Morgunblaðið - 01.05.1991, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er bjartsýni og kraftur í
kringum hrútinn núna. Hug-
sjónir eru hreyfiafl hans í
starfi og hann hefur dug sér
til að koma þeim í fram-
kvæmd.
^ Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið ætti að vera ánægt
með þróun fjármála sinna
núna. Það gerir ferðaáætlanir
og nýtur þess að vera innan
um fólk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn blómstrar í félags-
starfi og eignast nýja vini.
Indælt heimboð berst honum
í dag. Hann ýtir skýjaborgun-
um til hliðar og beinir sjónum
sínum að jarðbundnari áform-
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) >“$8
Krabbanum bjóðast ný at-
vinnutækifæri og hann heldur
upp það í kvöld. Hann er róm-
antískur núna og gæti orðið
ástfanginn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið er ánægt með þátttöku
sína bæði í starfí og leik. Það
ætti að grípa næsta tækifæri
^ til að sækja góðan vin heim.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Meyjan hugsar mest um eigri-
ir og peninga núna. Þó að hún
sé viðkvæmari en hún á að
sér er hún full sjálfstrausts
og veit hvað hún vill.
V°g
(23. sept. - 22. október)
Friður og næði gera voginni
kleift að koma heilmiklu í
verk. Henni tekst einnig að
leiðrétta leiðan misskilning.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sporðdrekinn fær nú lang-
þráða stund á milli stríða í
starfi sínu. Tekjur hann fara
vaxandi. Hann er innblásinn
og skapandi um þessar mund-
ir.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) £3
Bogmanninum famast vel í
viðleitni sinni til að þoka sér
upp á við. Hann gerir óvenju-
leg kaup í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er mjög upphafin
í anda núr.a. Hún verður á
-JP réttum stað á réttum tíma og
ákveður að hefja einhvers kon-
ar nám.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh,
Þó að vatnsberinn njóti þess
að taka þátt í félagslífi og
samveru með vinum og kunn-
ingjum verður hann feginn að
draga sig út úr amstrinu í bili
og hvíla sig. Athuganir hans
bera góðan árangur.
Fiskar
m. (19. febrúar - 20. mars) %£t
Fiskurinn hefur ástæðu til að
vera ánægður með þróun
sinna mála. Hann gneistar af
áhuga bæði á vinnustað og
heima fyrir. Hann getur leyft
sér að njóta þess að vera vin-
sæll.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
AiÉe, eæ
SAM4 Ht/AÐ
þEHZ SEGJA ■
GRETTIR
út?ETTlí?, HVAP ERTUAP 6ERA ?_
& ^EG L/ETSEM \ É6 A < " SyNlNEONLjl / f PÝPA~ ’ ) KlKlP J »p.j.
(j>Ú 8ARA LKS6Ug EUC»LA£Ú^
£G HEF X
TOMMI OG JENNI
TOsWU! HEEOfi V£EJE> LEIBlNLEGUfiZ
t//Ð /VtlG ALLfi Vik:OMA,7oN'"”r
OETUEOU HJÓLFHB/MEft ?
56 SkAL JAFMA J
6/19
LJÓSKA
f . , t j • •
ohpan skjp/uu ru-
HAFNAK.
FERDINAND
jrrj 1 \
OIVIMrULIV —rrrz-. -
Fjörutíu og níu, fimmtíu! Hér
kem ég, tilbúinn eða ekki.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Algengustu mistökin í brids
felast í því að hugsa ekki dæm-
ið til enda. Gera bara það sem
blasir við án þess að hafa heild-
armynd i huga. Gott dæmi er
þetta spil frá tvímenningskeppni
hjá Bridsfélagi Reykjavíkur.
Austur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ G9
VÁ1065
♦ ÁG953
+ 104
Norður
♦ 62
V KD7
♦ D2
♦ DG9532 Austur
...... *Á107
V843
♦ K874
Suður +K86
♦ KD8543
¥G92
♦ 106
♦ Á7
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 2 tíglar
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Dobl Pass 3 tíglar Pass
Pass Pass 3 spaðar Pass Pass
Útspil: lauftía.
Eftir MULTI-opnun suðurs
sýnir vestur baráttuþrek með því
að úttektardobla 2 spaða. Þrír
tíglar fara aðeins einn niður, svo
norður var á réttu róli að reyna
3 spaða. Sá samningur vannst
reyndar víða með lauftíunni út.
Sagnhafí átti slaginn á drottn-
inguna og spilaði spaða á kóng-
inn. Síðan hjarta að blindum og
aftur spaða. Vömin fær þá ein-
ungis flóra slagi, á hálitaásana
og tvo á tígul.
í reynd misstu margir austur-
spilarar af góðu tækifæri þegar
þeir létu LÍTIÐ lauf á drottningu
blinds. Sem sýnir að þeir voru
að hugsa um lauflitinn í einangr-
un en ekki spilið í heild. Auðvit-
að er oftast rétt að leggja ekki á
í slíkum stöðum. En oftast er
ekki alltaf. Hér eiga menn að
staldra við og hugsa.
Austur sér fjóra slagi, því
hann getur gert ráð fyrir að
makker eigi rauðu ásana. En sá
fimmti getur hvergi komið nema
á tromp. Og þá er kannski nóg
að makker eigi spaðagosann.
Hann leggur laufkónginn á
drottninguna. Sagnhafi getur þá
ekki spilað trompi úr borðinu og
spilar' mjög líklega hjarta að
blindum. Vestur drepur á ásinn,
síðan tekur vömin tvo slagi á
tígul og spilar laufi. Þá getur
austur drepið strax á trompásinn
og spilað þriðja laufinu!!
Þessa stöðu á austur að geta
séð fyrir strax í fyrsta slag.
Hitt er svo annað mál að suður
á krók á móti þessu bragði.
Hann getur spilað laufi tvisvar
áfram og hent tígli! En hann á
eftir að finna þá spilamennsku.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í frönsku deildakeppninni í ár
kom þessi staða upp í viðureign
stórmeistaranna Olivier Renet
(2.470), sem hafði hvítt og átti
leik, og Kevin Spraggett (2.495),
Kanada.
42. c6! og svartur gafst upp, því
ef hann þiggur riddarafórnina nær
hvítur að vekja upp aðra drottn-
ingu: 42. - Dxd8, 43. c7 - Dc8,
44. Db2+ - Kf7, 45. Db8.
Efst með 18 stig eru stór-
stjörnulið Lyon, Clichy og Cannes.
Úrslitin ráðast í siðustu umferðun-
um í París í maí en þá tefla efstu
liðin þijú innbyrðis. Fjölmargir
a-evrópskir og enskir skákmenn
tefla með félögum í frönsku
deildakeppninni og er hún farin
að nálgast þýzku Bundesliguna
að styrkleika.