Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.02.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1991 ATVINNUAI JCZI Y^IMC^AR Yfirvélstjóri óskast á skuttogara frá Vestfjörðum. Upplýsingar í síma 94-2530 og hs. 94-2521. Matreiðslumeistari óskast á íslenskt veitíngahús í Osló, helst nýútskrifaður. Uppýsingar í síma 90-47-2-360156 eftir kl. 13 næstu daga. Tannsmiður óskast strax til starfa í ca 2 mánuði vegna forfalla. Upplýsingar í síma 629197 (Arndís) eða 628771 (Gísli). Gísli Vilhjálmsson, tannlæknir. Sérgrein: Tannréttingar. . TIL SÖLU Matvöruverslun Til sölu er lítil, hugguleg hverfaverslun í Hafn- arfirði. Verslunin er staðsett í rótgrónu, góðu hverfi. Verslunin hefur mikla möguleika, t.d. kvöldsölu, myndbandaleigu o.fl. Mjög gott verð (1 x mánaðarvelta). Miklir möguleikar á veltuaukningu. Góð bílastæði. Allar frekari upplýsingar veitir: Blindrabókasafn íslands Starfsmaður óskast til afleysinga í náms- bókadeild frá 1. apríl. Um er að ræða hluta- starf. Æskilegt er að umsækjandi hafi rétt- indi til kennslu á framhaldsskólastigi. Upplýsingar í símum 686922 og 687515. Húsvarsla - íbúð I verslunar- og skrifstofuhús nálægt miðbæ Reykjavíkur vantar traustan starfskraft í hús- vörslu. Þrif á göngum, smá viðgerðir, al- mennt eftirlit, opnun og lokun hússins o.s.frv. Góð íbúð fylgir starfinu. Vinnan er ekki líkamlega erfið né erilsöm en krefst árvekni, heiðarleika og reglusemi. Eiginhandarumsókn, sem tilgreini það sem máli skiptir, sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Öryggi - 8828“. ÝMISLEGT Verktakar athugið! Óskum eftir að komast í samband við verk- taka á sviði þak- og húsaviðgerða með sam- starf í huga. Erum með umboð fyrir heims- þekkt merki á efnum til viðgerða á lekum þökum og steypuskemmdum. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „V - 8658“ fyrir 22. febrúar. Símasala Bókaforlag óskar að ráða sölufólk vant síma- sölu. Kvöld- og helgarvinna. Góðir tekjumöguieikar. Upplýsingar gefur Hafdís í síma 689815 milli kl. 13 og 17. Hjúkrunarfræðingar Okkur á Heilsugæslustöðinni á Dalvík vantar hjúkrunarfræðing í fullt starf frá maíbyrjun. Einnig vantar hjúkrunafræðinga í sumar- afleysingar. Til Dalvíkurlæknishéraðs teljast Dalvík, Hrísey, Svarfaðardalshreppur og Árskógs- hreppur og þjónar stöðin um 2400 manns. Hálfrar klukkustundar akstur er til Akur- eyrar, höfuðstaðs Norðurlands. Er ekki tilvalið að breyta til og prófa eitthvað nýtt? Upplýsingar um kaup og kjör veitir Kristjana Þ. Olafsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 96-61500 (fyrir hádegi). SJALFSTÆÐISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Kópavogur - Kópavogur Opið hús verður hjá sjálfstæðisfélögunum í Kópavogi i Hamraborg 1 föstudaginn 22. febrúar kl. 22.00. Landsfundarfulltrúar verða á staðnum. Sjálfstæðisfólk fjölmennið. Stjórnimar. Agnar Gústarfsson hrl., Eiríksgötu 4, s. 21750. NAUÐUNGARUPPBOÐ Nauðungaruppboð Þriðja og síðasta á íbúðarhúsi í landi Hellnafells, ásamt 1000 fm lóð, Eyrarsveit, þingl. eigandi Snælax hf., fer fram eftir kröfum Við- ars Más Matthíassonar hrl., Hróbjarts Jónatanssonar hrl., Valgeirs Kristinssonar hrl., sveitarsjóðs Eyrarsveitar og Sigríðar Thorlacius hdl., á eigninni sjálfri þriðjudaginn 26. febrúar 1991 kl. 10.00. Þriðja og síðasta á Vallholti 11, Ólafsvík, þingl. eigandi Friðjón Jakob Daníelsson, fer fram eftir kröfum Magnúsar Guðlaugssonar hdl., Gunnars Sólnes hrl., veðdeildar Landsbanka fslands, Trygginga- stofnunar ríkisins, Landsbanka islands og Skúla J. Pálmasonar hdl., á eigninni sjálfri, þriðjudaginn 26. febrúar 1991 kl. 11.30. Sýslumaður Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, bæjarfógetinn í Ólafsvík. KENNSLA HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN fþ) LAUFÁSVEGUR 2 - PÓSTHÓLF 29 - 101 REYKJAVÍK Námskeið sem byrja í mars Tóvinna Jurtalitun Prjóntækni Fatasaumur Dúkaprjón Þjóðbúningasaumur Knipl Útsaumur Leðursmíði Myndvefnaður 2. mars-13. apríl 6. mars-24. apríl 6. mars-10. apríl 4. mars-29. apríl 2. mars-13. apríl 5. mars- 7. maí 2. mars-27. apríl 2. mars-23. mars 7. mars- 4. apríl 4. mars-29. apríl Athygli skal vakin á að skráning á önnur námskeið er einnig í gangi. Vinsamlegast hringið á skrifstofu skólans til að fá frekari upplýsingar. Skrifstofan er opin sem hér segir: Mán.: 9.30-12.00, þri.: 16.30-19.00. Mið.: 9.30-12.00, fim.: 15.30-18.00. FUNDLR - MANNFA GNAÐUR Fundarboð Aðalfundur Húseigendafélagsins verður haldinn föstudaginn 1. mars nk. kl. 18.00 í samkomusal iðnaðarmanna, Skipholti 70, 2. hæð, Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. íf: ATVINNUHÚSNÆÐI 200 fm - Tangarhöfða Til leigu 200 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð með stórri innkeyrsluhurð. Lofthæð 3,5 metrar. Upplýsingar í síma 611619 eftir kl. 17.00. Til leigu við Ártúnshöfða 160 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð með stórum innkeyrsludyrum og mikilli lofthæð. Upplýsingar gefur: Fjárfesting, fasteignasala hf., Borgartúni 31, sími 624250. Hafnarfjörður - iðnaðarhús - fiskverkun Tilboð óskast í 1000 fm iðnaðarhúsnæði (5745 rúmm.). í húsinu var fiskverkun og fylgir um 40 fm þurrkklefi. Húsið þarfnast nokkurrar lagfæringar. Hornlóð um 3560 fm. Góður staður. Upplýsingar milli kl. 13 og 17 næstu daga. Fasteigna- og skipasala Eignahöllin HL* Hilmar Victorsson viðskiptafr. Kvöld- og helgarsími 672203. iIFIMOAL1.uk Kosningar framundan Kosningastjórn Heimdallar, Félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur opinn vinnufund í Valhöll, í dag, miðvikudaginn 20. febrúar kl. 20.00. Allir áhugasamir félagsmenn velkomnir. Heimdallur. Dalvíkingar Fimmtudaginn 21. febrúar nk. verður haldinn almennur fundur um bæjarmál í Sæluhúsinu kl. 20.30. Dagskrá fundarins: 1. Kynning á fjárhagsáætlun og framkvæmdum. 2. Atvinnumál á Dalvík. 3. Stofnun umræðuhópa um bæjarmál. 4. Önnur mál. Framsögu hafa bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra. Allir þeir, sem áhuga hafa á bæjarmálum, velkomnir. Sjálfstæöisfélag Dalvikur. SAMHANI) IINGRA SIÁLh'S TÆDISMANNA Stjórnarfundur SUS Stjórnarfundur SUS verður haldinn á Hótel Selfossi laugardaginn 23. febrúar kl. 10.00-11.00. SUS-stjórnarmenn tilkynni forföll. SUS. Fundir með frambjóðendum Sjálfstæð- isf lokksins í Vesturlandskjördæmi í Borgarnesi í Sjálfstæðishúsinu í dag, miðvikudaginn 20. febrúar 1991, kl. 20.30. Dagskrá: 1. Ávörp frambjóðenda. 2. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Björn Arason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.