Morgunblaðið - 01.05.1991, Page 45
ieer iam .i HijOAauxivQiM aiaAjaviuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
45
BARATTUDAGUR VERKALÝÐSINS
1 .maí ávarp
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík, BSRB og Iðnnemasam-
bands íslands
Á baráttudegi launafólks 1. maí
höfum við ástæðu til að fagna því
að þau markmið sem sett voru við
gerð kjarasamninganna í febrúar
1990 hafa staðist í öllum meginat-
riðum. Verðbólga er nú með því
lægsta sem þekkist. Það tókst að
stöðva kaupmáttarhrapið. Kaup-
máttur vex hægt og sígandi. Fjölda-
atvinnuleysi blasir ekki lengur við.
Jafnvægi hefur komist á í efnahags-
málum. Grundvöllur hefur verið
lagður að nýju vaxtarskeiði og betri
kjörum launafólks.
Árangurinn getum við þakkað
launafólki. Það var hinn breiði fjöldi
launafólks sem í ársbyijun 1990
mótaði nýja sameiginlega stefnu í
efnahags- og kjaramálum fyrir
þorra launamanna. Það var sam-
staða fólksins í samtökum launa-
fólks sem bjó til forsendur stöðug-
leika í efnahagsmálum, sem ekki
hefur þekkst hér um áratugaskeið.
Það var vegna þess að almennt
launafólk sætti sig við að búa áfram
um tíma við lakan kaupmátt að
unnt var að treysta atvinnulíf og
leggja grunn að auknum kaup-
mætti.
Almennt launafólk hefur í einu
og öllu staðið við kjarasamningana
frá 1. febrúar 1990. Ýmsir aðrir
aðilar að samningsgerðinni hafa
einnig verið vel á verði. Bændur
hafa staðið við sinn hluta samkomu-
lagsins. Sáralítil verðhækkun bú-
vöruverðs í rúmt ár er til vitnis um
það. Tekist hefur með virku verð-
lagshaldi m.a. Verðlagseftirlits
verkalýðsfélaganna í Reykjavík og
samstarfi við verslanir að halda
verðlagi í skefjum.
En því miður hafa ekki allir aðil-
ar staðið við sitt. Á meðan almennt
launafólk hefur búið við lágan
kaupmátt hafa áhrifamiklir aðilar
í þjóðfélaginu látið sem kjarasam-
ingarnir komi þeim ekki við. Þannig
sýndu pólitískir forystumenn
margra stærstu og öflugustu sveit-
arfélaganna í landinu launafólki
hug sinn í verki um sl. áramót þeg-
ar þeir hækkuðu fasteignagjöld
langt umfram hækkun launa. Þann-
ig sýndu tryggingafélög einnig hug
sinn til launafólks þegar þau hækk-
uðu bifreiðatryggingar og húsa-
tryggingar umfram eðlilegar breyt-
ingar milli ára. Þannig sýndu bank-
ar og fjármagnsstofnanir hug sinn
til launafólks þegar þeir hækkuðu
vexti í stað þess að lækka þá þegar
á reyndi. Ef sátt á að takast um
víðtæka kjarasamninga á ný þarf
ekki síst að huga að því hvernig
megi tryggja að misvitrir stjórnmál-
amenn og gróðahyggjumenn í stór-
fyrirtækjum og bankakerfi fari eft-
ir þeim forsendum sem settar eru.
Það var samstaða launafólks sem
lagði grunninn að síðustu kjara-
samningum. Það sama fólk hefur
fylgt samningunum eftir. Andstaða
við launastefnu verkalýðshreyfíng-
arinnar hefur verið lítil. Það er ekki
fólkið sem býr við lægstu launataxt-
ana sem hefur barist gegn samning-
unum. Það er ekki fólkið í undir-
stöðuatvinnuvegunum sem hefur
lagt stein í götu þeirra. Það fólk
hefur staðið sem órofa heild á bak
við samninginn. Það hlýtur að vekja
gremju og reiði þegar launahópar
sem hafa tíföld lægstu laun reyna
að skara eld að sinni köku.
Nú er komið að því að bæta kjör-
in. í síðustu samningum tókst að
ná fram kaupmáttartryggingum
sem reynst hafa vel á samningstím-
anum. Sú krafa þarf að vera ein
af samningsforsendum. Næstu
kjarasamningar verða að hafa sem
meginmarkmið að bæta kjör launa-
fólks og tryggja réttlátari skatt-
lagningu en nú er. Láglaunafólkið
verður að hafa forgang. Ekki verð-
ur beldur komist hjá því að leið-
rétta laun ýmissa hópa í þjóðfélag-
inu. Engu að síður teljum við að
hægt sé að halda í þann stöðugleika
í efnahagsmálum sem náðst hefur.
Eitt brýnasta verkefni hreyfingar
launamanna um þessar mundir er
að leggja drög að nýrri atvinnu-
stefnu, þar sem undirstaðan er trú
á landið, íslenskt hugvit og sókn
til nýrra möguleika í atvinnuupp-
byggingu. Ekkert má til spara til
að vinna dýrari og fjölbreyttari vör-
ur úr sjávarafla okkar og hætta um
leið að flytja út atvinnu í stórum
stíl. Aukin stóriðja verður að koma
til sem einn þáttur í að treysta at-
vinnuna í landinu. Orkuna í fall-
vötnum landsins og auðlindir okkar
til lands og sjávar eigum við að
nýta til að útrýma staðbundnu og
árstíðabundnu atvinnuleysi. ís-
lenskt launafólk mun ekki sætta sig
við að ungt og kraftmikið fólk flytji
utan til starfa vegna þess að hér
bjóðast ekki störf eða kjör við hæfí.
íslendingar mega ekki einangr-
ast í markaðsmálum og félagsmál-
um þegar ein öflugasta markaðs-
heild heimsins er að verða til í Evr-
ópu. Þess vegna eru samningavið-
ræður um evrópskt efnahagssvæði
rökréttar. Við eigum þó að standa
fast á fyrirvörum okkar varðandi
sjálfstæði þjóðarinnar, þ.e. land-
helgina, eignarhald á auðlindum og
sérstöðu íslensks vinnumarkaðar. I
samningunum um evrópska efna-
hagssvæðið má ekki líta eingöngu
til hagsmuna atvinnurekstrar og
stjómvalda. Það er gmndvallar-
krafa íslenskrar verkalýðshreyfíng-
ar að aðild að svæðinu, ef til kæmi,
grafi ekki á nokkum hátt undan
þeim réttindum og ávinningum sem
íslenskt launafólk hefur náð fram
á undanfömum ámm og áratugum.
íslenskt launafólk krefst þess að
félagslega íbúðakerfíð verði eflt svo
# # # #
MSKDLABK)
SJÁ BÍÓSÍÐU
Áskriftarsíminti er 69 11 22
að lágtekjufólk þurfí ekki að bíða
árum saman eftir að komast í hús-
næði við hæfí.
Við eigum að mynda hér launa-
stefnu þar sem skilgreind eru mark-
mið um aukna atvinnu og aukinn
kaupmátt launa í áföngum. Til þess
höfum við alla möguleika. Jafn-
framt er það krafa að samnings-
og verkfallsréttur iðnnema verði
viðurkenndur.
Á baráttudegi launafólks lítum
við til milljóna manna, kvenna og
barna sem búa við hörmungar hern-
aðarofbeldis og kúgunar. Hvar-
vetna í heiminum em fijáls verka-
lýðsfélög í fararbroddi mannrétt-
inda. í Austur-Evrópu hafa verka-
lýðsfélög og stéttasambönd barist
fyrir auknum lýðréttindum. í
S-Afríku sér nú loks fram á árang-
ur í baráttu þeldökkra íbúa landsins
gegn harðstjómm hvíta minnihlut-
ans. Á síðustu vikum höfum við
fylgst með þeim hörmungum sein
dunið hafa á Kúrdum. íslenskt laun-
afólk skorar á íslensk stjórnvöld að
beita sér fyrir því á alþjóðavett-
vangi að ofsóknum á hendur Kúrd-
um linni og þeim verði tryggt sjálfs-
forræði.
Með samstöðu launafólks og fyr-
ir fmmkvæði verkalýðshreyfíngar-
innar tókst að koma efnahagsmál-
um þjóðarinnar í það horf að þau
standast samjöfnuð við nálæg lönd.
Með sama hætti eigum við að nota
samtakamáttinn til að auka kaup-
máttinn og koma launamálum í það
horf að sómi verði að.
Með þetta í huga horfum við
björtum augum til framtíðarinnar.
Launajöfnun — aukinn kaup-
máttur.
OPNUNARTILBOÐ
au&Jt opnar verslun
í Borgartúni 26, Reykjavík
í tilefni þesso og árs afmælis fyrirtækisins, bjóóum
við ykkur velkomin á báða staðina til að gera góð kaup.
ZANUSSI uppþvottavélar eru til í
tveimur gerðum ZW 106 m/ 4
valk. og ID-5020 til innb. m/7
valkerfum. Báðarf. borðb. fyrir
12. Hljóðlátar - einfaldar í notk-
un.
Verðfrákr. 60.640,-
Tilboðkr. 56.728,-
GufugleyparfráZANUSSI,
CASTOR, FUTURUM og KUP-
PERSBUSCH eru fyrir útblástur
eða gegnum kolsíu.
Verðfrá kr. 9.594,-
Tilboðkr. 8.786,-
RAFHA, BEHAog KUPPERS-
BUSCH eldavélareru með
blæstri eða án blásturs. Með
glerborði og blæstri. 4 hellurog
góðurofn. 2ja ára ábyrgð á RAF-
HA vélinni - frí uppsetning.
Verðfrá kr. 44.983,-
Uppselt
Um er að ræða mjög margar
gerðir af helluborðum: Glerhellu-
borð m/halogen, helluborð 2
gas/2 rafm. eða 4 rafm. hellur
með eða án rofa.
Verðfrákr. 21.655,-
ZANUSSI og KUPPERBUSCH
steikar/bökunarofnar í fjölbreyttu
úrvali og litum. Með eða án
blæstri - m/grillmótor m/kjöthita-
mæli - m/kataliskum hreinsibún-
aöi og fl.
Verðfrákr. 34.038,-
ZANUSSI örbylgjuofnar í stærð-
um 18 og 23 Itr. Ljós í ofni, bylgju-
dreifir, gefurfrá sér hljóðmerki.
23 Itr. verð kr. 28.122,-
Tilboð kr. 26.308
!S
004**
SS
Bjóðum upp á 5 gerðir þvotta-
véla. 700-800-1000-1100
sn./mín. Með/án valrofa á hita-
sparnaðarrofa. Hraðvél, sem
spararorku, sápu og tima.
Þvottavél með þurrkara og raka-
þéttingu. 3ja ára ábyrgð - upp-
setning.
Verð frá kr. 54.512,-
Tilboðkr. 49.922,-
Þurrkarar 3 gerðir hefðbundnir,
með rakaskynjara eða með raka-
þéttingu (barki óþarfur). Hentar
ofan á þvottavélina.
Verðfrá kr. 30.786,-
Tilboðkr. 28.194,-
7gerðirkæliskápa: 85, 106, 124,
185 sm hæð. Með eða án frysti-
hólfi. Sjálfv. afhríming. Hægt að
snúa hurðum. Eyðslugrannir -
hljóðlátir.
Verð frá kr. 29.727,-
Uppselt
Bjóðum upp á 9 gerðir kæli/frysti-
skápa. Mjög margirstærðar-
möguleikar: Hæð 122, 142, 175
og 185sm.Frystiralltaf4stjörnu.
Sjón ersögu ríkari. Fjarlægjum
gamla skápinn.
Verðfrákr. 42.229,-
Tilboð kr. 39.505,-
Tilboð kr. 44.063,-
Tilboð kr. 49.420,-
Frystiskápar: 50,125, 200 og
250 Itr. Lokaöirmeö plastlokum
- eyöslugrannir - 4 stjörnur.
Verð frá kr. 30.903,-
ZANUSSI frystikistur 270 og 396
Itr. Dönskgæðavara. Mikilfrysti-
geta. Ljós í loki. Læsing.
4 stjörnur.
Verðkr. 41.060,-
Verð er miðað við staðgreiðslu.
Tilboðið stendur til 15. maí.
Okkarfrábæru greiðslukjör!
Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum.
Opið sem hér segir: Virka daga til kl. 18.00.
Laugardag til kl. 13.00.
VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22
VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI 620100 - BORGARTÚNI 26