Morgunblaðið - 09.06.1991, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 09.06.1991, Qupperneq 21
leggið þið ekki útflutning á heims- ins besta vatni og fiski? Þetta er lúxusvarningur!“ Ani segist vilja sjá alþjóðlega miðstöð rísa á Islandi. „Þar yrði miðstöð umhverfisverndar í heimin- um og í tengslum við hana yrði rekin fjölþjóða vísindastofnun sem skipulegði hafrannsóknir og eftirlit með þróun í lífríki sjávar. Það er mikilvægt að viðhalda jafnvægi í hafinu, grisja stofna þegar þeir eru í ofvexti og vernda þá þegar þeir eru í útrýmingarhættu. Þetta er rétta landið og Islendingar eru rétta þjóðin til að reka slíka miðstöð! Víkingarnir, forfeður ykkar, voru hugdjarfir könnuðir. Þeir leituðu á ný mið og tókust óhræddir á við framandi verkefni. Hér eru engin alvarleg mengunarvandamál, þetta er vel menntuð þjóð, hér er mikil orka og hér eru allar aðstæður til að byggja svona miðstöð. Þið eigið ekki við eins alvarleg vandamál að stríða og svo margar aðrar þjóðir. Þess vegna gætuð þið notað kraft- ana í verkefni af þessu tagi.“ Ani segist hafa orðið heilluð af Eg átti vonáað sjá glott- andi fslendinga, vopnaða spjðtum Ég trúi á kraftaverk og það barf kraftaverk til að við og afkomendur okkar geti haldið áfram að búaájörö- inni Margir einblína á einn mála- flokk, til dæmis hvalafriðun, en virðast ekki siá heildar- myndina Eg drep ekki einu sinni maiira Eg trúi á æðri máttarvöld, sem gefa okkur tækifæri til að vinna úr hlutunum eftir bvísem við höfum ísjandi strax og hún kom hingað. „Ég nýt þess að anda hérna! Hugs- aðu þér, þar sem ég bý í Los Angel- es sé ég ekki út á næsta götuhorn vegna misturs og í Mexíkó eru komnir súrefniskútar í símaklefa!“ Tilfinningalega álagið er greinilega mikið hjá Ani núna. Umhverfismál og verndun heimsins náttúru eru henni mikið hjartans mál og hún grætur í svolitla stund. Síðan tekur hún upp þráðinn aftur: „Ég trúi á kraftaverk og það þarf kraftaverk til að við og afkomendur okkar geti haldið áfram að búa á jörðinni." — Þú segir að ímynd íslands sé víða alvarlega brengluð. Hvalafrið- un og umhverfisverndarmál hanga víða á sömu spýtunni. Gæti ekki ^rkað tvímælis ef „hvalveiðiþjóðin ísland" tæki að sér að setja á stofn og reka alþjóðlega miðstöð fyrir umhverfisvernd? „Það er líklegt ef ímyndin breyt- ist ekki. Þó ég hafi fullan skilning á viðhorfum Islendinga í hvalveiði- málum, finnst mér þau mál vera lítilfjörleg miðað við það jafnvægi sem verður að komast á í náttúru- og dýraríkinu. Öfgahópar hafa komið illa fram við ykkur og þess vegna skil ég viðbrögð ykkar. Öfga- sinnar hafa skaðað hinn raunveru- lega málstað. Hins vegar lifið þið ekki af hvalveiðum og ef við setjum á vogarskálarnar annars vegar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991 21 hagsmuni ykkar vegna veiðanna og hins vegar afleiðingarnar, það er að segja þessa brengluðu ímynd víða um heim, afneitun á íslenskum varningi og fleira, finnst mér hið síðarnefnda vega þyngra. Ég held að við komumst ekki langt með því að vera öfgafull. Það er nóg að reyna að sjá hlutina í samræmi og gera sér grein fyrir hvað er aðalat- riði og hvað aukaatriði. Við þurfum að sjá heiminn í heild sinni. Um- hverfismál hafa engin landamæri og það skiptir ekki máli hvort meng- un kemur frá íslandi eða Kína, Ósonlagið þynnist jafn mikið.“ — Þér finnst kannski að við þyrftum að víkka sjóndeildarhring- inn? „Já, það má segja það. Hvers kyns öfgar gera ekki annað en eyði- leggja. Margir einblína á einn mála- flokk, til dæmis hvalafriðun, en virðast ekki sjá heildarmyndina. Það er svo margt í heiminum sem við verðum að huga að. Við stönd- um á tímamótum og verðum að taka ákvörðun um hvort við viljum að líf haldi áfram á jörðunni.“ — Hvernig fínnst þér ísiending- ar vera á vegi staddir í umhverfis- vernd? „Vel. Stórkostlega! Hér er mikil vakning í þessum efnum. Ég hef kynnst fullt af fólki hér og finnst það mjög meðvitað um mikilvægi umhverfisverndar og þess að jafn- vægi náist í lífríkinu. íslendingar eru nefnilega ótrúlega vel að sér. Þó þið eigið ekki við alvarleg vanda- mál að etja vitið þið uppá hár hvað er að gerast annars staðar í heimin- um. Það er einmitt eitt af grundvall- aratriðum þess að þið gætuð svo auðveldlega rekið miðstöðina_ sem skiptir svo miklu máli að verði til. Hingað gæti fólk leitað lækninga auk þess sem þetta er ákjósanleg- asti staður í heimi til að skipu- leggja og ræða umhverfismál í heiminum. Orðin töfrar og yfirnáttúrulegt notar fólk sem hefur komið hingað til að lýsa landinu. Þetta eru orð að sönnu. Þetta er eins og ævintýra- heimur og ísland er magnaður stað- ur að ótal mörgu leyti. -í gær fór ég til dæmis út fyrir bæinn og upp- götvaði nýja hlið á eftirnafninu mínu, Moss (mosi innsk. blm.). Ég lagðist í mosann og velti mér uppúr honum. Það var dásamleg tilfinn- ing. Hefur þú einhvern tímann próf- að að velta þér uppúr mosa?“ spyr hún af þessari einlægni sem er henni svo greinilega eðlislæg. Síðan heldur hún áfram: „Ég veit að hér eru stundaðar náttúrulækningar ýmiskonar og ég trúi á kraft náttúr- unnar. Jörðin býr yfir svörum við svo mörgum spurningum, sem við höfum bara ekki haft hugmynda- flug til að spyija hana. Á heilbrigðu landi eins og íslandi eru að sjálf- sögðu fleíri svör við fleiri spurning- um en í öðrum löndum." — Þú ert dýravinur. „ Já, mér þykir vænt um dýr. Mér þykir vænt um höfrunga og hvali. Mér þykir vænt um blóm og flugur. Mér þykir vænt um mosann sem ég velti mér uppúr í gær. Mér þykir vænt um þig og allt sem lif- ir. Málið er ekki flóknara en það. Ég hef alltaf verið svona. Ég drep ekki einu sinni maura, einfaldlega vegna þess að hugur minn segir mér að ég hafi engan rétt til að svipta aðra lífveru lífinu. Ég kynnt- ist höfrungum fyrst við strendur Hawaii þar sem ég á hús. Þar synda þeir í kringum fólkið og virðast njóta samskiptanna. Þeir eru gæfír og gáfaðir, skemmtilegustu og ynd- islegustu dýr sem ég hef kynnst." — Þú kemur mér fyrir sjónir sem hugsjónamanneskja. Ertu það ekki? „ Kannski væri réttara að segja að ég væri draumóramanneskja. Ég leyfi mér að dreyma. Mig dreym- ir um heilbrigt fólk á á þessari fal- legn jörð. Mig dreymir um betri samskipti mannsins við náttúruna. Ég trúi á æðri máttarvöld, sem gefa okkur tækifæri til að vinna úr hlutunum eftir því sem við höfum þroska til. Til að draumar rætist verður maður fyrst að eiga draum. Og ég á mér draum ...“ GOLDEN-GATE fótlagaskórnir - punktanudd í hverju spori Sérhvert mikilvægt líffæri líkamans hefur samsvarandi svæði á fætinum, endursvörunarsvæði eða viðbragðs- svæði, sem hægt er að hafa áhrif á. □höfuðnheiladingulinheilinsogæðakerfíssvæðiDskjaldkirtilin hjarta og hjartastarfsemiDaxlasvæðiniungu og lungnasvæðiD- magagróf, neðan bringspalaDlifurnmagingallblaðrannýrun- briskirtillDmilta □ristillDþvagrásDsmágarnirnbotnlangin- nýrnaskálar GOLDEN-GATE nafnið er lögvemdað ásamt lýsingu á viðbragðs- svæðum. Lofið fótunum að njóta náttúrulegs nudds Áður fyrr þurfti maðurinn ekki að ganga á malbikuð- um götum eða steinsteypu með fætuma kreppta í þröngum skóm. Hið náttúrulega umhverfi nuddaði fæturna þá stöðugt og mjúkt, þegar gengið var á engjum eða sandi. COLDEN-GATE hefur notfært sér þekkingu sína á eðli náttúrunnar og fært hana yfir í nútíma framleiðslu. í GOLDEN-GATE Reflex sólanum eru litlar holur, sem orsaka stöðugt, mjúkt nudd. GOLDEN-GATE sérfræðingarnir hafa með þessu dregið úr áberandi sterkum núningi plast- tappa, sem notaðir em í svipaðan nuddskófatnað. Það er rangt að bjóða fótunum mjög sterkan nún- ing. Sterkari núning á aðeins að framkvæma af sér- fræðingi eða svæðisnuddara. Hins mjúka GOLD- EN-GATE nudds er hægt að njóta allan daginn, án þess að það valdi skaða. GOLDEN-GATE mjúka nuddið styrkir, hressir, endurnærir og eykur virkni tauga. Það er orkuaukandi og vekur vellíðan. SKÓHÖLLIN, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði SKÓTÍSKAN, Akureyri SKÓBÚÐ HÚSAVÍKUR, Húsavík VERSL. HVAMMUR, Höfn, Hornafirði ÖND VEGISHÚSGÖGN —---öSÍ;. •«iB8~awi‘«ggg | LmccAn House = HOME FURNISHINGS == Lincoln House sófasettin eru ein sígildasta sófasettalína með tauóklæði sem framleidd eru í dag. Þessi húsgagnalína er fró Viktoríutímabilinu og er hún oft kölluð rómantíska línan. Lincoln House býður upp ó gluggotjöld og veggfóður í stíl við ókiæðið. ROEDEAN 3ja sæta + 2 stólar kr. 178.900,- stgr. Síðumúla 20 - sími 688799. Opið í sumar á laugardögum frá kl. 10-14. HUSGAGNAVERSLUN CHESTERFIELD-sófasett, með ekta hand- verkuðu antikleðri fró stærsta leðurhús- gagnaframleiðando Bretlands, Pendragon, tryggir ekki bara lægsta verðið heldur líka mestu gæðin. 3ja sæta sófi + 2 lágir stólar kr. 197.800,- stgr. Stakur 3ja sæta kr. 08.900 stgr. Stakur 2ja sæta kr. 72.900,- stgr. Master Wing hábak kr. 59.850,- stgr. pltrgmmMmfoifo Meirci en þú geturímyndoó þér!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.