Morgunblaðið - 30.08.1991, Síða 39
reer TaÚDÁ .08 flUOAQUTgÖ'l QlQAJaMUOaÖM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 30. AGUST 1991
Sheree, Paul DeRobbio og drengurinn Láki.
HÓF
Fjölmenni í
Dallas-lokahófi
Fyrir skömmu gekk leikkonan
Sheree Wilson í heilagt hjóna-
band. Hún lék um nokkurra ára
skeið April Stevens í hinum marg-
frægu Dallas-þáttum. Hún sagðist
vera að kóróna það að Dallas var
til moldu borið á dögunum og í
tilefni af því lýsti hún því yfir að
brúðkaupsveisldn væri tvíþætt,
hún væri einnig kveðjuhóf Dallas-
þáttanna. Gestir Og gangandi voru
175 talsins, þar af vel felstir þeirra
sem léku bitastæð hlutverk í þátt-
unum, en margir komu þar við
sögu í gégn um árin eins og nærri
má geta.
Meðal gesta voru Larry Hagman
(JR) sem mætti til veislunnar
ásamt eiginkonu sinni á vélhjóli,
Cathy Pedwell sem lék eina af
eiginkonum JR, Charlene litla Til-
ton (Lucy) og fleiri og fleiri. Linda
Grey (Sue Ellen) gat hins vegar
ekki mætt og heldur ekki Patrick
Duffy (Bobby), en þau sendu blóm
og bestu kveðjur, enda sveif vin-
áttan undantekningarlítið yfir
vötnunum árin mörgu sem Dallas
var og hét. Sheree Wilson gekk
annars að eiga Paul DeRobbio, en
saman eiga þau litla snáðann
Luke.
Larry Hagman kemur til veislunnar ásamt eiginkonu sinni Mae.
— Sem betur fer getur inaðurinn minn ekki reykt þegar hann er
í sjónum.
COSPER
U8Sfc
COSPER
■ ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN er
að byija með ný ættfræðinásmkeið
fyrir almenning og standa þau frá
miðjum september til októberloka.
Veitt er fræðsla og þjáifun í ætt-
fræðilegum vinnubrögðum og að
þessu sinni verður bætt við sér-
stakri tilsögn í tölvuvinnslu á ættar-
tölum og niðjatölum. Á það bæði
við um 7 vikna grunnnámskeið og
6 vikna framhaldsnámskeið fyrir
rannsóknarhópa. Einnig eru í undir-
búningi helgarnámskeið á nokkrum
stöðum á landsbyggðinni. Á grunn-
námskeiðum eru byijendur fræddir
um íslenskar ættfærðiheimildir,
leitaraðferðir og gerð ættarttölu og
niðjatals. Þátttakendur fá aðstöðu
tii að rekja eigin ættir og frænd-
garð og afnot af víðtæku gagna-
safni, m.a. kirkjubókum, mann-
tölum, ættartöluhandritum og út-
gefnum bókum. Námskeiðin hefjast
um miðjan september en leiðbein-
andi er sem fyrr Jón Valur Jens-
son. Innritun er hafin hjá Ættfræði-
þjónustunni, Sólvallagötu 32A.
■ LEIKHÚSGESTUM og öðru
áhugafólki um leiklist gefst kostur
á að hringja í Leikhúslínuna sem
rekin er af upplýsingasímanum
991000, frá og með föstudeginum
30. ágúst. Á Leikhúslínunni verður
fyrst um sinn að finna upplýsingar
um starfsemi Leikfélags Reykjavík-
ur. Sagt verður frá viðfangsefnum
leikársins, höfundum leikverka,
leikurum og öðrum sem taka þátt
í sýningunum. Einnig verða á Leik-
húslínunni upplýsingar um sýn-
ingartíma og sölu áskriftarkorta.
Þá mun Leikhúslínan fylgjast méð
aðsókn á leikritum, viðbrögðum
gagnrýnenda og öðru er snertir
leikhúslífið. Símanúmer Leikhúslín-
unnar er 991015 og er þjónustan
opin allan sólarhringinn. Kristján
Franklín Magnúss hefur umsjón
með Leikhúslínunni en fram-
kvæmdastjóri upplýsingasímans
991000 er Páll Þorsteinsson.
PAÐPAMjPrm
VR 3260 philips myndbandstækið 2 myndhausar. HQ hágæða mynd, jafnvel í
kyrrmynd. Hraðmynd afturábak og áfram. Ramma fyrir ramma færsla. Fullkomin fjarstýring.
„AU-1 °
KR.STGR
VERÐ KR. 42.000.
PHILIPS AQ 5190 steríó útvarp og
segulband. Handhægt og létt. Sjálfvirk
upptðkustilling. 8 Watta magnari. Inn-
byggður hljóðnemi.
ARC 2 Supertech í bílinn MW/FM
steríó hljómgæði, útvarp og segulband í
sama tæki. Bjóðum úrval Supertech
bíltækja á frábæru verfti.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNl SÍMI6915 20
l/u)*/iUHi>SveújýCUtéegiA í samtútguHt,
CTV 2010 Supertech litasjónvarp
20 tommu skjár. Sýnir aögerðir á skjánum.
Sjálfvirkur slðkkvari (Sleep timer) 30,60,
90,100 mín) Fullkomin fjarstýring.
-- : -
VERÐ KR. 29.900.-
07500,
mm f KR.STGR.
AS 9510 Philips hljómtækjasam-
stæfta meft geislaspilara og
fjarstýringu. Plötuspilari. Stafrænt
útvarp með minni og sjálfleitara. Magnari
2x40 músík Wött. Tónjafnari. Tvöfalt
snældutæki. Geislaspilari með 20 laga
.minn).,
VERÐ KR. 58.900.
85 RXT Philco þvottavélin sem
sparar rafmagn með því að taka inn á sig
heitt og kalt vatn. Vinduhraðinn er allt að
800 snúningar. Fjöldi þvottakerfa eftir þinu
vali.
CTV1419 Supertech iitasjónvarp.
14 tommu skjár. „Monitor“ hönnun,
fullkomin myndgæði og sérstaklega góður r
hljómur. Qott tæki á betra verfti.
VKR 6843 Philips myndbandsupp-
Lökuvél. Veguraðeins 1,3 kg. Dagsetn.
og klukka sjást við upptöku. Sjálfvirkur
fókus og birtustillir. Vélin er mjög Ijósnæm.
Hægt er að tengja vélina beint við sjónvarp
og nýtist hún þá sem myndband.
ATH. Taska og allir fylgihlutir
innifalið f verfti.