Morgunblaðið - 10.09.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
28
Azerbajdzhan:
Tugþúsundir
manna mótmæla
forsetakosningum
Baku. Reuter.
TUGÞUSUNDIR þjóðernissinna
efndu til mótmæla í Azerbajdz-
han í suðurhluta Sovétríkjanna á
sunnudag er efnt var til forseta-
kosninga í lýðveldinu. Aðeins
einn var í framboði, Ayaz Mut-
alibov, fyrrum kommúnistaleið-
Friðarráðstefna fyr-
ir Miðausturlönd:
Israelar hóta
að sitja heima
Jerúsalem, Washington. Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætisráð-
herra Israels, sagði í gær að Isra-
elar tækju ekki þátt í friðarráð-
stefnu fyrir Miðausturlönd ef
fulltrúar Palestínumanna á ráð-
stefnunni uppfylltu ekki skilyrði
sem þeir settu.
Með þessu eru ísraelar taldir vilja
gera minna úr ágreiningi vegna
fjármálaábyrgða sem George Bush
Bandaríkjaforseti vill fresta að sam-
þykkja til þess að spilla ekki mögu-
leikum á að ráðstefna verði haldin.
Deilan um fulltrúa Palestínu-
manna hefur verið helsta hindrun
í vegi friðarráðstefnu sem stefnt
hefur verið að í október. ísraelar
hafa þar til í gær forðast að segja
hver viðbrögð þeirra yrðu líkaði
þeim ekki skipan sendisveitar Pa-
lestínumanna. Þeir vilja hvorki að
Plestínumenn frá austurhluta Jerú-
salem verði í sveitinni né menn sem
tengjast Frelsissamtökum Palestín-
umanna (PLO).
togi, sem hefur verið sakaður um
að hafa stutt misheppnað valda-
rán sovéskra harðlínukommún-
ista í ágúst. Helsti andstæðingur
hans, jafnaðarmaðurinn Zard-
usht Ali-Zade, hafði dregið fram-
boð sitt til baka og hvatt til þess
að kosningunum yrði frestað.
Efnt var til fjöldafundar í mið-
borg Baku, höfuðborgar Azerbajdz-
hans, þar sem leiðtogar Þjóðfylk-
ingarinnar, hreyfingar azerskra
þjóðernissinna, gagnrýndu Mut-
alibov og hvöttu Azera til að snið-
ganga forsetakosningamar. „Þetta
eru ólýðræðislegar kosningar,“
sagði einn þeirra, Ebulfez Elcibey.
„Við verðum að fá eftirlitsmenn frá
lýðræðislegum ríkjum. Við þurfum
að kjósa nýtt þing. Fyrr getum við
ekki efnt til lýðræðislegra forseta-
kosninga.“
Mótmælendurnir minntust einnig
200 manna, sem biðu bana í götu-
bardögum í Baku í janúar í fyrra.
Sovéskir skriðdrekar réðust þá inn
í borgina til að koma á lögum og
reglu eftir átök milli Azera og Arm-
ena.
Embættismenn sögðu á sunnu-
dag að 78,7% kjósenda hefðu neytt
atkvæðisréttar síns. Leiðtogar þjóð-
ernissinna höfðu sagt fyrir kosning-
arnar að stjórn lýðveldisins myndi
falsa úrslitin og spáð því að aðeins
15% myndu greiða atkvæði.
Þing Azerbajdzhans lýsti yfir
sjálfstæði lýðveldisins skömmu eftir
misheppnað valdarán harðlínu-
kommúnista í ágúst. Azersk stjórn-
völd taka nú þátt í viðræðum að
minnsta kosti tíu sovétlýðvelda um
stofnun nýs, laustengds sambands
fullvalda ríkja.
FAA vill að hönnun
knývenda verði breytt
Fyrirskipar skoðun á hreyflum Boeing-757
Seattle. Reuter.
BANDARÍSKA flugmálastjórnin
(FAA) fór þess á leit við helstu
flugvélaframleiðendur heims um
helgina að þeir tækju hönnun
knývenda á þotum sínum til end-
urskoðunar. Er þetta gert í fram-
haldi af rannsókn á hreyflum
Boeing-767 þotunnar sem fórst á
flugi yfir Tælandi 26. maí sl.
Tilmælum FAA er einkum beint
til þriggja stærstu framleiðenda
farþegaflugvéla, bandarísku verk-
smiðjanna Boeing og McDonnell
Douglas og frönsku verksmiðjanna
Airbus.
Heimildir herma að sérfræðingar
FAA hafí nokkrar áhyggjur af kný-
vendum tveggja hreyfla þotna á
borð við Boeing 757 og 767, Airbus
A300, A310, A320 og A330 og
McDonnell Douglas MD-11. Komið
hefði í ljós við hreyfiltilraunir í vind-
göngum að þotur á borð við Boeing-
767 gætu snarsnúist og oltið ef
knývendar kæmu skyndilega á
hreyfil sem beitt væri af fullu afli.
Fullsannað þykir að annar hreyf-
ill þotu Lauda-flugfélagsins, sem
fórst á flugi yfir Tælandi, hafi
skyndilega knývent er þotan var
að klifra í um 24.000 feta hæð
skömmu eftir flugtak frá flugvellin-
um í Bangkok.
Auk þessa fyrirskipaði FAA
skoðun á knývendum flugvéla af
gerðinni Boeing-757, sem knúnar
eru Pratt & Whitney PW2000-
hreyflum. Fengu flugfélög fyrir-
mæli um að ljúka skoðun þessari í
dag og gær, en hún var fólgin í
því að ganga úr skugga um rafteng-
ingar og að skipta um þéttingar í
hluta knývendibúnaðarins.
Flugslysið yfir Tælandi:
Staðfest að
knývendir
olli slysinu
Bangkok. Reuter.
SUTHEP Theparak, flugmar-
skálkur, formaður nefndar sem
rannsakaði orsakir þess að þota
austurríska flugfélagsins Lauda
Air fórst með 223 mönnum yfir
Tælandi 26. maí sl., staðfesti í
gær, að bilun í knývendi annars
hreyfils þotunnar hefði ráðið
örlögum flugvélarinnar.
„Við getum staðfest að knývend-
ir orsakaði óhappið," sagði Thepar-
ak. Hann sagðist ekki vilja útskýra
nánar hvað gerst hefði og sagði að
formleg yfirlýsing um orsök slyssins
yrði gefin út í Bandaríkjunum 18.
september, eftir viðræður við full-
trúa þarlendrar stofnunar (NTSB)
sem rannsakar og fjallar um slys
við farþegaflutninga.
Komið hefur fram í fréttum að
vísbendingar fundust fljótlega eftir
slysið er bentu til þess að annar
hreyfill þotunnar hefði skyndilega
knývent 15 mínútum eftir flugtak
er þotan klifraði undir fullu afli í
24.000 hæð.
Liðsmenn Inkatha mótmæla í sjálfstjórnarhéraðinu Thokoza á sunnudag. Þeir bera hefðbundin vopn
blökkumanna.
%
Blökkumannahreyfingar í Suður-Afríku:
Friðarsáttmáli í sjónmáli
þrátt fyrir mannskæð átök
Jóhannesarborg. Reuter.
LEIÐTOGAR tveggja stærstu blökkumannahreyfinganna í Suður-Afr-
íku, Nelson Mandela, sem leiðir Afríska þjóðarráðið, og Mangosuthu
Buthelezi, leiðtogi Inkatha-frelsisflokks Zúlúmanna, lýstu í gær yfir
að þeir væru staðráðnir í að skrifa undir friðarsáttmála til að binda
enda á átök á milli liðsmanna hreyfinganna. Þeir gáfu þessar yfirlýsing-
ar þrátt fyrir að átök í sjálfstjórnarhéruðum blökkumanna hefðu bloss-
að upp um helgina og a.m.k. 57 menn fallið.
Þrír menn vopnaðir AK-47 rifflum
gerðu 300 félögum í Inkatha fyrirsát
á sunnudag og drápu 24 þeirra.
Varð þetta til að hleypa af stað
hatrömmum átökum í sjálfstjómar-
héruðunum, með þeim afleiðingum
að alls 57 manns létu lífið og fjöl-
margir særðust. Þetta gerðist aðeins
sex dögum áður en skrifa átti undir
friðarsáttmálann, en yflr 2.000
manns hafa látið lífíð í átökum blökk-
umanna á síðastliðnum tólf mánuð-
um.
Stjórnvöld hvöttu til þess að ró
kæmist á og veittu lögreglunni leit-
ar- og handtökuheimildir í sjálf-
stjómarhéruðunum Thokoza, Voslor-
us, Katlehong og Tembisa, og veitti
henni einnig aukið valdsvið í Soweto,
fjölmennasta héraðinu.
Buthelezi sagði í sjónvarpsviðtali
að hann myndi mæta á friðarráð-
stefnuna um næstu helgi og skrifa
undir sáttmálann. „Eg vil beina því
til félaga okkar að þeir ættu ekki
að flnna til vanmáttar eða hræðslu
vegna þess sem gerst hefur,“ sagði
hann. „Við munum ekki hvika frá
markmiðum okkar, hvað sem öllum
skothríðum úr AK-74 rifflum líður.“
Mandela sagði á fréttamannafundi
að Afríska þjóðarráðið myndi einnig
skrifa undir sáttmálann. Hann sagði
að árásin á Inkatha-félagana væri
greinilega tilraun til að koma í veg
fyrir að skrifað yrði undir friðarsátt-
mála.
Þrír hvítir hægrisinnaðir öfga-
menn hættu í gær átta vikna hungur-
verkfalli og sögðu að þeim hefði
mistekist að telja forseta Suður-Afr-
íku, F.W. de Klerk, á að fella niður
ákærur á hendur þeim.
Mennimir hófu hungurverkfallið í
júlí og kröfðust þess að verða veitt
sakaruppgjöf líkt og 1.100 félögum
Afríska þjóðarráðsins. De Klerk kvað
uppúr með það í síðustu viku að
mennirnir væru ekki pólitískir fangar
og að réttað yrði í máli þeirra, en
þeir era ákærðir fyrir morð og morðt-
ilraun.
Mennimir þrír eru félagar í öfgasam-
tökum hvítra, Orde Boerevolk (Sam-
tökum Búaþjóðarinnar).
ixsvE/r
Langar þin
aú starfa í
hjálgaisveit?
Hjálparsveit skáta í Garðabæ býður
þeim, sem áhuga hafa á hjálparsveit-
arstarfi, á kynningarfund í húsnæði
sveitarinnar við Bæjarbraut fimmtu-
daginn 12. september nk. kl. 20.00.
Við leitum að fólki frá 17 ára aldri,
sem áhuga hefur á björgunarstörfum,
námskeiðum og ferðalögum tengdum
þeim. Á fundinum munum við kynna
störf okkar í máli og myndum.
Láttu sjá þig!