Morgunblaðið - 01.05.1991, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991
51
Lára Þórlinds-
dóttir - Minning
Fædd 1. maí 1924
Dáin 22. apríl 1991
Mig langar að minnast frænku
minnar hér í örfáum orðum, en
hún lést aðfaranótt 22. apríl
síðastliðinn.
Lára móðursystir mín var fædd
á Fáskrúðsfirði og þar bjó hún
alla sína ævi. Ung giftist hún eftir-
lifandi manni sínum, Kristni Gísla-
syni. Þau eignuðust fjögur börn,
Snjólaugu, Guðrúnu, Lindu og
Guðlaugu, sem öll eru uppkomin.
Á Fáskrúðsfirði var Lára heima
hjá sér, þar leið henni best og
mátti oft heyra það á henni þegar
hún var á ferðinni hér fyrir sunnan
hvað væri nú gott að komast aftur
austur.
Lífsstarf sitt leysti hún afar vel
af hendi. Hún var sönn húsmóðir,
sem vann sín verk og ól upp sín
böm. Heimili þeirra Kidda bar
sannarlega merki um hreinlæti og
snyrtimennsku. Ég, sem þessar
línur skrifa, var alin upp í næsta
húsi og var því tíður gestur á heim-
ili Láru. Mér er það sérstaklega
minnisstætt hversu mjög ferðum
mínum fjölgaði til hennar þegar
sonur hennar fæddist. Mér fannst
þá að ég ætti strákinn með henni.
Þegar ég kom austur til þess að
heimsækja foreldra mína og aðra
ættingja hitti ég Láru alltaf. Oft
kom hún og drakk morgunkaffið
með mér og mömmu þegar ég var
fyrir austan.
Stundum finnst okkur að sumar
fjölskyldur þurfi að þola meira en
aðrar. Mjög mörg og alvarleg áföll
hafa dunið yfir Láru og fjölskyldu
hennar. Ungan dótturson sinn
missti hún 1983 af slysförum og
rúmlega ári síðar veiktist einn
tengdasonur hennar af krabba-
meini og lést hann skömmu fyrir
jólin 1984 í blóma lífsins. Svona
áföll marka djúp sár hjá fólki.
Aldrei man ég þó eftir því að Lára
kvartaði, en ég veit að frænka
mín tók þetta mjög nærri sér.
Sumt fólk er kallað burt úr þess-
um heimi alltof snemma. Það
finnst mér einmitt um Láru. Veik-
indi hennar stóðu stutt yfir og
gengu hratt fyrir sig. Um miðjan
mars síðastliðinn var hún skorin
upp en ekkert var hægt að gera
fyrir hana. Ég heimsótti Láru á
sjúkrahúsið daginn sem henni voru
sögð þessi hræðilegu tíðindi. Á
leiðinni var ég að hugsa um hvað
ég ætti að segja við hana. En í
rúminu lá kona, sem var miklu
þroskaðri en ég. Hún var róleg
og yfirveguð og sagði mér að
læknirinn gæti ekkert fyrir sig
gert. Nú væri það á hennar valdi
hvernig framhaldið yrði. Við töluð-
um saman dijúga stund þarna á
sjúkrahúsinu, hún sagðist eiga
margt ógert í þessu lífi, eitt af því
var að sjá nýja húsið hans Guila.
Ég kvaddi Láru þetta kvöld
hugsandi um allt það sem deyj-
andi kona hafði að segja. Lára
komst austur eftir þetta, þar barð-
ist hún af öllum kröftum við sjúk-
dóminn sem var öllu yfirsterkari.
Maðurinn hennar og börnin
þeirra stóðu saman og vöktu yfir
henni. Allt sem í mannlegu valdi
stóð var gert til þess að létta henni
þjáningamar þar til yfir lauk. Ég
veit að íjölskylda Láru á nú svo
mjög um sárt að binda. Eins veit
ég að það tekur mömmu mína
sárt að sjá nú á eftir systur sinni,
sem var henni kærust.
Það er einlæg bæn mín og
Gunnþóru systur minnar að góður
Guð styrki fjölskylduna í Borg-
arhlíð og aðra aðstandendur á
þessum erfiða tíma.
Erla Skaftadóttir
★ Pitney Bowes
Frfmerkjavélar og stimpilvélar
Vélar til póstpökkunar o. fl.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
OFURMINNI M Helgarnámskeið 4. maí, 5. maí. Ókeypis kynning fyrir starfshópa, félagasamtök og fyrirtæki. Vfy ® 67 61 36 og 62 62 75.
MetsöliMad á hverjum degi!
I N O V E L L
NetWare
Uppfærslur (Update) í nýjustu útgáfur nú fáanlegar
Nú eru komnar á markað nýjustu útgáfur af Novell NetWare. Tvær útgáfur eru
nú í boði NetWare 2.2 og 3.11
NetWare 2.2 kemur í stað ELS-I, ELS+II, Advanced NetWare og SFT NetWare.
NetWare 2.2 hefur innbyggðar vamir gegn bilunum (SFT) og færslueftirlitskerfi
(TTS). Þá em innifalinn hugbúnaður til að tengja Macintosh og OS/2 tölvur við
netið. Allar útgáfur 2.2 em eins að öðm leyti en því að fjöldi notenda er mismunandi
og em í boði 5,10,50 og 100 notenda útgáfur. NetWare 2.2 gengur á netmiðstöðvar
með 802S6, 80386 og 80486 örgjörvum.
NetWare 3.11 nethugbúnaður er gerður fyrir netmiðstöðvar með minnst 80386
örgjörva. Hægt er að fá útg. 3.11 í 20, 100 eða 250 notenda útfærslum. Macintosh
hugbúnaður er ekki innifalinn í verði 3.11.
Vinsamlegast athugið að NetWare útgáfur 2.0a og eldri verður ekki hægt að
uppfæra með afslætti eftir 1. ágúst næstkomandi og því um að gera að ganga
frá því strax.
Til að fá uppfærslu þarf að koma með upprunalegar diskettur merktar
GENOS/GENDATA (Adv., ELS-II og SFT NetWare) eða START (ELS-I tvær
diskettur). Þessar diskettur fela í sér þann afslátt sem Novell býður. Afgreiðslutími
á uppfærslum er 3-4 vikur frá pöntun. Vinsamlegast hafið samband við Hauk
Nikulásson eða Ólaf Engilbertsson til að fá frekari upplýsingar.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDl FYRIR NOVELL
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - Slmi 688944