Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAI 1991
Dr. Laufey Steingrímsdóttir
næringarfræðingur.
■ MANNELDISFÉLAG íslands
heldur fræðslufund fimmtudaginn
2. maí kl. 20.30 í stofu 101 í Lög-
y bergi, Háskóla Islands. Dr. Lauf-
ey Steingrímsdóttir næringar-
fræðingur kynnir niðurstöður könn-
unar heilbrigðisráðuneytis á matar-
æði íslendinga. Félagsmenn í Mat-
væla- og næringarfræðingafélagi
íslands, Hússtjórnarkennarafélagi
íslands, Félagi matfræðinga og
Félagi matartækna eru boðnir vel-
komnir á þennan fund.
(Fréttatilkynning)
Neskaupstaður:
Flugstöð
breytist 1
golfskála
Neskaupstað.
GAMLA flugstöðin á Norð-
fjarðarflugvelli sem var mikil-
vægur hlekkur í samgöngumál-
um Norðfirðinga í um það bil
25 ár hefur nú fengið nýtt hlut-
verk. Búið er að flytja hana inn
á golfvöll og munu golfarar í
framtíðinni nota húsið sem
golfskála.
Ekki er laust við að sumum
þyk: vanta eitthvað á flugvöllinn
nú þegar gamla húsið er horfíð á
braut þó ekki hafí það nú þótt
burðugt til síns brúks, aliavega
ekki nú síðustu árin.
- Ágúst.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Gamla flugstöðin þar sem búið er að hefja hana upp á flutningatæki til að flytja á golfvöllinn.
Margt var um mannin í sundlauginni.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
Fyrsti sumardagur á Reykhólum
Miðhúsum, Reykhólaveit.
Á SUMARDAGINN fyrsta var
, mikið um dýrðir, því að þá var
* Grettisiaug endurvígð eftir gagn-
gerar breytingar og endurbætur.
Hátíðin byrjaði með skrúðgöngu
frá Reykhólaskóla og niður að
Grettislaug og lét fólk norðanst-
rekkinginn ekki á sig fá.
Séra Bragi Benediktsson end-
urvígði laugina, en hún var byggð
af mikilli bjartsýni 1946. Þeir sem
stóðu fyrir þessari byggingu voru
Jens Guðmundsson, skólastjóri á
Reykhólum, Olafur Ólafsson, kaup-
félagsstjóri, og Tómas Sigurgeirs-
son, bóndi á Reykhólum. Yfirsmiður
var Marteinn Sívertsen frá Sjávar-
borg í Skagafirði.
Laugin var á sínum tíma mikið
mannvirki og var hún með bestu
útisundlaugum á landinu og ennþá
heldur hún þeim sess.
Stefán Magnússon, oddviti á
Reykhólum, setti samkomuna en
Bjarni P. Magnússon, sveitarstjóri,
stjórnaði henni.
Að því loknu hófst sundkeppni.
Snjöllustu sundmenn Þörungaverk-
smiðjunnar, Kaupfélags Króks-
fjarðar, Reykhólahrepps og Reyk-
hólaskóla tóku þátt í keppninni og
án nokkurs efa fóru Þörungar með
sigur af hólmi.
Allir sem fóru í sundlaugina
þennan dag fá viðurkenningarskjal.
Einnig getur fólk fengið sér lykil
að lauginni og farið í laugina frá
morgni til kvölds. Skilyrði sem lykil-
hafar verða að uppfylla er að ganga
vel um og áfengisneysla er bönnuð.
Hins vegar mega lykilhafar taka
með sér gesti. Tvo heita potta er
búið að setja upp. Nú er lokið við
að endurnýja sundlaugarhúsið, þ.e.
klæða það utan, breyta inngangi
og endurnýja búningsklefa. í kjall-
ara á að koma gufubað og aðstaða
fyrir ferðafólk, en verið er að útbúa
tjaldsvæði fyrir norðan sundlaugar-
húsið. í lokin var gestum boðið upp
á glóðarsteiktar pylsur og var Páll
Ásgeirsson, forstjóri, yfirmat-
sveinn. - Sveinn
Morgunblaðið/Svemr
Dyraverðir veitinga-
húsa á námskeiði
Lögreglan í Reykjavík, í samvinnu
við Félag starfsfólks í veitinga-
húsum, hefur undanfarið staðið
fyrir námskeiðum fyrir dyraverði
vínveitingahúsa. Alls hafa 72
dyraverðir sótt námskeiðin, þar
sem ijallað er meðal annars um
brunavamir, slysahjálp, mannleg
samskipti og dyravörðunum kynnt
þau lög og reglugerðir sem gilda
um starfsemi vínveitingahúsa. Þá
er þeim kennt að bera kennsl á
einkenni ýmissa sjúkdóma, s.s.
sykursýki og flogaveiki. Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryfír-
lögregluþjónn, segir að slíkt nám-
skeiðahald sé mjög jákvætt.
„Þetta er gert til að gera dyra-
vörðum kleift að sinna starfi sínu
á sem bestan hátt og jafnframt
auka öryggi gesta vínveitingahús-
anna,“ segir hann. Myndin var
tekin á námskeiði dyravarða fyrir
skömmu.
Þingeyri:
Nemendur í Núpsskóla
á ferð með leiksýningu
Þingeyri.
LEIKHÓPURINN Eitthvaö sem samanstendur af unglingnm í Héraös-
skólanum á Núpi hefur verið að sýna leikritið Þú ert í blóma lífs-
ins, fíflið þitt, eftir Davíð Þór Jónsson.
A hverjum vetri færa nemendur
skólans á Núpi upp leikrit, en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem þeir
fara um og sýna. íbúar Mýrar-
hrepps, Þingeyrar og Flateyrar hafa
fengið að njóta sýningarinnar og
hefur aðsókn verið ágæt á öllum
stöðum. Nemendur hafa unnið sjálf-
stætt að verkinu og hafa kennarar
einungis hjálpað til með flutning á
leikbúnaði. Starfsemi leiklistar-
klúbbs skólans hefur blómstrað í
vetur eins og undanfarna vetur.
Ung stúlka, Elva Björg Pálsdótt-
ir, er leikstjóri sýningarinnar og er
það frumraun hennar á þeim vett-
vangi. Að sögn Elvu setti höfundur
leikritsins það skiiyrði að handritið
yrði aðlagað sýningunni, en ekki
öfugt. Hefur því hver sýning sín
sérkenni og mótast af aðstæðum á
hveijum stað. Þetta hefur kostað
mikla vinnu sem hefur verið lær-
dómsrík. Elva sagði þessa vinnu
efla samstöðu nemenda í skólanum.
- Gunnar Eiríkur
Morgunblaðið/Gunnar E. Hauksson
Allur hópurinn sem vann að sýningunni.
Kvöldstund með Mozart
TÓNLEIKAR verða í Kirkjuhvoli
í Garðabæ á vegum Tónlistar-
skóla Garðabæjar fimmtudaginn
2. maí og hefjast þeir kl. 20.30.
Á efnisskránni eru eingöngu verk
eftir Wolfgang Amadeus Mozart,
en í ár eru 200 ár liðin frá því að
hann féll frá.
Þeir sem fram koma á þessum
tónleikum eru Kammersveit
Reykjavíkur og Gunnar Eyjólfsson
leikari, en hann les úr bréfum Moz-
arts og kynnir dagskrána. Yfir-
skrift tónleikanna eru Kvöldstund
með Mozart. Aðgöngumiðar að
þessari kvöldstund eru fáanlegir við
innganginn.
Kammersveit Reykjavíkur,