Morgunblaðið - 30.08.1991, Blaðsíða 16
Ktft íöJOA ,UC HUOA.U JTKOi alQj'i.iav: J9>:0 .
MÖRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30: ÁGÚST 1991'
Stórmót sunnlenskra hestamanna:
Góð tilþrif í
rysjóttu veðri
_________Hestar______________
SigurðurJónsson
VEÐRIÐ setti sitt mark á Stór-
mót sunnlenskra hestamanna
sem haldið var á Gaddstaðaflöt-
um á Hellu 22.-25. ág-úst. Þar
komu saman tveir bestu hestar
í hverri grein frá hestamanna-
félögunum í Arnes- og Rangár-
vallasýslu. Kröftugar skúrir
gengu yfir öðru hverju en þrátt
fyrir það tókst knöpum ótrú-
lega vel að ná fram kostum
hrossanna. Dyggir áhorfendur,
allt ákafir hestamenn, sóttu
mótið og létu ekki á sig fá þótt
regnið helltist yfir heldur settu
í herðarnar, sáu til að ekkert
færi fram hjá þeim og voru
ósparir á athugasemdir í
brekkuspjallinu.
Það var athyglisvert að fylgjast
með unglingakeppninni og gefa
því gaum hvernig unga fólkið ber
sig að við að ná fram eiginleikum
hrossanna. „Mér finnst krakkar-
nir sýna góðar framfarir. Það er
greinilegt að reiðmennskan batn-
ar og ég held það sé ásetuein-
kunninni mikið að þakka. Svo er
greinilegt að hún hefur líka óbein
áhrif á alla því ásetan hefur líka
batnað hjá þeim eldri. Þetta ger-
ist vegna þess að fólk fer að velta
ásetunni fyrir sér þegar ungling-
arnir eru að keppa og fylgjast
einnig með þeim þegar þeir und-
irbúa sig. Það er vaxandi áhugi
hjá unglingum fyrir hestamennsk-
unni og núna er greinilegt að
strákarnir eru í sókn og stelpur-
nar halda sínu,“ sagði Rosmarie
Þorleifsdóttir.
Það voru auðvitað átakapunkt-
ar í keppninni og skin og skúrir
hjá keppendum en kannski eink-
um hjá eigendum bæði í eigin-
legri og óeiginlegri merkingu. Það
fór óneitanlega um Matthías
Garðarsson eiganda Dreyra þegar
hann varð að láta í minni pokann
í síðasta skeiðsprettinum en þrátt
fyrir það hafði Dreyri sigur og
eigandinn gat vart leynt feginleik
sínum.
Ahorfendum fjölgaði verulega
í blautri brekkunni þegar bestu
kynbótahryssurnar voru kynntar.
Og stoltið og gleðin leyndi sér
ekki í svip Hjalta Jóns Kjartans-
sonar í Hlöðutúni þegar hann tók
við veglegri leirstyttu fyrir bestu
6 vetra hryssuna í héraði.
Það voru sviptingar í gæðinga-
keppninni og líka hjá unglingun-
Ánægð með góðan árangur Pegasusar: Kristjana Kjartansdótur
eigandi og knapinn Helgi Kjartansson bróðir hennar.
um. „Þetta var frábært,“ sagði
eigandinn Kristjana Kjartansdótt-
ir þegar ljóst var að Pegasus hafði
sigur í B-flokki. Og Annie B. Sig-
fúsdóttir var ekki síður ánægð
með að ná öðru sætinu en hún
kom inn í úrslitin í fjórða sæti á
Stjörnu. Og bróðir hennar, Sigfús,
var einnig brosmildur þegar hann
sigraði í yngri flokki unglinga.
Helgi Eggertsson á Ás lék svipað-
an leik og Annie þegar hann náði
fyrsta sætinu í A-flokki gæðinga
eftir að hann kom annar inn í
úrslitin á eftir Vigni Siggeirssyni
á Topp. En þeir Vignir og Toppur
sem komu inn í úrslitin í fyrsta
sæti fengu slæma útreið hjá ein-
um dómaranum sem dæmdi þá í
5. sæti þegar tveir aðrir voru með
þá í öðru sæti. Við þetta lentu
þeir í 3. sæti.
Úrslit
B-flokkur gæðinga:
1. Pegasus frá Mykjunesi, einkunn 8,54,
eigandi Kristjana Kjartansdóttir, knapi
Helgi Kjartansson.
2. Stjarna frá Stóru-Mástungu, einkunn
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ás og Helgi Eggertsson sigruðu í A-flokki gæðinga, með þeim á
myndinni er eigandinn Guðmundur Ingvarsson.
3. Signrður Oli Kristinsson, Sleipni,
á Verðanda frá Hjálmholti.
4. Guðmundur Valgeir Gunnarsson,
Sleipni, á Gusti frá Arnarstöðum.
5. Birna Káradóttir, Smára, á Brana
frá Iláholti.
Unglingar yngri flokkur: 1.
Sigfús B. Sigfússon, Smára, á Skenk
frá Skarði.
2. Kristín Þórðardóttir, Sleipni, á á
Kolgrími.
3. Maríanna Rúnarsdóttir, Ljúf, á
Múla frá Reynistað.
4. Helgi Gíslason, Ljúf, á Dropa frá
Hvíteyrum.
5. Kristmundur H. Guðmundsson,
Geysi, á Berki.
150 m skeið:
1. Áki frá Laugarvatni 14,59 sek., eig-
andi og knapi Þorkell Þorkelsson.
2. Nótt frá Brautarholti 15,00 sek.,
eigandi og knapi Magnús Svavarsson.
3. Hind 16,60 sek., eigandi Aldís Páls-
dóttir, knapi Reynir Aðalsteinsson.
250 metra skeið: 1. Dreyri frá
Stóra-Hofi 24,0 sek., eigandi Matthías
Garðarsson, knapi Ragnar Þór Hilm-
arsson.
2. Vani frá Stóru Laugum 24,7 sek.,
eigandi og knapi Erling Sigurðsson.
3. Kolur frá Skollagróf 24,8 sek., eig-
andi Bjarkar Snorrason, knapi Magnús
Svavarsson.
300 metra brokk:l. Krummi
38,8 sek., eigandi Guðmundur Viðars-
son, knapi Þorkell Þorkelsson.
2. Vinur frá Laugarvatni 40,6 sek.,
eigandi Freyja Þorkelsdóttir, knapi
Þorkell Þorkelsson.
350 metra stökk:
1. Subarú-Brúnn, 27,0 sek.
2. Reykur frá Nýjabæ, 28,5 sek, eig-
andi Pétur Kjartansson, knapi Guð-
mundur Jakob Jónsson.
3. Óði-Brúnn 29,0 sek., eigandi Guð-
mundur Þórðarson, knapi Áslaug Fjóla
Guðmundsdóttir.
Kynbótahross:
Stóðhestar:
6 vetra og eldri: Vinur frá Sumarliðabæ
7,86.
5 vetra stóðhestar: Topar ffa Sandhóla-
feiju 7,68.
4ra vetra stóðhestar: Mörður frá
Syðra-Skörðugili 7,14.
Hryssur:
6 vetra og eidri: Folda frá Lundi 8,07.
Best i héraði Perla frá Hlöðutúni 8,01.
5 vetra hryssur: Staka frá Litlu-
Sandvík 7,94.
4ra vetra hryssur: Fiðla frá Garðabæ
8,11.
Afkvæmasýning.
Blettur frá Húsatóftum 8,08.
Ánægðir unglingar í yngri keppnisflokki: Frá vinstri Kristmundur H. Guðmundsson, Geysi, Helgi
Gíslason, Ljúf, Maríanna Rúnarsdóttir, Ljúf, Kristín Þórðardottir, Sleipni, og Sigfús B. Sigfússon,
Smára.
8,32, eigandi Sigfús Guðmundsson,
knapi Annie Sigfúsdóttir.
3. Flassi, einkunn 8,40, eigandi Margrét
Magnúsdóttir, knapi Sveinn Jónsson.
A-flokkur gæðinga:
1. Ás frá Ási, einkunn 8,41, eigandi
Guðmundur Ingvarsson, knapi Helgi
Eggertsson.
2. Hvinur frá Hvassafelli, einkunn 8,36,
eigandi Siguijón Pálsson, knapi Aðal-
steinn Aðalsteinsson.
3. Toppur frá Rauðafelli, einkunn 8,46,
eigandi Siguijón Sigurðsson, knapi
Vignir Siggeirsson.
Unglingar eldri:
1. Sigríður Theodóra Kristinsdóttir,
Geysi, á Vöku frá Strönd.
2. Líney Kristinsdóttir, Loga, á Eld-
ingu frá Torfastöðum.
TAU-MERKIPENNAR
A BOLI - DUKA - GLUGGATJOLD
OG FL. FL.
MArtliné VIÐ LEIK OG STÖRF
<
Færeyja- og Græn-
landsflug reyklaust
FÆREYJA- og Grænlandsflug
Flugleiða verður reyklaust frá
og með 1. september. Félagið var
meðal fyrstu flugfélaga í heimi
að banna reykingar í innanlands-
flugi eftir að ítrekaðar kannanir
meðal farþega bentu til að yfir-
gnæfandi meirihluti væri því
hlynntur. í upplýsingum frá
Flugleiðum kemur fram að með
reykingabanni í flugi til Færeyja
og Grænlands sé allt flug með
Fokker-vélum félagsins reyk-
laust. „Farþegar hafa verið mjög
ánægðir með „reyklaust" innan-
landsflug og því töldum við ekki
rétt að bjóða þeim uppí reyk-
mettaðar vélar sem voru að koma
úr Færeyja- og Grænlandsflugi,"
segir í frétt frá Flugleiðum.
Nú stendur yfir könnun meðal
farþega í flugi Flugleiða til Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar um
hvort þeir yrðu hlynntir „reyklausu“
Norðurlandaflugi. Ef mikill meiri-
hluti er fylgjandi því að reykingar
verði bannaðar á þessum leiðum
mun félagið gera það til reynslu í
þrjá mánuði frá og með 1. nóvem-
ber. Við teljum að það sé í raun
tímaspursmál hvenær allar reyking-
ar verða bannaðar í flugi. Nú þegar
er búið að banna reykingar í innan-
landsflugi í Bandaríkjunum í ferð-
um allt að 6 klukkustundum. Það
þýðir að nánast allt innanlandsflug
vestra er „reyklaust“. í flugi innan
Norðurlandanna eru reykingar
bannaðar í flugi sem er allt að 90
mínútur," segir í fréttatilkynningu
frá Flugleiðum.