sinni. Þetta hef- ur gefist mér vel og ég sé ekki að það haf i neitt breyst í þeim efnum.“ notkun við aðstæður eins og önnur tæki bílsins. Það er ótrúlega þreyt- andi að aka á móti mikilli umferð þar sem allir bílar eru með Ijósum og stór hluti þeirra með fullum ljós- um. Það má líkja því við að aka á móti sól á blautum vegi þar sem maður þarf að veija augum fyrir ljósgeislum bæði ofan frá og neðan, bæði frá sólinni og veginum. Menn eru með svört gleraugu og sólhlífar niðri og sjá svo hvorki umferðarljós né óvænta hluti. Flautan Hún er notuð til að skeyta skapi sínu á öðrum í umferðinni og ætti því að banna hana og taka hana úr öllum bílum. Villidýr öskra um leið og þau stökkva á bráðina. Öryggisbeltin Gera þau bílstjórann ekki óþarf- lega öruggan um sig? Falskt öryggi er ekki til bóta. Ég er ekki á móti öryggisbeltum fyrir farþega en ég vil vara fólk við að nota þau ef það kann ekki að opna þau. Það er nefnilega stundum nauðsynlegt að vera fljótur að opna öryggisbeltin ekki síst ef bíllinn lendir á kafi í vatni, þá er tíminn stundum naum- ur og hugsunin óskýr. Það skaðar ekki öryggi neins búnaðar að benda á annmarka hans og öryggisbeltin eru þar engin undantekning. Hemlabúnaður þarf að sjálfsögðu að vera í fullkomnu lagi. En það er ekki sama hvernig hemlar eru notaðir. Best er að nota þá aldrei svo mikið eða snöggt að hjólin drag- ist föst. Það er ekki hægt að stýra bíl með föst hjólin og hann hemlar best ef hjólin snúast aðeins í átak- inu. Dekkin þurfa að hafa grip eftir þeim árstíma sem þau eru notuð á bílinn og þau þurfa að vera negld ef nota á bílinn í hálku. Keðjur er hægt að nota á stærri bíla en vand- ræðatól á minni bíla. Ég hef nú farið yfir ýmis atriði sem mér finnst hafa vantað f um- ræðuna að undanförnu. Ég vil svo að lokum óska öllum góðrar ferðar og minna þá á að stilling og þolin- mæði eru gott veganesti. llöfundur er varnformaöur Landssambands vörubifreiðastjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.