Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 2
2
HU0AGUT3Ö1 GIÖAJaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
Stokkseyri:
Meiri áhugi á sam-
vinnu við Granda en
Meitilinn og Gletting
Grandi íhugar kaup á hlutabréfum í
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar
BRYNJÓLFUR Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda M., segir
að fyrirtækið hafi sent stjórn Hraðfrystihúss Stokkseyrar bréf
19. ágúst sl. þar sem lýst var áhuga á kaupum á hlutabréfum í
Hraðfrystihúsinu. Viðræður hafa farið fram milli stjórna fyrirtækj-
anna um kaupin og að sögn oddvitans á Stokkseyri hafa Stokkseyr-
ingar meiri hug á samvinnu við Granda hf. en sameiningu við
Meitilinn og Gletting í Þorlákshöfn.
ins hafi gefist mjög vel.
Verði áf kaupum Granda hf. á
meirihluta hlutabréfa í Hraðfrysti-
húsi Stokkseyrar segir Brynjólfur
að hugmyndin sé að vinna þar
humar og afla úr dragnót bátanna
á Stokkseyri, einkum kola, en bol-
fískkvótinn yrði veiddur af togur-
um Granda hf. Bolfíski yrði síðan
ekið til Stokkseyrar eftir því sem
með þyrfti til þess að halda uppi
vinnu í Hraðfrystihúsinu.
Oddviti Stokkseyrarhrepps,
Gauti Gunnarsson, segir að heima-
menn á Stokkseyri hafí átt frum-
kvæðið að viðræðunum. Aðal-
áherslan sé lögð á það af hálfu
Stokkseyringa að tryggja næga
og stöðuga atvinnu á staðnum og
það telji menn þar betur tryggt
með samningum við Granda hf.
en fyrirtækin í Þorlákshöfn.
Brynjólfur Bjamason segir að
hlutabréfín sem Grandi hf. hafí
hug á að festa kaup á séu meðal
annars hlutabréf Hlutafjársjóðs í
Hraðfrystihúsinu. Allt hlutafé
Hraðfrystihússins á Stokkseyri er
170 milljónir og á Hlutafjársjóður
131 milljón af því.
Brynjólfur segir að eitt af því
sem geri kaup á hlutabréfum
Hraðfrystihússins aðlaðandi fyrir
Granda hf. sé að þar sé fyrir hendi
þekking og búnaður til vinnslu á
humri, en reynslan af sérhæfíngu
í vinnslu í fiystihúsum fyrirtækis-
Finnlandsforseti í heimsókn
Morgunblaðið/Þorkell
Mauno Koivisto Finnlandsforseti kom til landsins í einkaerindum síðdegis í gær.-Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, tók á móti honum á Reykjavíkurflugvelli og er myndiri tekin við það tækifæri. Í gær
ræddi Koivisto við Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra en í
dag mun hann skoða sig um í Vestmannaeyjum. Koivisto heldur af landi brott á mánudag.
Héraðsskólinn á Reykjanesi við Djúp:
Er reiðubúinn að endurskoða
ákvörðunina ef ástæða er til
- segir menntamálaráðherra
ÓLAFUR G. Einarsson, menntamálaráðherra, segist tilbúinn til að
endurskoða ákvörðun sína um að leggja niður héraðsskólann á
Reykjanesi við Isafjarðardjúp, gefi nýjar upplýsingar um fjölda um-
sókna um skólavist tilefni til. Agúst Gíslason, formaður skólanefnd-
ar, segist vonast til að ráðherra endurskoði þessa ákvörðun og ekki
sé útlit fyrir að nemendur skólans verði færri en undanfarin ár.
Kaupþing:
Hlutabréf í
Stöð 2 til sölu
KAUPÞING hefur auglýst til
sölu hlutabréf í Islenska út-
varpsfélaginu sem rekur Stöð 2
og Bylgjuna. Þetta er í fyrsta
sinn sem hlutabréf í félaginu
eru boðin á almennum markaði.
Um er að ræða lítinn hlut eða
innan við 10% af nafnvirði
hlutafjár félagsins sem eigand-
inn hefur ákveðið að selja ef
viðunandi tilboð fæst.
Að sögn Jóns Snorra Snorrason-
ar hjá Kaupþingi er tilboða að
vænta upp úr helginni en hann
sagði að bréfín væru vænlegur
ljárfestingarkostur þar sem af-
koma félagsins hefði verið góð á
síðasta ári og spáð væri 100 millj.
kr. hagnaði á næsta ári.
í Daglegu lífi, fylgiblaði
Morgunblaðsins á föstudög-
um, er í dag fjallað um full-
orðinsfræðslu. Efni blaðsins
er unnið í samvinnu við
menntamálaráðuneytið.
Á Reykjanesi hafa verið starf-
ræktur grunnskóli fyrir 1. til 7.
bekk og héraðsskóli fyrir 8. til 10.
bekk. 'Ágúst Gíslason, formaður
skólanefndar, segir að frá árinu
1987 hafi að jafnaði verið milli 30
HELGI Ólafsson samdi um jafn-
tefli við Jón L. Arnason í sjöundu
umferðinni á Skákþingi Islands
í gærkvöldi. Þótt Helgi hafi ekki
haft vinning i skákinni er hann
enn efstur á mótinu með fimm
og hálfan vinning. Jón L. Árna-
son og Karl Þorsteins veita Helga
harða keppni um fyrsta sætið.
Þeir eru með fimm vinninga
hvor.
Önnur úrslit á Skákþinginu í
gærkvöldi urðu þau að Halldór G.
Einarsson vann Jóhann Hjartarson
og Helgi Áss Grétarsson vann
Snorra Bergsson. Þeir Karl Þor-
Innbrot á Norðurlandi:
Fjórir menn
eru í haldi
FJÓRIR menn eru í haldi lögregl-
unnar vegna gruns um aðild að
innbrotum á Norðurlandi um síð-
ustu helgi. Að sögn RLR miðar
rannsókn málsins vel og er talið
að það upplýsist á næstu dögum.
Mennirnir gerðu víðreist, brutust
inn á fimm stöðum og höfðu tugþús-
undir króna upp úr krafsinu. Þeir eru
allir á tvítugsaldri og hafa áður kom-
ið við sögu lögreglu.
og. 40 nemendur í héraðsskólanum.
Þar sé bæði um að ræða nemendur
úr Djúphreppunum og annars stað-
ar af Vestfjörðum, auk nokkurra
sem lengra séu að komnir.
Ágúst segir að í lok júní hafí-
steins og Héðinn Steingrímsson
sömdu um jafntefli. Það gerðu einn-
ig þeir Sigurður Daði Sigfússon og
Róbert Harðarson.
Skák Þrastar Þórhallssonar og
Margeirs Péturssonar fór I bið.
Skákþingið fer fram í Garðaskóla
og verður áttunda umferðin tefld á
morgun. Skákimar hefjast klukkan
17 og er teflt til klukkan 23.
Skákþingið er óvenju sterkt að
þessu sinni, þar sem allir íslensku
stórmeistararnir, sem stunda skák-
ina að jafnaði, taka nú þátt í því.
verið komnar 24 umsóknir um
skólavist í vetur og þegar búið hafi
verið að auglýsa eftir nemendum
hafí sú tala farið upp í 30. Nú fyr-
ir skömmu hafi skólanum hins veg-
ar borist bréf frá menntamálaráð-
herra, þar sem hann hafi sagt að
leggja skyldi héraðsskólann niður
vegna nemendafæðar og mál nem-
endanna leyst með öðrum hætti.
Nemendur úr 8. og 9. bekk fengju
kennslu í grunnskólanum og nem-
endur I 10. bekk yrðu hugsanlega
fluttir í héraðsskólann að Núpi í
Dýrafírði.
Ágúst segir að svo virðist sem
ráðherra hafi fengið rangar upplýs-
ingar um fjölda nemenda við skól-
ann. Starfsmenn ráðuneytisins hafi
aðeins litið á fjölda þeirra nemenda,
sem búi í þeim fjórum hreppum, sem
lögsókn eigi í skólann. Þeir séu nú
ellefu.
Að sögn Guðmundar Oddssonar,
formanns framkvæmdastjómar Al-
þýðuflokksins, sér stjóm Blaðs ein-
göngu um rekstur Pressunnar og
Alþýðublaðsins en það sé hins veg-
Ágúst segir að skólanefndar-
menn voni að ráðherra falli frá
ákvörðun sinni. Fjárveiting sé til
skólans á fjárlögum og því líti þeir
svo á, að engin heimild sé til að
leggja starfsemi hans niður.
Olafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, segist hafa fengið
mótmæli við ákvörðun sinni um að
leggja niður skólann frá ýmsum
aðilum svo sem þingmönnum Vest-
fjarða og sveitarStjórnum við ísa-
fjarðardjúp. Hann segist hafa feng-
ið bréf frá skólanefnd þar sem fram
komi upplýsingar um að 30 um-
sóknir um skólavist hafí borist og
hann sé tilbúinn til viðræðna við
skólanefndina um málið í ljósi þess.
Mat ráðuneytisins sé, að hægt sé
að réttlæta starfrækslu skólans ef
þar séu 30 til 40 nemendur en ef
sá fjöldi fari niður fyrir 20 sé rekst-
urinn ekki réttlætanlegur.
ar á valdi flokksstjómar að ákveða
um sölu á Pressunni. Engin ákvörð-
un þar að lútandi hafi hins vegar
verið tekin og því sé of snemmt að
fullyrða nokkuð um sölu á blaðinu.
16-17 þúsund nemendur í
framhaldsskólum í vetur
Framhaldsskóladeild mennta-
málaráðuneytisins hefur unn-
ið að því að leysa vanda þeirra
níutíu til hundrað nýnema á
framhaldsskólastigi í Reykja-
vík, sem fengu syiyun um
skólavist í sumarbyijun. Sam-
kvæmt upplýsingum frá deild-
inni hafa þessir nemendur nú
fengið inni í skólum og hefja
nám sitt í byijun september.
Þrengsli verða töluverð í fram-
haldsskólunum í Reykjavík og
hið sama á við sums staðar úti
á landi, einkum á Akureyri. Hjá
menntamálaráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að það virtist
færast í vöxt að ungt fólk gerði
hlé á námi sínu í eitt til tvö ár
að loknu grunnskólaprófi en
hæfi síðan nám á nýjan leik. Á
milli sextán og sautján þúsund
manns munu stunda nám í fram-
haldsskólum landsins í vetur, en
endanlegar tölur um fjölda þeirra
liggja ekki fyrir fyrr en í lok
september.
Skákþing Islands:
*
Helgi Olafsson efst-
urmeð 5Vi vinning
Rekstur Pressunnar og-
Alþýðublaðsins aðskilinn
Á STJÓRNARFUNDI útgáfufyrirtækisins Blaðs hf. í vikunni var
ákveðið að aðskilja rekstur vikublaðsins Pressunnar og Alþýðublaðs-
ins. Síðastliðin þijú ár hafa þessi blöð verið gefin út af Blaði hf. sem
er í eigu Alþýðuflokksins.