Morgunblaðið - 01.05.1991, Page 31
MWVRWDAffiffi, MAkféflfl
Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra:
Mörg stor urlausnarefm
sem bíða í erfiðu ráðuneyti
„ÞAÐ cru mörg mál sem kalla á
aðgerðir í þessu ráðuneyti, sem
er eitt fjárfrekasta ráðuneytið.
Þetta er mjög erfitt ráðuneyti og
þar bíða ýmis stór úrlausnarefni,
meðal annars mál sem Guðmupd-
ur Bjarnason hefur verið að vinna
að,“ sagði Sighvatur Björgvins-
son, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra í ríkissljórn Davíðs Odds-
sonar í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Það er til dæmis nauðsyn-
legt að endurskoða lifeyrissjóða-
kerfið og heilbrigðisráðuneytið
hlýtur að leggja sinn skerf að því
þó það sé að nokkru leyti undir
verksviði fjármálaráðuneytisins
líka.“
„Síðan er það alveg ljóst að gera
verður skipulagsbreytingar í heilsu-
gæslu- og sjúkrahúsamálum því að
kostnaðarvöxtur þar er gríðarlegur
og þar verður að gera skipulags-
breytingar til að reyna, að minnsta
kosti, að halda aftur af vexti út-
gjalda í þeim málafiokki án þess að
það komi niður á þjónustunni. Eina
leiðin til þess er að leita að skipulags-
breytingum sem tryggja eftir því sem
best verður bæði þessi markmið.
Hluti af þessu er aukið samstarf
sjúkrahúsa og kannski aukið fjár-
hagslegt sjálfstæði þeirra og sjálf-
ræði í eigin málum, að því tilskildu
að ákvarðanir um fjárútgjöld og fjár-
veitingar séu virt,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson.
Sighvatur kvaðst í gær ekki hafa
tekið ákvörðun um hver aðstoðar-
maður sinn yrði en sagði þó ljóst að
slíkur yrði ráðinn.
Aðspurður um hvers hann vænti
af samstarfinu í ríkisstjórninni sagði
Sighvatur Björgvinsson að hann
vænti þess að það yrði gott. Hann
kvaðst ánægður með stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar. „Eins og öll
verk samsteypustjórna er þetta sam-
komulagsniðurstaða tveggja flokka
og þeim mun færri sem flokkarnir,
sem þurfa að koma sér saman, eru,
þeim mun léttara og auðunnara er
það verk og ég tel að sú niðurstaða
sem við höfum fengið sé mjög vel
ásættanleg," sagði Sighvatur.
Sighvatur Björgvinsson, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, á
skrifstofu sinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stj órnarmyndun
á fjórum dögum
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, fékk Davíð Oddssyni
formanni Sjálfstæðisflokksins úmboð í hendur til myndunar meiri-
hlutastjórnar laust fyrir klukkan 18 síðast liðinn þriðjudag, 27.
apríl. Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, undir for-
sæti Davíðs, tók síðan formlega við völdum á ríkisráðsfundi miðdeg-
is í gær, 30. aprfl. Ríkisstjórn hefur ekki verið mynduð á skemmri
tíma frá því ný kjördæmaskipan var upp tekin 1959.
Alþingiskosningar fóru fram 20.
apríl sl. sem kunnugt er. Tíu dögum
síðar, og tæpum fjórum dögum frá
því að Davíð Oddsson fékk stjóm-
armyndunarumboð í hendur, tekur
ríkisstjórn hans formlega við völd-
um.
Haustkosningar fóru fram 25. -
26. október 1959. Þá sat minni-
hlutastjórn Emils Jónssonar. Meiri-
hlutastjórn, fimmta ráðuneyti Olafs
Thors, er síðan myndað tæpum
mánuði síðar, eða 20. nóvember
1959. Viðreisnarstjórn undir for-
sæti Olafs Thors og síðar Bjarna
Benediktssonar heldur síðan velli í
þingkosningum 1963 og 1967.
Alþingiskosningar fara fram 13.
júní 1971. Mánuði síðar, 14. júli,
er mynduð vinstri stjórn Olafs Jó-
hannessonar, formanns Framsókn-
arflokksins. Arið 1974 er kosið 30.
júní. Ráðuneyti Olafs Jóhanness-
sonar fékk lausn tveimur dögum
síðar en gegnir störfum til til 28.
ágúst, en þá tekur meirihlutastjórn
Geirs Hallgrímssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksis, við völdum.
1978 er kosið 25. júní. Ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar fær lausn 27.
júní 1978 en gengir störfum til 1.
september það ár, en þá tekur við
ríkisstjórn Olafs Jóhannessonar,
formanns Framsóknarflokksins.
Haustið 1979 er þing rofið og
efnt til vetrarkosninga, 2. og 3.
desember. Meirihlutastjóm Gunnar
Thoroddsen er ekki mynduð fyrr
en 8. febrúar 1980. [Minnihluta-
stjórn Benedikts Gröndal situr að
frá október 1979 til febrúar 1980].
Næst er kosið til þings 23. apríl
1983. Ráðneyti Gunnars Thorodds-
en fékk launs 28. apríl en gegnir
störfum í rúman mánuð unz mynd-
uð er meirihlutastjóm Steingríms
Hermannssonar. Þá er kosið til
þings 25. apríl 1987. Ráðuneyti
Steingríms Hermannssonar fékk
lausn 28. apríl 1987 en gengir
störfum fram í júlí. Meirihluta-
stjórn Þorsteins Pálssonar tekur
formlega við völdum 8. júlí sama
ár. Loks er kjörið til þings 20. apríl
1991. Tíu dögum síðar, 30. apríl,
sezt ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
að í Stjórnarráðinu.
Júlíus Sólnes:
Eg hef fengið mikinn
áhuga á umhverfísmáhim
„ÉG er ánægður með það sem ég hef fengið áorkað á þeim stutta tíma
sem ég hef verið hér í ráðuneytinu," sagði Július Sólnes umhverfisráð-
herra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar sem lét af störfum í gær.
„Ég þakka starfsfólkinu hér fyrir
að aðstoða mig við að koma ótrúlega
miklum verkum af stað og að skipu-
leggja ráðuneytið og störf þess,“
sagði Júlíus. Hann kvaðst vera á-
nægður með nýja umhverfisráðherr-
ann og taldi að áfram yrði haldið á
sömu braut og hann hefði markað.
Júlíus sagði að ákveðin eftirsjá
væri af ráðherradómnum. „A þessum
stutta tíma hef ég fengið mikinn
áhuga á umhverfismálum. Ég hef
alltaf verið náttúruverndarmaður en
eftir að ég kom í ráðuneytið hef ég
séð málin í víðara samhengi." Sagð-
ist Júlíus hafa öðlast mikla reynslu
og aflað sér fróðleiks í umhverfismál-
unum. Sagði hann að þessi mála-
flokkur væri í sínum huga mun mikil-
vægari en áður. Sagðist hann hafa
áhuga á að vinna áfram að þessum
málum á öðrum vettvangi.
Júlíus sagði óráðið hvað nú tæki
við. Hann myndi byrja á að taka sér
frí, enda hefði hann ekki tekið frí í
einn einasta dag frá því hann varð
umhverfisráðherra.
Húsið opnað kl. 19 með Croft Sherry fordrykk.
MATSEÐILL
Grafinn nautavöðvi ígrænum Edensgarði
Tær fiskisúpa með karrýrjóma
Kalkúnsbringa með innbakaðri ávaxtafyllingu
Hjúpuð pera með marsípanrós í sólarupprás
Kaffi og Bailys
Fjöldi glæsilegra skemmtiatriða s.s.
tískusýning frá versluninni Gala, Raddbandið tekur lagið,
samkvæmisdansar, 15 börn og unglingar frá Listdansskóla
íslands dansa „Tilbrigði við fegurð" og Björgvin Halldórsson
syngur nokkur af sínum gullfallegu lögum.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi
Kynnar. Valdís Gunnarsdóttir og Jón Axel Olafsson.
Tryggið ykkur miða á þetta glæsilega kvöld í tíma.
Miðapantanir í síma 687111
Miðaverð kr. 7.300,-
EGGERT /ftósfen
STBFÁM
SEBASTIANS
-
Bláa Lónlð
/harN
Törcjun"
HERMES
horloger
•Hleildvtíúslun T3B 1\|.
Worid Class
HeHsustúdio
Kanfmann 8 Sands
matinbíeu...
mitL,IStA!ÍD
SOLOAOSSTOFA
REYKJA VlKUn
hpíib