Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IPKOTTIR FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991 47 FRJÁLSÍÞRÓTTIR / HEIMSMEISTARAMOTIÐ KORFUKNATTLEIKUR Sovétmaður til Skallagrfms „KROPATSJEV kemurtil með að styrkja lið okkar rnikið," sagði Birgir Mikaelsson, þjálf- ari Skallagríms frá Borgarnesi, nýiiða í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik. Skallagrímur hefur fengið Sovétmanninn Maxím Kropatsjev til liðs við sig. Kropatsjev, sem er sovéskur landsliðsmaður, er 26 ára og 2,05 m. Hann leikur stöðu miðherja og er sterkur í fráköstum og skor- ari mikill: Hann hefur leikið tvö sl. ár með CSKA Moskvu. „Kropatsjev er leikmaður sem leikur fyrir liðið og hann er ákveðinn sóknarleik- maður, léikinn, fljótur og hreyfan- legur,“ sagði Birgir. Sovétmaðurinn mun leika sína fyrstu leiki með Skallagrím á af- mælismóti Vals að Hlíðarenda um helgina, en átta úrvalsdeildarlið taka þátt í mótinu. Skallagrímur hefur einnig fengið Elvar Ævarsson frá Akranesi til liðs við sig og þá eru miklar líkur á að Valsmaðurinn Jón Bender leiki með liðinu, en hann er að flytjast til Borgarness. „Við erum með mjög ungt lið og reynum að leika sem flesta æfingarleiki í september til að undirbúa okkur sem best fyrir hina hörðu keppni í úrvalsdeild-'*’’" inni,“ sagði Birgir Mikaelsson. Búbka brást ekki - er mest á reyndi SERGEJ Búbka, stangarstökkv- arinn f rábæri frá Sovétríkjun- um, vann gull í greininni eins og búist var við, en lenti þó í vandræðum, sem líklega má rekja til meiðsla ífæti. Hann reyndi þar af leiðandi ekki við heimsmet, eins og hann hafði sagst ætla að gera. Bubka stökk hæst 5,95 m sem er 15 sentímetrum frá heims- meti hans, en næsti maður fór yfír 5,90 m. Það var Ungveijinn Istvan Bagyula, sem Búbka hefur spáð að verði næsti stangarstökkvari sem bijóti 6 m múrinn. Ungverjinn, sem er aðeins 22 ára, þjarmaði að heimsmethafanum og Búbka var aðeins einu stökki frá því að missa af verðlaunasætif" Bagyula fór yfír 5,90 m í fyrstu tilraun og Búbka, sem mistókst að fara yfir þá hæð f fyrstu tilraun, neyddist til að láta hækka rána í 5,95 m. Hann náði heldur ekki að svífa yfir þá hæð í fyrstu tilraun — og varð því að komast yfir í þeirri næstu, ellegar lenda í sjötta sæti! En, eins og svo oft áður þegar mest liggur við, sýndi Búbka hvað í honum býr. Stökk auðveldlega yfir við mikinn fögnuð eiginkonu sinnar og tveggja barna sem vorj* meðal áhorfenda á Þjóðarleikvang- inum í Tókýó. Ungvetjinn reyndi þrívegis við 5,95 m en tókst ekki að fara yfir og Búbka andaði léttar. Þar með var þriðja gullið á jafn mörgum heimsmeistaramótum í höfn hjá honum. Að þessu sinni stökk hann aðeins fjórum sinnum, fyrst yfir 5,70, næstu tvær tilraunir mistók- ust, og síðan kom sigurstökkið. Keppnin í stangarstökkinu tók fjóra og hálfa klukkustund. Þórdís stökk 1,79 m Þórdís Gísladóttir komst ekki f úrslitakeppnina í há- stökki. Þórdís stökk 1,79 m og varð í 25. sæti af 28 keppendum í undankeppninni í gær. Tólf stúlkur komust í úrslit, en engin stökk yfir 1,92 m, sem var hæð- in sem tryggja átti stúlkunum öruggt sæti í úrslitum. ÞæríTT stúlkur sem stukku yfir 1,88 m komust í úrslit. Fimm stúlkur stukku 1,90 m og sjö 1,88 m. Árangur Þórdísar er nfu sent- ímetrum frá íslandsmeti hennar, 1,88 m, sem hún setti 19. ágúst í fyrra. Reuter Bandaríkjamennirnir Greg Foster (t.v.) og Jack Pierce skælbrosandi eftir að þeir komu hnífjafnir í mark í 110 m grindahlaupinu í gær. Þeir fengu sama tíma — hlupu á nýju meistaramótsmeti — en gamla kempan Foster var dæmdur sigurvegari, sagður sjónarmun á undan. ÚRSLIT Gríðarleg spenna - og frábær árangur í 110 m og 400 m grindahlaupi GAMLA kempan Greg Fosterfrá Bandaríkjunum, sem orðinn er 33 ára, vann ígær þriðju gullverðlaun sín í 110 m grindahlaupi - á jafn mörgum heimsmeistaramótum. En tæpt var það; Foster og landi hans Jack Pierce fengu sama tíma en Foster hlaut gull- ið. Var talinn sjónarmun á undan. Spennan var lítið minni í 400 m grindahlaupi kvenna, þar sem Evrópumeistarinn Tatjana Ledovskaja frá Sovétríkjunum náði næst besta tíma sögunnar og varð rétt á undan Sally Gunnell frá Bretlandi. HMíTókýó 400 m grindahlaup kvenna 1. TatjanaLedovskaja, Sovétr.....53,11 2. Sally Gunnell, Bretlandi......53,16 3. Janeene Vickers, Bandar.......53,47 4. Sandra Farmer-Patrick, Bandar.53,95 5. Kim Batten, Bandar............53,98 6. Anita Protti, Sviss...........54,25 7. HeikeMeissner,Þýskal..........55.26 8. Margaríta Ponomarjova, Sovétr.55.27 110 m grindahlaup 1. Greg Foster, Bandar...........13,06 2. Jack Pierce, Bandar...........13,06 3. Tony Jarrett, Bretlandi.......13,25 4. Mark Mckoy, Kanada............13,30 5. Dan Philibert, Frakklandi.....13,33 6. Vladímír Shíshkín, Sovétr.....13,39 7. Florian Schwarthoff, Þýskal...13,41 8. LiTong, Kína..................13.46 400 m hlaup karla 1. Antonio Pettigrew, Bandar.....44.57 2. Roger Black, Bretlandi........44,62 3. Danny Everett, Bandar.........44,63 4. Roberto Hemandez, Kúbu........44,86 5. Andrew Valmon, Bandar.........45,09 6. Ian Morris, Trinidad/Tobago...45,12 7. Susumu Takano, Japan..........45.39 8. Mark Gamer, Ástralíu.........45,.47 Stangarstökk 1. Sergej Bubka, Sovétr...........5.95 2. Istvan Bagyula, Ungveijal......5.90 3. MaksímTarasov, Sovétr..........5.85 4. Rodion Gataullín, Sovétr.......5.85 5. P. Widen, Svíþjóð..............5.75 ■Þetta er Norðurlandamet hjá Widen. 6. T. Bright, Bandaríkj...........5.75 7. H. Fehringir, Austurriki.......5.60 8. Thierry Vigneron, Frakklandi...5.60 Tugþraut Staðan efstu manna eftir fyrri dag (100 m hlaup, langstökk, kúluvarp, hástökk, 400 m hlaup): 1. Dan O’Brien, Bandaríkjunum....4.602 (10.41 sek., 7.90 m, 16.24 m, 1.91 m, 46.53 sek.) 2 Michael Smith, Kanada.........4.534 (10.81/7.68/15.69/2.09/47.53) 3 Christian Schenk, Þýskalandi..4.347 (11.37/7.55/15.77/2.18/50.19) Greg Foster hefur þar með sigr- að í 110 m grindahlaupi á öll- um heimsmeistaramótunum til þessa; fyrst í Helsinki 1983, síðan í Róm 1987 og loks í gær. Og hann segist ekki af baki dottinn — til- kynnti að hann myndi reyna að vinna fjórða gullið á næsta móti, í Stuttgart 1993. Sú breyting hefur nú verið samþykkt að halda heims- meistaramótið á tveggja ára fresti í stað fjögurra áður; verður sem sagt ætíð árið fyrir og eftir Ólympíuleika. Foster og Pierce komu hnífjarnir í marki á 13,06 sek. sem er nýtt meistaramótsmet. Eftir að dómarar höfðu skoðað sjónvarpsupptöku af hlaupinu úrskurðuðu þeir Foster sigurvegara. Pierce, sem er 28 ára og missti naumlega af verðlaunum á síðasta heimsmeistaramóti er hann varð fjórði, náði betra viðbragði í gær, en Foster var kominn fram úr við þriðju grind. Allt virtist stefna í öruggan sigur hans, bilið jókst, en Pierce átti frábæran endasprett og virtist ætla að sigra, en gamla brýn- ið hélt sínu. Annar besti tími sögunnar Tatjana Ledovskaja frá Sov- étríkjunum, silfurverðlaunahafi á síðustu ólympíuleikum, hljóp 400 m grindahlaup á 53,11 sek. í gær og næjdi í gullið. Enginn hefur hlaupið hraðar nema landa hennar Marína Stepanova er hún setti núgildandi heimsmet sem er 52,94 sek. Gunn- ell frá Bretlandi varð önnur á 53,16 og er það þriðji besti árangur sem náðst hefur í greininni. Hún hefði átt að geta enn betur, en henni urðu á mistök er hún stökk yfir síðustu grindina og því fór sem fór. Hún og bandaríska stúlkan Sandra Farmer-Patrick voru að nálgast þá sovésku en báðum urðu á mistök á lokasprettinum. Tugþrautin Fyrri keppnisdagur í tugþraut var í gær. Bandaríkjamaðurinn Dan O’Brien hefur forystu með 4.602 stig, Kanadamaðurinn Michael Smith er annar með 4.534 og þriðji Þjóðveijinn Christian Schenk með 4.347. O’Brien var með góða forystu framan af, en brást síðan bogalistin í hástökkinu og Smith dró á hann. Bandaríkjamaðurinn, sem á best 2,13 m í hástökki, fór aðeins yfir 1,91 m í gær. Munurinn var þá aðeins 18- stig eftir fjórar greinar, en með góðri frammistöðu O’Briens í síðustu greininni, 400 m hlaupi, jókst bilið á ný. Hann náði þar besta árangri sínum, 46,53 sek. — bætti sig um ríflega sekúndu. O’Brien, sem er frá Oregon, er 25 ára og margir þjálfarar og aðrir fijálsíþróttasérfræðingur telja hann hafa meiri hæfíleika í tugþraut en nokkurn annan sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Á skólaárunum var hann meira fyrir ljúfa lífið en íþróttaæfingar, en hefur nú snúið til heilbrigðara lífernis og það er að skila sér. O’Brien hefur 25 stigum meira eftir fyrri dag en Bretinn Daley Thomspson hafði, er hann setti heimsmetið sem enn stendur — 8.847 stig — á ólympíuleikuhum í Los Angeles 1984. Möguleikar Bandaríkjamannsins á að bæta heimsmetið eru þó ekki miklir. Bæði var hve illa honum gekk í hástökkinu sem fyrr segir og í dag spreytir hann sig m.a. í stangar- stökki og 1.500 m hlaupi, sem eru slökustu greinar hans. 2. FLOKKUR KR meistari KR-ingar urðu í gærkvöldi íslandsmeistarar í 2. flokki karla í knattspyrnu. Þeir sigruðu ÍA 3:1 á Skaganum. Ein umferð er eftir af mótinu, en ekkert lið getur náð KR að stigum. Fram er í öðru sæti og ÍA í því þriðja. KR og Fram mætast í síðustu umferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.