Morgunblaðið - 30.08.1991, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
Starfandi fólki í miðbænum
fækkaði um 1.500 á 6 árum
ÞRÓUNARFÉLAG Reykjavíkur hefur sent frá sér skýrslu um stöðu
miðborgarinnar. Þar koma fram tillögur félagsins um aðgerðir til
að efla þennan borgarhluta, meðal annars, að komið verði á fót
viðskipta-, verslunar- og samgöngumiðstöð í Tryggvagötu, stöðu-
kort verði tekin upp í stað stöðumæla á hluta bílastæða, fast-
eigna-, lóða- og bilastæðagjöld verði endurskoðuð, merking sögu-
legra minja verði bætt og þjónusta við ferðafólk aukin. Á blaða-
mannafundi þar sem skýrslan var kynnt kom fram að á síðustu 6
árum hafi starfandi fólki í miðborginni fækkað um 1.500, eða í
3.800 manns, og verulegur samdráttur hafi orðið í verslun og þjón-
ustu þar.
Þróunarfélagið setur í skýrsl-
unni fram ellefu tillögur til upp:
byggingar miðborgarinnar. í
fyrsta lagi er lagt til að stofnaður
verði þróunar- og framkvæmda-
sjóður til að flýta framkvæmd skip-
ulags miðborgarinnar með því að
standa fyrir byggingu húsa til sölu
eða leigu um skamman tíma. í
öðru lagi að húseignirnar Tryggva-
gata 13, Tryggvagata 17 (Hafnar-
húsið), Tryggvagata 19 (Tollstöð)
og Tryggvagata 21 (væntanleg
samgöngumiðstöð) verði tengdar
saman og glerbygging byggð yfir
hluta þeirra. Þar verði viðskipta-,
verslunar og samgöngumiðstöð.
Þá er í þriðja lagi lagt til, að
tekin verði upp stöðukort (klukku-
kort) í stað stöðumæla á 240 bíla-
stæðum. í fjórða lagi er lögð
áhersla á að endurskoða fasteigna-
mat og þá sérstaklega lóðamat í
miðborginni í þeim tilgangi að end-.
urskoða fasteigna- og lóðagjöld.
Sagt er að auka þurfí aðdráttarafl
miðbæjarins, til dæmis með stofn-
un upplýsinga- og menningarmið-
stöðvar við Borgartorg, kvik-
myndahúsi í Grófinni, sædýrasafni
og skipasafni í og við Reykjavíkur-
höfn og landnámsbæ við Aðal-
stræti.
Varpað er fram hugmyndum um
byggingu skrifstofuhúss sunnan
Faxaskála, til dæmis fyrir sjáv-
arútveginn, stækkun Hótel Borg-
ar, umbætur í merkingu gamalla
hús og sögulegra minja, aukningu
götuskreytinga og aukna þjónustu
við ferðafólk, til dæmis með því
að hafa verslanir opnar á laugar-
dögum að sumarlagi.
Að lokum er lagt til í skýrslu
Þróunarfélagsins, að gerð verði
framkvæmdaáætlun til fímm ára
þar sem tímasettar verði fram-
kvæmdir við opinberar byggingar
á svæðinu, upphitun gatnakerfis-
ins, opnun göngustíga og svæða,
umferðarmannvirki og gatnagerð,
bifreiðastæði og bílageymsluhús,
gróðursetningu ttjáa, minjavernd
og aðrar framkvæmdir.
VEÐURHORFUR í DAG, 30. ÁGÚST
YFIRLIT: Norður af Jan Mayen er 985 mb lægð á hreyfingu norð-
austur. Frá henni teygist lægðardrag í suðsuðvestur. Á sunpan-
verðu Grænlandshafi er önnur lægð, 994 mb djúp, sem stefnir á
ísland.
SPÁ: Úrkomusvæði verður yfir landinu norðanverðu snemma morg-
uns á leið norður. í kjölfar þess léttir til norðanlands og austan,
en sunnaniands og vestan verða að öllum líkindum skúrir.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanátt með rigningu um landið
sunnan- og vestanvert, en líklega verður lengst af þurrt norðaustan-
lands. Fremur hlýtt í veðri, einkum norðanlands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestlæg átt og vætusamt sunnan-
lands og vestan, en þurrt og víða léttskýjað norðanlands og aust-
an. Kólnandi veður.
Svarsimi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
Q
V; x Norðan, 4 vindstig: ■j 0 Hitastig:
' Vindörin sýnir vind- 10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar ý Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * ’ , ’ Súld
f * f * Slydda OO Mistur
Skýjað r * /
* * * —Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * [7 Þrumuveður
I/EÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 7 skýjað
Reykjavík 8 skýjað
Bergen 14 alskýjað
Helsinki 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 19 léttskýjað
Narssarssuaq 9 rigning
Nuuk 7 alskýjað
Ósló 21 skýjað
Stokkhólmur 18 léttskýjað
Þórshöfn 14 léttskýjað
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 20 léttskýjað
Barcelona 28 mistur
Berlín 15 rigning
Chlcago 23 mistur
Feneyjar 26 léttskýjað
Frankfurt 22 léttskýjað
Glasgow 21 mlstur
Hamborg 19 léttskýjað
London 22 léttskýjað
Los Angeles 17 iéttskýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madríd 30 mistur
Malaga 29 skýjað
Mallorca 33 heiðskfrt
Montreal 19 léttskýjað
NewYork 26 mistur
Orlando 41 skýjað
París vantar
Madeira vantar
Róm vantar
Vín 20 skýjað
Washington 25 mlstur
Winnipeg 19 léttskýjað
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Þróunarfélags Reykjavíkur,
og framkvæmdastjóri félagsins, Pétur Sveinbjarnarson, kynntu í gær
tillögur félagsins um uppbyggingu í miðborginni.
Apótekarafélag dreifbýlisins:
Vandinn snýst ekki
lengnr um hvort apó-
tekarar fara á hausinn
- segir Jón Þórðarson á Patreksfirði
„MÉR FINNST ekki lengur að vandi apótekanna í dreifbýlinu snúist
um það hvort einhverjir tíu apótekarar á landsbyggðinni fara á haus-
inn eða ekki,“ segir Jón Þórðarson apótekari í Patreksapóteki. „Þetta
er spurning um það hvort á að svipta fólk í dreifðum byggðum því
öryggi sem það hefur búið við í lyfjadreifingu. Ég álít að sveitarstjórn-
armenn eigi að huga að þessum málum og gera það upp við sig hvort
þeir eru sáttir við að missa sitt apótek úr byggðinni. Áð mínu mati er
það stórmál fyrir lítil sveitarfélög að sjá á bak fólki með lyfjafræði-
menntun, enda sjá apótekarar iðulega um margvíslega aðra þjónustu
en beina lyfjasölu."
Jón er félagi í Apótekarafélagi
dreifbýlisins, sem á laugardaginn-
heldur árlegan fund sinn á Höfn í
Hornafírði. Á fundinum verður rætt
um rekstur lyfjabúða og lyfjaforða,
en með lyfjaforða er átt við útibú
apótekanna á landsbyggðinni. Þau
eru fjölmörg og rekin á ábyrgð og
undir eftirliti apótekaranna, þó að
þeir séu fjarri sjálfri afhendingu ly-
fjanna.
Auk umræðunnar um reksturinn
mun Jón Björnsson,' formaður Apót-
ekarafélags Islands, fjalla um nýja
reglugerð um greiðslu almanna-
trygginga á lyfjakostnaði. Áhrif regl-
ugerðarinnar á rekstur minni apó-
teka verða síðan rædd á fundinum.
Þjónustusvæði apóteksins á Pat-
reksfirði nær frá Barðaströnd í suðri
að Þingeyri í norðri. Að sögn Jóns
Þórðarsonar búa í kringum 2.500
manns á þessu svæði en hann kveðst
telja að 5.000 manns þurfi til þess
að apótek standi sæmilega undir sér.
„Ég er að meira en hálfu leyti bara
venjulegur kaupmaður," segir Jón.
„Lyfjasalan nemur ekki nema liðlega
40 prósentum af heildarveltu apó-
teksins." Eins og aðrir apótekarar
er Jón með snyrti- og hreinlætisvörur
á boðstólum en hann selur fjölmarg-
ar vörur auk þeirra, meðal annars
skotfæri.
Apótekarinn á Höfn í Hornafirði
heitir Jón R. Sveinsson. Að sögn
hans eru félagar í Apótekarafélagi
dreifbýlisins liðlega tuttugu. Apót-
ekið á Höfn er með útibú á Djúpa-
vogi og Breiðdalsvík. Jón R. Sveins-
son segir að á svæðinu búi í kringum
3.000 manns og telur hann að það
nægi til að standa undir rekstri apó-
teks, þar sem ekki þurfi að ráðast í
framkvæmdir eða aðrar fjárfesting-
ar. Þijú þúsund manns séu hins veg-
ar tæplega nægur fjöldi til þess að
heija rekstur apóteks við núverandi
skilyrði á lyfíamarkaðnum.
Jón Þórðarson á Patreksfirði segir
að á fundinum á Höfn verði í tengsl-
um við umræðuna um lyfjaforða
rætt hvernig lyfsalar geti yfirtekið
þá lyfjasölu sem læknar í dreifbýlinu
hafa annast til þéssa. „Okkur finnst
það ekki standast siðferðilega að
læknir sem er að lækna sjúkling selji
honum jafnframt lyf, sem Trygging-
astofnun borgar," segir Jón. Hann
tekur það fram að hann sé ekki með
þessu að bera það á lækna að þeir
stundi svindl, en segir að sér finnist
þetta ekki eðlilegur verslunarmáti.
„Lyfjafræðingar eru stétt sem er
menntuð til þess að dreifa lyfjum og
afhenda þau,“ segir Jón. „Við berum
ábyrgð á því að þau lyf sem við af-
greiðum séu í réttu horfí og teljum
okkur manna hæfasta til þess, rétt
eins og við teljum lækna hæfasta til
þess að stunda lækningar."
Iceland Seafood:
Hef ekki áhyggjur
af ágreiningnum
- segir Magnús Friðgeirsson
STJÓRN dótturfyrirtækis íslenskra sjávarafurða, Iceland Seafood
Corporation, hefur leitað eftir svörum frá framkvæmdastjóra þess um
ýmislegt sem lýtur að rekstri fyrirtækisins og afkomu þess.
Magnús Friðgeirsson, framkvæmda-
stjóri Iceland Seafood í Bandaríkjun-
um kveðst hafa svarað öllum fyrir-
spurnum frá stjóm fyrirtækisins og
lagt fram gögn frá endurskoðendum
sem staðfesti að allt sé með fellu
með rekstur Iceland Seafood Corpor-
ation.
Magnús segir að skýringanna á
ágreiningi sínum við forstjóra Sam-
bandsins verði að leita til upprunans.
„Ég tel mig ekki þurfa að hafa
áhyggjur af þessum ágreiningi, en
mér sýnist á lestri fréttar í Morgun-
blaðinu í dag, að einhveijir séu á
öðru máli. Skýringamar verða að
koma frá þeim.“
Morgunblaðið leitaði til Guðjóns
B. Ólafssonar, forstjóra Sambands-
ins og stjórnarformanns Iceland Sea-
food. Hann kvaðst ekki vilja segja
neitt opinberlega um málið á þessari
stundu.