Morgunblaðið - 30.08.1991, Qupperneq 36
36
t
Eiginmaður minn,
TRYGGVI GUÐJÓNSSON,
Hjarðarholti 10,
Akranesi,
lést í Landspítalanum 29. ágúst.
Rósa Einarsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín,
FANNEY GUNNARSDÓTTIR,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað,
sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsi Neskaupstaðar 24. ágúst,
verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Njáll Stefánsson.
t
Maðurinn minn,
ÁGÚSTGUÐLAUGSSON,
Kambsvegi 19,
andaðist í Landakotsspítala 26. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Krosskirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 14.00.
Fyrir mfna hönd og annarra vandamanna,
Steinunn Guðmunda Ólafsdóttir.
t
Utför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HALLVARÐAR VALGEIRSSONAR,
Hrauntungu 85,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. september kl. 10.30.
Ásta Baidvinsdóttir,
Valgeir Hallvarðsson,
Eva Hallvarðsdóttir,
Herdís Hallvarðsdóttir,
Rannveig Hallvarðsdóttir,
Tryggvi Hallvarðsson,
og barnabörn.
Aðalbjörg Kristinsdóttir,
Ásgeir Valdimarsson,
Gísli Helgason,
Guðný Arndal
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÍSLI VILHJÁLMUR GUNNARSSON "
frá Tungu
í Fáskrúðsfirði,
Vfðivöllum 12,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 13.30.
Steinunn Sigurbjörg Úlfarsdóttir,
Úlfar Vilhjálmsson, Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir,
Sigdór Vilhjálmsson, Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Konráð Sigþór Vilhjálmsson, Margrét Guðmundsdóttir,
Ragnar Svanur Vilhjálmsson,
Gunnhildur Anna Vilhjámsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓN Þ. SVEINBJARNARSON
bóndi,
Miðskála, Vestur-Eyjaföllum,
verður jarðsunginn frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 14.00.
Andrea Tómasdóttir,
Sveinbjörn Jónsson,
Friða Jónsdóttir, Guðmundur T ómasson,
Halldór Þorvaldsson,
Jón Andri Guðmundsson.
t
Þökkum ykkur öllum, sem heiðruðuð minningu
ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Hnífsdal.
Sérstakar þakkir til gamalla starfsmanna bæjarfógetaskrifstofu
Akraness og allra þeirra, er tóku á móti henni, er hún fór sína
hinstu för til heimabæjar.
Þórhallur Már Sigmundsson,
Guðmundur Samúelsson,
Anna Lilja Gestsdóttir,
Sigriður Sigmundsdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Torfi Bjarnason
- Minningarorð
Fæddur-26. desember 1899
Dáinn 17. ágúst 1991
Torfi Bjarnason, læknir, var
fæddur á annan dag jóla árið 1899,
og var því á nítugasta og öðru ald-
ursári er hann andaðist. Hann út-
skrifaðist úr læknadeild Háskóla
Islands í mars 1927 og varvið fram-
haldsnám í Danmörku fram á árið
1929. Hann var starfandi læknir í
meira en fjörutíu ár og var meðal
annars héraðslæknir í Miðfjarðar-
héraði, á Sauðárkróki og á Akra-
nesi. Torfi var mikils metinn af
þessum störfum sínum.
Ekki verður fjallað um ævistarf
Torfa, en aðeins um það sem hann
vann fyrir Krabbameinsskrá Krabb-
ameinsfélags íslands. Þegar hann
hóf það starf, árið 1971, var hann
kominn á þann aldur, þegar flestir
eru hættir öllum störfum, og mjög
fáir taka að sér að læra ný allflók-
in verk. Til ársloka 1984 sá hann
um að flokka krabbamein bæði eft-
ir því hvar í líkamanum þau höfðu
myndast, og eftir gerð þeirra. Það
sýnir hver atgervismaður Torfí var,
að þetta leysti hann af hendi af
stakri prýði. Hann ávann sér hylli
og virðingu samstarfsfólksins með
prúðmennsku sinni, samviskusemi
og ekki síst nákvæmri og áreiðan-
legri vinnu.
Torfí var yfírleitt fámáll og
vinnusamur, en á góðum stundum
átti hann til gamansemi og kunni
að gleðjast með öðrum.
Eg kveð með söknuði merkan
starfsbróður og góðan vin og sendi
ástvinum hans hlýjar kveðjur á
þessari stund.
Hrafn Tulinius
Mildir, fræknir
menn best lifa.
(Hávamál)
Torfi Bjarnason lifði vel. Og hann
lifði lengi. Fyrir nokkrum vikum
heimsótti ég hann í vistleg heim-
kynni hans í Seljahlíð. Honum var
þá lítt brugðið utan að heyrn hafði
dofnað. Hlýlegt og glaðlegt viðmót
hans ornaði mér sem löngum fyrr.
— Hann sagði frá 70 ára stúdents-
afmæli bekkjarbræðranna sem
Tómas Guðmundsson gerði ódauð-
lega er hann minntist „sextán
skálda í fjórða bekk“. — Við rifjuð-
um upp gamla daga þar sem við
sátum umkringdir myndum og bók-
um. Við röktum sögur af skemmti-
legum, skringilegum og sérstæðum
persónum sem við höfðum kynnst.
Tíminn leið hratt. Ég hafði síður
en svo á tilfinningunni að viðmæl-
andi minn væri á tíræðisaldri. Og
eftir að hafa kvatt hann fór ég
þegar að hlakka til næstu sam-
funda. Þó hefði ég mátt muna hið
fornkveðna að falls væri von af
fornu tré.
Torfi Bjarnason læknir lést 17.
ágúst. Hann var fæddur að Ásgarði
í Hvammssveit í Dölum 26. desemb-
er 1899. Foreldrar hans voru hjónin
Bjami Jensson, bóndi þar og hrepp-
stjóri, og Salbjörg Ásgeirsdóttir
Ijósmóðir. Sem fyrr segir lauk Torfí
stúdenstprófí 1921. Hann varð
cand. med. frá Háskóla íslands
1927 og var síðan við framhalds-
nám í Danmörku í tvö ár. Torfi var
starfandi læknir á ísafirði 1929-
1932, héraðslæknir á Hvamms-
tanga 1932-1938, á Sauðárkróki
1938-1955 og síðan á Akranesi til
1969.
Torfi Bjarnason kvæntist mikil-
hæfri konu 26. júní 1931. Var það
Sigríður Auðuns, dóttir hjónanna
Jóns Auðunar Jónssonar, útgerðar-
manns og bankastjóra á Isafirði,
og Margrétar Jónsdóttur. Dætur
eignuðust þau þtjár. Sú elsta, Auð-
ur Margrét, dó á barnsaldri en hin-
ar eru Auður, MA, lektor við Kenn-
araháskóla íslands, og Sigríður sál-
fræðingur.
Torfi var afar samviskusamur
embættismaður og mikill og góður
læknir enda urðu þau hjónin, hann
og frú Sigríður, með afbrigðum vin-
sæl í héruðum hans. Má til að
mynda segja að Skagfirðingar hafi
talið sig eiga í þeim hvert bein allt
fram á þennan dag.
Á heimili Sigríðar og Torfa var
menning ekki einungis rímorð held-
ur veruleikinn sjálfur, lífið sjálf.
Bókmenntir, myndlist og tónlist
voru ekki aðeins hátíðakostur eða
fín orð til að bregða fyrir sig í
ræðum heldur til hversdagsnota.
Og yfir heimilinu hvíldi andi mildi
og mannúðar — og gleði. — Það
var því mikil gæfa að fá að teljast
í vinahópi þeirra. Þess nutum við
hjónin og böm okkar — og raunar
foreldrar okkar líka.
Eins og áður sagði var Torfi
Bjarnason samviskusamur í störf-
um. Hann gegndi héraðslæknisem-
bætti í víðáttumiklum umdæmum
áður en samgöngur urðu með þeim
hætti sem nú er. Það er langur
vegur frá Hrauni á Skaga fram að
Merkigili og var þó raunar marg-
falt lengri og erfiðari — ef mið er
tekið af tíma — þegar Torfi þjónaði
Skagfirðingum. Mörg ströng ferðin
var þá farin, úrtölum aldrei beitt
og jafnvel eigin heilsa lögð að veði
ef bjarga þurfti, líkna og hjálpa.
Mér hefur löngum fundist að ljóðlín-
ur Gríms Thomsen um Svein Páls-
son ættu afar vel við Torfa:
Læknir skyldu verkið vann,
verkið mannkærleika.
Löngu og farsælu ævistarfí er
lokið. Bjart er yfir minningum um
Torfa lækni Bjarnason. Fjölskylda
mín þakkar áratuga vináttu og vott-
ar ástvinum samúð.
Gott er að hvílast að loknutn
löngum, góðum degi, heiðríkum
degi. Ég hygg að Torfa Bjarnasyni
hafi til hinstu stundar verið bjart
fyrir augum engu síður en .bekkjar-
bróður hans, Tómasi, sem segir:
Og seinna þegar mildur morpnn skín
á mannheim þar sem sálir stríð sitt heyja
mig skelfa engin sköp sem bíða mín:
Þá skil ég líka að það er gott að deyja.
Ólafur Haukur Árnason
+
Við þökkum sýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar
móður okkar,
MARÍNAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Akurhúsum
í Grindavík.
Brynjúlfur Thorvaldsson,
Magnús Thorvaldsson, ■
Helgi Thorvaidsson
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð-
ur og afa,
SVAVARS Þ. PÉTURSSONAR,
Laugavegi 72.
Sérstakar þakkir til lækna hans og hjúkrunarfólks á deild G-14 á
Landspítalanum.
Þórdis Jóhannesdóttir,
Þorgeir P. Svavarsson, Anna Þ. Annesdóttir,
Guðfinna St. Svavarsdóttir, Friðþjófur Helgason,
Sigurrós Svavarsdóttir, Guðjón Óskarsson,
Jóhanna Svavarsdóttir, Giovanni Rancitelli
og barnabörn.
Lokað
Lokað í dag, föstudaginn 30. ágúst, eftir hádegi
vegna jarðarfarar SIGURJÓNS SIGMUNDSSONAR.
Ljósmyndir Rutar.
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsljórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubiii.