Morgunblaðið - 07.09.1991, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1991
>42
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
LEIFUR GEIR HAFSTEINSSON
Hóf ferilinn sem markvörður
hjá norska félaginu Lyn
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Vestmannaeyjameistari í skák í
sínum aldursflokki í nokkur ár og
var kominn með yflr 1.700 Elo stig.
En Leifur hætti í skákinni þegar
hann hóf framhaldsnám við MH og
var búinn að gera upp hug sinn og
einbeita sér að fótbolta.
Morgunblaðið/S.G.G.
Leifur Geir ásamt fjölskyldu sinni. Frá vinstri: Hildur K. Oddgeirsdóttir, Birgir Hrafn Hafsteinsson, Leifur Geir og
Hafsteinn G. Guðfinnsson, liðtækur markvörur með IBV á árum áður.
Árið 87 lék hann svo með Eyja-
mönnum í annari deildinni sem
tengiliður en árið eftir ákvað hann
að breyta til og dreif sig til Svíþjóð-
ar ásamt þremur vinum sínum úr
MH og vann hann það sumar hjá
Marabou.
Árið 1989 fékk Sigurlás Þorleifs-
son Leif til að koma aftur til Eyja
og spreyta sig í fótboltanum. „Þetta
var mjög skemmtilegt tímabil hjá
okkur það gekk vel og við kom-
umst upp í 1. deild þá skoraði ég
eftirminnilegt mark gegn Blikum í
síðasta leik í Kópavoginum, sigur-
markið rétt fyrir leikslok og það
dugði til að við komumst upp eftir
harða keppni við Víði úr Garði,“
sagði Leifur. Þetta árið lék Leifur
sem senter og var þetta upphafið
af ævintýrinu og skoraði hann 5
mörk þetta tímabilið í 15 leikjum.
Gítarinn aldrei langt undan
Eftir þetta tímabil hélt Leifur
áfram í klassísku gítarnámi hann
hafði lokið við 2. og 3. stig veturinn
1988-89 og vann hann hálfa vinnu
og einbeitti sér að gítarnum og lauk
4. og 5. stigi veturinn 1989-90.
Klassískt gítarnám er upp í 8 stig
og eftir það tekur einleikarapróf
við. „Mig langar mjög mikið til að
halda áfram að læra á þetta yndis-
lega hljóðfæri en það er mjögtímaf-
rekt og gengur ekki upp með vinnu
og fótbolta og verður því að bíða
betri tíma, en vonandi kemst ég
einhvern tíma í þetta. Ég reyni allt-
af að spila þegar tími gefst til að
halda mér við.“
Hættur í knattspyrnu
Sumarið 1990 fór Leifur Geir
aftur til Svíþjóðar og hættir í fót-
bolta og þá var ekki inní myndinni
'að spila fótbolta aftur. Hann fór
að vinna á elliheimili og leist vel á
það. „Mér leist vel á að kynnast
nýju og skemmtilegu fólki og kaup-
ið var ágætt.“ Hann hugðist síðan
eftir sumarið í Svíþjóð fara til
Þýskalands hugsanlega í 5 ára há-
skólanám og um veturinn fór hann
til Freiburg að læra þýsku og kynna
sér aðstæður í Þýskalandi. Kunn-
ingi hans, sem einnig var að læra
þýsku, Eyvindur Grétar Gunnars-
son hringdi í formann Bæjarliðsins
og boðaði komu þeirra á æfingu
næsta dag. Þeir voru settir í varalið-
ið sem lék í 7. deild en unnu sig
þó fljótt upp í aðalliðið sem lék í
þeirri 4. Þar spilaði Leifur níu leiki
og gerði 5 mörk í þeim leikjum og
varð annar markahæstur hjá liðinu
þetta tímabil.
Sigurlás hringdi síðan í Leif til
að fá hann til að koma og spila
með ÍBV. Leifur eygði nokkuð góða
möguleika á að komast í liðið þar
sem tveir framherjar þeir Tómas
Ingi og Andrej Jerina voru á förum.
Leifur Geir hætti við framhaldsnám
í Þýskalandi og dreif sig til Eyja
og byijaði aftur að leika fótbolta
með Eyjamönnum, og hefur gert
það í sumar en ætlar Leifur að
vera með aftur næsta sumar: „Ég
lofa engu en eins og staðan er í
dag get ég vel hugsað mér að vera
aftur með Eyjamönnum næsta sum-
ar mér líður vel hérna og fólk er
vingjarnlegt."
„Gæla við að gera 5-6 mörk“
Hefur það ekki komið flatt upp
á Leif að vera búinn að gera 11
mörk í fýrstu 15 leikjum tímabilsins
á sínu fyrsta heila tímabili í fyrstu
deild? „Þetta hefur komið mjög á
óvart. Ég var fyrst og fremst að
stefna að því að komast í liðið. Við
vorum fimm að beijast um þessar
tvær stöður frammi í byrjun og nú
hefur sá sjötti bæst við. Ég var að
gæla við að gera 5—6 mörk í upp-
hafi á öllu tímabilinu en þetta hefur
farið fram úr björtustu vonum.
Hver getur búist við að skora svona
mikið á sínu fyrsta tímabili í fyrstu
deild. Ég nýt kannski góðs af því
að vera ekki þekktur og því er ég
kannski ekki eins vel dekkaður og
þekktu markaskorararnir,“ sagði
Leifur Geir.
NYJASTA ENSKA ORÐABOKIN
1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg.
Kynningarverð
___________ kr. 1.600.
Vikmgur - KA
í dog kl. 14. OO, Stjörnugróf.
LEIFUR Geir Hafsteinsson
framherji hjá ÍBV er líklega sá
sem komið hefur einna mest á
óvart ífótboltanum í sumar.
Fáir á fastalandinu vissu hver
f.ann var fyrir tímabilið en nú
vita þeir sem með fótbolta
fylgjast að þarna er um
skemmtilegan framherja að
ræða sem hefur verið iðinn við
að koma boltanum í net and-
stæðinganna og hefur á sínu
fyrsta heila tímabili í 1. deild
gert 11 mörk í 16 leikjum.
Leifur Geir er fæddur í Eyjum
en flutti eins árs til Reykjavík-
ur. Síðan fluttist hann til Noregs
og þar hófst knattspyrnuferill hans.
Hann byijaði 8 ára
að leika með Lyn í
Osló en þar eru þeir
bræður Olafur og
Teitur Þórðarsynir
einmitt núna, Leifur byijaði ekki
sem framheiji heldur sem mark-
vörður og æfði hann eitt ár með
Lyn. Þaðan lá leiðin aftur til ís-
lands og þá var flutt í Garðabæinn
og þar lék Leifur með 6. flokki
Stjömunnar.
Eftir eitt ár í Garðabænum lá
leiðin til Eyja aftur þar gekk hann
til liðs við Tý og lék með þeim í
gegnum yngri flokka og þegar hann
Eftir
Sigfús
Gunnar
Guömundsson
Leifur Geir
Hafsteinsson
Fæddur: 9. mars 1970.
Atvinna: Starfar í sumar sem
gjaldkeri hjá Islandsbanka en
hyggur á eðlisfræðinám í vetur
í Háskóla íslands.
Leikir 1. deild: 19, (1986 4
leikir) (1991 15 leikir).
Leikir 2. deild: 26, (1987 11
leikiij (1989 15 leikir).
Mörk í 1 deild: 11 (1991).
Mörk í 2 deild: 5 (1989).
Landsleikir U-21: 1. Leikur
(1991)
Landsleikir U-18 3.
Helsti árangur: 2 sæti 2. deild
1989.
var í þriðja flokki lék hann sína
fyrstu meistaraflokksleiki aðeins 16
ára gamall, yngri en til dæmis Ás-
geir Sigurvinsson þegar hann_ hóf
að leika með meistaraflokki ÍBV,
og er hann því einn af þeim yngstu
sem leikið hafa með meistaraflokki
ÍBV.
Yfir 1.700 Elostig
Fram til fímmtán ára aldurs var
Leifur á kafi í skákinni og varð