Morgunblaðið - 07.09.1991, Blaðsíða 41
Tí
mor'gunblAðíð laúgarijá'gÚr
7.
Einstök
hjálpsemi
••
Olvun á almannafæri
Þann 27. júlí 1991 var ég ásamt
þremur öðrum á leið suður á Kefla-
víkurflugvöll snemma um morgun-
inn. A miðri leið sauð á bílnum hjá
okkur. Hvað áttum við að gera,
ekkert vatn, enginn brúsi, enginn
bíll og enginn spotti, allt í hönk. En
í því kemru leigubíll, Ö-37, á leið
frá Kefiavík. Bílstjórinn stoppar og
býður okkur aðstoð sem við þáðum
fegins hendi. Þessi maður bjargaði
því sem þurfti. Hann kom okkur
suður á flugvöll o g kom bíllyklunum
til skila. Við sendum honum bestu
þakkir fyrir. Slík hjálpsemi og ljúf-
mennska er alveg einstök.
Auður
Er ölvun á almannafæri ekki
bönnuð, samkvæmt lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur? Þegar gengið
er niður Laugaveg og niður í mið-
bæ, mátt þú vera viss um að rek-
ast á 10-15 útigangsmenn sem eru
á flakki um götur Reykjavíkur og
sérstaklega miðbæinn, en á sama
tíma sérð þú engan lögregluþjón,
og maður spyr, hvar er lögreglan?
Áður fyrr var það föst regla að
lögreglan var til staðar í miðbæ
Reykjavíkur eða á gangi á Laugar-
vegi eða í nágrenni. Nú sést enginn
lögregluþjónn á þessum slóðum. Ég
spyr, hvað veldur? Er fólk orðið svo
löghlýðið? Nei, og aftur nei. Afleið-
ing af slakri löggæslu lét ekki á sér
standa, ótal líkamsárásir um miðjan
dag, sem og um nætur. Aðalmynd-
efni sumra túrista er rónagengið í
Reykjavík. Ótal sinnum hefur verið
óskað eftir að Reykjavík væri
hreinsuð af þessum ógæfumönnum
og þeir fluttir burt úr miðbæ
Reykjavíkur en því ekki verið sinnt.
Ég legg því til að allir útigangs-
menn í Reykjavík og nágrenni verði
fluttir út í Engey og þeim búinn
þar góð aðstaða og skaffaður matur
og vatn. Þessir menn eiga á engan
hátt samleið með almennum borg-
urum. Hlúa má að þessum mönnum
á ýmsan hátt þeim til góðs. En
spurningin er, hvar er lögreglan?
Reglusamur
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lcsendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga tii föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspumir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina.
HEILRÆÐI
Til afa og ömmu
Hér er vinsamleg ábending til afa og ömmu.
Geymið lyf á öruggum stað þannig að barnabörnin nái alls ekki til
þeirra. Sykurhúðaðar pillur líta út sem sælgæti í þeirra augum. Lyf
sem ykkur eru lífsnauðsynleg eru aftur á móti börnunum stórhættu-
leg og jafnvel banvæn.
Haust
tilbod
Seljum í dag og næstu daga mikió úrval af húsgögnum á
einstöku tiiboði. Afsl. 15—30%. T.d. sófasett - vegghúsgögn
- vatnsrúm — sófaborð — unglingahúsgögn — o.m.fl.
Teg. Garneby
Tilboðsverð kr. 37.500,-
Barbie húsgögn á sérstöku tilboðsverði.
Opið í dag til kl. 16.00
Sunnudag 14.00-16.00
[□HBBBEll
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFNARFIRDI SÍMI 54100
Meira en þú geturímyndað þér!
NÚ LÍTA
EIGENDUR HOBBY—HJÓLHÝSA
HÝRUM AUGUM TIL VETRARINS
vetri til er fátt eins notalegt en það að taka sér
stutt frí og koma sér vel fyrir í Hobby - hjólhýsi.
Það er nefnilega ekki síður ánægjulegt að dvelja í Hobby
að vetri til en á sumardögum. Þá getur kyrrðin og náttúru-
fegurðin verið stórkostleg og tilefnin til að komast burt úr
skarkalanum meiri en næg! Nú eru komnar til landsins tvær
gerðiraf nýjum Hobby - hjólhýsum. Skoðaðu Hobby og láttu
íburð þeirra koma þér á óvart. Hobby eru heilsárs sælureitir
prýdd öllum nútíma þægindum. Verðið er hagstætt og greiðslu-
skilmálar eru mjög góðir. Umboðsmenn okkar eru BSA á Akureyri
og Bílasalan Fell á Egilstöðum.
Gísli Jónsson & Co.
—Sundaborg 11 - Sími-91 -686644 |||||
wm
Ml