Morgunblaðið - 09.06.1991, Síða 14
MORÚÚNBLAÐIÐ SUN'.N'L'DAGÚR 9. JÚNÍ 1991
ai4
SYNING UM HELGINA
ISLENSKIR OG AMERISKIR
NUDDPOTTAR
Sýning laugardag og sunnudag fra kl. 13.00 -17.00
Allur búnaður fyrir vatns og loftnudd, ouk annoro fylgihluta:
* Hreinsitæki og hringrósord;
* Ljós og dælurofar
* Yfirbreiðslur
* Votns og loftnudd
* Allur fittings og tengihlutor
* Klórtöflur og hreinsiefni
* Leiktæki f. sundlaugor
Gerið gæða og verðsamanburð - Leitið tilboða !
Við bjóðum einungis AKRYL nuddpotto því AKRYL stenst
íslensko veðróttu og vatn.
10 óra þekking - solo - og þjónusta.
1AO/ STAQGREIÐSLUAFSLÁTTUR
IV /0 SYNINGARDAGANA
K.AUÐUNSSON HF.
Sérverslun með hreinlætistæki
Grensásvegi 8 - Sími: 686088
Góðan daginn!
Reykteikningar
________Myndlist_____________
Eiríkur Þorláksson
Listamenn tileinka sér oft
ákveðnar vinnuaðferðir við listsköp-
un, sem síðan verður einkennis-
merki þeirra; verkin þekkjast á
handbragðinu, hvort sem það felst
í notkun lita, teikningu, myndbygg-
ingu, áhöldum eða áferð. Það er
aðalsmerki góðra listamanna að ná
að þroska sitt verklag og finna því
nýja farvegi í hið óendanlega, og
geta þannig verið skapandi og fijó-
ir alla sína starfsævi. Sumir lenda
hins vegar í blindgötu og geta ekki
snúið við, og endurtaka sig hvað
eftir annað. Fæstir listamenn eru
samt svo bundnir af tækninni að
þeir geri ekki tilraunir með ólíkar
aðferðir, og ögri sjálfum sér til að
líta hlutina nýjum augum. Oft hafa
slíkar tilraunir síðan reynst vera
upphafið að nýjum þroskaskeiðum
og fijóum tímabilum í listsköpun
viðkomandi einstaklings.
Vegna þessa er alltaf athyglis-
vert að fylgjast með þegar lista-
menn, sem hingað til hefur mátt
þekkja á ákveðnum vinnubrögðum,
taka að gera tilraunir á öðru sviði;'
þar gæti verið á ferðinni upphafið
að nýju skeiði á listferlinum.
Halldór Ásgeirsson sýnir nú í
Gallerí einn einn við Skólavörðustíg
verk, sem hann kallar „reykteikn-
ingar. Hingað til hafa verk Halldórs
einkennst af sterkum litflötum og
fínlegri, nákvæmri teikningu, þar
sem mynstrum og táknum ýmissa
menningarsvæða bregður fyrir, og
virðast fljóta á yfirborði myndflat-
arins, sem hefur verið unninn þann-
ig að allt er slétt og fellt, og enginn
pensildráttur vitnar um persónulegt
handbragð. Verkin sem nú hanga
á veggjunum í sýningarsalnum eru
því mikil umbreyting; þau eru virki-
lega það sem nafnið gefur til kynna,
þ.e. teikningar, unnar með reyk af
kertaloga á bakgrunn, sem lista-
maðurinn hefur sérstaklega valið
til þess.
Reykurinn hefur svo sannarlega
áður komið við sögu í myndlistinni,
en óvíst að hann hafi verið notaður
beint á þennan hátt, sem blýantur
eða penslill. Um val sitt á þessu
verkfæri, reyknum, hefur listamað-
urinn eftirfarandi að segja í ávarpi
til gesta: „Reykurinn er sót eldsins
og eldurinn er frumkraftur, undir-
staðán í menningu mannsins. Reyk-
urinn er skilaboð frá einu í annað.
Reykurinn er augnablikið og ég
fanga hann sem vitnisburð um at-
burð. Reykurinn er sýnilegur andi
og andinn verður til, sest að í efni
og dvelur þar í lengri eða skemmri
tíma.
Samkvæmt þessu eru verkin á
vissan hátt heimildir, vitnisburður
um framkvæmdina. En hér er fleira
á ferðinni. Hver mynd er sjálfstætt
verk þar sem reykurinn hefur skap-
að fljótandi mynstur og ímyndir,
sem ýmist vinna með eða takast á
við bakgrunninn. Hér skiptir efni-
viðurinn miklu máli, vegna þess fj'öl-
bréytta mynsturs, sem þar er að
finna. Halldór hefur dregið saman
gnótt litríkra gluggatjalda, sængur-
vera, borðklúta o.s.frv., sem hafa
lokið sínu hlutverki; tískan hefur
dæmt þetta efni úr leik og það mun
liggja í kössum á háaloftum og í
geymslum þar til því verður fleygt
— nema því sé gefið nýtt hlutverk,
eins og hér hefur verið gert með
því að gera það að bakgrunni reyk-
teikninga.
Þessi tilfinning um hið gamla og
úrelta í efniviðnum er styrkt með
uppsetningunni. Verkin eru aðeins
fest að ofan, og síðan hengd þétt
Halldór Ásgeirsson:
Reykteikning. 1991.
á veggina, jafnvel yfir hvert annað,
þannig að gestir þurfa að fletta í
gegnum þau til að njóta þess mynst-
urs, sem Halldór hefur skapað með
reyknum. Sýningin minnir því að
vissu leyti á gamlan basar eða flóa-
markað, og gefur það henni mun
hlýrri heildarsvip en ef færri verk
væru strekkt á blindramma og
hengd upp eins og málverk.
Þessar teikningar kunna að boða
nokkrar breytingar í list Halldórs
Ásgeirssonar. Þar sem áður voru
fáir litir í heilum flötum, eru nú
mismunandi blæbrigði bakgrunns
og reyks, þannig að fram kemur
dýpt, sem Halldór hefur lítt sinnt
áður. Þar sem áður var fíngerð og
nákvæm teikning ec nú fjölþætt og
loðin myndgerð, þar sem ósandi
kertið hefur að nokkru leyti fengið
að ráða teikningunni, sem er þó
ætíð í nokkru samræmi við mynstur
bakgrunnsins. Hér er listamaðuinn
að þreifa sig áfram í nýjar áttir,
og verður gaman að fylgjast með
framvindunni á næstu sýningum.
Sýning Halldórs Ásgeirssonar í
Gallerí einn einn stendur til 13. júní.
Fornbílaklúbburinn:
Breyttar reglur skipta bíl-
um í fornbíla og safngripi
FORNBÍLAKLÚBBUR íslands hélt aðalfund sinn á Holiday Inn þann
26. maí sl. Sljórn félagsins var endurkjörin utan Hauks Isfeld sem
ekki gaf kost á endurkjöri. I hans stað var kjörinn Georg Theodórs-
son. Formaður er Kristinn Snæland, ritari Sigtryggur Jónsson og
gjaldkeri Hinrik Thorarensen. Félagar í klúbbnum eru nú rúmlega
500 talsins.
Aðalmál fundarins voru laga-
breytingar en með þeim er nú öllum
sem áhuga hafa á gömlum ökutækj-
um frjáls aðgangur að klúbbnum
þó ekki eigi þeir gamalt ökutæki.
Einnig var regla um aldur öku-
tækja í klúbbnum löguð að breytt-
um aðstæðum. Nú verða tveir flokk-
ar ökutækja skráðir í klúbbnum.
Okutæki 25 ára og eldri verða skráð
sem fornbílar en hjól og ökutæki
15 til 25 ára verða skráð sem safn-
gripir. Helstu baráttumálin voru
reifuð en þau eru:
K.E.W Hobby Háþrýstidælan
Bíllinn þveginn og
bónaöur á tíu mínútum.
Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með
lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með
drullugum þvottakústi.
Bílsápa og sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylg-
ir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurnar, stéttina,
veröndina og sandblásið málningu, sprungur og
m.fl. með þessu undratæki. Úrval fylgihluta!
r"-"n
tv
REKSTRARVORUR
Réttarhálsi 2,110 Rvik. - símar 31956-685554-Fax 687116
• Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
1. Að fá fornbíla skráða á númer
síns tíms, (fá á þá gömul númer).
2. Fá breytt reglum um skoðun
fornbíla. (Þeir verði sjaldnar skoð-
aðir en bflar í daglegri notkun.)
3. Tryggingamál. (Fá ökumanns-
tryggingu lækkaða á fornbílum,
enda er þessum bílum ekið lítið á
ári hveiju.)
4. Bygging safnahúss. (T.d. á
samvinnu við Árbæjarsafn.)
5. Fjölgun félaga. (Samkvæmt
skrá Bifreiðaskoðunar íslands eru
nú 3339 bílar 25 ára og eldri til í
landinu og því margir eigendur
fornbfla utan klúbbsins).
Fornbflaklúbburinn mun að venju
fara í margar ökuferðir í sumar.
Tveimur er lokið en átta eftir.
Næsta ferð verður 6. júní nk. „Mæt-
ing á rúntinn", þá þátttaka í 17.
júní-hátíðarhöldum í Reykjavík,
28.-30. júní er Vestmannaeyjaferð,
11. júlí „Mæting á rúntinn", 26.-28.
júlí er Sauðárkróksferð, 18. ágúst
„Heiðmörk“ og 5. september enn
„Mæting á rúntinn“.
Sumarið 1992 er áætluð Norður-
landaferð. Ferðir klúbbsins eni
flestar, jafnframt því að vera
skemmtiferðir, einskonar sýningar-
ferðir fyrir almenning.
(Fréttatilkynning)