Morgunblaðið - 30.08.1991, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991
23
Reuter
Þinghelgi Lúkjanovs aflétt
Sovéska þingið samþykkti í gær að aflétta þinghelgi Anatolíjs Lúkj-
anovs, forseta þess, eftir að saksóknari hafði lýst því yfir að hann
hefði nægar sannanir til að geta handtekið hann. Lúkjanov hefur
verið ákærður fyrir landráð vegna aðildar að valdaráninu í Sovétríkj-
unum, sem mistókst í síðustu viku. Myndin er af Lúkjanov á þingfund-
inum í gær.
Finnar í stj órnmálasam-
bandi við Eystrasaltsríkin
Helsinki. Reuter.
FINNAR komu í gær á stjórnmálasambandi við Eistland, Lettland
og Litháen. Stefnumarkandi ákvörðun þar að lútandi sem tekin
var síðastliðinn sunnudag var óvænt því dagana þar á undan
tóku finnskir ráðamenn fálega í hugmyndir um viðurkenningu
sjálfstæðis Eystrasaltsríkjanna.
Kúba:
Ákveðnir í að halda
fast í kommúnisma
Havana. Reuter.
í FORSÍÐULEIÐARA kúbverska
dagblaðsins Granma, sem er mál-
gagn kúbverska kommúnista-
flokksins, var í gær fjallað um
framtíð kommúnismans. Þar voru
breytingarnar sem eiga sér stað
í Sovétríkjunum harmaðar, en
jafnframt var staðhæft að Kúba
myndi halda velli sem eitt síðasta
ríki sósíalismans á jörðinni.
„Burtséð frá því sem gerist í Sov-
étríkjunum munum við halda áfram
að ganga þann veg sem við höfum
kosið ... við munum halda áfram að
fylgja sjálfstæðri, kúbverskri, sósíal-
ískri stefnu okkar,“ sagði í leiðar-
anum.
Leiðtogar Kúbu virtust vera að
gefa í skyn að þeir hefðu tekið sögu-
legum sinnaskiptum með því að líta
á atburðina í Sovétríkjunum eins og
þeir væru þeim lítt viðkomandi. Sov-
étríkin hafa í gegnum tíðina verið
andlegur lærimeistari Kúbu og helsti
viðskiptaaðili.
Blaðið tók þó fram að Kúbverjar
myndu ekki slíta þau bræðrabönd
sem tengdu þá við sovésku þjóðina,
sama „hvaða pólitísku afstöðu eða
tilhneigingar hún kann að taka upp
á löglegan hátt.“
„Við erum vitni að því að þijú
náin grannríki okkar era að snúa
aftur til sámfélags þjóðríkja heims-
ins. Innan tíðar hyggjumst við sjá
til þess að fulltrúar okkar verði
sendir til landa ykkar,“ sagði
Paavo Váyrynen, utanríkisráð-
herra Finnlands, í gær að viðstödd-
um starfsbræðrum sínum frá
Eystrasaltsríkjunum.
Lennart Meri, utanríkisráðherra
Eistlands, Janis Júrkans, utanrík-
isráðherra Lettlands, og Aldirgas
Saudargas, utanríkisráðherra Lit-
háens, ræddu við Mauno Koivisto
Finnlandsforseta fyrr í gær.
Finnar viðurkenndu aldrei inn-
limun Eystrasaltsríkjanna í Sov-
étríkin árið 1940. Þeir hafa haldið
nánum samskiptum við Eystra-
saltsríkin og þá sérstaklega Eist-
lendinga, enda eru finnska og eist-
neska bæði af meiði finnsk-úgr-
ískra mála.
Lagaflækjur og hártogun
þjóðaréttar
Finnskir leiðarahöfundar eru
flestir þeirrar hyggju að viður-
kenningin á sjálfstæði Eystrasalts-
ríkjanna hafi komið á síðustu
stundu. Leiðarahöfundur Hufvud-
stadsbladet segir að þrátt fyrir
hártoganir um þjóðarétt og athug-
asemdir, sem hafi átt rétt á sér,
sé ljóst að pólitískt hefðu Finnar
sýnt kænsku, þótt þeir hefðu verið
síðastir Norðurlandanna til að við-
urkenna Eystrasaltsríkin.
Finnar héldu því ætíð fram að
viðurkenning á sjálfstæði Eystra-
saltsríkjanna yrði ekki veitt fyrr
en þau semdu um sjálfstæði sitt
við stjórnvöld í Moskvu. Koivisto
hélt enn í þetta sjónarmið á
fimmtudag í síðustu viku og Váy-
rynen tók í sama streng í viðtali,
sem birtist á laugardag.
Einnig var því haldið fram að
ótímabær viðurkenning myndi
grafa undan sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsríkjanna. Þessi rök not-
aði Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, einnig þegar hann
Qallaði um framkvæði íslendinga
snemma í síðustu viku.
Leiðarahöfundur Hufvudstads-
bladet sagði að Finnar hefðu kú-
vent í máli Eystrasaltsríkjanna
þegar Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, viðurkenndi sjálfstæði Eyst-
rasaltsríkjanna eftir valdaránið.
Finnar hefðu litið svo á að yfirlýs-
ing Jeltsíns kæmi frá hinum raun-
verulegu valdhöfum Sovétríkj-
anna. Jeltsín lýsti yfir stuðningi
við Eystrasaltsríkin síðasta vetur.
Það er athyglisvert að Finnar
lýstu ekki yfir því að þeir viður-
kenndu nýfengið sjálfstæði Eystra-
saltsríkjanna, heldur ítrekuðu lag-
alega viðurkenningu Finna á því
frá árinu 1920. Sjálfstæðisyfirlýs-
ing Eistlendinga var orðuð þannig
að verið væri að árétta þá réttar-
stöðu, sem Eistland hafði áður en
það var innlimað í Sovétríkin. Þar
var farið fram á það að önnur ríki
tækju upp stjórnmálasamband við
Eistland og hvergi minnst á viður-
kenningu.
Hufvudstadsbladet bendir á að
á hinn bóginn hafi Koivisto í vetur
sagt að Finnar viðurkenndu inn-
limun Eystrasaltsríkjanna í raun.
í leiðara blaðsins er sagt að
Norðurlönd hafi ekki klofnað í
máli Eystrasaltsríkjanna eins og
búast hefði mátt við. Þar segir að
frumkvæði íslendinga þegar Lithá-
ar lýstu yfir sjálfstæði megi ef til
vill rekja til „persónu utanríkisráð-
herrans og kosningabaráttu, sem
þá var háð . .. En kannski kom
þar einnig til að á Norðurlöndum
er það Islendingum í ferskustu
minni hvernig það er þegar nýtt
ríki þarfnast viðurkenningar".
Finnar eru þegar farnir að fjalla
um það hvemig Eystrasaltsríkin
eigi að koma sér upp sendiráðum
í Helsinki. Eistlendingar eiga til-
kall til eignar í höfuðborg Finn-
lands, en þar er nú sendiráð Búlg-
aríu. Þegar Sovétríkin hernámu
Eistland árið 1940 færðust eignir
Eistlendinga í hendur Sovétmanna.
Þegar Sovétmenn vantaði lóðir til
að reisa sendiráðsbústaði létu
Finnar þá hafa ióð í skiptum fyrir
eistnesku eignina, sem síðar var
seld Búlgörum. Hvort þessi sala
verður látin ganga til baka kemur
ekki í ljós fyrr en greitt hefur ver-
ið úr ýmsum lagaflækjum eins og
til dæmis þeirri hvaða rétt Sovét-
menn höfðu til að yfirtaka eignir
Eistlendinga.
anum, sem er með hafnir í
Petropavlovsk og Vladívostok.
Flestir kafbáta Norðurflotans halda
sig innan Barentshafs þótt tveir eða
þrír séu að jafnaði á Miðjarðarhafi.
Sovétmenn eiga ekki jafn margar
sprengjuþotur, sem geta borið
kjarnorkuvopn, og Bandaríkja-
menn. Því er ekki talið að mikil
hætta stafi af þeim.
Kjarnorkuvopnin eru flest í
Rússlandi
Eldflaugar, sem komið hefur ver-
ið fyrir á landi, eru hins vegar mun
hættulegri. Þær eru í neðanjarðar-
byrgjum og flestar eru skammt frá
leið Síberíulestarinnar frá Moskvu
til austurhluta Síberíu. Ennfremur
eru tvær stöðvar með föstum skot-
pöllum í Úkraínu og aðrar tvær í
Kazakhstan. Þá eru tvær stöðvar
með færanlegum skotpöllum í
Hvíta-Rússlandi.
Vangaveltur hafa verið um hvort
kjarnorkuvopnin muni tilheyra lýð-
veldunum sjálfum ef Sovétríkin lið-
ast í sundur. Slíkt myndi auka
hættuna á því að vopnin kæmust í
rangar hendur. Konstantín Kobets,
varnarmálaráðherra Rússlands,
sagði hins vegar í gær að rússnesk
stjórnvöld væra andvíg slíku og litu
svo á að vopnin yrðu að vera áfram
í höndum sovéskra stjórnvalda þrátt
fyrir sjálfstæðisyfirlýsingar ein-
stakra lýðvelda.
Heimild: Newsweek, Time,
Daily Telegraph og Jyllands-
Posten.
FHHSKYLDA
Allar stærðir og verð við allra hæfi
Teg.: 91S VII - 286/16 Mhi
Dæmi um notkun: Ritvinnsla,
bókhald, skjástöð
Teg.: 1100/33- 386 DX/33 Mhz
Dæmi um notkun: Krefjandi
áætlanir, umbrot, netstjóri, CAD
Teg.: 1120SX-386SX/20Mhz
Dæmi um notkun: Ritvinnsla,
umbrot, áætlanir, bókhald, netstjóri,
skjástöð
Teg.: 1170 - 486/25 Mhz
Afkastamikill vinnuhestur
Teg.: 112SE - 386 DX/25 Mhz
Dæmi um notkun: Áætlanir,
umbrot, Autocad—teikniforrit (CAD)
Teg.: 1100LX ferðatölva
386 SX/16 Mhz
Dæmi um notkun: Ritvinnsla,
áætlanir
Núna eru yfir 1 milljón Acertölva í notkun víða um heim og hafa þær hvarvetna hlotið
stórkostlegar móttökur.
Með kaupum á Acer, kaupir þú ekki bara tölvu
- heldur fullkomna þjónustu og þekkingu hjá fyrirtæki
með víðtæka reynslu og traust.
Acbr
MARGFALDUR
VERDLAUNAHAFI
Heimilistæki hf
Tölvudeild, Sætúni 8 SÍMI: 6915 00
\fiie/vu/KSmjjfa/t£e^í/v C samuk^um
m
mm
—
KIHTORS'
( Hllll K