Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
31
Engiiin veit hvað átt hef-
ur fyrr en misst hefur
eftir Garðar
Björgvinsson
Það er enginn vafi á því að ísland
er eitt besta land jarðarkringlunnar.
Eignarréttur okkar á þessu landi
hangir nú á bláþræði. Bandalög ann-
arra þjóða gerast nú aðgangsharðari
en nokkru sinni fyrr við að ná tang-
arhaldi á auðlind okkar og landkost-
um. Islendingar eru rétt eins og sof-
andi hvítvoðungar á meðan verið er
að smá gefa eftir í þá veru að bind-
ast með einhveijum hætti þessum
þjóðum sem ekki geta lifað án auð-
lindarinnar á landgrunni Islands.
Við íslendingar þurfum ekki um
neitt að semja, við eigum þessa auð-
lind. Einstaklingar þessa lands verða
nú að vakna og gera sér grein fyrir
því að nú er tími til að standa sam-
an. Það er nógur markaður fyrir
affurðir okkar í Japan og víða um
heim allan án nokkurra þvinguna-
raðgerða og skuldbindinga.
Lög nr. 3815/51990
Ég vil hér með benda landsmönn-
um á að kynna sér þessi lög, því þau
ein sanna hve varhugavert er að
treysta um of á dómgreind núver-
andi forráðamanna þjóðarinnar (þó
vil ég undanskilja forsætisráðherra
vegna þess að hann á engan þátt í
lögum þessum). Lög þessi eru um
stjórnun fiskveiða. Lög þessi fela
ekki í sér nein fiskverndunarsjónar-
mið. Lög þessi eru ein allsheijar
hápólitísk hagsmunabarátta.
Til hvers eru lög?
Lög eru í mínurn huga samin í
þeim tilgangi að auðvelda einstakl-
ingum dagleg samskipti. Lög eiga
því að vera eins einföld og kostur
er á. Lög eiga aldrei að verða að
vopni til ofbeldisaðgerða eins og lög
nr. 38 eru. Lög nr. 38 gætu komist
fyrir á einni blaðsíðu.
Að vísa mönnum út í opinn
dauðann er of langt gengið
I lögum nr. 38 er gert ráð fyrir
að bátar innan 6 brúttótonna afli
sér viðmiðunar til endanlegs veiði-
kvóta á næstu þremur árum. Þetta
þýðir einfaldlega, að menn sækja
sjóinn meira af kappi enn forsjá, því
um líf eða dauða er að tefla fyrir
fátækar fjölskyldur út um alla lands-
byggðina. Er þetta atriði í lögunum
byggt á fiskverndunarsjónarmiðum?
Nú hyggjast duglegir menn taka á
honum stóra sínum, menn eru nú
þegar famir að færa fisk á milli
skipa á hafí úti, menn eru einnig
farnir að gera ráð fyrir þrem áhöfn-
um á sama' bátnum til að ná sem
mestum afla. Þetta er kannski í
anda fískverndunarsjónarmiða? En
þetta allt undirstrikar það sem ég
áður sagði, einfaldar leikreglur eru
bestar.
Toppur er það eina rétta
Varðandi afla smábáta, og jafnvel
allra skipa, þá er aflatoppur það
manneskjulegasta fyrirkomulag sem
hægt er að hafa. Öllum er ljóst að
sókninni í fiskinn þarf að stjórna,
en það má gera án illinda, án ofbeld-
is, án mismununar á milli einstakl-
inga og landshluta. Aflareynsla
næstu 3 ár felur í sér óviðunandi
mismunun á milli einstaklinga og
landshluta vegna þess að t.d. aflast
illa á Húsavík en vel í Sandgerði.
Eftir 3 ár er bátur Húsvíkingsins
lítils virði en bátur Sandgerðingsins
ef til vill tugmilljóna virði. Er þetta
í anda jákvæðrar byggðastefnu, svo
ekki sé minnst á frelsi mannúð og
bræðralag? í ijósi svörtu skýrslunnar
þurfa allir að taka á sig ábyrgð, sjó-
menn sem og allt landsins fólk, það
er Ijóst. Menn yrðu að sætta sig við
mismunandi háan topp milli ára.
Flestum eigendum báta innan 6
brúttótonna nægir að fá 40 tonn af
þorski, ,það eru ef til vill um 20%
af þessum smábátaflota sem þurfa
állt upp í 80-90 tonn. Það er fleira
til í sjónum en þorskur og ýsa. Það
er vandalaust að stjórna veiðum hér
við land án illinda og mismununar.
Sala veiðileyfa
Sala veiðileyfa er hugarfóstur
fólks sem aðeins þekkir fisk á mat-
borði sínu, fólks sem hefur ekki
Garðar Björgvinsson
„í ljósi svörtu skýrsl-
unnar þurfa allir að
taka á sig ábyrgð, sjó-
menn sem og allt lands-
ins fólk, það er ljóst.“
reynsiu af rekstri útgerðar. Til skoð-
ana þessa fólks þarf samt að taka
tillit ef við ætlum okkur að lifa í
sátt og samlyndi í landinu, því allir
hafa sama rétt. Það er ekki ósann-
gjarnt að útgerðin borgi toll af
hveiju tonni sem skilað er á land.
Þetta fé gæti runnið beint frá fisk-
kaupanda í ríkissjóð. Það þarf ekki
lengi að velta vöngum yfir svo sjálf-
sögðum hlut því velferðarþjóðfélag
þarf fjármagn. 600 kr. á hvert tonn
af þorski væri ekki til að kála neinni
útgerð og samsvarandi á aðrar fisk-
tegundir.
Lög nr. 38 eru byggð á sjúk-
legri stjórnunarástríðu og
eiginhagsmunahvöt
Aðeins 3 dögum fyrir þingslit í
maí 1990 voru þessi lög afgreidd,
þegar ekki var lengur tími til að
hugsa rökrétt, það var verið að fjalla
um mikilvægasta málefni þjóðarinn-
ar. I lögum þessum var meðal ann-
ars ákvæði um að þeir smábátar sem
hafin var smíði á fyrir 1. maí skyldu
vera fullkláraðir á tímabilinu 18.
maí til 18. ágúst. Sem reyndur báta-
smiður segi ég, það er ekki hægt
fyrir einni mann að fullgera bát í
þessum stærðarflokki á 3 mánuðum.
Guðni Ágústsson, alþingismaður,
viðurkenndi fyrir mér að I hans huga
hafi sá tími sem gefmn var á smíði
þessara báta verið miðaður við ára-
mótin ’90-’91 en ekki 18. ágúst. Sjá
einhveijir fiskverndunarsjónarmið
að baki þesSarar tímapressu? Þessi
tímapressa er ofbeldisaðgerð í nafni
laga. Níu alþingismenn fengu eftir-
þanka, þökk sé þeim fyrir að sýna
samviskuvott. Þeir óskuðu eftir að-
stoð hjá lagastofnun Háskólans und-
ir stjórn Sigurðar Líndal, lagapró-
fessors. Niðurstaða: Stjórnarskrár-
brot. Menn spyija eftir hveiju sé
beðið með það að fella þessi lög og
byija á nýjum grunni með frelsi og
mannúð að leiðarljósi samkvæmt
einkunnarorðum Sjálfstæðisflokks-
ins í kosningabaráttunni.
Höfundur er útgerðarmadur.
AUGLYSINGAR
KENNSLA
Frá Nýja tónlistar-
skólanum
Innritun fyrir skólaárið 1991-92.
Nemendur frá sl. ári mæti mánud. 2. eða
þriðjud. 3. sept. milli kl. 17 og 19 og stað-
festi umsóknir sínar með greiðslu á hluta
skólagjalds.
Inntökupróf fyrir nýnema í hljóðfæraleik og
söng verða miðvikud., fimmtud. og föstud.
4.-6. sept. Skráning í prófin ferfram í símum
39210 og 39215 frá kl. 16 mánud. 2. sept.
Innritun í forskóla barna 6-8 ára verður í
skólanum frá mánudegi til fimmtudags.
Skólastjóri.
Frá Myndlista: og
handíðaskóla íslands
Kennsla hefst mánudaginn 2. sept. kl. 8.30.
Skólastjóri.
TILKYNNINGAR
Tilkynning
Með tilvísun til 10. gr. laga nr. 49 frá
16. maí 1974, sbr. lög nr. 49 frá 16. mars
1951, er hér með skorað á þá, sem eiga
ógreidd iðgjöld til Lífeyrissjóðs sjómanna,
að gera nú þegar skil á þeim til sjóðsins.
Hafi ekki verið gerð skil á öllum vangoldnum
iðgjöldum innan 30 daga frá birtingu þessar-
ar tilkynningar, mun verða óskað uppþoðs-
sölu á viðkomandi skipi (lögveði) til fullnustu
skuldarinnar.
Reykjavík, 27. ágúst 1991.
F.h. Lífeyrissjóðs sjómanna,
Tryggingastofnun ríkisins.
FÉLAGSSTARF
Kópavogsbúar!
Skemmtikvöld veröur í Sjálfstæðishúsinu,
Hamraborg 1, 3. hæð, í kvöld, föstudaginn
30. ágúst. Húsið veröur opnað kl. 21.00.
Gestur kvöldsins.verður dr. Gunnar Ingi
Birgisson, forseti bæjarráðs. Guðni Stef-
ánsson mætir með harmónikuna. Léttar
veitingar á vægu verði.
Mætum öll og stillum saman strengi fyrir
veturinn.
Sjálfstæðisfélagið Edda.
Dagskrá aðalfundar Kjördæmisráðs
sjálfstæðisfélaganna í Vestfjarða-
kjördæmi dagana 31. ágúst og
1. september að Núpi í Dýrafirði
Laugardagur
31. ágúst.
1. Fundarsetning
kl. 16.00.
2. Skýrsla stjórnar
- Einar Oddur
Kristjánsson,
formaður.
3. Kosning nefnda.
4. Ræður þing
manna.
Aðalfundi siðan frestað til sunnudags 1. september kl. 11.00 árdegis.
Kvöldveröur kl. 18.30.
Málfundur kl. 20.00.
Fundarefni: Gjaldtaka í sjóvarútvegi og framtíð byggðastef nunnar.
Framsaga: Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins.
Jón Páll Halldórsson, framkvæmdastj. Norðurtangans.
Almennar umræður - pallborðsumræða.
Héraðsmót sjálfstæðismanna kl. 11.00.
Dúndrandi dans og léttar uppákomur i umsjá kjördæmissamtaka
ungra sjálfstæöismanna í Vestfjarðakjördæmi.
Sjálfstæðisfólk í öllum flokkum er að sjálfsögðu hvatt til að mæta á
þessa skemmtun.
Dagskrárlok kl. 03.00.
Sunnudagur 1. september.
5. Framhald aðalfundarstarfa kl. 10.00.
Matarhlé kl. 12.30-13.30.
6. Aöalfundarstörf - kosningar.
Fundarslit eigi síðar en kl. 16.00.
FELAGSLIF
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 s. 11798 19533
Helgarferðir 30. ágúst -
1. sept.
1. Þórsmörk/Langidalur.
Gönguferðir um Mörkina viö
allra hæfi. Notið tímann með
Ferðafélaginu i Þórsmörk. Gist
í Skagfjörðsskáia. Það er eins
og veörið skipti ekki máli þegar
njóta á ferðar í Þórsmörk -
þægilegt gönguland og notaleg
setustofa i Skagfjörðsskála ef
rignir.
2. Óvissuferð.
Hin árlega óvissuferö Ferðafé-
lagsins er ávallt spennandi enda
leitast við að kanna fáfarnar
slóðir í óbyggðum. Gist í húsum.
Farmiöasala og upplýsingar á
skrifstofu Ferðafélagsins. Enn
eru ekki allar ökufærar slóðir
kunnar ferðafólki - kynnist ykkar
eigin landi með Ferðafélagi Is-
lands.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 & 11798 19533
Dagsferðir sunnu-
daginn 1. september
1) Kl. 08.00 Þórsmörk
- dagsferð.
Stoppað 3-4 klst. i Þórsmörk.
Nægur tími til þess að litast um
í næsta nágrenni skálans.
Verð kr. 2.300,-
2) Kl. 08.00 Álftavatn v/Fjalla-
baksleið syðri.
Fjölbreytt landslag - mikill nátt-
úrufegurö. Ökuferð - stuttar
gönguferðir. Verð kr. 2.500,-
3) Kl. 09.00 Skarðsheiði -
Skessuhorn
Gengið frá Skorradal.
Verð kr. 1.700,-
4) Kl. 09.00 Berjaferð
fjölskyldunnar.
Ekið áleiðis í Skorradal.
Verð kr. 1.700,-
5) Kl. 13.00 Nesjavallavegur -
Borgarhólar.
Ekið um nýja Nesjavallaveginn
og gengið þaðan á Borgarhóla
(410 m. y. s.). Þægileg göngu-
leið. Verð kr. 1.100,-
Brottför frá Umferðarmiðstöö-
inni, austanmegin. Frítt f. börn
í fylgd fullorðinna.
Farmiðar i dagsferðirnar seldir
við bil. Upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.
H ÚTIVIST
GRÓFIHNI1 • REYKJAYÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Laugardaginn 31. ágúst
Vígsluhátíð
á Fimmvörðuhálsi
Ennþá eru nokkur sæti laus í
sérstaka dagsferð. Bókanir á
skrifstofunni.
Sunnudagur 1. sept.
Kl. 8.00 Heklugangan -
lokaáfangi
Nú er stóra stundin runnin upp.
Ganga á Heklu er alltaf merkur
atburður, en hefur sérstakt gildi
nú, þar sem margir hafa gengið
meira og minna alla leið úr
Reykjavík. Athugið breyttan
brottfarartíma.
Kl. 13.00 Berjaferð
Önnur náttúrunytjaferð haustsins.
Sjá nánar í laugardagsblaðinu.
Sjáumst.
Útivist.