Morgunblaðið - 30.08.1991, Page 18

Morgunblaðið - 30.08.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991 Búvörusamning- ur — Bygg-öaeyðing- eftirJónu Valgerði Kristjánsdóttur íslenskur landbúnaður hefur átt undir högg að sækja hin síðari ár. Það hefur verið veist að honum úr öllum áttum. Sérstaklega hefur þeim sem stunda sauðfjárrækt verið legið á hálsi fyrir offramleiðslu, ofnýtingu lands og þar með ofbeit, of háa verðlagningu og fleira. Bændur hafa tæpast náð að bera hönd fyrir höfuð sér, og almenning- ur á íslandi er að verða heilaþveg- inn af þessum áróðri, og finnst það ekki skipta lengur máli þó hefð- bundinn landbúnaður leggist af á stórum svæðum. Sérstaklega á þetta við um þéttbýlisbúa, sem halda að það hafi engin áhrif á þeirra afkomu þó bændum fækki í nágrenni kaupstaða og kauptúna. Slíkt er mikil skammsýni, því vita- skuld hefur það áhrif á þróun byggðar, og alveg inn í innsta kjarna atvinnulífsins. Fækkun í sveitunum þrengir t.d. afkomu af- urðastöðvanna í kauptúnunum, s.s. mjólkurstöðva og sláturhúsa og getur leitt til svo mikillar óhag- kvæmni i rekstri að lokun sé í sjón- máli. Búvörusamningur í mars á þessu ári var gerður samningur milli ríkisvaldsins og bænda og í formála samningsins segir m.a. að hann hafi að markm- iði „að stuðla að því að í landinu eftir Sigurð Einarsson Undanfarið hafa verið í ijölmiðl- um miklar umræður um Byggða- stofnun og lánveitingar hennar. Það er gott, að þessi umræða hefjist og er trúlegt, að hún muni halda áfram á næstunni. Það er nokkuð ljóst, að mönnum sýnist sitt hvað um þessi mál. Árangur byggðastefnu Það er eðlilegt að skoða, hvaða árangri menn hafa verið að ná í byggðamálum á undanförnum árum. Allar ríkisstjórnir, a.m.k. seinustu 15-29 árin, hafa lagt mikla áherslu á byggðamál í stefnuyfir- lýsingum sínum. Árangur hefur samt verið lítiil ef það er mælt á mælikvarða þess, hve stór hluti þjóðarinnar býr úti á landi og hve stór hluti kýs að búa í þéttbýli við Faxaflóa. Atvinnulíf á landsbyggðinni stendur einnig almennt iila og verr en atvinnuiíf í þettbýlinu. Það er því eðlilegt, að menn spyrji sig að því, hvort árang- ur hafi verið nokkur, því að miklum fjármunum hefur verið eytt til svo- kallaðra byggðamála. Útlán Byggðastofnunar Ég tel, að sú útlánastarfsemi, sem Byggðastofnun og sambæri- legar stofnanir hafa stundað und- anfarin ár, eigi ekki heima í slíkum stofnunum. Rauði þráðurinn í lán- veitingum þessara aðila er sá, að mismuna fyrirtækjum, atvinnu- greinum og byggðarlögum við lán- veitingar og við endurgreiðslu á lánum. Það gengur ekki og er alls geti þróast hagkvæmur og öflugur landbúnaður", og „að stuðla að því að búskapur verði í sem bestu sam- ræmi við landkosti og æskileg land- nýtingarsjónarmið". Jafnframt „að lækka vöruverð til neytenda og opinber útgjöld til framleiðslunnar, og koma á og viðhalda jafnvægi í framleiðslu og sölu afurðanna“. Til að ná fram þeim markmiðum að koma á jafnvægi milli fram- leiðslu og sölu, skal stefnt að fækk- un sauðfjár í haust um 10% frá ásetningi haustið 1990. Það þýðir að ríkissjóður muni þurfa að kaupa upp allt að 55.000 kindur nú í haust eða m.ö.o. að fullvirðisréttur sem er í framleiðslu, nýttur eða ónýttur, þarf að lækka um a.m.k. 12%. Nú er það nokkuð breytilegt eftir bú- markssvæðum/sýslum hvort niður- færsla kemur að fullu til fram- kvæmda. Fer það eftir því hve mik- ill hluti búvöruframleiðslunnar í sýslunni er í formi sauðfjárræktar. Ef sá hluti er yfir 90% af heildarfuli- virðisrétti sýslunnar, þá er skerð- ingin minni eða 7,2%. Undir það ákvæði fellur t.d. Strandasýsla þar sem sauðfjárbúskapur er þungam- iðjan. Sé sauðfjárframleiðslan á bil- inu 70—90% af heildarfullvirðisrétt- inum, þá er skerðingin 9,6%. Þáð á t.d._ við um A-Barðastrandarsýslu og ísafjarðarsýslurnar en V-Barða- strandarsýsla fær á sig 12% skerð- ingu, þar sem þar er einnig talsverð mjólkurframleiðsla, og vægi sauð- fjár minna. Náist ekki tilskilin fækkun sauð- fjár með frjálsri sölu fullvirðisréttar ekki æskilegt ef stunduð er lána- starfsemi með opinberu fé, að mis- muna lántakendum með þeim hætti sem gert hefur verið undanfarin ár. Tvöfalt siðgæði Það er hluti af því andrúmslofti, sem Byggðastofnun og sambæri- legir aðilar starfa í, að tvöfalt sið- gæði er mjög áberandi. Ég tel, að lífsviðhorf flestra Islendinga sé, að allir eigi að sitja við sama borð og menn eigi að endurgreiða lán. Þegar kemur að starfsemi Byggðastofnunar og annarra sam- bærilegra stofnana, kemur í ljós, að sumir eiga að borga sínar skuld- ir og standa við þær en aðrir ekki. Þetta tvöfalda siðgæði hefur orðið til þess að slæva mjög frumkvæði atvinnulífs á landsbyggðinni. Menn hafa haft á tilfinningunni, að sumir þurfí að standa við skuldbindingar sínar en aðrir ekki og verður það til þess að bijóta niður sjálfsbjarg- arviðleitni manna. Er Byggðastofnun skaðleg atvinnulífi landsbyggðarinnar? Ég tel, að oft á tíðum hafi starf- semi Byggðastofnunar beinlínis verið skaðleg atvinnulífi lands- byggðarinnar. Stofnun, sem tekur að sér að mismuna á milli fyrir- tækja, atvinnugreina og byggðar- laga með þeim hætti sem þar er gert, og hlaupa undir bagga sitt á hvað, hefur oft orðið til þess að skaða atvinnulíf landsbyggðarinnar sem heildar. Það hefur gert það að verkum, að fyrirtæki hafa haldið áfram rekstri fram yfir öll skynsam- leg mörk og skuldsetning þeirra hefur orðið allt of mikil. Áföllin kemur til flöt skerðing eins og áður er lýst. Ekki er tekið tillit til þess hvort bændur eru með 200 kinda bú eða 6-800 fjár. Hin flata skerð- ing kemur jafnt niður á alla sem ekki hafa nýtt sér kaup ríkisins á fullvirðisrétti fyrir 1. september, hvort sem þeir reka stærri eða minni bú. Ekki er heldur í samn- ingnum nein ákvæði um að taka beri tillit til landgæða eða hvar æskilegast sé að stunda sauðfjárbú- skap. Þó vita allir sem um þessi mál hugsa að sé verið að skiþu- leggja búvöruframleiðslu, er beitar- þol landsins mjög mikilvægt atriði. Einnig sú staðreynd að eitt land- svæði hentar betur en annað til sauðfjárræktar. Þá er ekki tekið tillit til byggðasjónarmiða í samn- ingi þessum, og greinilegt að með honum er verið að stefna að eyð- ingu byggðar í landinu og sér í Iagi þar sem ekki verður með góðu móti komið við breyttum búháttum. Aftur á móti er verið að gera þeim bændum, sem vilja hætta búskap, það kleift að fá þarna einhveijar bætur fyrir, og er það vel, þegar um frjálst val manna er að ræða. En á þeim svæðum þar sem byggð- in byggist á því að sauðíjárbúskap- ur sé stundaður, og fólk vill halda áfram búskap, eru afkomumögu- leikar þess skertir með valdboði skv. samningi þessum. Samkvæmt upplýsingum frá búnaðarsamböndum á Vestfjörðum, mun að öllum líkindum ekki nást tilskilin fækkun með fijálsri sölu fullvirðisréttar á A-Barðastrandar- „Það er verkefni stjórn- málamanna að tryggja atvinnulífinu eðlilegan rekstrargrundvöll með því að fyrirtæki geti hagnast eðlilega en ekki að gera það með útdeilingu á opinberu fjármagni.“ hafa jafnframt orðið mjög stór, þegar illa hefur farið. Þessar lán- veitingar hafa orðið vítahringur og reynst mjög erfitt að hætta þeim. Það er jafnframt ljóst, að í þeim atvinnugreinum, sem Byggðastofn- un hefur einkum lánað til, eins og í sjávarútvegi, er vaxandi munur á stöðu fyrirtækja. Ég tel, að lánveit- ingar Byggðastofnunar skýri það að hluta til að sjávarútvegsfyrir- tæki í þéttbýli standa almennt mun betur en fyrirtæki á landsbyggð- inni. Það er langeðlilegast, að atvinnu- fyrirtæki landsbyggðarinnar eins og fyrirtæki annars staða fái al- menna fyrirgreiðslu í gegnum bankakerfið eða stofnlánasjóði við- komandi atvinnugreina en ekki sé um sérstaka opinbera sjóði að ræða, sem sjái um slíkar lánveitingar. Það er eðlilegra, ef það er pólitískt mat, að það þurfi að styrkja at- vinnulíf einhvers staðar, að gera það með beinum styrkjum á fjárlög- um frekar en með „lánveitingum". Nýskipun Byggðastofnunar Byggðastofnun á að hætta lán- veitingum. Það væri lang eðlileg- Jóna Valgerður Kristjánsdóttir „Yilji núverandi ríkis- stjórn standa að byggð- amálum með jákvæðum hætti verður hún þegar í stað að gera ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir þá eyðingu byggð- ar sem fyrirsjáanleg er komi samningurinn óbreyttur til fram- kvæmda.“ sýslu og Strandasýslu. Hins vegar hefur því marki verið náð í V- Barð.- og ísafjarðarsýslum báðum. Það er því útlit fyrir að verði skerð- ingarákvæðum búvörusamningsins framfylgt muni það koma niður með fullum þunga á þessar sveitir, þar er í flestum tilfellum um að ræða bú með framleiðslurétt fyrir Sigurður Einarsson ast, að jafnframt yrði stofnunin flutt út á land og gæti hún verið mun minni en nú. Það væri líka út af fyrjr sig ákveðin hugmynd að leggja hana alveg niður. Ég tel, að það væri engin goðgá að gera það, miðað við árangursleysi þeirra vinnu- bragða, sem þarna hafa verið stunduð undanfarin ár. Það hefur ekki mikinn tilgang að halda þessu áfram og stofnunin virðist vera í litlum tengslum við landsbyggðina. Ef það þarf að gera einhveijar sérstakar ráðstafanir fyrir atvinnu- lífið, er eðlilegast að gera það með almennum aðgerðum, sem eru byggðar á stjórnmálalegu mati en ekki með sértækum aðgerðum eins og í gegnum Byggðastofnun eða sambærilega aðila. Það er verkefni stjórnmálamanna að tryggja atvinnulífinu eðlilegan rekstrargrundvöll með því að fyrir- tæki geti hagnast eðlilega en ekki að gera það með útdeilingu á opin- beru fjármagni, sem menn þurfa í sumum tilfellum að endurgreiða en öðrum ekki. Höfundur er útvegsbóndi í Vestmannaeyjum. 150—250 ærgildi, sem ekki eru tal- in nægja til framfærslu vísitöluijöl- skyldunnar, (þ.e. ca. 400 ærgildi). Með þessu er verið að framfylgja byggðaeyðingu, því möguleikar fólksins sem byggir þessi svæði, tii að bæta sér þessa skerðingu með annarri vinnu, eru nánast engir. Pólitísk ákvörðun Þegar núverandi búvörusamn- ingur var kynntur, komu fljótlega þeir ágallar í ljós, sem hér hefur verið bent á. Þrátt fyrir mikla um- ræðu um það sl. vor, bæði á þingi og í kosningabaráttunni, heyrist ekkert um það frá opinberum aðil- um að taka þurfi á þessu máli. Hagsmunaaðilar, þ.e. bændur, hafa ekki styrk né vald til að breyta þessum búvörusamningi, það er pólitísk ákvörðun sem hér verður að koma til. Vilji ríkisstjórnin stuðla að þeim markmiðum sem sett eru fram í samningi þessum, að þróa í landinu hagkvæman og öflugan landbúnað sem verði í sem bestu samræmi við landkosti og æskileg landnýtingarsjónarmið, þá eru aft- an við samninginn sérstakar bókan- ir sem aðilar voru sammála um, en þar segir í bókun 3 um viðskipti með fullvirðisrétt og greiðslumark: „Ef hætta skapast á að tilfærsla á framleiðslurétti gangi gegn æski- legum landnýtingar- og hagræðing- arsjónarmiðum, eða hafi umtals- verða byggðaröskun í för með sér, verði settar reglur um viðskiptin sem hindri slíkt með forkaups- réttarákvæðum eða öðrum hætti." Vilji núverandi ríkisstjórn standa að byggðamálum með jákvæðum hætti verður hún þegar í stað að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir þá eyðingu byggðar sem fyrir- sjáanleg er komi samningurinn óbreyttur til framkvæmda. Þarna er um að ræða sveitir bæði á Vest- Ú'örðum, í Húnavatnssýslum, N- Þingeyjarsýslum og sjálfsagt víðar, þar sem undirstaða byggðar er svo veik að komi fyrirhuguð skerðing til framkvæmda mun það valda fólksflótta í enn frekari mæli. Þar getur landbúnaðarráðherra búið svo um hnútana, með pólitískri ákvörð- un, að til þess komi ekki. Þó að tilskilin fækkun sauðíjár til aðlög- unar að innanlandsmarkaði tæki lengri tíma en nú er stefnt að, er það þess virði, ef það styrkir byggð- ina. Þar með væri komið í veg fyr- ir enn meiri byggðaröskun en þegar er orðin, og fólki væri 'gert kleift að búa þar sem það vill vera, hlúð væri að mannlífi í stað þess að hrekja það á brott, með stjórnvalds- aðgerðum. Höfundur er þingmaður fyrir Kvennalistann á Vestfjörðum. ...—« Risafló hjá FEF á morgnn ÁRLEG flóamarkaðarispa Fé- lags einstæðra foreldra hefst á morgun, laugardag 31.ágúst i Skeljahelli, Skeljanesi 6 frá kl. 14 og síðan á hverjum laugar- degi í september. A markaðnum á morgun er óvenjulitríkt vöruúrval; mikið er af góðum bókum, skrautmunum, búsáhöldum og húsgögnum. Þá er sægur af myndum og málverkum, nýjar úlpur á börnin í skóla og síð- an tískufatnaður frá ýmsum tímum á karla og konur. Félag einstæðra foreldra býður upp á þá nýbreytni nú að viðskiptavinir mega borga með greiðslukortum. Allur ágóði rennur sem fyrr til neyðar- og bráðabirgðahúsnæðis félagsins en í sumar hefur verið gert við þak Öldugötuhússins og lagfærðar steypuskemmdir. Vetrar- starf FEF hefst senn . og verður kynnt í fréttabréfi þess á næst- unni. í fréttatilkynningu FEF eru menn hvattir til að köma stundvís- lega. Það eru góðar fréttir fyrir landsbyggðina að leggja niður Byggðastofnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.