Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
21
Reuter
Astralir of
feitir
Yfir fjórðungur fullorðinna
Ástrala fellur ekki að þeirri
hugmynd manna að ákjósan-
legast sé að vera grannur og
íþróttamannslegur, ef marka
má niðurstöður rannsóknar
þar í landi sem birtar voru á
miðvikudag. Samkvæmt þeim
eiga 33% karlmanna við offitu-
vandamál að stríða og 24%
kvenna eru of þungar.
Ahangend-
ur Milli Van-
illi fá bætur
Chicago. Reuter.
ARISTA, hljómplötufyrirtæki og
dreifingaraðili söngvaranna Milli
Yanilli, sem gerðu sig bera að
því að syngja ekki inn á hljóm-
plötur sínar, hefur fallist á að
greiða þeim Bandaríkjamönnum,
sem keyptu miða á hljómleika
og plötur hljómsveitarinnar,
skaðabætur.
Um tíu milljónir Bandarikja-
manna sóttu hljómleika og keyptu
plötur hljómsveitarinnar og nær
sáttagjörðin, sem gerð var hjá dóm-
ara i Chicago í Bandaríkjunum í
gær, til þeirra. Skaðabæturnar
verða þó ekki háar. Þeir, sem
keyptu hljómplötu með hljómsveit-
inni, fá frá 60 til 180 ÍSK eftir því
hvort um litla plötu, stóra plötu,
snældu eða geisladisk er að ræða.
Þeir sem enn eiga rifrildi af hljóm-
leikamiðum fá 150 ÍSK.
Milli Vanilli skaust upp á stjörnu-
himininn með látum. Söngvarar
hljómsveitarinnar, Rob Pilatus og
Fav Morvan, voru blásnauðir lista-
menn í leit að frægð og frama í
Þýskalandi þegar þeim var gert til-
boð um að hreyfa varirnar við orð,
sem aðrir sungu. Og þeir gátu ekki
hafnað tiiboðinu frekar en Fást
Goethes. Þetta gerðu þeir hvað eft-
ir annað á tónleikum og eitt skipti
bar svo við dauðaþögn sló á salinn
þegar segulband bilaði, en þeir
stóðu áfram uppi á sviði og hreyfðu
varir sínar í gríð og erg án þess
að gefa frá sér hljóð.
A endanum viðurkenndu þeir að
hafa þóst syngja og í nóvember á
síðasta ári voru þeir sviptir
Grammy-verðlaunum, sem þeir
höfðu fengið fyrir að vera bestu
nýgræðingarnir á tónlistarsviðinu.
Nú eru uppi kröfur um að hljóm-
plötufyrirtækið gefi upp hveijir
sungu lög Milli Vanilli í raun.
s
kelltu þér í leikhús !
Sala ahgangskorta hefst mánudaginn 2. september kl. 14.00
Kortin gilda á eftirtalin verkefni:
Dúfnaveislan leiftrandi skemmtunarleikur eftir Halldór Laxness.
Þetting nýtt íslenskt nútímaverk eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson.
Ljon ■ sibbuxum eftir listfræbinginn og fræbimanninn Björn Th. Björnsson.
Rugl í ríminu sprenghlægilegur farsi eftir Johann Nestroy.
Þrugur reibinnar sígilt meistaraverk eftir John Steinbeck.
Kortagestir leikársins 1990-1991
hafa forkaupsrétt á sætum sínum
frá mánudeginum 2. sept. til
fimmtudagsins 5. september.
Verb abgangskorta:
Frumsýningar: kr. 11.500,-
Abrar sýningar kf. 6.400,-
Til elli- og örorkulífeyrisþega kr. 5.500,-
gegn framvísun persónuskilríkja.
Miðasalan veröur opin daglega frá
kl. 14-20 í Borgarleikhúsinu.
Sími í miöasölu er 680680
Greibslukortaþjónusta
Leikkwll
man
yjungl
Korthafar
verða sjálfkrafa
meðlimir í
nýjum klúbbi ^
Leikfélagsins.
Nánari
upplýsingar í W*
miðasölu.
Líttu vib hjá okkur og fábu þér kaffisopa.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sími 680680
BORGARLEIKHÚSIÐ
Nýja veitingabúðin í kjallara Borgarleikhússins verúur opin fyrir sýningar og í leikhléi!