Morgunblaðið - 01.05.1991, Síða 38
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Lionessuklúbburinn Osp hefur gefið fæðingardeild FSA nýtt og
fullkomið sónartæki sem stórbæta mun aðstöðu á deildinni. Mynd-
in var tekin við afhendingu tækisins, en við það tækifæri fékk
Friðrika Arnadóttir fyrrverandi yfirljósmóðir á deildinni að reyna
kosti þess.
• •
Osp gefur fæðingardeild
FSA fullkomið sónartæki
Lionessuklúbburinn Ösp hefur fært fæðingardeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri vandað sónartæki að gjöf, en klúbbur-
inn sem fagnar 5 ára afmæli sínu um þessar mundir hefur frá
upphafi stutt og styrkt deildina með margvíslegum gjöfum.
Máttur - vinnuvernd:
Heilsa starfsmanna í fyrirrúmi
*
- segir Magnús Olafsson framkvæmdastjóri
Nýja sónartækið mun stórbæta
alla aðstöðu á fæðingardeild FSA
til fósturverndar og bættrar
greiningar á kvensjúkdómum.
Tækið kostar rúmlega 1,7 miHjón-
ir króna og tekur það langt fram
eldra sónartæki sem það mun
leysa af hólmi.
Við afhendingu tækisins kom
fram að sónar veitir ómetanlega
hjálp við grun um utanlegsþykkt,
við blæðingar í kviðarholi og til
að skoða eggjastokka. Notkun
sónars, þ.e. örbylgna, í læknis-
fræði hefur þróast ört síðustu 20
ár, en kostir í fæðingafræði eru
m.a. þeir að um hættulaust skoð-
unartæki er að ræða sem beita
má á hvaða stigi meðgöngu sem
er. Sónar er notað til aldursák-
vörðunar fósturs, til að athuga
hvort um eitt eða fleiri fóstur er
að ræða, við glasafijóvgun, við
leit að fósturgöllum og til að fylgj-
ast með vaxtartruflunum auk
fleiri atriða.
„VIÐ munum sinna margvísleg-
um þáttum er snerta vinnu-
vernd,“ sagði Magnús Ólafsson
framkvæmdastjóri hjá nýstofn-
uðu hlutafélagi; Máttur — vinnu-
vernd, en þar er um að ræða
félag sem meðal annars er í eigu
sérfræðinga á ýmsum sviðum og
mun það veita fyrirtækjum þjón-
ustu er snýr að vinnuverndar-
málum.
Magnús sagði að undirbúnings-
vinnu væri að ljúka og unnt væri
að hefja starfsemina á næstunni.
Magnús, sem er sjúkraþjálfari, hef-
ur á síðustu misserum unnið að
verkefnum á sviði vinnuvemdar og
hið sama gildir um meðeigendur
hans, en hann sagði að menn hefðu
NÝ ÁÆTLUN Hríseyjarfeijunn-
ar Sævars tekur gildi í dag, 1.
maí, en í henni felst að ferðum
er fjölgað um þijár til fjórar á
dag. Feijan flytur um 50 þúsund
farþega á ári og er fjöldi ferð-
anna annars vegar miðaður við
að koma í veg fyrir of marga
farþega í hverri ferð og hins
vegar til að bæta samgöngur við
unnið á afmörkuðum sviðum. „Nú
sláum við saman okkar þekkingu
og væntum þess að árangur verði
meiri fyrir vikið.“
Máttur — vinnuvernd mun hafa
á að skipa sjúkraþjálfurum, lækn-
um, hjúkrunarfræðingum, næring-
arfræðingum, sálfræðingum og
fleiri og sagði Magnús að verkefni
þessa nýstofnaða fyrirtækis gætu
verið af ýmsu tagi. „Við munum
bjóða fyrirtækjum upp á fast eftir-
lit, og sjá þannig um að heilsa
starfsmanna sé í lagi, en okkar
starfsemi mun fyrst og fremst snú-
ast um þann þátt,“ sagði Magnús,
en sem dæmi um atriði sem skoðuð
verða í fyrirtækjum sem óska þjón-
ustu má nefna, loftslag, hávaða,
eyjuna.
Fyrsta ferð feijunnar er frá
Hrísey að Árskógssandi kl. 7 að
morgni og síðan eru ferðir frá eynni
á tveggja tíma fresti eftir það, kl.
9, 11, 13, 15, 17, 19, 21, og síðasta
ferð er kl. 23 að kvöldi. Farið er
frá Árskógssandi kl. 7.30 út í eyju
og á tveggja klukkustunda fresti
allt til kl. 23.30 um kvöldið.
lýsingu, hita, raka og samskipti og
stjórn á vinnustað. Þá verður örygg-
isþátturinn athugaður og veitt ráð-
gjöf um kaup á tækjum og áhöldum
fyrir starfsmenn, s.s. á stólum og
fleiru.
„Með því að sameina krafta okk-
ar getum við sinnt fleiri þáttum,
en á meðan við veittum þjónustu á
afmörkuðum sviðum," sagði Magn-
ús, en hann sagði starfsmenn fé-
lagsins reiðubúna að veita þjónustu
sína hvort heldur væri vítt og breitt
um landið eða úti á rúmsjó.
Hlífarkonur
selja merki
KVENFÉLAGIÐ Hlíf á Akrueyri
gengst fyrir merkjasölu á föstu-
dag og laugardag, en allur ágóði
af sölunni rennur til barnadeild-
ar Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri.
Kvenfélagið Hlíf hefur styrkt
bamadeild FSA allt frá árinu 1973
og hafa Hlífarkonur gefíð deildinni
öll heistu gjörgæslutæki deildarinn-
ar og haldið þeim við. í tilkynningu
frá bamadeildinni segir að nú hilli
undir að deildin verði stækkuð á
næsta ári og að starfsfólk líti björt-
um augum tii framtíðar. Akur-
eyringar era hvattir til að taka vel
á móti Hlífarkonum er þær hefja
merkjasöluna,
Fleiri ferðir hjá
Hríseyjarfeijunni
Haukur Dór í Galleríi Borg
Morgunblaðið/Sverrir
Fyrirtækið Visa-ísland hefur veitt Lionshreyfingunni 250 þúsund
króna styrk til að standa straum af kynningu vegna vímuvarnardags-
ins 4. maí næstkomandi. Hér veitir Jón Bjarni Þorsteinsson, fjölumdæ-
misstjóri Lions á Islandi, styrknum viðtöku úr hendi Gunnars Sigur-
jónssonar, sem sæti á I stjórn Visa. Til hægri er Einar S. Einarsson,
framkvæmdastjóri Visa.
V ímuvarnardagrn*
Lionshreyfingarinnar
HAUKUR Dór opnar sýningu á
verkum sínum í Galleríi Borg í
Pósthússtræti 9 fimmtudaginn
2. maí kl. 17-19.
Haukur Dór fæddist 1940.
Hann stundaði nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík á árunum
'1958-1962. Við The Edinburgh
College of Art 1962-1964, Kunst-
akademiet í Kaupmannahöfn
1965-1967 og Visual Art Center,
Maryland, Bandaríkjunum, 1982.
ÞESSA dagana er stödd hér á
iandi stórsveit frá Örebro í
Svíþjóð. Hljómsveitin hefur
haldið tónleika 1 Keflavík og á
Stykkishólmi og fimmtudags-
kvöldið 2. maí mun stórsveitin
koma fram á Veitingastaðnum
Púlsinum í Reykjavík og hefjast
tónleikarnir kl. 22.00.
■ í hijómsveitinni er 21 hljóðfæra-
leikari og söngkona sem hafa leik-
Haukur Dór hefur verið búsett-
ur í Danmörku undanfarin ár.
Hann hefur haldið fjölda sýninga
þarlendis, einnig í Þýskalandi og
Bandaríkjunum. Hér heima hefur
hann oft sýnt verk sín, m.a. í
Ásmundarsal 1964, Listmunahús-
inu 1982 og 1983, Galleríi Borg
1985, Kjarvalsstöðum 1974,1982,
1987 og 1989.
í Galleríi Borg nú sýnir Haukur
Dór nýjar myndir, unnar með olíu
á striga og akryl á pappír.
ið og sungið saman síðan 1985.
Verkefnaval sveitarinnar er hefð-
bundin stórsveitajass auk þess sem
hljómsveitin leikur blús og nýjan
jass.
Stjórnandi stórsveitarinnar er
Rolf Ekström og verða þessir tón-
leikar þeir einu sem hljómsveitin
heldur í Reykjavík. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10-18 og um helgar frá kl.
14-18. Öll verkin eru til sölu. Að-
gangur er ókeypis. Sýningunni
lýkur þriðjudaginn 14. maí.
(Fréttatilkynning)
Námskeið um
hjónabandið
NÁMSKEIÐ um hjónabandið og
fjölskylduna verða haldin í safn-
aðarheimili Bústaðakirkju, safn-
aðarheimili Reyðarfjarðar og
félagsheimili Vopnafjarðar dag-
ana 30. apríl til 12. maí næstkom-
andi. Námskeiðin eru í fyrirles-
traformi og verður mál fyrirles-
arans Evind Fröen túlkað jafn-
óðum á íslensku.
Námskeiðið í Bústaðakirkju hófst
þriðjudaginn 30. apríl og lýkur mið-
vikudaginn 1. maí, í safnaðarheim-
ili Reyðarfjarðar dagana 7.-8. maí
og í félagsheimili Vopnafjarðar
dagana 11.-12. maí.
Á námskeiðunum verður fjallað
um hjónabandið og fjölskylduna og
hvernig er hægt að styrkja samband
og auðvelda tjáskipti hjóna og koma
í veg fyrir misskilning og árekstra.
Evin Fröen er hjónabands- og
fjölskylduráðgjafi frá Noregi. Hann
er kunnur kennari og fyrirlesari í
heimalandi sínu. Hann hefur haldið
námskeið um hjónabandið og fjöl-
skylduna í Bústaðakirkju,
Reykjavík, Glerárkirkju, Akureyri,
Húsavíkurkirkju og Siglufjarðar-
kirkju.
Skráning á námskeiðið í safnað-
arheimili Bústaðakirkju fer fram í
safnaðarheimilinu, en þeir sem vilja
sækja námskeiðin á Austurlandi
snúi sér tii Biblíuskólans á Eyjólfs-
stöðum.
LIONSHREYFINGIN heldur sinn
árlega vímuvarnardag laugar-
daginn 4. maí. í tilefni af því
munu Lionsmenn, skátar og félag-
ar í íþrótta- og ungmennafélögum
ganga í hús og selja sérræktaða
túlípana til styrktar æskulýðs-
starfi og vímuefnavömum.
Þetta er í 6. sinn sem Lionshreyf-
ingin stendur fyrir vímuvamardegi
fyrsta laugardag í maí, en nú era í
fyrsta sinn seldir túlípanar, sem
framleiddir era hér innanlands.
Ágóða af túlípanasölunni verður
varið til að styrkja æskulýðsstarf,
svo sem skátastarf og unglingastarf
íþróttafélaga og ungmennafélaga.
Hluti ágóðans rennur í vímuvarnar-
sjóð Lions, en hann er notaður til
að kosta námskeiðahald vegna Lions
Quest námsefnisins, sem hefur þann
tilgang að efla sjálfstraust unglinga,
auðvelda samskipti þeirra og hvetja
þá með jákvæðum hætti til að forð-
ast vímuefnanotkun.
í fréttatilkynningu frá Lions-
hreyfingunni kemur fram, að grann-
skólar Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
muni nota Lions Quest námsefnið
fyrir alla nemendur 7. bekkjar næsta
vetur og í sumar séu fyrirhuguð tvö
námskeið tii að undirbúa kennara
fyrir kennslu á þessu námsefni.
Leiðrétting
Ásmundur Ólafsson, Akranesi,
vill láta þess getið vegna greinar á
baksíðu Morgunblaðsins 28. apríl
sl. um fyrsta aðalfund Haraldar
Böðvarssonar hf. að fyrirtæki Þórð-
ar Ásmundarsonar, útgerðarmanns
á Akranesi, sem síðar nefndust
Heimaskagi og Ásmundur hf. hafi
starfað að útgerð og fiskverkun
óslitið frá árinu 1906 en ekki frá
árinu 1943 eins og fram kemur í
greininni.
Stórsveítin frá Örebro.
Sænsk stórsveit á Púlsinura