Morgunblaðið - 30.08.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
—TT---I .'"U'IT'JT-T 17':'Tr
>
Islandsþingið í Garðabæ:
Hörð barátta
um efstu sætin
____________Skák________________
Bragi Kristjánsson
Sjötta umferð á Skákþingi ís-
lands var tefld á miðvikudagskvöld
í Garðaskóla í Garðabæ. Skák efstu
manna, Helga Ólafssonar og Jó-
hanns Hjartarsonar, stóð aðeins í
16 tilþrifalitla leiki. Jón L. Ámason,
Kari Porsteins, Margeir Pétursson
og Þröstur Þórhallsson unnu allir
sínar skákir, svo að keppnin um
efstu sætin er orðin jöfn og spenn-
andi.
Urslit 6. umferðar:
Helgi Ól.—Jóhann, V2-V2,16 leikir,
Halldór Grétar—Þröstur, 0-1, 24 leikir,
Róbert—Karl, 0-1,38 leikir,
Helgi Áss—Sigurður Daði,l-0, 39 leikir,
Margeir—Snorri, 1-0, 53 leikir,
Héðinn—Jón L., 0-1,51 leikur.
Róbert fómaði peði í byijun, en
fékk ekki nægilegt spil í staðinn.
Þegar Karl sneri vörn í sókn réð
Róbert ekki við neitt, enda bættist
tímaskortur ofan á vandamál stöð-
unnar.
Snorri tefldi lengi vel gegn Mar-
geiri, en lék ónákvæmt í endatafli
og tapaði.
Héðinn tefldi byijunina ómark-
visst gegn Jóni L., 0g tilraunir hans
til að flækja taflið í tímahraki
beggja bám lítinn árangur. Héðinn
átti tapað tafl, þegar tímahrakinu
lauk, en tefldi áfram í 11 leiki.
Helgi Áss lenti í sínu venjulega
tímahraki í mjög flókinni stöðu
gegn Sigurði Daða. Þegar enn voru
10 leikir eftir til að ná tímamörkun-
um og klukka Helga að falla, lék
Sigurður slæmum afleik, sem kost-
aði tvo menn og skákina.
Keppendur skiptast orðið í tvo
hópa, og bilið miili efstu og neðstu
keppenda breikkar stöðugt. Staðan
eftir 6. umferð er þessi:
1. Helgi Ólafsson, 5 vinninga.
2. -4. Jóhann Hjartarson, Jón
L. Arnason og Karl Þorsteins,
4‘á vinning hver.
5. Margeii- Pétursson, 4 v.
6. Þröstur Þórhallsson, 3'/2 v.
7. Helgi Ass Grétarsson, 2 ¥2 v.
8. Róbert Harðarson, 2 v.
9. -11. Héðinn Steingrímsson,
IV2 v.
9.-11. Halldór Grétai- Einars-
son, l'/2 v.
9.-11. Snorri G. Bergsson, IV2
v.
12. Sigurður Daði Sigfússon, 1
v.
Við skulum nú sjá fjöruga viður-
eign Halldórs Grétars og Þrastar
úr 6. umferð.
Hvítt: Halldór Grétar Einarsson.
Svart: Þröstur Þórhallsson.
Móttekið drottningarbragð.
1. d4 - d5, 2. c4 - e6, 3. Rf3 -
dxc4, 4. e4!? -
Ömggara er 3. e3, því í fram-
haldinu getur svartur sótt að peðinu
á e4, annaðhvort með - Rf6 eða -
Bb7.
4. r b5
Önnur leið er 4. - c5, 5. Bxc4 -
cxd4, 6. Rxd4 — Bc5, 7. Be3 -
Rc6, 8. Bb5 - Bxd4, 9. Bxd4 -
Rf6, 10. Rc3 - 0-0, 11. Bc5 -
He8, 12. 0-0 - Bd7, 13. Hel - b6,
14. Be3 - a6, 15. Bfl - b5, 16.
Bg5 með betra tafli fyrir hvít.
5. a4 - c6
Eftir 5. - Bb7, 6. axb5! - Bxe4,
7. Bxc4 - Bxbl, 8. Hxbl - Bb4+,
9. Ke2!? stendur hvítur betur.
6. b3 -
Önnur leið er 6. Bg5!? - Bb4+,
7. Rc3 - Re7, 8. Be2 - Bb7, 9.
0-0 - f6?!, 10. Bd2 - Bxc3, 11.
Bxc3 og hvítur hefur betra tafl.
6. - Rf6
Eða 6. - Bb4+, 7. Bd2 - Bxd2+,
8. Dxd2 - Rf6, 9. axb5!? - Rxe4
með flókinni stöðu.
7. e5 -
Athyglisvert framhald er 7. bxc4
- Rxe4, 8. Bd3 - Bb4+, 9. Ke2!?
með flókinni stöðu.
7. - Bb4+!, 8. Bd2 - Bxd2+, 9.
Dxd2?! -
Hvers vegna ekki 9. Rbxd2 -
Rd5 (9. - c3, 10. exf6 - cxd2+,
11. Dxd2 - Dxf6,12. axb5 o.s.frv.)
10. bxc4 o.s.frv.?
9. - Re4!
Halldór hefur liklega aðeins
reiknað með 9. - Rd5.
10. De3 - Da5+!, 11. Kdl? -
Eftir þennan leik stendur hvíti
kóngurinn varnarlítill á miðju borði.
Betra er 11. Rbd2 - Rxd2, 12.
Rxd2 - cxb3, 13. Bd3!? ásamt 0-0
og Re4 með sóknarfæmm.
11. - f5, 12. exf6 - Rxf6, 13.
bxc4 - 0-0, 14. Del - Dd8!, 15.
axb5 - e5!, 16. Dxe5 - He8, 17.
Dg5 -
Eftir 17. Df4 - Re4!, 18. Ha2 -
g5!, 19. Dcl - g4 hrynur hvíta stað-
an.
17. - Bg4, 18. Ha3 - Dxd4+, 19.
Dd2 - Dc5, 20. Bd3 - Rbd7, 21.
bxc6 - Re5, 22. Kcl - Bxf3, 23.
gxf3 - Hab8, 24. Ha5? -
Hvítur leikur af sér manni í
gjörtapaðri stöðu. Hann á enga
vörn við fjölmörgum ^hótunum
svarts: 24. - Hxbl+, 24. - Rxf3,
24. - Rxc4 og jafnvel - Rd5!? við
tækifæri.
Halldór Grétar gafst upp, áður
en Þröstur fékk tíma til að leika
24. - Rxd3+, sem vinnur mann.
í kvöld (föstudag) kl. 17-23 verð-
ur 8. umferð tefld í Garðaskóla og
þá eigast við Helgi Áss og Þröstur,
Róbert — Snorri, Héðinn — Sigurð-
ur Daði, Jón L. — Karl, Margeir —
Jóhann, Halldór Grétar — Helgi Ól.
Utanríkisráðuneytið ekki
undanþegið umferðarlöguni
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir að ástæða
þess að bíll ráðuneytisins hafi
mælst á 130 kilómetra hraða á
Keflavíkurveginum á mánudag
sé sú, að ráðuneytinu hafi borist
af því fréttir að flugi utanríkis-
ráðherra Eystrasaltsríkjanna
hafi verið flýtt og því hafi hann
þurft að komast á Flugstöðina
með hraði.
„Utannkisráðuneytið gerir ekki
kröfu um að njóta einhverra sérrétt-
inda gagnvart umferðarlögum,"
segir Jón Baldvin. „En í þessu til-
viki var eðlileg skýring á málinu.
Hún er sú, að okkur bárust af því
fregnir, að vegna hagstæðrar vind-
áttar hefði flugi gesta okkar verið
flýtt. Þeir myndu lenda fyrr en
áætlað hafði verið og því þurftum
við að flýta okkur.“
Ráðherrann segir, að upphaflega
hafi verið áformað að bíll hans fengi
lögreglufylgd, en af ástæðum, sem
honum væru ókunnar hafi ekki orð-
ið af því.
ÞRIGGJA DAGA STANSLAUS
HAUST
NOTAÐIR BÍLAR Á VILDARKJÖRUM
FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG KL. 10-22
LAUGARDAG KL. 10-17
■BMUTRULTG^JRVAMHH|
AFGREIDDIR MEÐ FULLAN BENSÍNTANK
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ KR
GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI
r
NflT/WM fíl/AP
LAUGAVEGI 174 - SÍMI 695660