Morgunblaðið - 02.07.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
Sauðárkrókur:
Mörg umferðar-
óhöpp um helgina
Sauðárkróki.
UM HELGINA urðu 6 umferðaróhöpp í Skagafirði og á Sauðár-
króki. A aðfaranótt sunnudags var ekið á mann á Vatnsskarði og
slasaðist hann allmikið. Var hann fluttur með sjúkrabifreið á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki þar sem hann dvelur enn.
Þá valt bifreið við bæinn Mar- Að sögn lögreglu virðist seint
bæli í Seyluhreppi en ekki urðu verða ofbrýnt fyrir fólki hve nauð-
meiðsli á fólki. Norðan við bæinn
Vatn á Höfðaströnd valt bíll með
fimm ungmennum og er bíllinn
gjörónýtur en allir sem í honum
voru sluppu ómeiddir og er það
að sögn með ólíkindum. A þessum
stað er rnikil lausamöl og vegurinn
af þeim sökum varasamur og mun
allstór steinn hafa fests í hjólskál
framhjóls með þessum afleiðing-
um.
Á sunnudag var svo árekstur á
mótum Aðalgötu og Eyrarvegar á
Sauðárkróki og eru bílarnir mikið
skemmdir eða ónýtir en ökumenn
og farþegar sluppu án meiðsla.
Þá fór bíll út af veginum á Höfða
á Höfðaströnd en ekki urðu meiðsli
á fólki. Við bæinn Tjarnir í
Sléttuhlíð valt bifreið og hafnaði
á hjólunum og skemmdist nokkuð
og voru ökumaður og farþegi flutt-
ir í Sjúkrahús Skagfirðinga en
meiðslin voru óveruleg.
Nýtt gæsaveiði-
tæki á markaðinn:
Hátalarar
lokka gæsir
Tækið bannað á
Norðurlöndum
NÝTT gæsaveiðitæki er komið
á markaðinn. Um er að ræða
segulbandstæki með útihátölur-
um. Þetta kemur í stað gömlu
veiðiflautunnar og hefur þann
kost fram yfir hana að veiði-
menn þurfa ekki lengur að læra
að herma eftir dýrunum. Marg-
ir skotveiðimenn hafa áhyggjur
af því að þetta muni leiða til
að veiði muni nú margfaldast
en engar reglur eru hér á landi
um hve mikið megi veiða af
gæsum.
„Ef þetta verður almannaeign
lýst mér ekki á vertiðina," sagði
Sólmundur Einarsson skotveiði-
maður í samtali við Morgunblaðið.
„Tæki eins og þetta hlýtur að
hafa margfalt meiri magnveiði í
för með sér en hefur mjög neikvæð
áhrif á veiðiskapinn sem íþrótt
enda hafa svona tæki verið bönnuð
mjög víða, t.d. á Norðurlöndum
og í Bandaríkjunum. Þar að auki
er aldrei að vita hvaða áhrif svona
nýjungar hafa á stofninn. Engar
reglur eru til hérlendis um hve
mikið megi skjóta öfugt við t.d.
Bandaríkin þar sem allt slíkt er
njörvað niður.“
Páll Hersteinsson veiðistjóri
-agði í samtali við Morgunblaðið
að þetta væri ekki ólöglegt hér á
landi samkvæmt núgildandi veiði-
lögum. Vertíðin væri ennþá ekki
hafin og því hefði engin reynsla
fengist af þessari nýjung ennþá.
Þetta nýja veiðitæki er segul-
bandstæki með kröftugum hátöl-
urum. Með því fylgja átta tegund-
ir dýrahljóða, hljóð úr ref, þremur
gæsategundum og fjórum anda-
tegundum. Veiðihúsið selur svona
tæki og samkvæmt upplýsingum
þaðan hefur það selst vel.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans!
synlegt er að haga akstri eftir
aðstæðum og sérstaklega þar sem
komið er út á malarvegi þar sem
lausamöl og steinkast geta orsak-
að stórslys eins og dæmin sanna.
- BB.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Arekstur við
bæinn Hemlu
UM miðjan dag á sunnudag varð allharður árekstur
við bæinn Hemlu rétt austan við Hvolsvöll. Engin
slys urðu á fólki en bílarnir skemmdust báðir mjög
mikið. Bílarnir stefndu í austurátt er óhappið varð
og ætlaðir annar bíllinn sem var jeppi að fara fram-
úr fólksbíl sem sveigði þá til vinstri í veg fyrir jepp-
ann. Mun fólksbíllinn hafa ætlað að beygja upp að
Hemlu. Snerist hann á veginum og lenti útí skurði.
Stúlka sem var í fólksbílnum var flutt til læknisins
á Hvolsvelli en reyndist hún ekki hafa slasast. Að
sögn lögreglunnar á Hvolsvelli gekk umferðin í
Rangárvallasýslu ótrúlega vel um þessa miklu um-
ferðarhelgi. Talið er að hátt á annan tug þúsunda
hafi verið á ferðinni um sýsluna vegna hestamanna-
mótsins á Hellu, íþróttahátíðar HSK á Hvolsvelli,
svifflugmóts og fleira. Mikið var af tjöldum á öllum
tjaldstæðum enda veður milt og gott.
- SÓK.
Gámastöðvar
■ mikilvægur hlekkur
í breyttri umgengni við úrgang
Gámastöðvar
eru á þessum stöðum:
Mosfellsbær og Kjalarnes:
Viö hesthúsabyggöina í Mosfellsbæ.
Tilbúin í júnílok.
Norðausturhverfi Reykjavíkur og Árbær:
Viö Sævarhöföa.
Seltjarnarnes og Vesturbær:
Viö Ánanaust.
Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaða-
hreppur:
Miðhrauni 20,
Grafarvogur:
Viö Gylfaflöt. Tilbúin í lok júlí.
Bráöabirgöastöö viö gamla Gufunesbæinn
veröur í notkun til júlíloka.
Austurbær, Fossvogur:
Viö Sléttuveg, vestan Borgarspítala.
Opin enekki fullbúin.
Kópavogur:
Viö Dalveg viö áhaldahús. Opin til bráöabirgöa
þar til ný stöö tekur viö í júlí.
Það er áríðandi að allir íbúar höfuð-
borgarsvæðisins taki virkan þátt
í flokkún úrgangs og noti gámastöðvar
til þess að losa sig við málma, grjót,
timbur, spilliefni, garðaúrgang og
pappír.
Stöðvarnar eru einungis ætlaðar fyrir
smærri farma og eru opnar
alla daga kl. 10.00 - 22.00.
Þjónusta þeirra er ókeypis.
Ath. Þeir sem koma með umhverfis-
spillandi efni snúi sér til gæslumanns.
Sýnum ábyrgð okkar á umhverfinu í
verki - flokkum úrganginn og notum
gámastöðvarnar.
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs,
Gufunesi, Sími 676677, Bréfasími 676690. Efnamóttaka sími 676977.