Morgunblaðið - 10.09.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
Um fjárfestingar, skuld-
ir og kjör launþega
eftir Jón Sigurðsson
Nýkomið er út rit frá Þjóðhags-
stofnun, Fjárfesting 1945-1989.
Þetta er ekki rit, sem margir eru
líklegir til að lesa. Textinn er ekki
beinlínis spennandi, en efni bókar-
innar þeim mun yfirgripsmeira.
Þótt höfundur þessarar greinar
sé ekki læs á þá djúpristu og fræði-
legu hagfræði, sem þarna er birt
undir lok textans, varð bókin og þá
einkum talnaefni hennar, honum til-
efni til þeirra hugleiðinga, sem hér
fara á eftir.
Margir og þeirra á meðal höfund-
ur þessarar greinar, hafa rætt opin-
berlega, að það er ekki svonefnd
kjarabarátta eða ófriður á vinnu-
markaði, sem ákvarðar kjör launa-
fólks í landinu, þegar upp er staðið,
heldur afrakstur þeirrar fjárfesting-
ar, sem lagt hefur verið í, aðallega
undanfarna tvo áratugi eða svo og
áhrifín, sem hún hefur haft á fram-
leiðrn hinna vinnandi handa.
Bokin, sem til var vitnað, hefur
að geyma tölulegar upplýsingar um
alla þessa fjárfestingu og af þeim
eru hugleiðingamar sprottnar. Þær
verða takmarkaðar við fjárfestingar
í landbúnaði, fiskveiðum og fisk-
vinnslu og tímabilið 1973-1989.
Þegar fjárfesting í þessum grein-
um er lögð saman og færð til verð-
lags ársins 1990 kemur í ljós, að
hún er í landbúnaði og vinnslu bú-
vara tæpir 58 milljarðar, í fiskveið-
um rúml. 83 milljarðar, í vinnslu
sjávarafla rúml. 41 milljarður.
Það er afar athyglisvert í þessum
tölum, að fjárfesting í landbúnaði
skuli hafa verið sem svarar rúmum
tveimur þriðju lutum af fjárfestingu
í fiskiflotanum, sem allir viðurkenna
að var of mikil. Fjárfesting í land-
búnaði er líka gríðarmiklu meiri en
í allri úrvinnslu sjávarafla. Fjárfest-
ing í úrvinnslu landbúnaðarvara, —
sláturhús og allar mjólkurstöðvarnar
eru hér meðtaldar, en ekki fjárfest-
ing í fiskeldi um 8.800 milljónir
króna og loðdýrarækt tæpar 3.400
milljónir.
Landsmenn vita, að lambakjötið
ber af öðrum mat og mjólk er góð.
Engu að síður ættu þessar fjárfest-
ingar að vera tilefni til umræðu
milli þeirra, sem á þessari fjárfest-
ingu hafa borið pólitíska ábyrgð og
þá ekki síður meðal hinna, sem nú
axla hana til framtíðar. Má telja
efalaust, að í þessari miklu fjárfest-
ingu í landbúnaði séu verulegir fjár-
munir, sem betur hefði verið óráð-
stafað og enginn hefði varið með
þeim hætti sem gert var, ef hann
sem stjórnmálamaður, bændafröm-
uður eða sem bóndi hefði fundið til
fullrar ábyrgðar á þeim eins og þeir
væru hans eigin fjármunir.
Fræðimenn hafa leitt að því gild
rök að fískveiðiflotinn sé 25-40% of
stór. Af sjálfu sér leiðir, að þetta
þýðir, að a.m.k. tilsvarandi hlutfalli
fjárfestingarinnar í fiskveiðum und-
angengin ár hafi verið ofaukið. Þetta
svarar til þess, að 17-24 milljörðum
króna af fjárfestingu áranna 1973-
1989 í þessu skyni hafi verið ofauk-
ið, — enn á verðlagi 1990.
Sé litið svo á, að þessari offjárfest-
ingu í fiskveiðum sé hlutfallslega
dreift á þennan tíma miðað við fjár-
festinguna eins og hún varð og geng-
ið út frá þeirri sjálfsögðu staðreynd,
að þetta sé nettóviðbót við erlendar
lántökur á tímanum og þær vaxta-
reiknaðar með 5% raunvöxtum, þýð-
ir það, að 25-36 milljarðar króna af
erlendum skuldum þjóðarbúsins í
dag eiga rót sína í þessum offjárfest-
ingum. Stjómmála- og athafna-
menn, sem á þessum tíma mældu
ágæti sitt í fjárfestingarútgjöldum
af þessu tagi, sem þeir fengu komið
til leiðar, mættu viðurkenna, þó ekki
væri nema fyrir sjálfum sér, að
þeirra snilli var lítil og skammsýnin
þjóðinni óskaplega dýr. Fyrir hina,
sem síðar eru komnir til leiks á vett-
vangi stjórnmála, ætti þetta enn að
vera tilefni umræðu og endurmats
á aðferðum til að ráðst í fjárfesting-
ar á þessu sviði.
Fjárfestingin í landbúnaði hefur
verið með ólíkindum. Það bætir furð-
ulitlu við árlegar fjárfestingar, þegar
WJUDTOl'?
Kennslustaðir:
Auðbrekka 17, "Lundur" Auðbrekku 25,
og "Hallarsel" við Þarabakka 3 í Mjódd.
Kennum alla samkvæmisdansa:
suðurameríska, standard og gömlu dansana.
Einnig bamadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar dagana 2. - 6. sept.
kl. 13 -19 í síma: 64 1111.
Kennsluönnin er 15 vikur,
og lýkur með jólaballi.
Kennsla hefst miðvikudaginn 11. sept.
Hinir frábæru SUPADANCE skór fyrir dömur
og herra í öllum stærðum og gerðum.
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar |
fískeldið og loðdýraræktin koma til
sögunnar síðustu ár tímabilsins.
Fjárfesting í fiskvinnslu verður
lítilvægust í þessari skoðun. Engu
að síður er öllum sem til þekkja Ijóst,
að þar er líka mikilli fjárfestingu
undangenginna ára ofaukið.
Mikið af allri þessari fjárfestingu
er arðlaus, svo það er ekki að undra,
þó að taki í gagnvart kjörum al-
mennings, þegar hana þarf að greiða
með einum eða öðrum hætti af öðr-
um tekjum.
Rétt er að setja fram lítið reikn-
ingsdæmi:
Ef fjárfesting í fiskiflotanum er í
dag 40% og mikil, 25% of mikil í
vinnslu sjávarfangs og 25% í land-
búnaði, — öll þessi ofijárfesting hef-
ur safnast upp 1973-1989 og leitt
til skuldasöfnunar og vaxtabyrði, 5%
raunvaxta, svarar hún til um 88
milljarða króna. Skuldabyrðin vegna
offjárfestingarinnar er þannig helm-
ingur hinna erlendu skulda og um-
talsverður hluti útflutningstekna
þjóðarinnar fer til að greiða vexti
og afborganir af þeim mistökum.
Sé litið á alla fiskeldisfjárfestinguna
og loðdýrarækt til viðbótar nálgast
summan 100 milljarða.
Menn geta svo dundað sér við að
reikna, hvaða áhrif þetta hefur á
skattbyrði manna og lífskjör, þegar
talsvert af þessari viðbótarfjárfest-
ingu veitti atvinnu, sem í raun er
fölsk og skilar engu til lífskjaranna,
heldur einungis bindur fólk og tekur
til sín kostnað.
Þetta þykir höfundi þessarar
greinar ekki síður efni í pólitíska
umræðu um þessar mundir en það
hvort fólk greiðir einhveijum krón-
um meira eða minna fyrir lyf eða
hversu miklu fé á að veija til að
gæta geðveikra afbrotamanna.
Ekkert af þessu verður aftur tek-
ið, en það er hollt fyrir stjórnmála-
umræðu dagsins að horfa beint á
staðreyndir og reyna að ræða þær
og mál, sem þeim tengjast, af fullu
raunsæi. Það á við um málefni land-
búnaðar og fiskvinnslu og ekki stst
fiskveiðanna, sem nú brenna á þjóð-
inni. Það er á þeim sviðum sem
mikilvægustu stjórnmálalegu vanda-
málin kalla eftir úrlausnum þessi
misseri.
Og í ljósi þeirra einföldu upplýs-
inga, sem hér hafa verið dregnar
fram, er það ótrúleg ósvífni, þegar
þeir menn, sem staðið hafa fyrir
þessari óráðsfjárfestingu í fískiflot-
Jón Sigurðsson
„Og í ljósi þeirra ein-
földu upplýsinga, sem
hér hafa verið dregnar
fram, er það ótrúleg
ósvífni, þegar þeir
menn, sem staðið hafa
fyrir þessari óráðsfjár-
festingu í fiskiflotanum
sem „athafnamenn“,
gera kröfu til að verða
verðlaunaðir fyrir með
því að þeim verði gef-
inn einkarétturinn til
afnota af fiskimiðun-
um.“
anum sem „athafnamenn“, gera
kröfu til að verða verðlaunaðir fyrir
með því að þeim verði gefinn einka-
rétturinn til afnota af fiskimiðunum.
Verðmætið, sem í honum felst, vilja
þeir geta notað til að geta gengið
frá snilld sinni í útgerð með mikla
peninga í höndum eða til að fleyta
skuldasúpunni, sem þeir hafa safnað
á sig með sínum óráðsgerðum og
dyggri aðstoð hins opinbera, lána-
sjóða og -stofana.
Hitt er jafnvel enn óskiljanlegra,
að þeir stjórnmálamenn skuli vera
til, sem vilja sinna þessum óskum.
Vel mættu þeir hugsa andartak um
hagsmuni þess almennings, sem nú
og framvegis geldur þessa alls í kjör-
um sínum.
Ungir stjómmálamenn, sem enga
ábyrgð bera á þessari liðnu tíð verða
að gæta sín að leggja raunsætt mat
á það, sem fyrirrennarar þeirra hafa
misgert í þessum efnum og taka
afstöðu á nýjum og skynsamlegri
forsendum.
Höfundur er lögfræðingur og
forstjóri
Járnblendi verksmiðjunnar.
Kennarabraut • Macintosh
fíitvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi.
Sérsniöin ágústnámskeiö fyrir kennara!
7.-15. ágúst kl. 13-16 og 19.-28. ágúst kl. 13-16. ^ v
,*v
©
\
<*?
%
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fimm ár (forystu
\T
Til sölu
21 feta Mótunarplastbátur með Mercruiser 125 kW vél.
Upplýsingar í síma 686666. Blikk Og Stál.
Brottför6. september
2 dagar.
Frákr.
19.900
Einstakt tækifæri til að versla í Cork,
þessari heillandi stórborg á frlandi.
Hausttiskan komin og tiskuvörur
heimsborganna á ótrúlegu verði.
f IB flí M I fl S im 11
AUST1IRSTRÆT117 • SÍMI622200