Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 26
 MöiiGWMflíjiíy ÞÉibJÚb'Xó'u'á' i o‘.'sÖií'Í'Émber '1991 íslensk bankastarfsemi: Msskilningur að ekki ríki virk samkeppni - segir Valur Valsson formaður Sam- bands íslenskra viðskiptabanka VALUR Valsson, forraaður Sambands íslenskra viðskiptabanka vísar á bug þeim orðum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, að í skjóli þess að bankar hér á landi búi ekki við virka samkeppni geti þeir hækkað vexti á einum tíma til að bæta sér upp tap á öðrum. Valur segist þó vera sammála nauðsyn þess að bankarekstur hafi aðhald eins og ann- ar atvinnurekstur og því styðji hann fyrirætlanir um að opna íslenskan fjármagnsmarkað. „Ég hélt að auglýsingastríð banka og sparisjóða og ríkissjóðs og verð- bréfafyrirtækja um sparifé lands- manna hefði ekki farið framhjá nein- um. Það eru 40 bankar og sparisjóð- ar sem keppa um spariféð, bæði inn- byrðis og við aðra, fyrst og fremst ríkisvaldið sjálft," sagði Valur Vals- son þegar Morgunblaðið bar undir hann ummlæli Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra í bréfi til Seðlabank- ans, og sem birt var í Morgunblaðinu á sunnudag. Valur sagði að á síðustu árum hefði samkeppni um útlán einnig aukist til muna. Traust fyrirtæki og stofnanir leituðu nú tilboða í lán, og þar kepptu bankarnir m.a. við opin- bera fjárfestingarlánasjóði, verðbréf- amarkaði og erlenda banka, sem hefðu keppt við banka hér um margra ára skeið, þótt þeir hafi ekki útibú á íslandi. „Arangur af þeirri samkeppni má sjá á því að þriðjungur skulda Islend- inga er við erlenda banka. Því er það að mínu viti misskilningur að hér ríki ekki virk samkeppni, og hún er vissulega af hinu góða. Ég tek undir það með forsætisráðherra að nauð- synlegt sé að bankastarfsemi, eins og annar atvinnurekstrur, hafi nægi- legt aðhald af þessu, og ég styð það, að fjármagnsmarkaður verði opnaður eins og sendur til að gera 1993,“ sagði Valur. Bankar og sparisjóðir hækkuðu þeir allir samtímis í ágústbyijun vexti álíka mikið, á þeim forsendum að hærri verðbólga en áætlað var hefði valdið misræmi á vöxtum verð- tryggðra og óverðtryggðra lána, sem þurfti að bæta upp. Þegar Valur var spurður hvort trúverðugt væri að tala um samkeppni banka þegar þetta væri haft í huga, svaraði hann, að ekki væri óeðlilegt að menn brygð- ust eins við á sama tíma vegna þess að sömu menn hefðu fengið sömu upplýsingamar á sama tíma. „Þetta voru viðbrögð við því að Iánskjaravísitalan hækkaði meira en von var á. I útlöndum breytast vext- ir næstum samtímis hjá bönkum, og það er merki um mikla samkeppni þegar menn verða að aðlaga sig fljótt að verðlagi hvers tíma,“ sagði Valur. Hann sagði ennfremur, að sér þætti það tíðindum sæta, að forsætis- ráðherra segði í bréfí sínu, að nálg- ast eigi vaxtamálin hér á landi með svipuðum hætti og í nágrannalönd- unum. „Ég ætla að ráðherrann boði með þessu stefnubreytingu frá fyrr- verandi forsætisráðherra, og hafni handafli, en hvetji til markaðslegra aðgerða til að stýra vaxtaþróuninni því þannig er því háttað í nágranna- löndunum,“ sagði Valur. Hann sagðist að lokum sakna þess að í bréfi forsætisráðherra væri ekki fjallað um háa raunvexti og verð- tryggingu, sem hvorttveggja skapi mikinn vanda í vaxtamálum. Valur sagðist telja að lækkun raunvaxta væri óhjákvæmilega tengd því hversu vel tækist að draga úr eftir- spurn ríkisins eftir innlendu lánsfé. Þá væri sá verðtryggingarhalli, sem orðið hefði hjá bönkum og sparisjóð- um vegna misræmis í reglum um verðtryggingu, dæmi um vanhugsuð afskipti stjómmálamanna undanfar- inna ára af vaxtamálum, og sem hefði að vissu leyti sett vaxtamálin í sjálfheldu. Morgunbiaðið/Árni Sæberg Sýning á verkum Muggs Sýning á verkum Guðmundar Thorsteinssonar, Muggs, var opnuð í Listasafni íslands á laugardag. A sýningunni eru 93 verk, sem spanna feril lista- mannsins. Hann lést langt fyrir aldur fram, aðeins 33 ára, árið 1924. Meðal gesta við opnun sýningar- innar voru frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands og Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra. Þau sjást hér við opnunina ásamt Beru Nordal, forstöðu- manni Listasafnsins. Deilt um vinnubrögð á fram- kvæmdasljórnarfundi VMSI Framkvæmdastjórn Verkamannasambands íslands samþykkti ályktun á fundi sínum í Borgarnesi á sunnudag þar sem harðlega er mótmælt áformum'ríkisstjórnarinnar um auknar álögur og hækk- un á þjónustugjöldum ásamt því að niðurgreiðslur landbúnaðarvara verði lækkaðar. Segir að þessi áform torveldi gerð kjarasamninga á þeim grunni sem þjóðarsáttasamningamir vora gerðir á. Tillagan, sem flutt var af Birni Grétari Sveinssyni, formanni verkalýðsfélags- ins Jökuls á Höfn í Hornafirði í lok tveggja daga fundar framkvæmda- stjórnarinnar til undirbúnings þingi VMSÍ í næsta mánuði, var sam- þykkt með sex atkvæðum aðal- og varamanna, en fimm sátu hjá. Karl Steinar Guðnason, alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn og vara- formaður Verkamannasambands íslands, segir að tillagan sé af pólit- ískum rótum runnin og með þessum vinnubrögðum sé farið fjölda ára aftur í tímann. Björa Grétar Sveinsson segir að um verkalýðspó- litík sé að ræða en ekki flokkspólitík „Við vorum að ljúka tveggja daga fundi, þar sem ríkti mikil eining. Þegar ég er að slíta fundi er borin fram viðkvæm pólkitísk tillaga öllum að óvörum án þess að ráðgast við nokkurn mann. Við höfum haft það vinnulag í Verkamannasambandinu að bera okkur saman og hafa sam- vinnu í viðkvæmum málum og með þessum vinnubrögðum er farið fjölda ára aftur í tímann," sagði Karl Stein- ar í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist einnig vera í grund- vallaratriðum á þeirri skoðun að ef ekki tækist með spamaði og niður- Vaxtamál: Ekki tilefni til að beita handafli - segir Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri Birgir Isleifur Gunnarsson banka- stjóri Seðlabankans segir að ekki sé tilefni til að beita „handafli" eða lögum um Seðlabanka til að knýja banka til að lækka vexti. Hann segist heldur ekki skilja bréf Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra til Seðlabankans sem fyrirmæli um slíkt. í bréfi Davíðs Oddssonar segir að Seðlabankanum beri að beita þeim tækjum, sem hann hafi yfir að ráða, og fortölum til að veita bönkunum það aðhald sem þá skorti vegna ófull- kominna markaðsaðstæðna. í því efni sé ekki verið að mæla með bein- um fyrirmælum og tilskipunum. Birgir ísleifur Gunnarsson sagði við Morgunblaðið, að Seðlabankinn hefði átt í viðræðum við bank-ana eftir síðustu vaxtahækkun þeirra í ágústbyijun. Vonast væri til að þær leiddu til sameiginlegrar niðurstöðu um hvemig best væri að taka á því misvægi sem orðið hefði milli verð- tryggðra innlána og óverðtryggra útlána. Gert væri ráð fyrir að þau mál færu að skýrast undir miðjan mánuðinn. skurði að ná niður ríkissjóðshallan- um þá myndi það verða til þess að eyðileggja kjarasamninga vegna þess að vaxtastigið yrði svo hátt. Það væri alveg ljóst að þessi tillaga væri af pólitískum rótum runnin, enda hefði engum verið sýnd tillagan fyrirfram. „Ef þessi vinnubrögð eru það sem koma skal þá er friðurínn úti 1 Verkamannasambandinu," sagði Karl Steinar ennfremur. Bjöm Grétar SveinSson sagðist ekki hafa búist við að það yrðu deil- ur út af þessari ályktun út á við, þetta væri það sem þau hefðu verið að gera í framkvæmdastjórn VMSÍ undanfarin ár, ekki síst meðan síð- asta ríkisstjórn sat. Hann sagði að í fréttum í Ríkisútvarpinu á laugar- dag hefðu komið fram upplýsingar um auknar álögur, meðal annars 400 milljóna króna skerðingu á niður- greiðlum. Þeir hefðu fengið fréttina senda upp í Borgarnes og í fram- haldi af því hefði þessi ályktun orðið til. „Það er rétt að ég lagði fram tillöguna undir liðnum „Önnur mál“ sem er síðastur á dagskrá. Það var verið ijalla um ályktanir fyrir þingið og það má segja að ef til vill hefði maður átt að koma með þetta þar undir, en mitt mat var það að þetta ætti að koma undir liðnum „Onnur mál“ þar sem þetta var ekki á dag- skránni sem slíkt. Það má líka snúa dæminu við og spyija: Nú hlýtur til dæmis formaður fjárhagsnefndar alþingis að hafa haft þessar upplýs- ingar undir höndum. Við erum að undirbúa næstu kjarasamninga. Af hveiju er okkur ekki sagt frá þessu? Við heyrum þetta í fréttum, en í fréttinni segir að það hafi verið skýrt frá þessu inn á flokksstjómarfundf Alþýðuflokksins. Þá vil ég einnig taka það sérstaklega fram af því það er verið að tala um pólitískar ofsókn- ir, að atkvæðagreiðslan fór ekki eft- ir pólitískum Iínum,“ sagði Björn Grétar. Aðspurður hvort hann teldi ekki eðlilegt að hafa samvinnu um svona tillögur sagði hann að fréttin hefði legið frammi og oft hefði verið álykt- að af minna tilefni. „Við rekum verk- alýðspólitík þarna og höfum gert, það er ósköp einfalt mál. Ég bið menn að nefna dæmi um annað ef það er ekki rétt. Auðvitað skil ég að menn geta lent í erfiðum aðstæð- um þegar þeir eru til dæmis annars vegar formaður fjárhagsnefndar Al- þingis, sem er meðal annars lykil- maður í að koma svona tillögum í gegn, og hins vegar starfandi form- aður Verkamannasambandsins. Það hljóta að vera einhverjir hagsmunaá- rekstrar, en það er bara ekki mitt vandamál. Ég tel að þetta þurfi eng- an dilk að draga á eftir sér, einfald- lega vegna þess að það er ekkert nýtt að menn séu að takast á um skoðanir,“ sagði Bjöm Grétar. Ályktunin er svohljóðandi í heild: „Fundur framkvæmdastjórnar Verkamannasambandsins, haldinn í Borgarnesi 8. september, mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar sem fram komu í fréttatíma ríkisút- varpsins í gær, um auknar álögur og hækkun á þjónustugjöldum ásamt því að niðurgreiðslur Iandbún- aðarvara verði lækkaðar. Öll þessi áform munu gera samningsgerð erf- iðari og rýra möguleika til þess að hægt verði að gera kjarasamning sem byggi á þeim grurini sem síð- asti kjarasamningur lagði. Verka- mannasambandið varar við alvarleg- um afleiðingum þeirra áforma sem lýsa sér í hugmyndum ríkisstjómar- innar um næstu íjárlagagerð þar sem gjaldtaka á almenning er veru- lega aukin.“ Níu aðalmenn eiga sæti í fram- kvæmdastjóm VMSI auk sjö vara- manna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru ellefu mættir og greiddu eftirtaldir tillögunni at- kvæði auk Björns Grétars: Björn Snæbjörnsson, varaformaður Ein- ingar á Akureyri, Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar í Reykja- vík, Einar Karlsson, frá verkalýðsfé- lagi Stykkishólms, Guðríður Elías- dóttir, formaður verkakvennafélags- ins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, og Karítas Pálsdóttir, frá verkalýðsfé- laginu Baldri á Isafirði. Þeir sem sátu hjá voru auk Karls Steinars: Jón Karlsson, formaður verkamann- afélagsins Fram á Sauðarkrók, Ragna Bergmann, formaður verka- kvennafélagsins Framsóknar í Reykjavík, Snær Karlsson, formaður fiskvinnsludeildar VMSÍ _og starfs- maður þess og Guðrún Ólafsdóttir, varaformaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur. Tveir aðalmenn í framkvæmda- stjórn gátu ekki mætt á fundinn, þeir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar og VMSI, og Sigurður T. Sigurðsson, formaður verkamannafélagsins Hlífar í Hafn- arfirði. -------------- N orðurlandamót barnaskóla í skák: Islenska sveitin í fyrsta sæti SVEIT íslands sigraði á Norður- landamóti barnaskólasveita í skák, sem haldið var í Kaup- mannahöfn dagana 5.-8. septemb- er síðastliðinn. Fulltrúi íslands á mótinu var skáksveit Æfingaskóla K.H.Í., og hlaut hún 13‘Æ vinning af 20 mögulegum. í öðru sæti varð sænska sveitin með 12Vz vinning, og í þriðja sæti varð norska sveit- in með 12 vinninga. íslenska sveitin var skipuð þeim Arriari E. Gunnarssyni á 1. borði, sem hlaut 3'h vinning, Braga Þor- finnssyni á 2. borði, sem hlaut 4 vinn- inga, Birni Þorfinnssyni á 3. borði, sem hlaut 3 vinninga, og Frey Karls- syni á 4. borði, sem einnig hlaut 3 vinninga. Varamaður var Oddur Ingimarsson, en hann tefldi enga skák. Fararstjóri og fyrirliði var Ólaf- ur Guðmundsson, kennari við Æfingaskólann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.