Morgunblaðið - 19.05.1991, Blaðsíða 39
1 ‘ MORGUNBLAIÐIÐ ATVINWA/RAÐ/SWIAsimNUÐAGUR ra.'MM' 1991
39
Á milli skáka mátti fá sér sundsprett í heitum sjónum eða hvílast með svaladrykk undir pálmatré.
Opna mótið á St. Martin:
A sundskýlumri
við skákborðið
Skák
Margeir Pétursson
SMÁEYJA í Karíbahafi, St.
Martin, hefur fjögur ár í röð
verið vettvangur opins skák-
móts sem hefur verið allvel
sótt af skákmönnum bæði vest-
anhafs og austan. Verðlaunin
hafa farið síhækkandi og i vet-
ur gerðu mótshaldarnir sér far
um að kynna mótið sem allra
bezt með auglýsingum í skák-
blöðum. Afleiðingin varð sú að
hundrað skákmenn, þar af all-
margir titilhafar, létu sig hafa
það að fara suður í hitann og
brennandi sólskinið, þ. á m.
undirritaður. Ég var með
fyrstu mönnum sem mættu til
leiks, enda gerði ég mér grein
fyrir því að góðan tíma þyrfti
til að jafna sex klukkustunda
tímamismun frá meginlandi
Evrópu og breytingu yfir í hita-
beltisloftslag.
Ég hafði því verið fimm daga
á eynni þegar flestir aðrir kepp-
endur mættu til leiks og var því
orðinn býsna sjóaður, hafði t.d.
vanist því að vera alveg skugga-
laus um hádegisbilið. Einnig hafði
ég komið mér upp vörnum við
sólbruna og bitvörgum, auk þess
sem mér var farið að líka bæri-
lega vel við smáeðlur og krabba
sem komu stundum í kurteisis-
heimsóknir upp að sundlaugar-
barminum þar sem ég dvaldi löng-
um stundum með taflborð.
St. Martin er einkar vinaleg
eyja sem Hollendingar og Frakkar
hafa skipt með sér. Þótt hún sé
minni en Reykjanesskaginn eru
íbúarnir tæplega hundrað þúsund
manns, af ýmsum kynþáttum,
flestir svartir, og lifa þeir nokkuð
góðu lifí af ferðamannaiðnaði sem
blómstrar á eynni. í þeim hluta
þar sem mótið fór fram er aðalt-
ungumálið franska og er frönsk
menning og matargerðarlist þar
allsráðandi, en í hinum hollenska
eru amerísk áhrif mikil og enska
töluð. Það er mjög sérkennilegt
að tvö ólík menningarsvæði kom-
ist fyrir á svo lítilli eyju.
Skattar og tollar eru engir á
St. Martin og virtust mér eyjar-
skeggjar lifa einkar áhyggjulausu
lífi, a.m.k. miðað við það sem
gerist hér 45 breiddarbaugum
ofar á hnettinum. Úthafsloftslag
er ríkjandi þarna og gerir stöðug
hafgolan það að verkum að brenn-
heitir geislar hitabeltissólarinnar
verða þolanlegir fyrir gesti af
norðlægum slóðum.
Þar sem dagskrá skákmótsins
var býsna ströng, níu skákir tefld-
ar á sjö dögum, kom aðlögun-
artími minn að góðum notum.
Mætti jafnvel segja að hann hafi
ráðið úrslitum, því á erfiðasta
degi mótsins, þegar fimmtu og
sjöttu umferðirnar voru tefldar,
vann ég Bandaríkjamennina
Dmitri Gurevich og Alexander
Ivanov, sem enduðu síðar í 2.-6.
sæti. Þar með hafði ég náð
franska stórmeistaranum Oliver
Renet að vinningum og vann hann
-í þeirri sjöundu, frönskumælandi
heimamönnum til skiljanlegra
vonbrigða. Þá hafði ég náð vinn-
ingsforskoti á næstu menn og
dugðu tvö jafntefli í lokin, gegn
hinum kunnu bandarísku stór-
meisturum, Walter Browne og
Roman Dzindzindhashvili, tii að
halda efsta sætinu.
Úrslit urðu þessi:
1. Margeir Pétursson 7‘/2 v. af 9
mögulegum.
2. -6. Dzindzindhashvili, Kudrin,
D. Gurevich 0g Al. Ivanov, Banda-
ríkjunum og Rausis, Litháen 7 v.
7.—12. Rent, Frakklandi, Moska-
lenko, Sovétríkjunum, Fed-
orowicz, Bandaríkjunum, Castro,
Kólumbíu, Todorcevic, Júgóslavíu
og Kraut, V-Þýskalandi 6V2 v.
13.—25. Browne, Bandaríkjunum,
Motwani, Skotlandi, Wedberg,
Svíþjóð, Gobet, Sviss, Legky, Sov-
étr., Cuartas, Kólumbíu, Mart-
inovsky, Bandaríkjunum, Gonza-
les og Hoyos-Millan, Kólumbíu,
Remlinger, Bandaríkjunum, Po-
rubszky, V-Þýskalandi, Herzog,
Sviss, og Carlhammar, Svíþjóð 6
v.
Keppendur sem hafa jafnmarga
vinninga eru taldir upp í þeirri röð
sem þeir voru úrskurðaðir í skv.
útreikningi. Þeir Rent og Browne
sem leiddu mótið eftir fimm um-
ferðir voru tvímælalaust sein-
heppnustu keppendurnir, sérstak-
lega Renet, sem hefði getað náð
mér með sigri í síðustu umferð,
en hann iék sig í mát í vinnings-
stöðu gegn Alexander Ivanov.
Tímahraksberserkurinn og hrað-
skákkappinn Walter Browne
hrelldi skákstjórana og andstæð-
inga sína að vanda með handap-
ati og látum í tímahraki. Þegar
hann féll á tíma í síðustu umferð-
inni, gegn hinum lítt þekkta Raus-
is, færði skákstjórinn honum ót-
íðindin með bros á vör.
Síðasta vinningsskák mín á
mótinu gekk þannig fyrir sig:
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Olivier Renet
Katalónsk byrjun
1. e4 — e6, 2. Rc3 — d5, 3. d4
- Be7, 4. Rf3 - Rf6, 5. g3 -
Rbd7,6. Bg2 - 0-0, 7. Dd3 - c6
Andrei Sokolov lék hér 7. —
c5!? gegn Karpov á heimsbikar-
mótinu í Brussel 1988, en tókst
ekki fyllilega að jafna taflið.
8. 0-0 - b6, 9. e4 - Ba6, 10. b3
- Hc8,11. a4! - Re8!?, 12. exd5
- cxd5?
Renet hafði eytt fullmiklum
tíma á byrjunina og lék þessu að
bragði til að spara tíma. En hann
drap með vitlausu peði og eftir
þetta nær hann ekki að jafna taf-
lið fyllilega. Næsti leikur hvíts
kveður niður allt mótspil svarts á
skáklínunni a6-fl.
13. Rb5 — dxc4, 14. bxc4 —
Rd6, 15. Rd2 - Bxb5, 16. axb5
- Dc7, 17. Ba3 - Hfd8, 18.
Hacl
Eftir vel heppnaða byrjun tefldi
ég hér af of mikilli varfærni. 18.
Hfcl! var hvassara og betra, nú
nær svartur að létta nokkuð á
erfíðri stöðu sinni.
18. - Rf5!, 19. Bxe7 - Rxe7,
20. Hfel - Rb8?
Svartur vill létta enn frekar á
stöðunni með því að losa sig við
bakstæða peðið á a7, en hann
hefur ekki tíma í það eins og fram-
haldið leiðir í ljós. Rétt var 20. —
Rg6
21. Rf3 — a6, 22. bxa6 — Rxa6,
23. Da3! - Ha8
23. — Rb8 gekk ekki vegna
24. d5!
24. Re5 - Ha7, 25. Db2 - Rb8?!
26. d5! - Ra6
Skásti kosturinn, eftir 26. —
f6, 27. Rd3 — e5, leikir bæði 28.
c5 og 28. f4 til vinningsstöðu á
hvitt. Ef svartur næði nú að festa
riddara í sessi á c5 mætti hann
vel við una, en hann fær ekki tíma
til þess.
27. dxe6 - fxe6, 28. Hbl! -
Hb8, 29. De2 - Hf8.
Eftir 29. — Rc5, 30. Rd3! getur
svartur ekki varið veikleikann á
e6 til lengdar, en nú tekur ekki
betra við:
30. Rc6! — Rxc6, 31. Dxe6+ —
Df7, 32. Bxc6 - Dxe6, 33. Hxe6
- Rc5, 34. He2 - Hb8, 35.
Heb2 - Ha6, 36. Hb5 - Ra4,
37. c5! - Kf8, 38. Hlb3 - g6,
39. Kg2 - Kg7,40. Bf3 - Kh6.
Tímamörkunum er náð. Svart-
ur er alveg leiklaus og hvítur á
margar vinningsleiðir.
41. h4 - Kg7, 42. g4 - Kf6,
43. g5+ - Ke7, 44. Hlb4 -
Kd7, 45. c6+ - Kc7, 46. He5 -
Rc5, 47. Hd4 - Hc8, 48. He7+
— Kb8, 49. Bg4 og svartur gafst
upp.
KENNSLA
Vélritunarnámskeið
Notið sumarið og lærið vélritun.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Ob. 1P = 1732158Ú2 =
Lf.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Keflavík
Suðurnesjafólk. Sameiginleg
guðsþjónusta Fíladelfíu og Veg-
arins verður í Fíladelfíukirkjunni
Flafnargötu 84, [ dag hvíta-
sunnudag kl. 16.00. Settur trú-
boði Howard Andersen frá USA
prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hátíðarsamkoma 2. í hvíta-
sunnu kl. 20.30. Gestir og þátt-
takendur á hermannamóti
syngja og vitna. Ræðumaður:
Ofursti Johnny B. Andersen.
Verið velkomin.
Miðvikudag: Hjálparflokkur að
Víkurbakka 12, síðasti fundur á
starfsárinu.
Auðhrrtrfea 2 . Kópavoqur
Sunnudagur: Hvítasunnumót í
Hliðardalsskóla.
Þriðjudagur: Samkoma kl.
20.30. Burnie Sanders frá
Bandaríkjunum predikar.
Miðvikudagur: Samkoma kl.
20.30 Burnei Sanders frá USA
predikar.
Gleðilega hvítasunnu.
Frá Sálarrannsóknar-
félagi íslands
Aðalfundur félagsins verður
haldinn í Garðastræti 8 fimmtu-
daginn 23. maí kl. 20.30.
Efni fundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreyting.
Önnur fundarefni auglýst síðar.
Stjórnin.
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Hvítasunnudag kl. 11.00.
Fræðsla og barnakirkja.
Annan i hvítasunnu kl. 20.30.
Kvöldsamkoma. Lofgjörð, fyrir-
bænir. Gestur okkar, Philip
Stanley frá USA, sem hefur
starfað sem kristniboði í Japan
í 25 ár, talar á báðum samkom-
um. „Verið heilagir, því ég er
heilagur".
Verið hjartanlega velkomin.
Aðalfundur
skíðadeildar KR
verður haldinn mánudaginn 27.
maí kl. 20.00 í Frostaskjóli, fé-
lagsheimili KR. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa, verður skiða-
manni ársins veitt viðurkenning.
Kaffiveitingar. Munið eftir nð
taka með ykkur kökur.
Stjómin.
Ljósgeislinn
Félagsmenn athugið: Terry
Evans starfar á vegum félagsins
frá 3. júní til 14. júní. Hann verð-
ur með skyggnilýsingafund 12.
iúní sem er öllum opinn. Terry
heldur námskeið 8. og 9. júní.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni, einnig einkafundir fyrir fé-
lagsmenn.
Stjórnin.
Sími 686086.
Skipholti 50b
Almenn samkoma í dag kl.
11.00. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Allir innilega velkomnir.
^fflhjólp
Hátíðarsamkoma verður í
Þríbúðum í dag kl. 16.00. Fjöl-
breyttur söngur og vitnisburður.
„Beiskar jurtir" syngja. Ræðu-
maður: Óli Ágústsson. Barna-
gæsla og kaffi eftir samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir. .
Hvítasunnukirkjan
Fíladetfía
Fíladelfía í 55 ár
Hvítasunnudagur: Hátíðarsam-
koma kl. 16.30.
Ræðumaður David Petts. Fjöl-
breyttur söngur. Barnagæsla.
Annar í hvítasunnu:
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11.00 i
beinni útsendingu frá Fíladelfíu-
kirkjunni á Rás 1. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður David Petts. Fjöl-
breyttur söngur. Barnagæsla.
Ffladelfíusöfnuðurinn óskar
landsmönnum gleðilegrar
hvítasunnuhátíðar.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjusfræti 2
Bkfuk
T KFUM
KFUMog KFUK
Almenn samkoma á morgun
annan hvítasunnudag kl. 20.30
í kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58. „Andi sannleikans".
Jóh. 14,15-21. Upphafsorð:
Ragnhildur Gunnarsdóttir.
Ræðumaður: Séra Örn Bárður
Jónsson. Einsöngur: Halldór Vil-
helmsson. Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Dagsferðir Ferðafélags-
ins um hvítasunnu
19. maí kl. 13.00: Kollafjörður
- Álfsnes (fjöruferð).
I fjörunni á Álfsnesi ber margt
fyrir augu og hafa veður og vind-
ar mótað klettana á sérkennileg-
an hátt. Tilvalin fjölskylduferð.
Verð kr. 800,-.
20. maf kl. 13.00:
Keilir - Hverinn eini
Keilir er 379 m y.s. og þekktur
fyrir strýtumyndaða lögun. Út-
sýni af Keili er mikið yfir Reykja-
nesskagann og víðar. Létt
ganga. Verð kr. 1.100,-.
22. maí kl. 20.00: Tröllafoss -
Stardalur (kvöldganga)
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl.
Helgina 24.-26. maíverðurferð
til Vestmannaeyja. Helgarferðir
til Þórsmerkur eru farnar
hverja helgi
Kynnið ykkur sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins. Verð komið á
allar ferðir.
Ferðafélag íslands.
ÚTIVIST
TÓFINHI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/5ÍMSVARI 14Ut
Dagsferðir um
hvítasunnu
Sunnudagur 19. maf
Póstgangan, 10. ferð
Gengin verður gömul þjóðleið
frá Deildarhálsi um Herdisarvík
að Vogsósum ef skilyrði verða
hagstæö til að fara yfir ósinn.
Ef svo reynist ekki verður geng-
ið meðfram Hlíðarvatni að Hlíð.
Brottför kl. 10.30 fyrir þá sem
vilja ganga alla leiðina. Kl. 13.00
er boðið upp á styttri göngu sem
sameinast árdegisgöngunni við
Herdisarvík. í þeirri ferð stendur
einnig til boða stutt og auðveld
ganga fyrir fólk með börn.
Mánudagur 20. maí
KL. 08.00: Básar - Goðaland
Fyrsta dagsferðin i ár. Góður
göngutúr inn í Básum.
Kl. 10.30: Svinaskarð
Gengin gömul leið um Svína-
skarð, sem liggur i 481 m hæð,
á milli Móskarðshnúka og Skála-
fells.
Kl. 13.00: Haukafjöll
Létt fjallganga um skemmtilegt
fjalllendi. Gengið verður inn
Þverdal og upp á Haukafjöll.
Komið niður við Tröllafoss.
Sjáumst.
Útivist.