Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991----- 49 Helgi Hróbjartsson Samband ís- lenskra kristni- boðsfélaga: Tíu daga sam- komuherferð HELGI Hróbjartsson kristniboði verður aðalræðumaður í sam- komuherferð sem Samband ís- lenskra kristniboðsfélaga stend- ur fyrir í Reykjavík 11. til 22. september. Samkomurnar fara fram í Kristniboðssalnum á Háa- leitisbraut 58-60. SÍK hefur áður staðið fyrir slikum herferðum og oft í samstarfi við KFUM og KFUK og Kristilega skólahreyf- ingu. „Tilgangur þessarar herferðar er að boða fagnaðarerindið um Jesúm Krist og um leið að kynna kristni- boðið. Það má eiginlega segja að Kristur verði aðalatriðið og aðalum- ræðuefnið á samkomunum," segir Helgi Hróbjartsson í viðtali við Morgunblaðið. Helgi hefur síðustu fjögur árin starfað að kristniboði meðal múhameðstrúarmannaí Afr- íkuríkinu Senegal. í sumar dvaldi hann nokkrar vikur í Noregi þar sem hann var aðalræðumaður í sams konar samk'omuherferðum. „í Noregi eru þessar samkomur kannski skipulagðar í viku en síðan hefur oft komið fyrir að þær eru framlengdar. Fólk sýnir þeim áhuga og bæði kristniboðsvinir og aðrir sem vilja kynnast kristnidómnum vilja að þeim sé haldið áfram. Stundum hefur komið fyrir að við höfum haldið þeim áfram í nokkrar vikur, jafnvel allt að fimm vikum. Það var bara ekki hægt að hætta!“ segir Helgi Hróbjartsson. „Og það merkilega er að það er eins og þetta einfalda form, predikun og almenn- ur söngur, sé það sem best höfðar til fólks, hvort sem það er ungt eða gamatt." Sem fyrr segir héfst samkomu- röðin miðvikudaginn 11. september og stendur til sunnudagskvöldsins 22. september. Helgi Hróbjartsson talar á fyrstu samkomunum en aðr- ir ræðumenn verða Ragnar Gunn- arsson kristniboði sem nýkominn er í leyfi frá starfi sínu í Kenýu og Skúli Svavarsson sem er formaður SÍK. Landsbyggð hf„ Ármðla 5. Viðskiptaleg fyrirgreiðsla og ráðgjöf fyrir fólk og fyrirtæki á landsbyggð- inni og í Reykjavík. Sími 91-677585. Fax; 91-677586. Pósthólf: 8285,128 Reykjavík. FAXAFENI 14, NÚTÍÐ, 108 REYKJAVÍK, SÍMAR 687480, 687580 & OG 37878 Kennslustaðir: Grafarvogur - Seltjarnarnes - Faxafen 14 (2 salir) Síðasta innritunarvika Innritun daglega frá kl. 10-19 Kennsla hefst á laugardag Okkar dansar eru spennandi Það sem við kennum í vetur: Barnadansar gamlirog nýireru undirstaða fyrir allan samkvæmisdans. Söngdansarog leikirfyrir jóla- ballið og öll hin böllin. Splunkunýir dansar. Gömlu dansarnir Við verðum áfram með gömlu dansana, ræl, polka, vínarkrus, skottís o.fl. Þar dönsum við líka „partý“dansa og gamla, enska og danska dansa, sem við kenn- um. Þar er grúnnurinn lagður að 10 dönsunum íheimskerfinu. Fyrir börn, unglinga og fullorðna. Þar geta pörin, hjónin og vinirnir komið saman og átt skemmti- lega kvöldstund í góðra vina hópi. Við öðlumst öryggi á dans- gólfinu og dönsum eftir nýjum og gömlum lögum. Allt það nýj- asta fyrir keppnisdansara. Frá- bærir gestakennarar koma í heimsókn ívetur. Merkjapróf verða í vetur. fyrir alla stráka og stelpur, unga og gamla. Nýir dansar, ný lög. Mikiðfjör. Við Utvegum steppplötur. Suður- amerískir dansar og Boogie Woogie, mambó og margirfleiri uppáhaldsdansar margra. Skemmtileg lög og svo eru sérhópar fyrir 10-12 ára og 13-16 ára. Rock’n Roll er alltaf einn af tískudönsunum. Mörg ný spor og samsetningar lærðum við í sumar í Danmörku af Kitty og Per Henckell og þýsku meisturunum Jens Kressler og konu hans. Lykilorðið þar er FRAM og á uppleið. Það verður spenn- andi fyrir alla aldurshópa, börn 8-9 ára, 10-12 ára, 13-16 ára og 17 ára og eldri. Jazzleikskólinn Þau voru fyrst í jazzleikskólanum. Jazzleikskólinn er sérgrein okk- ar. Þarfæreinstaklingurinn, börn 3ja-6 ára, að njóta sín óþvingaður á dansgólfinu. Það hefur sýnt sig og sannað að börn fá góða undirstöðu í tónlist og fyrir allan dans til áframhald- andi náms. Spennandi leikdansar. Munið jazzleikskólann okkar. Varist eftirlíkingar. Hlp-Hif, SUeetðans, Discoiazz, Freestyle fyriralla, sem vilja hreyfa sig eftir nýj- ustu lögunum. Sérhópur jazzdans fyrir 7-9 ára. Sérhóparfyrir 10-12 ára og13-16 ára. 3 pör úr Danskóla Hermanns Ragnars á verðlaunapalli. Félagasamtök og starfsmannahópar verða að hafa samband við okkur sem fyrst. Einkatímar eftir samkomulagi. Foreldrar: Gefið barninu ykkar bestu fáanlegu undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í öllum dansi og tónlistarnám. Raðgreiðslur ( dansinum er lífsgleði og þar er holl og góð hreyfing. og annað. / danstímunum ert þú I góðum félagsskap. Kennsla hefst laugardaginn 14. september 1991. Góður skóli þar sem er góður agi og reglusemi. Dansinn eródýrt tómstundagaman fyriralla fjölskylduna. w Faglærðir danskennarar. Nýtt húsnæði, sem liggur vel við íbúðarhverfum borgarinnar. Tveir kennslusalir. Næg bílastæði. Grensásstöð SVR er stutt frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.