Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.08.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1991 27 Fjórðungsúrslitin í Brussel: Karpov fór í gang í fjórðu umferðinni ___________Skák_______________ Margeir Pétursson ANATÓLÍ Karpov, fyrrum heimsmeistari, náði loksins að sýna sitt rétta andlit í fjórðu umferð áskorendaeinvígjanna er hann vann Anand í 43 leikjum með hvítu og tók forystu í einvíginu. Fyrstu þremur skák- unum lauk með jafntefli, eftir að hafa átt vænlega stöðu í fyrstu skákinni lenti Karpov í miklum kröggum í þeirri næstu og það jaðrar við kraftaverk að hann skuli hafa sloppið með jafntefli í þriðju skákinni. Hin- um skákunum þremur í fjórðu umferð lauk með jafntefli. Þeir Júsupov, Kortsjnoj og Gelfand, sem höfðu hvítt glutruðu allir snemma niður frumkvæði því sem hvítur fær með upphafs- leiknum. Þegar fjórar skákir af átta hafa verið tefldar má draga ýmsar ályktanir af ganginum í fyrri hlut- anum. Timman virðist eiga alls- kostar við og sömuleiðis hefur Short teflt undanfarnar þijár skákir mun betur en Gelfand. Þá virðist um ákveðinn styrkleikamun að ræða í einvígjunum Karpov- Anand og Ivantsjúk-Júsupov og ættu hinir fyrrnefndu að sigra, svo framarlega sem þeir verða ekki fyrir frekari skakkaföllum í tíma- hraki. Ef þessi spá reynist rétt verða þrír af fjórum keppendum í undan- úrslitunum með á heimsbikarmót- inu hér í Reykjavík, þeir Karpov, ívantsjúk og Timman. Fimmta umferð fjórðungsúrslit- anna verður tefld í dag og hafa þá Anand, ívantsjúk, Timman og Short hvítt. Sú sjötta verður tefld á morgun. Karpov vann glæsilega Eftir ótrúlegan vandræðagang og slembilukku í fyrstu þremur skákunum gegn Anand tefidi Karpov fjórðu skákina afar vel. Hann virtist mæta vel undirbúinn til leiks og eftir aðeins ellefu leiki lagðist Anand í þunga þanka og fékk verri tíma á skákklukkunni í fyrsta sinn í einvíginu. Hann virt- ist þó ekki hagnast mikið á því að hugsa lengi, því hann valdi fulidjarfa áætlun. Að þessu sinni lét Karpov ekki skjóta sér skelk í bringu, hann lokkaði peð Indveij- ans fram í eigin herbúðir þar sem þau féllu á endanum. í þessari skák sýndi Karpov gríðarlegan styrk sinn bæði í stöðumati og útreikningum. Það er hætt við að róðurinn verði þungur fyrir Anand í seinni hluta einvígisins og reyndar getur Indveijinn ekki reiknað með að fá aftur önnur eins tækifæri og hann klúðraði í þeirri þriðju. Hvítt: Anatólí Karpov Svart: Vyswananthan Anand Slavnesk vörn I. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rf3 - Rf6 4. Rc3 - e6 5. e3 - Rbd7 6. Dc2 - Bd6 7. Be2 - 0-0 8. 0-0 — dxc4 9. Bxc4 — De7 10. h3 - a6 11. e4 Eftir 11. Hdl væri komin upp sama staða og í fyrstu einvígis- skákinni, en þá fékk Anand góða stöðu eftir 11. — b5 12. Bd3 — c5. II. - e5 12. Hdl - b5 13. Bfl — c5 14. d5 — c4 Að venju teflir Anand eins hvasst og hann mögulega getur en í þetta sinn gengur dæmið ekki nægilega vel upp, því framsækin peð hans á drottningarvæng'verða mjög veik. En ef hann léti þessa framrás hjá líðast léki hvítur 15. b3 og stæði þá greinilega betur. 15. a4 — Hb8 16. axb5 — axbð 17. Ha5! - b4 18. Ra4 - Dd8 19. Ha7 - b3 20. De2 - Rc5 21. Rxc5 - Bxc5 22. Hal - c3 Nú virðist hvítur þutfa að leika 22. bxc3 — b2 23. Bxb2 — Rxe4 (Skiptamunsfórnin 23. — Hxb2!? 24. Dxb2 — Rxe4 kemur einnig til greina, því hvítur getur ekki varið f2) 24. Dxe4 — Hxb2 og svartur hefur virka stöðu fyrir peðið. En Karpov sýnir nú af sér mikla dirfsku og nákvæmt stöðu- mat: 23. Rxe5! c2? Anand stenst ekki þá freistingu að tryggja sér valdað frípeð uppi á annarri reitaröð, en eftir það er þó hæpið að stöðu hans verði bjargað, hvítu mennirnir verða of virkir. Nauðsynlegt var að halda spennunni í stöðunni og leika 23. - De8 24. Rd3! (Alls ekki 24. Rc6? - Rxe4! 25. Rxb8 - Bxf2+ og svartur vinnur) — Rxe4 25. Rxc5 — Rxc5, þótt möguleikar hvíts séu betri eftir 26. Dc4! 24. Hd3 - De8 25. Rc6 - Hb6 Nú þýðir ekkert að leika 25. — Rxe4, því hvítur hefur valdað g3 reitinn. Framhaldið gæti orðið: 26. Rxb8 - Bxf2+ 27. Khl - Rg3+ 28. Hxg3 — Bxg3 29. Rc6 — Dxe2 30. Bxe2 - He8 31. Ha8 og vinnur. 26. Be3! - Rxe4 27. Bxc5 - Rxc5 28. He3 - Dd7 29. Dc4 - Hxc6 Þar sem peðið á b3 feilur eftir undanhald riddarans eða 29. — Dd6 30. Hc3, kýs Anand frekar að láta af hendi skiptamun, en það dugir skammt. Lokin teflir Karpov af öryggi. 30. dxc6 - Ddl 31. Hel - Dd6 32. Dc3 - Dd5 33. c7 - Bb7 34. Ha5 - Re4 35. Hxd5 - Rxc3 36. Hd3 - Ra2 37. Hxb3 - Bc8 38. Bc4! - g6 39. Ha3 - cl=D 40. Hxcl — Rxcl 41. Hc3 — He8 42. Hxcl — He7 43. Bfl og An- and gafst upp. ívantsjúk er betur undirbúinn „Krónprinsinn", hinn 21 árs gamli Vasilí ívantsjúk komst vel frá jafnteflisskák sinni við Júsupov á fimmtudaginn. Ivantsjúk lagði Nimzoindversku vörnina á hilluna eftir ófarirnar í annarri skákinni en beitti í staðinn mjög hvössu afbrigði drottningarbragðs, hinni svonefndu Ragozin vörn. Sú byij- un reyndist honum einmitt mjög vel í síðustu umferð Tilburg-stór- mótsins í fyrra, er hann lagði Júgóslavann Predrag Nikolic að velli og náði að deila efsta sætinu. Júsupov hefði því átt að búast við þessu, en samt lenti hann í þekktri stöðu sem gefur hvíti enga vinn- ingsmöguleika. Hvítt: Artúr Júsupov Svart: Vasilí Ivantsjúk Drottniiigarbragð 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - d5 4. Rc3 - Rbd7 5. Bg5 - Bb4 6. cxd5 — exd5 7. e3 — c5 8. Bd3 Nikolic lék 8. Bb5!? í áður- nefndri skák þeirra ívantsjúks í Tilburg. 8. - Da5 9. 0-0 - c4 10. Bf5 - 0-0 11. Dc2 - He8 12. Rd2 - g6 13. Bh3 — Bxc3 14. bxc3 — Re4 15. Rxe4 — dxe4 16. Bxd7 - Bxd7 17. Bf4 - Bc6 Það hefur verið vitað um nokkra hríð að þessi leið sem Júsupov hefur valið væri sízt lakari á svart. Hann er nú t.d. kominn með meira rými. í skákinni Pinter-Sosonko, Haninge 1988 lék svartur 17. — He6!? Viðbrögð Júsupovs við þess- um fræðilega ósigri eru athyglis- verð, hann fórnar peði til að opna d línuna. Peðsfórnin dugar til að tryggja honum öruggt jafntefli. 18. d5!? - Dxd5 19. Hfdl - Da5 20. Hd4 - Had8 21. Hadl - Hxd4 22. Hxd4 - Hd8 23. Bd6 - Hd7 24. Dd2 - Dd8 25. h3 - f6 26. Bc5 - b6 27. Hxd7 - Dxd7 28. Dxd7 - Bxd7 29. Bd6 - g5 30. a3 - Kf7 31. Bb8 - a6 32. Bc7 - b5 33. Bd8 - h5 34. Kh2 — Kg6 35. Kg3 og hér var' samið jafntefli. Kortsjnoj er langt frá sínu bezta Með tvo vinninga undir varð Viktor Kortsjnoj að ieggja allt í sölurnar í fjórðu skákinni gegn Timman. Það er hins vegar greini- legt að Timman leggur áherzlu á að teflá af öryggi og tapa ekkif Hann svaraði nú Mikenas árás Kortsjnojs (3. e4) í enska leiknum á mun rólegri hátt en í hinni æsi- spennandi annarri skák. Hollendingurinn valdi afbrigði sem er ekki hátt metið í fræðun- um, en Kortsjnoj bar svo mikla virðingu fyrir byijanakunnáttu hans að hann breytti sjálfur út af, áður en Timman gafst færi á að koma með endurbætur sínar á fyrri taflmennsku svarts. Eftir mistök Kortsjnojs í 21. leik jafnaði Timman taflið auðveldlega. Hvítt: Viktor Kortsjnoj Svart: Jan Timman Enski leikurinn 1. c4 - Rf6 2. Rc3 - e6 3. e4 - c5 4. e5 - Rg8 5. Rf3 - Rc6 6. d4 - cxd4 7. Rxd4 - Rxe5 8. Rdb5 - a6 9. Rd6+ - Bxd6 10. Dxd6 - f6 11. Be3 - Re7 12. Bb6 - Rf5 13. Db4!? Kasparov hefur lagt bæði An- drei Sokolov (á heimsbikarmótinu í Belfort 1988) og Alexander Beljavskí (í Linares í ár) að velli á mjög sannfærandi hátt með því að leika 13. Dc5 í stöðunni, en Kortsjnoj lætur ekki reyna á hvernig Timman ætlaði að endur- bæta taflmennsku þeirra. 13. - Rc6 14. Dc5 - De7 15. 0-0-0 - Dxe5 16. Bxc5 - d6 Timman gefur peðið til baka til að losa um stöðuna og ná biskupa- parinu af hvítum. Vasilí ívantsjúk 17. Bxd6 - Rxd6 18. Hxd6 - Ke7 19. c5 - Bd7 20. g3 - Hac8 21. Bh3? Aðeins tveimur leikjum síðar neyðist Kortsjnoj til að viðurkenna að þetta séu mistök. 21. Bg2 hefði hindrað svart í að losa um sig eins og í skákinni. Eftir 21. — Re5 22. Hhdl - Hhd8 23. Bxb7 - Hxc5 24. Bxa6 hefur hvítur unnið peð. 21. - Re5 22. Hhdl - Hhd8 23. Bg2 23. b4? - a5 24. a3 - Rc4 gengur ekki 23. — Hxc5 24. Bxb7 — a5 25. Be4 - Rg4 26. H6d2 - f5 27. Bg2 - Rf6 28. f4 - Hb8 29. Hel - h6 30. Hd4 - Hb4 31. Hedl - g5 32. a3 - Hxd4 33. Hxd4 - Rg4 34. h4 - Re3 35. Bf3 - gxh4 Hér hefði Timman getað reynt að tefla til vinnings með 35. — Rfl!? 36. gxh4 - Bc6 37. Be2 - Rd5 38. Kd2 — Rxc3 39. bxc3 — Be4 40. Hc4 - Hd5+ 41. Ke3 - Kd6 42. Hc8 - Hc5 43. Ba6 og hér var samið jafntefli. Short virðist kunna tökin á Gelfand Hinn 23ja ára gamli Sovétmað- ur frá Minsk, Boris Gelfand er einn sex skákmanna sem náð hafa að ijúfa 2.700 stiga múrinn síðan stigaútreikningar hófust fyrir rúmum 20 árum. Hinir eru Bobby Fischer, Karpov, Tal, Kasparov og ívantsjúk. Hann reiknaðist með þessi himinháu stig um síðustu áramót, en hefur síðan lækkað í 2.670.1 fyrra spáði Kasparov hon- um miklum frama en hefur síðan dregið í land og sagði nýlega í viðtali að Gelfand hlyti að eiga við einhver sálræn vandamál að stríða sem hindruðu framfarir. Eftir auðveldan sigur í fyrstu einvígisskákinni við Short hefur Gelfand leikið gróflega af sér í öllum þremur skákunum eftir það. Sú fjórða var engin undantekning. Short hefur farið að ráðum Predr- ags Nikolic, sem tapaði naumlega einvígi fyrir Gelfand í janúar, en Júgóslavinn sagði eftir það að lyk- ilatriðið gegn Rússanum væri að koma honum út í stöður þar sem hann gæti ekki nýtt mikla byijana- kunnáttu sína og frábæra reikni- hæfileika. Hann ætlar sem sagt Gelfand sömu kosti og sterku tölvuforriti! Harðir dómar Kasp- arovs og Nikolic eru þó ekki fylli- lega sanngjarnir gagnvart þessum unga og hæfileikaríka skákmanni, sem á enn eftir að sanna tilkall sitt til sætis á meðal 10 beztu skákmanna heims. Short valdi aftur óvenjulegt af- brigði drottningarbragðs í Ijórðu skákinni sem virtist gefa Rússan- um þægilega stöðu, en eftir mjög slaka taflmennsku hans í miðtafl- inu náði Short örlitlu frumkvæði. Eftir nokkuð þóf gaf Gelfand hon- um síðan kost á hárréttri skipta- munsfórn. Fórnin hefði átt að gefa Short kost á að vinna þriðju skák- ina í röð, en hann lék tvívegis af sér í tímahraki og sat síðan uppi með ívið lakara endatafl. Gelfand reyndi lengi að þæfa það til sig- urs, en án árangurs. Miðað við gang einvígisins til þessa ætti Short að eiga alla möguleika á að komast í undanúr- slitin. Hvítt: Boris Gelfand Svart : Nigel Short Drottningarbragð 1. d4 - d5 2. c4 - e6 3. Rc3 - Rf6 4. Rf3 - Rbd7 5. Bg5 - Be7 6. e3 - 0-0 7. Hcl - He8 í annarri skákinni lék Short 7. — b6, sem er einnig óvenjulegt. 8. Bd3 — dxc4 9. Bxc4 — c5 10. 0-0 - a6 11. a4 - Rb6 12. Bb3 — cxd4 13. Dxd4!? Hinn kunni byijanasérfræðing- ur Lev Polugajevsky mælir með 13. exd4 í slíkum stöðum. 13. - Dxd4 14. Rxd4 - Bd7 15. a5 - Rc8 16. Hfdl? Það er furðulegt að Gelfand skuli ekki fylgja framrás a peðsins eftir með 16. Ra4. Nú jafnar Short taflið auðveldlega. og nær síðan frumkvæðinu. 16. - Rd6 17. f3?! - Hac8 18. e4 - Hc5! 19. Bd2 Til greina kom 19. Rd5!? og framhaldið gæti orðið 19. — exd5 20. Hxc5 — Rdxe4 21. Bxf6 — Bxc5 22. fxe4 - Bg4 23. Hd2 - gxf6 24. Bxd5 — b6 og niðurstað- an yrði jafntefli 19. - Hec8 20. Rce2 - Rb5 21. Rxb5 - Bxb5 22. Rc3 - Be8 23. Hal - Kf8 24. Bel - Rd7 25. Bf2 - H5c6 26. Re2 - Re5 27. Rd4 - Hd6 28. h3 - Rc6 29. Rxc6 - Hdxc6 30. Khl - H6c7 31. Bd4 - Bb5 32. Bc3 - g6 33. Hd2 - Ke8 34. f4?! - Kf8 35. Hadl 35. - Hxc3! 36. bxc3 - Hxc3 37. Ba2 - Ha3 Nákvæmará var 37. — Bc6! 38. Hd3 — Hc5 með góðum vinnings- möguleikum á svart. Nú nær Gelf- and mótspili: 38. f5! - exf5? Betra var 38. — gxf5 39. exf5 - Bc6! 40. Kh2 - exf5 41. Bd5 - Hxa5 42. Bxc6 — bxc6 og svart- ur ætti ekki að þurfa að beijast fyrir jafnteflinu eins og í skákinni. 39. exf5 - gxf5 40. Bd5 - Hxa5 41. Bxb7 - Ha4 42. Hd4 - Hxd4 43. Hxd4 - Kg7 44. Hf4 - Bd7 45. Bxa6 - Be6 46. Bd3 - Bd6 47. Hfl - Kg6 48. Hcl - h5 49. Bc4 - Bg3 50. Kgl - h4 51. Kfl - Kg5 52. Ke2 - Kf4 53. Kd3 - Bf2 54. Ke2 - Bg3 55. Bd3 - Ke5 56. Hc5+ - Kd4 57. Ha5 - Bd5 58. Kf 1 - f4 Staðan eftir 58. — Bxg2+ 59. Kxg2 — Kxd3 60. Hxf5 — Ke4 61. Hxf7 mun vera fræðilegt jafn- tefli, en Short telur greinilega óþarfa að treysta á það. 59. Be2 - Be4 60. Bh5 - f6 Hér fór skákin í bið. 61. Bf3 - Bd3 62. Be2 - Bc4 63. Ha3 - Bc2 64. Ha6 - f5 65. Ha3 - Be4 66. Bf3 - Bd3 67. Be2 - Bc2 68. Ba6 - Bc4 69. Ha5 - Ke3 70. Ha3+ - Kd2 71. Bc8 - Bd3 72. Kgl - Ke2 73. Ha5 - Bf2 74. Khl - Bg3 75. Bxf5 - Bxf5 76. Hxf5 - Kfl 77. Ha5 - Kf2 78. Ha2+ - Kfl 79. Ha3 - Kf2 80. Hb3 - Kfl 81. Hf3+ - Kel 82. Kgl - Ke2 83. Ha3 - Bf2+ 84. Khl - Bg3 85. Ha2+ - Kfl 86. Hb2 - Bf2 87. Hc2 - Bg3 88. Hcl+ - Kf2 89. Hc3 - Kfl 90. Hf3+ - Kel 91. Hxg3 Smágrín í lokin. 91. — fxg3 og samið jafntefli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.