Morgunblaðið - 10.09.1991, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
Þrekraun þó að við hefð-
uni forystu allan tímann
— sagði Finninn Hasse Kallström, annar signrvegari alþjóðarallsins
„ÞETTA var þrekraun þó að við værum í forystu allan tímann, keppn-
in var erfið en skemmtileg. Þegar við lukum síðustu sérleiðinni við
Þingvelli, þá klökknaði ég og táraðist af gleði. Það var mikil sæla
að vinna þessa keppni,“ sagði Hasse Kallström aðstoðarökumaður
Saku Viierima, en saman unnu þeir alþjóðarall Kumho um fielgina.
Hasse var í sinni fyrstu rallkeppni og vann í þessari frumraun í
rallbíl, en Viierima sýndi yfirvegun eftir að hann náði öruggu for-
skoti á Lancia Delta Integrale og varð tólf mínútum á undan næsta
bíl í mark. Það var Ford Escart Páls Harðarsonar og Witeks Bog-
danski, sem skaust framúr Finnunum Peter Geitel og Kaj Hakkinen
á Mazda 323 44, en þeir unnu flokk óbreyttra bíla.
dags. Eftir þetta áttu þeir sér ekki
viðreisnar von og sprengdu þeir níu
sinnum í keppninni, á dekkjum sem
þeir voru að prófa í fyrsta skipti.
Eftir tvo fyrstu dagana virtist
því allt stefna í það að Finnarnir
yrði í tveimur fyrstu sætunum, en
á Kaldadal sprengdi Peter Geitel
og skekkti síðan afturfjöðrunina,
þannig að hann tapaði miklum tíma.
Hann lenti einnig í vandræðum með
bremsukerfið eftir þetta og varð
að slaka á undir lokin, sem varð til
þess að Páll og Witek skutust fram-
úr á síðustu sérleiðinni, en þeir
höfðu ekið af öryggi og festu alla
keppnina.
„Ég naut margra sérleiða vel, en
það verður að fella grófustu leiðirn-
ar út fyrir Norðurlandamótið á
næsta ári. Ég kem aftur að ári, lík-
lega á nýjum keppnisbíl, sem ég
er að vonast eftir,“ sagði sigui’veg-
arinn Saku Viierima í samtali við
Morgunblaðið.
„Margir íslensku ökumannanna
virtust fljótir, en til að ná árangri
á alþjóðamælikvarða verða þeir að
eignast öflugri keppnisbíla og kynn-
ast vegum annars staðar. Þeir verða
að bera sig saman á fleiri stöðum
en á íslandi, til að sjá hvernig þeir
standa gagnvart erlendum öku-
mönnum. Það er ekki nóg að aka
hratt á sömu vegum í tíu ár, það
er ekki raunhæfur mælikvarði á
getu manna, vilji þeir bera sig sam-
an við þá fljótustu erlendis, eins og
virðist ríkt í þeim í dag,“ sagði
Saku.
Lokastaðan í Kumho rallinu:
Refs./mín.
1. Saku Viierima/Hasse
Kallström, Lancia Deita 44 260.11
2. Páll Harðarson/ Witek
Bogdanski, Ford Escort 272.05
3. Peter Geitel/ Kaj
Hakkinen, Mazda 323 44 272.40
4. Birgir Vagnsson/ Halldór
Gíslason, Chevette 274.01
5. Sigurður B. Guðmundsson/
Rögnvaldur Pálmason, Ford 286.54
6. Tómas H. Jóhannesson/ Elías
Jóhannesson, Mazda 323 44 293.42
Sigurvegarar í gengi N, Peter
Geitel/Hasse Kallström, gengi X
Páll Harðarson/Witek Bogdanski,
gengi A Saku Viierima/Hasse
Kallström. Flokkasigurvegarar,
Óskar Ólafsson/Jóhannes Jóhann-
esson Lada, Alasdair Smith/Ari
Arnórsson VW Golf, Aðalsteinn Þ.
Jónsson/Elvar Magnússon Toyota,
Hermann Þorláksson/Þórsteinn Jó-
hannsson, Birgir Vagnsson/Halldór
Gíslason, Páll Harðarson/Witek
Bogdanski.
■ MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá Sambandi
ungra framsóknarmanna: „Þjóð-
málanefnd Sambands ungra fram-
sóknarmanna dáist að dugnaði og
frumleika ráðherra Alþýðuflokks
við leit að nýjum skattstofnun. Þjóð-
málanefndin telur að fyrst ráðherr-
arnir séu komnir niður á aðferð til
að skattleggja dýrastofna á Islandi
beri að snúa sér að fijósamari stofn-
um en hrossastofninum. Þjóðmála-
nefnd SUF vill vekja athygli ráð-
herra Alþýðuflokksins á skattlagn-
ingu á hamstra, ketti, kanínur.
Verði býflugnarækt í framtíðinni
stunduð að einhveiju marki á ís-
landi má gera ráð fyrir að ráðsnilld
Alþýðuflokksins hafi bjargað ríkis-
sjóði í eitt skipti fyir öll.“
NYJASTA ENSKA ORÐABOKIN
1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg.
Kynningarverð
kr. 1.600.
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
< • |> t ( Ul m* * l* *111'11 ‘ V* P ‘ ‘ li. I 1,; I ->, I p\', I|-.I O.'I i
Aldrei hafa fleiri lokið alþjóða-
rallinu, sem nú var haldið í tólfta
skipti, 29 keppendur lögðu af stað,
en 18 þeirra komust á leiðarenda.
Finnarnir höfðu strax nokkra yfir-
burði í keppninni, en tvær íslenskar
áhafnir áttu hvað mesta möguleika
á að veita þeim verulega keppni.
Steingrímur Ingason og Guðmund-
ur B. Steinþórsson á Nissan 240RS
voru í öðru sæti eftir fyrsta dag
af þremur, en drifbúnaðurinn í bíln-
um bilaði fljótlega á öðrum degi og
þeir urðu að hætta keppni. íslands-
meistararnir Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson á Mazda 323 44 áttu
ekki sjö dagana sæla. Fyrst töpuðu
þeir miklum tíma vegna bilaðrar
bensíndælu og voru í síðasta sæti,
síðan sprakk hjá þeim og felgubolti
forskrúfaðist, þannig að þeir gátu
ekki skipt um dekk. Urðu þeir að
aka tugi kílómetra á felgunni, sem
var orðinn jafnlítil og súpudiskur
þegar þeir komu í endamark fyrsta
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kampakátir Finnar fagna sigri fyrir utan Hjólbarðaböllina sem
styrkti keppni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur. Hasse Kallström
var í sinni fyrstu rallkeppni og keppnin var því mikil upplifun fyrir
hann, við hliðina á einum besta ökumanni Finnlands.
0*
NÍeV& ^
á
BU^TArELL
Bíldshöfða 14,112 Reykjavík,
símar 91 -672545/676840.