Morgunblaðið - 10.09.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
27
Eldur logaði frá miðju skipi og
afturúr, stjórnborðsmegin, og í
íbúðum um borð í Bylgjunni.
líklegt að eldurinn hafi kviknað
út frá frystikistu sem var í stjórn-
borðsgangi skipsins. Ekkert hafði
verið unnið í skipinu frá því síðdeg-
is á föstudag en rafmagn var á
skipinu um landtengingu.
Geir Jón sagði að tjón á skipinu
væri mjög mikið. Allt í íbúðum
skipsins væri ónýtt. Tæki í brú
stórskemmd eða ónýt og sömuleið-
is klæðning á millidekki. Sagði
hann ljóst að tjónið næmi tugmillj-
ónum.
Matthías Óskarsson, útgerðar-
maður Bylgju VE, sagði í samtali
við Morgunblaðið að Bylgja hefði
farið í Skipalyftuna síðastliðinn
þriðjudag og ráðgert hefði verið
lCJt
Reykkafarar könnuðu vistarverur um leið og það var mögulegt
vegna elds og hita.
að skipið færi niður að nýju næsta
miðvikudag. „Það var verið að
setja asdik í bátinn og það var
aðal ástæðan fyrir því að við fórum
í slipp,“ sagði Matthías. Hann
sagði að tjónið á skipinu væri
mikið og ljóst að skipið yrði frá
veiðum að minnsta kosti í þijá til
íjóra mánuði.
Grímur
V estmannaeyjar;
Milljónatjón eftir
bruna í Bylgju VE
V estmannaeyj um.
MILLJÓNATJÓN varð í Bylgju
VE á sunnudagsmorgun er eld-
ur kom upp í skipinu þar sem
það stóð í Skipalyftunni í Eyj-
um. Allttiltækt lið slökkviliðsins
í Eyjum var kvatt út og tók
slökkvistarfið þrjá og hálfan
klukkutíma. Skipið er mikið
skemmt eftir brunann og er
talið að Ijónið skipti tugmilljón-
um.
Selfoss:
Brúarsýning-
in opintil 15.
september
Selfossi.
SÝNINGIN sem sett hefur
verið upp í Tryggvaskála
og gefur sögulegt yfirlit
yfir samgöngur, byggingu
Ólfusárbrúar og þróun þétt-
býlis á Selfossi verður opin
til 15. september.
Mikil aðsókn hefur verið að
sýningunni og vegna fjölda
áskorana hefur verið ákveðið
að framlengja hana. Hún verð-
ur opin klukkan 16-19 þessa
daga nema helgina 14. og 15.
september kl. 14-19.
Sig. Jóns.
Slökkviliðið var kvatt út um
klukkan ellefu. Þá lagði reyk frá
skipinu, þar sem það stóð uppi í
Skipalyftunni. Er slökkviliðið kom
á vettvang var mikill eldur, reykur
og hiti í skipinu. Að sögn Elíasar
Baldvinssonar, slökkviliðsstjóra,
voru allar aðstæður til slökkvi-
' starfs mjög erfiðar. „Aðkoman var
vægast sagt hryllileg,“ sagði hann.
Hann sagði að þeir hefðu reynt
nýja aðferð við slökkvistarfíð, sem
var reyklosun við yfirþrýsting og
gafst það vel og opnaði slökkviliðs-
mönnum leið að eldinum inni í
skipinu. Elías sagði að mestur eld-
ur hefði verið aftarlega í stjórn-
borðsgangi skipsins en annars
hefði verið eldur frá miðju skipi
og afturúr, stjómborðsmegin, og
í íbúðum skipsins.
Slökkviliðinu tókst að ráða nið-
urlögum eldsins um klukkan hálf
þijú en eftir það var staðin vakt
í skipinu fram eftir degi.
„Við fengum nýjan slökkvibíl í
vor og hann er aldeilis búinn að
sanna gildi sitt síðan hann kom.
Við höfum nú þurft að kljást við
tvo stóra skipsbruna á stuttum
tíma og ég veit ekki hvernig þetta
hefði farið hjá okkur ef nýja bíls-
ins hefði ekki notið við. í það
minnsta hefði örugglega gengið
erfiðlega að ráða niðurlögum elds-
ins í Bylgjunni ef við hefðum ekki
haft nýja bílinn," sagði Elías Bald-
vinsson, slökkviliðsstjóri.
Að sögn Geirs Jóns Þórissonar,
rannsóknarlögreglumanns, er talið
DJ OKMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
Umboðsmenn um land allt.
Örugg eldamennska meö Tefal óhöldum
Með Tefal álpotta ogpönnur ertu með óbrigðul áhöld í böndunum. Tefal hefur í dag
heimsforystu í framleiðslu FTPE-húðaðra eldunaráhalda. Einkenni þeirra er sterk
húð serti ekki flagnar en vamar því algerlega að matur festist við. Léttleiki og
jöfn hitadreifing gera eldun með Tefal mjög þægilega.
Tefal áhöldin hœfa öllum gerðum eldunartækja. Fáðu þérpotta
ogpönnur í úrvalsflokki, á einkar hagstœðu verði!