Morgunblaðið - 19.09.1991, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1991
Bijótast útlendingar inn í
sjávarútveginn með dómi?
eftir Hjörleif
Guttormsson
Eftir að Evrópudómstóllinn kvað
upp sinn dóm gegn Bretum 25. júlí
1991, þar sem dæmd voru ómerk
bresk lög sem takmarka áttu skrán-
ingu erlendra fiskiskipa og aðgang
þeirra að veiðum í breskri lögsögu
(„kvótahopp"), fjölgar vísbendingum
um að með samningi um Evrópskt
efnahagssvæði (EES) væru EFTA-
ríkin að kalla hið sama yfir sig.
Þannig yrðu íslensk lög, sem tryggja
ættu okkur gegn fjárfestingum út-
lendinga í fiskveiðum og vinnslu
sjávarafla, lítils virði.
Þremur norskum lagaprófessor-
um, sem hafa tjáð sig um þetta efni
opinberlega á síðustu mánuðum, ber
saman um að þessi hætta sé yfirvof-
andi. Um er að ræða lögfræðingana
Torstein Eckhof, Karl August
Fleischer og Peter 0rebech. Sá síð-
asttaldi komst raunar að þessari nið-
urstöðu í álitsgerð, sem hann sendi
frá sér í júní sl., meira en mánuði
áður en EB-dómurinn féll gegn Bret-
um. Röksemdir þeirra eru m.a. þær,
að ákvæði „fjórfrelsisins", sem eru
kjarninn í EES-samningnum, nái
einnig inn á svið sjávarútvegsins að
því er varðar fjárfestingar og rétt
tii stofnunar fyrirtækja. Þetta gildi
ekki síst eftir að veiðirétturinn sé
orðinn framseljanlegur í formi kvóta,
sem gangi kaupum og sölum á mark-
aði.
Enginn fyrirvari enn
í EES-samningi
Það er álit margra í Noregi, að
hið eina sem geti komið í veg fyrir
að norskur sjávarútvegur verði opn-
aður upp á gátt fyrir útlendingum,
sé ótvírætt ákvæði í sjálfum EES-
samningstextanum sem taki af öll
tvímæli og útiloki dómsniðurstöðu á
borð við þá sem féll 25. júlí sl. Þessu
er hins vegar ekki til að dreifa enn
sem komið er og ekki vitað um kröf-
ur í þá átt að undanförnu af hálfu
þeirra sem með samninga fara fyrir
íslands hönd.
Að því er Island varðar virðist sem
„Það verður að teljast
útilokað að íslendingar
taki þá áhættu að fá á
sig dóm af því tagi sem
Bretar máttu þola af
hálfu EB-dómstólsins
fyrr í sumar. Því hljóta
menn að spyrja, hvern-
ig íslensk stjórnvöld
ætla sér að halda á
þessum þætti í EES-við-
ræðunum á næstunni.“
utanríkisráðherra telji, að unnt sé
að veija sjávarútvegssviðið, veiðar
og vinnslu, með íslenskri löggjöf svo
og með vísan til þess, að sjávar-
útvegsmál séu ekki hluti af „fjór-
frelsinu". Þessi málsmeðferð er afar
varhugaverð út frá íslenskum hags-
munum, ekki síst eftir það sem nú
Handsaumaðir Timberland skór,
jafnþægilegir í óbyggðum sem
á teppinu heima. Og þeir
batna með aldrinum.
Öll förum við okkar eigin leiðir.
Sumar leiðir liggja upp metorðastigann
í viðskiptalífinu, aðrar út í óbyggðir. En
hvert sem þínar leiðir kunna að liggja
þá lærist þér fljótt aö meta vandaða
skó úr völdu leðri, handsaumaða
Timberland skó sem láta vatn og veður
ekkert á sig fá og skeyta álíka mikið um
stokka og steina, hraún og harðfenni
og fjallageit.
Leðurskór sem eru handsaumaðir til
að endast ár eftir ár í öllum veðrum en
jafnþægilegir og jafnfallegir og þeir
voru þegar þeir komu upp úr
kassanum. Þessa getur þú vænst af
sígildu handsaumuðu Timberland
skónum okkar - jafnvel þótt leiðir þínar
liggi aðeins um teppalagða sali.
Timberland, því vegleysurnar eru
víðar en í óbyggðum.
Handsaumaðir, lágir,háir,,
vatnsþolnir, Gori tex, standast tímans
tönn.
HANZ
K R
N G L U N N I
liggur fyrir. Það verður að teljast
útilokað að íslendingar taki þá
áhættu að fá á sig dóm af því tagi
sem Bretar 'máttu þola af hálfu
EB-dómstólsins fyrr í sumar. Því
hljóta menn að spyija, hvernig ís-
lensk stjómvöld ætla sér að halda á
þessum þætti í EES-viðræðunum á
næstunni.
Margir hafa eflaust haldið, að
Islendingar stæðu ekki frammi fyrir
slíku vegna samninga um Evrópskt
efnahagssvæði. Það væri fyrst með
umsókn um aðild að Evrópubanda-
laginu að við stæðum frammi fyrir
slíkum spurningum. Því er hins veg-
ar ekki að heilsa. Með EES-samn-
ingi værum við að gangast undir lög
og reglur EB á fjölmörgum sviðum,
og fallið hefur verið frá kröfu um
varanlega fyrirvara.
Viðvaranir Stefáns Más
Stefánssonar
I viðtali í Morgunblaðinu nýlega
(11. sept.) fjallaði Stefán Már Stef-
ánsson lagaprófessor um lagakerfi
Evrópubandalagsins og fiskveiði-
hagsmuni íslendinga. Eftir Stefán
kom fyrr á þessu ári út ítarlegt rit
um réttarreglur og stofnanir Evr-
ópubandalagsins (Evrópuréttur. Ið-
unn 1991). I viðtalinu ræðir prófess-
or Stefán um niðurstöðu EB-dóms-
ins, sem féll Bretum í óhag 25. júlí
sl. og eru ummæli hans mjög athygl-
isverð. Hann segir m.a.:
„Það eru einkum tvö atriði sem
leiða má af niðurstöðu EB-dómstóls-
ins. í fyrsta lagi að meginreglan um
stofnsetningarréttinn sem m.a. felur
í sér bann við mismunun vegna þjóð-
ernis og væntanlega einnig svipaðar
meginreglur um hina frelsisþættina
gilda einnig í sjávarútvegi. I öðru
lagi að áskilnaður í landslögum um
ríkisborgararétt eða búsetu sem skil-
yrði fyrir skráningu skipa er al-
mennt andstæður EB-rétti því að
slíkar reglur bijóta í bága við bann
við mismunun sem þar er áskilið."
Stefán leggur áherslu á að dómstóll
EB hafi talið að ákvæði I samningum
þurfi að vera alveg ótvíræð ef þau
eigi að geta vikið ákvæðum Rómar-
samningsins til hliðar. Þótt hann
fjalli í grein sini fyrst og fremst um
Hjörleifur Guttormsson
stöðuna á sjávarútvegssviði ef til
samninga kæmi af íslands hálfu um
aðild að Evrópubandalaginu er ljóst
að ályktunarorð hans eiga einnig við
um EES-samning, nema sérstakur
fyrirvari kveði á um annað. Ástæða
er til að minna á, að kjarninn í við-
ræðum um EES er að lögfesta „fjór-
frelsið" svonefnda hér á landi.
Utanríkismálanefnd kanni
málið
Fyrir nokkru kom ég á framfæri
við utanríkismálanefnd Alþingis
dómsorði EB-dómstólsins frá 25.
júlí ásamt álitsgerðum norskra lög-
fræðinga, sem áður er getið. Þess
er að vænta að nefndin taki þessi
mál til rækilegrar athugunar með
það í huga að ráðleggja utanríkisráð-
herra og samningamönnum hans um
æskilega málsmeðferð.
Hér er um' slíkt alvörumál að
ræða, að Alþingi má ekki spara fé
eða fyrirhöfn til að leggja mat á
stöðuna og í því sambandi að Ieita
eftir bestu sérfræðiaðstoð sem völ
er á. Því miður hefur ekki verið
vandað til undirbúnings á fyrri stig-
um samningaviðræðnanna um Evr-
ópskt efnahagssvæði og margt hefur
farið öðru vísi en skyldi af þeim
sökum. Á þessu verður að ráða bót,
þótt seint sé. Viðvaranir norskra og
íslenskra sérfræðinga, sem hér hefur
verið yísað til, ber að taka alvar-
lega. í því efni hafa utanríkismála-
nefnd og Alþingi verk að vinna.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Alþýðubandalagið í
A usturlandskjördæmi.
Fimleikadeild Fylkis
Innritun í dag, fimmtudaginn 19. sept.,
kl. 18.30-20.00 í leikfimihúsi Árbæjar-
skóla og í síma 685850.
Æfingar hefjast laugardaginn 21. september.
HOFUM OPNAÐ
0?ontt-'7fý
VERSLUN í
HESTHÁLSi 2-4, SÍMI 672110.
Úrval af
kertastjökum, borðum,
blómasúlum,
kertum o.fl.
Sjón er sögu ríkari.