Morgunblaðið - 07.09.1991, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR ?. SEPTEMBER 1*991
Vepjulilja.
VEPJULILJA
Fritillaria meleagris
Blóm vikunnar
Umsjón: Agústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 220
Vepjulilja, Fritillaria meleagr-
is, hefur um áraraðir átt sér ör-
uggan sess meðal þeirra haust-
lauka sem til landsins eru fluttir
og í röð þeirra harðgerðustu. Hún
blómstrar snemma eins og allf-
lestra smálauka er siður venjulega
í byrjun júní og er ekki sérlega
tilkomumikil fyrst þegar hún er
að gægjast upp úr moldinni. Blöð-
in eru ljósgræn og líkjast hverjum
öðrum grasstráum fyrst í stað.
Blómstönglarnir, 25-30 cm háir,
eru mjög grannir en stinnir og
stæitir og valda vel allstórum
klukkulaga drúpandi blómunum
sem eru skemmtilega köflótt, —
það er þeirra einkenni. Jafnan er
annar kaflinn mjög ljósleitur,
næstum hvítur, en hinn í ýmsum
mismunandi, fínlegum litlum, oft-
ast rauð-fjólubláum. Einnig eru
til alhvít afbrigði en á þeim koma
kaflarnir ekki eins greinilega fram
sem eðlilegt er. Þetta „mynstur"
hefur gefíð tilefni til nafngiftar
plöntunnar víða um lönd, t.d. í
Þýskalandi, en þar er hún kölluð
„skákborðslilja". Sagan segir að
hinn víðkunni grasafræðingur
Linné, sem uppi var í Svíþjóð á
18. öld, hafi flutt vepjuliljuna til
Uppsala og gróðursett á svoköll-
uðu Kongsengi fyrir utan bæinn
en þar mun enn í dag vera ótrúleg-
ur aragrúi af henni, og því kölluð
kongsengislilja.
Vepjuliljan er hnýðisjurt og
hnýðin lögð i mold á haustin, fal-
legast er að láta þær standa
nokkrar saman í þyrpingu. Hana
þarf að setja nokkru dýpra en
aðra smálauka, hún vex fremur
seint og þarf skilyrðislaust að
standa óhreyfð um árabil. Sé það
gert myndar hún með tímanum
álitlega brúska. Þó vepjuliljan
geti vart talist með glæsilegustu
laukjurtum er hún þó gædd mikl-
um yndisþokka. Hún sómir sér
vel í trjábeðum og eins í stein-
hæð. Hún þrífst ágætlega hér á
landi og þroskar fræ. Hún þolir
nokkum skugga og kann vel við
sig í ívið rökum jarðvegi.
Að blómgun lokinni má þurrka
stönglana og eru þeir með fræhús-
unum ágætasta skraut í vasa.
Lengst af var vepjuliljan sú eina
af Fritillarium sem að ráði hlaut
einhveija útbreiðslu hér á landi,
enda varla aðrar í boði. Að vísu
hefur keisarakróna, Frit. imper-
ialis, talsvert verið ræktuð hér,
frá henni var sagt í þætti nr.
204, 18. maí sl.
Á síðustu 2-3 áratugum hafa
komið fram á sjónarsviðið ótal
spennandi tegundir af þessum
laukjurtumi, sem margar hveijar
hafa verið reyndar hér, sumar
með góðum árangri, má t.d. nefna
krummaiilju, Frit. camtschatcens-
is, og gaukalilju, Frit. pailidiflora.
Fiestar eru þær nefndar eftir fugl-
ategundum. Á síðasta iaukalista
GÍ bættust tvær, sem lítið hafa
verið reyndar hér, í hópinn, lunda-
lilja, Frit. michailowsky, og arnar-
lilja, Frit. percica, ættuð frá Tyrk-
landi, með plómublá dijúpandi
blóm á metra háum stöngli. Sbr.
grein Friðriks Skúlasonar í Garð-
yrkjuritinu 1990 bls. 7-20 um
ættkvíslina Fritallaria, greininni
fylgja margar góðar myndir.
ÁBj
Leon Spierer leiðbeinir hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Seltjarnarneskirkju.
Sinfónían hitar
upp fyrir veturinn
eftir Rafn Jónsson
Sinfóníuhljómsveit íslands gengst
fyrir tónieikum kl. 3 í dag í Seitjarn-
arneskirkju, þar sem strengjahljóð-
færaleikarar hljómsveitarinnar
munu leika tvö verk og slagverks-
deildin eitt. Þessir tónleikar eru í
framhaldi af einskonarupphitun-
arnámskeiði fyrir hljóðfæraleikar-
ana sem nú stendur yfir í Seltjarnar-
neskirkju, Háskólabíói og húsnæði
Félags íslenskra hljómlistarmanna
og allar deildir hljómsveitarinnar
taka þátt í. Leiðbeinendur á nám-
skeiði með blásurunum er Julius
Baker, sem lauk starfsferli sínum
sem fyrsti flautuleikari Fílharmóníu-
sveitar New York borgar árið 1983,
Graham Johnes, slagverksleikari og
Leon Spierer, fyrsti konsertmeistari
Fílharmóníusveitar Berlínar. Julius
Baker hafði áður verið fyrsti flautu-
leikari í nokkrum þekktum hljóm-
sveitum en einbeitir sér nú að ein-
leik, kammertónlist og kennslu.
Hann kennir bæði við Curtiss- og
Juiliiard-tónlistarháskolana í Banda-
ríkjunum og hafa nemendur hans
fengið stöður í mörgum helstu hljóm-
sveitum Bandaríkjanna.
Spierer er Þjóðveiji en ólst upp í
Argentínu. Hann hefur hlotið fjöl-
mörg eftirsótt verðlaun fyrir fiðlu-
leik sinn og leikið einleik með hljóm-
sveitum í flestum löndum hins sið-
menntaða heims. Hann situr reglu-
lega í alþjóðadómnefndum.
Hann sagði í stuttu samtali, að
það væri auðvelt verk að vinna með
strengjaleikurum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, því þeir væru góðir
hljóðfæraleikarar. Hann kom hingað
í fyrra og sagðist hafa hlakkað til
þess að koma aftur í haust. Hann
hefur um langt árabil lagt land und-
ir fót og haldið álíka námskeið í
Svíþjóð og Flnnlandi, en hann var
um langt árabil fyrsti konsertmeist-
ari Fílharmóníusveitarinnar í Stokk-
hólmi.
„Mitt verk er fyrst og fremst að
efla samhæfingu meðal hljóðfæra-
leikaranna, auk þess sem ég kenni
þeim nokkra þætti varðandi flutning
verka eftir Mozart og Schubert og
við höfum tileinkað okkur í Berlín-
arfílharmóníunni. Það er líka mikið
atriði,“ sagði Spieler, „að kenna
þeim að leika hér í kirkjunni. Hljóm-
burðurinn er mjög mikill og veikasti
tónn heyrist mjög vel. Þess vegna
er brýnt að leika létt á fiðluna. Að-
stæðurnar hérna eru alger andstæða
hljómburðarins í Háskólabíói." Spi-
erer sagðist vona að margir kæmu
til að hlusta, en á efnisskránni eru
Menúett og tríó eftir Schubert og
Serenaða eftir Dvorák, auk verks
sem slagverksleikarar sveitarinnar
flytja. „Áheyrendur eru ekki síður
mikilvægir en hljóðfæraleikarar!"
sagði Spierer. „Þeir eru ekki stytt-
ur, heldur taka þátt í flutningi ver-
kanna með nærveru sinni og hvatn-
ingu til hljóðfæraleikaranna. Auk
þess erum við ekki að þessu starfi
einungis fyrir okkur, þótt það sé
skemmtilegt, heldur líka fyrir áheyr-
endur.“
*
I
\
i
)
>
í
r —
jffleööur
r
a
morgun
V________
Reykjavíkurprófastdæmi
eystra
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11 árdegis.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Jakob
Hallgrímsson. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu þriðjudag
kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Ólafur Jó-
hannsson.
FELLA OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
M. Magnúsdóttir. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson.
GRAFARVOGSSÓKN: Guðs-
þjónusta í Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn kl. 11 árdegis. Organisti
Guðspjall dagsins:
Matt. 6.:
Enginn kann tveimur herrum
að þjóna.
Sigríður Jónsdóttir. Séra Vigfús
Þór Árnason.
HJALLASÓKN: Messa kl. 11 í
Kópavogskirkju. Prestur sr. Ægir
Fr. Sigurgeirsson. Sóknarprest-
ur.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11-. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son. Organisti Guðmundur Gils-
son.
SEUAKIRKJA: Laugardag:
Guðsþjónusta í Seljahlíð kl. 11.
Sunnudag: Kvöldguðsþónusta kl.
20.30. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Molakaffi eftir guðs-
þjónustua.
FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRÐI:
Guðsþjónusta kl. 11. Sungnir
verða sálmar úr nýrri sálmabók
kirkjunnar. Organisti Kristjana
Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfsson.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sóknarprestur.
EYRARBAKKI: Gaulverjarbæjar-
kirkja: Messa kl. 14.00.
Reykjavíkurprófastdæmi
vestra
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Einsöngur Guðrún
Jónsdóttir. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Dómkórinn syngur. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Jak-
ob Á. Hjálmarsson. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Sr. HalldórS. Gröndal. Fyrirbæn-
ir eftir messu.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
ustakl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 11.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist-
insson. Organisti Ólafur W.
Finnsson. Kór Langholtskirkju
syngur. Molasopi að guðsþjón-
ustu lokinni. '
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson. Organisti Ronald V.
Turner. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónustuna. Fimmtudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur,
altarisganga, fyrirbænir.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Miðvikudag: Bænamessa
kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fílad-
elfía: Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður Hafliði Kristmanns-
son. Almenn samkoma kl. 20.
Vitnisburður. Kaffisala að sam-
komu lokinni. Barnagæsla.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14. Miðvikudaginn
11. sept. morgunandakt kl. 7.30.
Orgelleikari Violeta Smid. Kirkjan
er opin í hádeginu virka daga.
Cecil Haraldsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma, efni við hæfi
barna og fullorðinna kl. 16.30.
Anna og Daniel Óskarsson
stjórna og tala. Samkoma fyrir
hermenn og samherja kl. 19.
SJÓMANNAHEIMILIÐ Örkin,
Brautarholti, (Færeyska sjó-
mannaheimilið): Samkoma kl. 17.
Rosa og Jacob Hendrik tala.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Helgi
guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14. Athugið breyttan
tíma. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sóknarnefndin.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 11.
Organisti Guðmundur Ómar
Óskarsson. Sr. Jón Þorsteinsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Kvöld-
messa kl. 20.30. Sr. Lárus Hall-
dórsson tekur við starfi sóknar-
prests í Keflavík í ársleyfi sr. Ól-
afs Odds Jónssonar. Kór Kefla-
víkurkirkju syngur. Organisti Ein-
ar Örn Einarsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Fyrirbænagúðsþjónusta fimmtu-
daginn 12. sept. kl. 18.30. Beðið
fyrir sjúkum. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Sr. Björn Jónsson.
I