Morgunblaðið - 17.08.1991, Síða 1
48 SIÐUR B
184. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
69 farast í flug-
slysi á Indlandi
Imphal, Indlandi. Reuter.
FARÞEGAFLUGVÉL af gerðinni Boeing 737 frá Air India hrapaði
í gær í norðausturhluta Indlands. 69 manns voru um borð í vélinni
og eru þeir allir taldir af, að því er haft var eftir Ranbir Singh,
yfirráðherra Manipur-ríkis.
Flak vélarinnar fannst á hæð
skammt frá þorpi, sem er í um 45
kílómetra fjarlægð frá Imphal, höf-
uðborg Manipur. Var flakið alelda.
Vélin var á leið frá Kalkútta til
Imphal þegar hún hrapaði. Lágskýj-
að var á svæðinu er slysið varð en
skilyrði að öðru leyti góð.
Deepak Gogoi, yfirverkfræðingur
á flugvellinum í Imphal, sagði við
Reuter-fréttastofuna að ef til vill
hefði bilun komið fram í sjálfvirku
lendingarkerfí vélarinnar, sem varð
Júg’óslavía:
Skotið á þyrlu
EB-manna
Belgrad. Reuter.
SKOTIÐ var í gær á þyrlu sem
í voru eftirlitsmenn Evrópu-
bandalagsins á flugi yfir átaka-
svæðum í Króatíu. Þyrlan lask-
aðist en farþegarnir sluppu með
skrekkinn.
Þyrlan var af gerðinni Alouette
og varð að lenda henni við
sveitabæ í nágrenni bæjarins
Novska, suðaustur af Zagreb, höf-
uðborg Króatíu. Tveir eftirlits-
menn EB voru um borð auk
tveggja manna áhafnar.
Skotið var á þyrluna nærri bæn-
um Okucani þar sem serbneskir
skæruliðar og þjóðvarðliðar Kró-
atíu börðust. Sjónarvottar sögðu
að nokkurt mannfall hefði orðið í
átökunum.
Skotbardagarnir eru brot á
vopnahléssamkomulagi því sem
forsætisráð Júgóslavíu lýsti yfir
fyrir skemmstu.
til þess að hún hrapaði í gær. „Ver-
ið gæti að kerfinu hafi verið gefin
upþ röng hæðartala þegar flug-
mennirnir voni að búa sig til lend-
ingar,“ sagði Gogoi.
Tvær þyrlur indverska flughers-
ins voru sendar til að leita vélarinn-
ar. Flugmenn þeirra komu ekki
auga á flakið fyrr en nokkrum
klukkustundum eftir að flugturninn
á Imphal-flugvelli missti talstöðvar-
samband við vélina. Þyrluflug-
mennirnir gátu greint lík eins
manns. Þeir sögðu að eldar hefðu
enn logað í vélinni rúmum fjórum
klukkustundum eftir að hún átti að
lenda í Imphal.
Björgunarmenn voru enn að
reyna að bijóta sér leið að flakinu
í gærkvöldi. Engir vegir liggja að
slysstaðnum og eru þeir því fót-
gangandi.
Keuter
Friðrik mikli á heimleið
Á miðnætti aðfaranótt sunnudags verða bein Friðriks mikla Prússakonungs endurgreftruð við Sanssouci-
höllina nærri Berlín að viðstöddu fyrirmenni á borð við Helmut Kohl kanslara. Þýskir hermenn í bænum
Hechingen í Baden-Wúrttemberg fluttu kistu Friðriks mikla í gær um borð í lestarvagn sem síðan hélt
áleiðis til Potsdam. Vagninn var smíðaður árið 1905 og notaði Vilhjálmur II keisari hann við hátíðleg tækifæri.
Þingmenn Yerkamannaflokksins í umræðum í norska Stórþinginu um EES:
Mínni áhersla á kröfuna um
fríverslun með sjávarafurðir
GUNNAR Berge, formaður þing-
flokks norska Verkamanna-
flokksins, sagði í ræðu í norska
Stórþinginu í gær að menn yrðu
að líta raunsætt á samningsstöð-
una í viðræðönum um Evrópskt
efnahagssvæði og horfast í augu
við að útilokað væri að í haust
næðist samkomulag um sjávarút-
U
Reuter
Sólfíflar á akri
Skoskur garðyrkjufræðingur hefur gert þessa eftirmynd málverksins
Sólfíflarnir eftir hollenska listmálarann Vincent van Gogn. í eftir-
myndinni sem er á kornakri í Suður-Skotlandi eru 250.000 jurtir
hvorki meira né minna. Myndin er 60x75 m að flatarmáli.
vegsmál sem væri jafnhagstætt
og menn gerðu sér vonir um eft-
ir Lúxemborgarfund ráðherra
Evrópubandalagsins og Fríversl-
unarbandalags Evrópu 18. júní
síðastliðinn. Ummæli Berge og
Gro Harlem Brundtland forsæt-
isráðherra í Stórþinginu í gær
auk samþykktar miðstjórnar
Verkamannaflokksins á miðviku-
dag þykja bera vott um að flokk-
urinn hafi ýtt kröfunni um
fríverslun með sjávarafurðir inn-
an EES til hliðar. Norska dag-
blaðið Aftenposten gengur svo
langt að segja að fiokkurinn hafi
bersýnilega fallið frá þeirri
kröfu.
Berge vitnaði til samþykktar
miðstjórnarfundar Verkamanna-
flokksins frá því á miðvikudag en
þar er stefnan sett á „áþreifanlegar
umbætur“ á núverandi sjávarút-
vegssamningi Noregs og Evrópu-
bandalagsins en þó er sett fram
krafa um tollfijálsan innflutning
sjávarafurða á EB-markað þegar
til lengri tíma er litið. Brundtland
forsætisráðherra sagði um þetta
efni að ekki þýddi að leggja árar í
bát í EES-viðræðunum þótt ítrustu
kröfum Norðmanna yrði ekki full-
nægt.
Umræðurnar í Stórþinginu í gær
snerust að miklu leyti um hvað
hefði gerst á Lúxemborgarfundin-
um og hvort ríkisstjórnin hefði lagt
rétt mat á stöðuna eftir þann fund.
Norska stjórnarandstaðan heldur
því fram að Thorvald Stoltenberg,
utanríkisráðherra Noregs, hafí ját-
að í ræðu sinni í gær að ekki hafi
náðst pólitískt samkomulag á ráð-
herrafundinum. Ráðherrann sagði
að ráðherrar fjögurra EB-ríkja
hefðu viðhaft ummæli í Lúxemborg
um norska tilboðið í sjávarútvegs-
málum sem hægt væri að túlka á
ýmsa vegu. í greinargerð Eldrid
Nordbo viðskiptaráðherra á
fimmtudag hafði einungis komið
fram að Irar hefðu gert fyrirvara
varðandi tollfijálsan innflutning á
laxi, síld og makríl. Stoltenberg
bætti við að fulltrúar Þjóðveija,
Frakka og Breta hefðu litið jákvæð-
um augum á tilboð Norðmanna, það
væri góður grundvöllur samkomu-
lags, en tekið fram að nánar þyrfti
að kanna ýmis atriði varðandi út-
færslu tilboðsins. Stjórnarandstað-
an henti orð Stoltenbergs á lofti og
spurði hvemig í ósköpunum hefði
verið hægt að túlka orð EB-ráðherr-
anna um að norska tilboðið væri
góður grundvöllur samkomulags
sem pólitíska einingu.
Sjá frásögn af umræðum í
Stórþinginu á miðopnu.
Boeing-767 þotur:
Lofthemlar aftengdir
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA flugmálastjórnin (FAA) hefur fyrirskipað fiugfélög-
um þar í landi að aftengja lofthemla í Boeing-767 þotum. Skýring-
in er sú að lofthemlarnir fóru fyrirvaralaust í gang í þotu aust-
urríska fiugfélagsins Lauda-Air yfir Tælandi fyrr á þessu ári en
skömmu síðar hrapaði þotan til jarðar.
í tilkynningu FAA segir að ekki
sé vitað fyrir víst að bilunin í loft-
hemlabúnaðinum hafí valdið flug-
slysinu 26. maí síðastliðinn er þota
Lauda-air fórst. Hins vegar sé vitað
að hemlarnir fóru í gang vinstra
megin skömmu eftir flugtak. Hlut-
verk lofthemla er að draga úr hraða
flugvélar við lendingu. Talið er að
fyrirmæli FAA og samhljóða til-
mæli Boeing-verksmiðjanna varði
168 Boeing-767 þotur víða um
heim. Fyrirmælin gilda uns stjórn-
búnaður lofthemlanna hefur verið
endurhannaður. Ekki er ætlast til
að þau hafi áhrif á starfsemi flugfé-
laganna en þó er farið fram á að
flugmenn áætli 5% lengri vega-
lengd til flugtaks en ella. Hins veg-
ar er ekki talin þörf á að lengja
áætlaða lendingarvegalengd vegna
þess að hún sé nú þegar nógu rúm.
Talsmenn Boeing sögðust í gær
íhuga að beina því til notenda Bo-
eing-757 þotna, þriggja afbrigða
af Boeing-737 auk Boeing-747
,júmbó“-þotna að taka lofthemlana
tímabundið úr sambandi.